Ferill 144. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 486  —  144. mál.

2. umræða.


Nefndarálit


um frumvarp til laga um kílómetragjald á ökutæki.

Frá meiri hluta efnahags- og viðskiptanefndar.


    Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund gesti frá fjármála- og efnahagsráðuneyti, Samtökum ferðaþjónustunnar, Bændasamtökunum, Höldi ehf. Bílaleigu Akureyrar, SVÞ – Samtökum verslunar og þjónustu, Hertz Íslandi Bílaleigu Flugleiða ehf., Alþýðusambandi Íslands, Neytendasamtökunum, Samtökum atvinnulífsins, Samtökum fyrirtækja í sjávarútvegi, Félagi íslenskra bifreiðaeigenda, Bílaleigunni Geysi ehf., Landssambandi vörubifreiðaeigenda, Bandalagi íslenskra leigubifreiðastjóra, Félagi atvinnurekenda og Blue Car Rental ehf.
    Nefndinni bárust 46 umsagnir og erindi auk minnisblaðs frá fjármála- og efnahagsráðuneyti og eru gögnin aðgengileg undir málinu á vef Alþingis.

Umfjöllun nefndarinnar.
Almennt.
    Frumvarp þetta er liður í innleiðingu á nýju tekjuöflunarkerfi af ökutækjum og eldsneyti. Með lögum um kílómetragjald vegna notkunar hreinorku- og tengiltvinnbifreiða, nr. 101/2023, var fyrsta skrefið stigið í nýju tekjuöflunarkerfi með upptöku á kílómetragjaldi vegna notkunar rafmagns- og vetnisbifreiða annars vegar og tengiltvinnbifreiða hins vegar. Með frumvarpi þessu er lagt til að nýja tekjuöflunarkerfið vegna notkunar ökutækja á vegakerfinu verði lögfest að fullu leyti með upptöku á kílómetragjaldi sem jafnframt tekur til ökutækja sem ganga fyrir jarðefnaeldsneyti. Frumvarpið var áður lagt fram á 155. löggjafarþingi ( 301. mál), en náði ekki fram að ganga. Var það lagt fram öðru sinni á 156. löggjafarþingi og afgreitt frá efnahags- og viðskiptanefnd með áliti meiri hlutans til 2. umræðu 3. júní 2025 ( þskj. 667 og 668, 123. mál), en náði ekki fram að ganga. Í greinargerð með frumvarpinu kemur fram að frumvarpið sé nú endurflutt að mestu óbreytt frá síðasta þingi. Þær breytingar sem orðið hafa frá framlagningu frumvarpsins á síðasta þingi felast einkum í að annars vegar hefur verið tekið tillit til breytingartillagna meiri hluta efnahags- og viðskiptanefndar í fyrrgreindu nefndaráliti, eins og við á. Hins vegar eru breytingar á einstökum ákvæðum frumvarpsins með hliðsjón af athugasemdum Skattsins sem ætlað er að leiða til aukins skýrleika.
    Nefndin hefur fjallað um málið að nýju og meiri hlutinn áréttar ákveðna kafla úr umfjöllun sinni frá 156. löggjafarþingi með smávægilegum uppfærslum.

