Ferill 155. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 437  —  155. mál.

2. umræða.


Nefndarálit


um frumvarp til laga um breytingu á lögum um almannatryggingar, nr. 100/2007 (launavísitala).

Frá meiri hluta velferðarnefndar.


    Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund gesti frá félags- og húsnæðismálaráðuneyti, Landssambandi eldri borgara, ÖBÍ réttindasamtökum, Viðskiptaráði Íslands, Samtökum atvinnulífsins, Alþýðusambandi Íslands, Landssamtökunum Þroskahjálp og fjármála- og efnahagsráðuneyti.
    Nefndinni bárust átta umsagnir auk minnisblaða frá félags- og húsnæðismálaráðuneyti og frá fjármála- og efnahagsráðuneyti og eru gögnin aðgengileg undir málinu á vef Alþingis. Skylt frumvarp var áður lagt fram á 156. löggjafarþingi ( þskj. 291, 259. mál). Hafði nefndin hliðsjón af umsögnum sem bárust þá og minnisblaði fjármála- og efnahagsráðuneytis.
    Með frumvarpi þessu er lögð til breyting á lögum um almannatryggingar, nr. 100/2007. Markmið breytingarinnar er að styrkja stöðu þeirra sem fá greiðslur úr almannatryggingum með því að tryggja að lífeyrisgreiðslur fylgi þróun launavísitölu í stað þess að taka mið af launaþróun, líkt og gildandi lög gera ráð fyrir, sem í einhverjum tilvikum kann að hafa leitt til lakari kjara fyrir þessa hópa en ef miðað hefði verið við launavísitölu. Þannig þyki dregið úr hættu á að greiðslur almannatrygginga dragist aftur úr í samanburði við almenna þróun lífskjara.

Umfjöllun nefndarinnar.
    Skylt frumvarp var lagt fram á 156. löggjafarþingi og afgreitt frá velferðarnefnd með áliti meiri hluta nefndarinnar til 2. umræðu hinn 12. júní 2025 ( þskj. 705, 259. mál) en málið hlaut ekki afgreiðslu. Líkt og fram kemur í greinargerð með frumvarpinu er tillagan sem slík endurflutt óbreytt, en nú í sérstöku frumvarpi. Til viðbótar við þá umfjöllun sem málið hefur nú fengið vísar meiri hlutinn til fyrri umfjöllunar sinnar um málið og áherslna sem fram koma í áðurnefndu áliti, einkum umfjöllun í kafla um að árleg ákvörðun um breytingu á greiðslum almannatrygginga taki mið af launavísitölu.

    Að framangreindu virtu leggur meiri hlutinn til að frumvarpið verði samþykkt óbreytt.

    Grímur Grímsson, Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir og Kristján Þórður Snæbjarnarson voru fjarverandi við afgreiðslu málsins en rita undir álitið samkvæmt heimild í 2. mgr. 29. gr. þingskapa.
    Ingibjörg Isaksen, Sigurður Örn Hilmarsson og Sigríður Á. Andersen voru fjarverandi við afgreiðslu málsins.

Alþingi, 28. nóvember 2025.


Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir,
form., frsm.
Grímur Grímsson. Jónína Björk Óskarsdóttir.
Kristján Þórður Snæbjarnarson. Sigurþóra Steinunn Bergsdóttir.