Eftirlit með eldsneytisverði.
    Hluti af hinu nýja tekjuöflunarkerfi af ökutækjum og eldsneyti sem frumvarpið boðar er brottfall eldsneytisgjalda sem hefur í för með sér lækkun á eldsneytisverði til neytenda. Þá kveður ákvæði til bráðabirgða V á um hvernig uppgjöri á óseldum tollafgreiddum birgðum af eldsneyti hjá gjaldskyldum aðilum skuli háttað við gildistöku laganna. Þar af leiðandi má gera ráð fyrir því að ekki verði töf á að umræddar skattbreytingar sem lagðar eru til í frumvarpinu birtist í eldsneytisverði til neytenda.
    Í umsögnum sem nefndinni bárust var áréttað að mikilvægt væri að lækkun á eldsneytisverði skilaði sér til neytenda. Í umsögn FÍB og Samkeppniseftirlitsins var til að mynda hvatt til þess að fjármála- og efnahagsráðuneytið ætti í samstarfi við t.d. Samkeppniseftirlitið, Neytendastofu, FÍB og verkalýðshreyfinguna til að fylgjast sérstaklega með verðlagningu á eldsneyti.
    Í minnisblaði fjármála- og efnahagsráðuneytis til nefndarinnar frá síðasta löggjafarþingi, hinn 8. maí, var bent á að lækkun á eldsneytisverði tæki jafnframt mið af hlutfalli vistvænna íblöndunarefna í eldsneyti, en hluti þeirra í hverjum lítra eldsneytis hefur hvorki borið kolefnisgjald né olíu- eða bensíngjöld. Samkvæmt lögum um endurnýjanlegt eldsneyti í samgöngum á landi, nr. 40/2013, er söluaðila skylt að tryggja að minnst 5% af heildarorkugildi eldsneytis til notkunar í samgöngum hér á landi á ári sé endurnýjanlegt eldsneyti. Taka þurfi tillit til framangreinds við mat á lækkun á eldsneytisverði í kjölfar lögfestingar frumvarpsins.
    Meiri hlutinn telur mikilvægt að brottfall eldsneytisgjalda skili sér í lækkuðu verði til neytenda. Meiri hlutinn áréttar það sem fram kom í framsögu ráðherra og við meðferð málsins nú, þ.e. að fjármála- og efnahagsráðuneytið mælist til þess við verðlagseftirlit ASÍ og FÍB að fylgjast náið með útsöluverði eldsneytis. Jafnframt vekur ráðuneytið athygli á nauðsyn þess að Samkeppniseftirlitið fylgist vel með þróun á samkeppni á eldsneytismarkaði. Meiri hlutinn telur samstarf þetta mikilvægt og hvetur ráðherra til að vinna heils hugar að því að neytendur verði upplýstir um þróun á eldsneytisverði. Það geti skapað þrýsting á olíufélög til að axla ábyrgð og tryggja verðlagningu í samræmi við þær breytingar sem frumvarpið hefur í för með sér. Að lokum óskar meiri hlutinn eftir því að ráðherra upplýsi Alþingi um samstarf hans og þessara aðila á haustþingi 2026, til að mynda með því að skila skýrslu, sbr. 53. gr. laga um þingsköp Alþingis, nr. 55/1991.

Samspil kílómetragjalds og orkuskipta.
    Í umsögnum sem nefndinni bárust komu fram áhyggjur af því að frumvarpið myndi draga úr hvata til orkuskipta. Nefndin fjallaði um samspil kílómetragjaldsins og orkuskipta en mikill árangur hefur náðst hér á landi í orkuskiptum í samgöngum með fjölgun vistvænna og sparneytinna bifreiða. Orkuskiptin hafa þó áskoranir í för með sér en skatttekjur ríkissjóðs af ökutækjum og eldsneyti hafa dregist umtalsvert saman. Að öllu óbreyttu er fyrirhugað að sú þróun haldi áfram.
    Meiri hlutinn bendir á að nýja kerfið sem frumvarpið kveður á um felur í sér að greitt verði annars vegar fyrir afnot af samgönguinnviðum og þá með tilliti til slits á vegum sem ökutæki valda vegna þyngdar þeirra. Hins vegar verði áfram greitt fyrir losun koltvísýrings með kolefnisgjaldi á jarðefnaeldsneyti sem viðheldur hvötum til orkuskipta.
    Sú þróun á bílaflota landsmanna sem hér að framan greinir hefur valdið því að fyrirséð er að tekjur ríkissjóðs vegna ökutækja dragist enn frekar saman á meðan álag á samgönguinnviði fer síst minnkandi. Fjölgun vistvænna ökutækja er áfram mikilvægur liður í orkuskiptum hér á landi, þá er einnig ljóst að uppbygging samgönguinnviða er viðvarandi verkefni sem heldur hefur dregið úr undanfarin ár þrátt fyrir mikla viðhaldsþörf. Er það því mat meiri hlutans að mikilvægt sé að horft verði til framtíðar og að tekjuöflunarkerfi vegna ökutækja taki mið af breyttum og vistvænni bílaflota á landinu.

Gjaldbil kílómetragjalds eftir þyngd ökutækja.
    Í 1. mgr. 6. gr. frumvarpsins er kveðið á um fjárhæð gjalds á hvern ekinn kílómetra. Kílómetragjaldið er lagt á í 29 gjaldbilum sem taka mið af leyfðri heildarþyngd ökutækis í kílóum. Í umsögnum sem nefndinni bárust við meðferð málsins komu fram sjónarmið um að fyrsta gjaldbilið, þ.e. ökutæki með leyfða heildarþyngd á bilinu 0–3.500 kg, tæki til of breiðs hóps ökutækja sem ekki slíti vegunum jafnt.
    Meiri hlutinn ítrekar það sem fram kemur í greinargerð með frumvarpinu að álag ökutækja á vegslit og niðurbrot vega eykst í veldisvexti með aukinni þyngd. Leiðir af því að verulegur munur er á álagi sem 2 tonna bifreið og 18 tonna bifreið valda en að sama skapi er óverulegur munur á vegsliti 2 tonna fólksbifreiðar og 3 tonna fólksbifreiðar. Meiri hlutinn telur því ekki þörf á að fjölga gjaldbilum. Jafnframt er vert að hafa í huga þau rök að rafmagnsbílar eru alla jafna þyngri en bílar sem ganga fyrir jarðefnaeldsneyti. Þá er samsetning ökutækja ólík eftir landsvæðum. Bifreiðar á landsbyggðinni eru frekar fólksbílar í stærri kantinum sökum erfiðari akstursaðstæðna. Þar að auki er kostnaður við vegakerfið ekki einungis bundinn við slit vegna þyngdar ökutækis heldur vega þar inn aðrir kostnaðarþættir eins og lagning vega, þjónusta við vegakerfi að vetri og löggæsla sem taka til allra ökutækja óháð stærð þeirra.

Tekjur af kílómetragjaldi renni til uppbyggingar á vegakerfinu.
    Eins og áður hefur komið fram hafa tekjur ríkissjóðs af eldsneyti og ökutækjum dregist verulega saman vegna aukins fjölda vistvænna og sparneytinna bifreiða. Á sama tíma er viðvarandi þörf fyrir uppbyggingu og viðhald á vegakerfinu. Markmið frumvarpsins er að gjaldtaka samkvæmt nýja tekjuöflunarkerfinu verði í betra samræmi við áhrif ökutækja á viðhaldskostnað vegakerfisins. Í umsögnum til nefndarinnar var bent á að mikilvægt væri að tryggja að tekjur ríkissjóðs af kílómetragjaldinu skiluðu sér í uppbyggingu og viðhaldi á vegakerfinu.
    Meiri hlutinn tekur fram að með lögum um opinber fjármál, nr. 123/2015, var fallið frá fyrirkomulaginu um að markaðar skatttekjur rynnu til ákveðins rekstraraðila eða verkefnis. Í daglegu tali var þetta nefnt eyrnamerking skatta. Þess í stað renna skatttekjur beint í ríkissjóð og framlög til verkefnis eða stofnunar eru ákveðin af Alþingi. Þótt meiri hlutinn fallist á með umsagnaraðilum að nauðsynlegt sé að fjárfesta í og viðhalda vegakerfinu getur hún að þessu gættu ekki lagt til breytingartillögu þess efnis að tekjur samkvæmt frumvarpinu skuli renna beint til vegamála. Meiri hlutinn áréttar þó það sem fram kemur í frumvarpi til fjárlaga fyrir árið 2026 ( þskj. 1, 1. mál), í þingsályktun um fjármálaáætlun fyrir árin 2026– 2030, nr. 11/156, og í tillögu til þingsályktunar um samgönguáætlun fyrir árin 2026–2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026–2030 ( þskj. 463, 322. mál) um aukin framlög til samgöngumála að hefja eigi kraftmiklar framkvæmdir í samgöngum um land allt. Meiri hlutinn undirstrikar að nýtt tekjuöflunarkerfi af ökutækjum er lykilþáttur í framangreindum áformum.

Breytingartillögur.
Vísun til ákvæða í 4. tölul. 4. gr. (a-liður 2. tölul.).
    Í 4. tölul. 4. gr. frumvarpsins er kveðið á um að ökutæki í eigu aðila sem eiga rétt á endurgreiðslu samkvæmt lögum um virðisaukaskatt, nr. 50/1988, á grundvelli alþjóðasamninga, tvíhliða samninga eða sérstakra laga þar um skuli vera undanþegin kílómetragjaldi. Í minnisblaði frá fjármála- og efnahagsráðuneyti, dags. 20. nóvember sl., kemur fram að markmið töluliðarins sé að undanþiggja eingöngu ökutæki í eigu þeirra aðila sem eiga rétt á endurgreiðslu virðisaukaskatts á grundvelli 10. mgr. 42. gr. laganna. Til að tryggja aukinn skýrleika taldi ráðuneytið að vísa ætti með beinum hætti til 10. mgr. 42. gr. laga um virðisaukaskatt í töluliðnum. Meiri hlutinn telur tillögu þessa til bóta og gerir hana að sinni.

Dráttarvélar, sbr. 5. tölul. 4. gr. (b-liður 2. tölul.).
    Í 5. tölul. 4. gr. kemur m.a. fram að dráttarvél í ökutækjaflokki T1 eða T2 og eftirvagn hennar eru undanþegin gjaldskyldu. Þá skal það skilyrði vera uppfyllt að dráttarvél og eftirvagn hennar séu til nota í landbúnaði hjá aðila sem skráður er á landbúnaðarskrá hjá ríkisskattstjóra vegna skila á virðisaukaskatti. Töluliður þessi byggist á breytingartillögu meiri hluta efnahags- og viðskiptanefndar sem gerð var við meðferð málsins á síðasta löggjafarþingi ( þskj. 667, 123. mál). Í umsögn Bændasamtakanna sem nefndinni barst við meðferð á frumvarpi þessu kom fram ábending um að bæta ætti við 5. tölul. dráttarvélum sem falla undir ökutækjaflokkinn T5, sbr. breytingarreglugerð nr. 192/2015, um breytingu á reglugerð um gerð og búnað ökutækja, nr. 822/2004.
    Meiri hlutinn bendir á að ekki er lengur stuðst við ökutækjaflokka samkvæmt breytingarreglugerð nr. 192/2015, þ.e. T-flokka frá 1 til 5. Ökutækjaflokkar dráttarvéla eru í dag frá T1 til T4 samkvæmt breytingarreglugerð nr. 846/2016, um breytingu á reglugerð nr. 822/2004, sbr. reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB), nr. 167/2013. Í ljósi framangreinds er engin nýskráð dráttarvél í dag skráð í ökutækjaflokkinn T5. Þannig myndi dráttarvél sem áður hefði fallið í flokk T5 flokkast sem T1b eða T2b, en b-undirflokkur gefur til kynna að dráttarvélin komist hraðar en 40 km á klukkustund og sé skoðunarskyld. Með uppfærðri skráningu ætti því dráttarvél sem skráð er samkvæmt eldri aðferðafræði að falla undir 5. tölul.
    Að ígrunduðu máli telur meiri hlutinn rétt að 5. tölul. 4. gr. frumvarpsins nái til allra dráttarvéla óháð ökutækjaflokki að uppfylltu því skilyrði að hún sé til nota í landbúnaði hjá aðila sem skráður er á landbúnaðarskrá hjá ríkisskattstjóra vegna skila á virðisaukaskatti. Starfsemi sem fellur undir flokk 1 í atvinnugreinaflokkun Hagstofu Íslands, önnur þjónusta við búrekstur, telst landbúnaður samkvæmt töluliðnum.

Breyting á 7. gr. (3. tölul.).
    Í fyrsta lagi er lögð til breyting á vísun til málsgreina í 6. mgr. 7. gr. frumvarpsins. Í umsögn Skattsins til nefndarinnar kemur fram að réttara sé að vísa til lagagreinarinnar í heild, að undanskilinni 6., 8., 11. og 12. mgr., sbr. 2. mgr. 10. gr.
    Í öðru lagi er lögð til breyting á 9. mgr. 7. gr., en þar segir að tilgreina skuli þá mælingu sem akstursmælir sýnir og skráning tekur mið af. Í umsögn Skattsins kemur fram sú ábending að rétt væri að skýrt sé kveðið á um að upplýsingar um mælieiningu skuli vistaðar í ökutækjaskrá.
    Að höfðu samráði við fjármála- og efnahagsráðuneyti leggur meiri hlutinn til breytingar til samræmis við framangreind atriði.

Breyting á 11. gr. (5. tölul.).
    Í 11. gr. frumvarpsins er kveðið á um gjaldskyldu ökutækja sem eru tímabundið hér á landi. Í 2. mgr. ákvæðisins má finna töflu með þremur gjaldflokkum og sjö gjaldbilum. Til samræmis við umsögn Skattsins leggur meiri hlutinn til þríþætta breytingu á 11. gr. frumvarpsins.
    Í fyrsta lagi leggur meiri hlutinn til breytt heiti á þriðja gjaldflokknum, þess efnis að hann beri yfirskriftina „21 dagur eða lengur“ í stað „21–30 dagar“.
    Í öðru lagi leggur meiri hlutinn til breytingu á 3. mgr. ákvæðisins. Tillagan felur í sér að ökutækjum sem eru hér á landi lengur en í 30 daga samfellt og byrjað er að greiða gjald fyrir skv. 1. eða 3. mgr. 6. gr., þ.e. í samræmi við ekna vegalengd, verði a.m.k. ekki ákvarðað lægra gjald en sem nemur föstu akstursgjaldi vegna ökutækis sem hefur verið 21 dag eða lengur hér á landi, skv. 2. mgr. ákvæðisins.
    Í þriðja lagi leggur meiri hlutinn til breytingu á 5. mgr. til samræmis við umsögn Skattsins þess efnis að tekið sé fram að hafi skráning á stöðu akstursmælis ökutækis sem verið hefur lengur en 30 daga samfellt hér á landi ekki verið skráð við komu og/eða brottför skuli gjaldskyldur aðili greiða kílómetragjald skv. a- eða b-lið málsgreinarinnar. Sömuleiðis er lögð til breyting á a-lið 5. mgr. sem felur í sér að sé ökutæki innan við 10.000 kg að leyfðri heildarþyngd skuli gjaldskyldur aðili greiða fast akstursgjald skv. 2. mgr. eftir því sem hæst getur orðið og að auki 500 kr. fyrir hvern dag umfram 30 daga.

Orðalagsbreyting á d-lið 1. mgr. 12. gr. (a-liður 6. tölul.).
    Í d-lið 1. mgr. 12. gr. frumvarpsins er kveðið á um það skilyrði að ökutækjaleiga og leigutaki séu ekki tengdir aðilar. Beinist það annars vegar að tengslum ökutækjaleigu við lögaðila sem leigutaka og hins vegar að einstaklingi sem leigutaka. Í umsögn Skattsins er tekið fram að eðli málsins samkvæmt sé um ólíkar aðstæður að ræða og því réttara að í stað orðsins „og“ komi orðið „eða“. Meiri hlutinn fellst á framangreint og leggur til breytingu á stafliðnum.

Lágmarkstímabil daggjalds fyrir hvert ökutæki í 2. mgr. 12. gr. (b-liður 6. tölul.).
    Í 12. gr. frumvarpsins er kveðið á um skil ökutækjaleigna á daggjaldi. Í lokamálslið 2. mgr. ákvæðisins kemur fram að lágmarkstímabil daggjalds vegna hvers ökutækis skuli vera einn almanaksmánuður. Fyrir nefndinni komu fram sjónarmið frá m.a. ökutækjaleigum um að sú ráðstöfun að ökutæki séu föst í umhverfi daggjalds í einn almanaksmánuð væri takmarkandi.
    Meiri hlutinn telur rétt að endurskoða þetta tímamark í því skyni að takmarka íþyngjandi áhrif á ökutækjaleigur. Því leggur meiri hlutinn til breytingu þess efnis að í lokamálslið 2. mgr. 12. gr. komi fram að lágmarkstímabil daggjalds vegna hvers ökutækis verði 15 dagar.

Brottfall 15. gr. (7. tölul.).
    Í umsögn Skattsins er bent á að í 10. mgr. 7. gr. frumvarpsins sé gert ráð fyrir því fráviki að ríkisskattstjóra sé í einstökum undantekningartilvikum heimilt að skrá stöðu akstursmælis, þ.e. séu atvik óviðráðanleg eða aðrar gildar ástæður standi í vegi fyrir rafrænni skráningu. Heimildinni sé þannig einungis ætlað að taka til aðstæðna þar sem einstaklingur getur ekki nýtt sér rafræna þjónustu, án þess að vikið sé frá þeirri meginstefnu að samskipti við stjórnvöld fari fram á stafrænan hátt. Í minnisblaði fjármála- og efnahagsráðuneytisins er tekið undir með Skattinum að í framkvæmd myndi 1. mgr. 15. gr. frumvarpsins í raun skylda ríkisskattstjóra til að skrá stöðu akstursmælis hvenær sem er, án tillits til þess hvort skilyrði um óviðráðanleg atvik eða gildar ástæður væru fyrir hendi, andstætt tilgangi 10. mgr. 7. gr.
    Þá tiltekur ráðuneytið að í 2. mgr. 15. gr. frumvarpsins sé kveðið á um ótakmarkaða heimild gjaldskyldra aðila til að óska eftir skráningu á stöðu akstursmælis ökutækis hjá faggiltri skoðunarstofu. Í 4. tölul. 5. mgr. 7. gr. kemur m.a. fram að gjaldskyldum aðila skv. 1. eða 2. mgr. þess ákvæðis sé ávallt heimilt að skrá stöðu akstursmælis hjá faggiltri skoðunarstofu ökutækja eða öðrum álestraraðila. Í ljósi þess er ekki þörf á að kveða jafnframt á um heimildina í 2. mgr. 15. gr. frumvarpsins.
    Að því gættu að 1. mgr. 15. gr. fari í bága við tilgang 10. mgr. 7. gr. og að 2. mgr. 15. gr. sé óþörf í ljósi 4. tölul. 5. mgr. 7. gr. leggur meiri hlutinn til að höfðu samráði við fjármála- og efnahagsráðuneytið að 15. gr. frumvarpsins falli brott.

Nýr málsliður í 4. mgr. 16. gr. (b-liður 8. tölul.).
    Í 4. mgr. 16. gr. segir að óheimilt sé að skrá eigendaskipti eða breytingu á skráningu umráðamanns ökutækis nema kílómetragjald seljanda eða fyrri umráðamanns vegna þess ökutækis, þ.m.t. bráðabirgðagreiðslu þess, og eftir atvikum vanskráningargjald, hafi áður verið greitt, sbr. þó 3. málsl. 1. mgr. Í minnisblaði fjármála- og efnahagsráðuneytisins er bent á að sú staða kunni að koma upp við eigendaskipti eða breytta skráningu umráðamanns ökutækis að þrátt fyrir að uppgjör hafi átt sér stað á gjaldföllnum höfuðstól myndist skuld síðar, svo sem vegna þess að ekki kemur til álagningar dráttarvaxta fyrr en næsta dag.
    Í ljósi framangreinds leggur meiri hlutinn til, að höfðu samráði við fjármála- og efnahagsráðuneytið, að nýjum lokamálslið verði bætt við 4. mgr. 16. gr. frumvarpsins sem kveði á um að þrátt fyrir 1. málsl. skuli heimilt að skrá eigendaskipti eða breytingu á skráningu umráðamanns ef kílómetragjald, þ.m.t. bráðabirgðagreiðsla þess og eftir atvikum vanskráningargjald, og annar afleiddur kostnaður, svo sem dráttarvextir, er jafnt eða lægri en 100 kr.

Breyting á 1. mgr. 21. gr. og nýr töluliður við 30. gr., breyting á lögum um Vegagerðina, framkvæmdastofnun samgöngumála, nr. 120/2012 (a-liður 10. tölul. og e-liður 14. tölul.).
    Í lokamálslið 1. mgr. 21. gr. kemur fram að ráðherra sé heimilt að fela lögreglu eða Vegagerðinni framkvæmd tiltekinna þátta eftirlits með reglugerð. Í minnisblaði ráðuneytisins kemur fram að í 91. gr. umferðarlaga segir að hlutverk eftirlits með ástandi, stærð, þyngd og hleðslu ökutækja sé á höndum vegaeftirlitsmanna lögreglu og lögreglumanna. Að því gættu leggur meiri hlutinn til í samráði við ráðuneytið að vísun til Vegagerðarinnar verði felld brott úr lokamálslið 1. mgr. 21. gr.
    Meiri hlutinn vill þó ítreka það sem fram kemur í minnisblaðinu um að frumvarpið gerir ekki ráð fyrir breyttu hlutverki Vegagerðarinnar, sbr. 2. mgr. 7. gr. frumvarpsins. Í 1. mgr. 14. gr. laga um olíugjöld og kílómetragjöld, nr. 87/2004, kemur fram að Vegargerðin sé álestraraðili á ökumælum ásamt skoðunarstöðvum og tollyfirvöldum. Breyting á 1. mgr. 14. gr. laganna sem leiddi til þess að Vegagerðin fékk umrætt hlutverk kom með lögum nr. 139/2021, um breytingu á ýmsum lögum um skatta og gjöld, þar sem láðst hafði að gera ráð fyrir hlutverki Vegagerðarinnar samhliða faggiltum skoðunarstofum og tollyfirvöldum þrátt fyrir að hún hafi haft hlutverk við álestur í tilvikum þar sem mikil fjarlægð var til næstu skoðunarstöðvar.
    Í umsögn Vegagerðarinnar er bent á að stofnunin hafi ekki heimild í lögum til töku þjónustugjalda, en slíkar heimildir eru að jafnaði fyrir hendi hjá sambærilegum stofnunum sem falin eru stjórnsýsluverkefni. Meiri hlutinn leggur því til að nýtt ákvæði bætist við lög um Vegagerðina, framkvæmdastofnun samgöngumála, nr. 120/2012, þess efnis að stofnuninni verði heimilt að innheimta þjónustugjald vegna álesturs ökumæla skv. 2. mgr. 7. gr. frumvarpsins. Sömuleiðis verði kveðið á um að gjaldið skuli ákveðið í gjaldskrá og hvað beri að leggja til grundvallar. Málsgreinin er til samræmis við sambærileg ákvæði í lögum um Samgöngustofu, stjórnsýslustofnun samgöngumála, nr. 119/2012, og lögum um Þjóðskrá Íslands, nr. 70/2018.

Orðalagsbreyting á 25. gr. (11. tölul.).
    Í 1. mgr. 25. gr. frumvarpsins er kveðið á um viðurlög ef gjaldskylt ökutæki er í umferð án þess að það sé búið akstursmæli, ef akstursmælir telur ekki rétt eða ef gjaldþyngd ökutækis eða vagnlestar með farmi er umfram leyfilega gjaldþyngd þess. Í umsögn til nefndarinnar frá Landssambandi vörubifreiðaeigenda kom fram ábending um hvort ekki væri þörf á gjaldflokki fyrir hámarksþyngd ökutækja sem væru yfir til að mynda 49.000 kg.
    Meiri hlutinn vísar til umfjöllunar í minnisblaði fjármála- og efnahagsráðuneytisins þar sem áréttað er að þær þyngdarviðmiðanir sem miðað er við í viðauka við frumvarpið séu sambærilegar núverandi þyngdarviðmiðunum sem fram koma í viðauka 1 við ákvæði reglugerðar nr. 155/2007, um stærð og þyngd ökutækja. Í viðauka við frumvarpið kemur fram að hámark gjaldþyngdar þeirra ökutækja sem eru 10.000 kg að leyfðri heildarþyngd eða meira er eins og áður 44.000 kg. Fyrir vikið er ekki breyting þar á og verður meginreglan um hámarksþyngd slíkra ökutækja sú sama. Þá tiltekur ráðuneytið að það að fastsetja ákveðið hámarksgjald fyrir tiltekin þung ökutæki vegna álagningar kílómetragjalds, eins og viðaukinn við frumvarpið kveður á um að sé 44.000 kg, sé ívilnandi fyrir rekstraraðila þungra ökutækja. Meiri hlutinn tekur því undir með ráðuneytinu að ábending þessi kalli ekki á sérstaka breytingu.
    Meiri hlutinn leggur til breytingu til samræmis við minnisblað fjármála- og efnahagsráðuneytisins og til aukins skýrleika að fjallað verði um mælda og skráða gjaldþyngd í 1. mgr. 25. gr. frumvarpsins. Að auki tekur meiri hlutinn undir tillögu sem fram kemur í umsögn Skattsins um að vísun til skilaskyldra aðila í málsgreininni falli brott.
    Í 2. mgr. 25. gr. frumvarpsins er fjallað um að ef aðili sem er gjald- eða skilaskyldur og af ásetningi eða stórkostlegu hirðuleysi skýrir rangt eða villandi frá einhverju því sem máli skiptir um gjöld samkvæmt lögum þessum skuli greiða fésekt allt að tífaldri fjárhæð vangreidds gjalds. Í umsögn Skattsins kemur fram að aðstæður kunni að vera með þeim hætti að forsendur til ákvörðunar gjaldsins liggi ekki fyrir, t.d. ef í ljós kemur að átt hefur verið við akstursmælinn og ekki liggur fyrir raunveruleg vegalengd sem ekin var. Að því gættu leggur meiri hlutinn til að vísað verði til gjalds vegna vantalins aksturs sem upplýstur er eða áætlaður, sbr. 3. mgr. 21. gr.

Vísun til ákvæða í 3. mgr. 29. gr. (13. tölul.).
    Í 3. mgr. 29. gr. frumvarpsins er kveðið á um að þrátt fyrir 1. mgr. skuli ákvæði til bráðabirgða I–V öðlast þegar gildi. Í 4. mgr. 7. gr. frumvarpsins er fjallað um þau tilvik þegar skráning á stöðu akstursmælis skuli framkvæmd við tilteknar breytingar, þ.e. þegar ökutæki er skráð tímabundið úr umferð, skráð er breyting á notkun ökutækis, tilkynnt er um eigendaskipti á ökutæki eða breyting er gerð á skráningu umráðamanns þess, eða þegar ökutæki er nýskráð, afskráð eða sótt er um endurgreiðslu á skilagjaldi ökutækis. Að höfðu samráði við Skattinn og Samgöngustofu leggur fjármála- og efnahagsráðuneytið til að 4. mgr. 7. gr. taki gildi strax. Meiri hlutinn tekur undir tillögu þessa og gerir hana að sinni.

Breytingar á b-lið 2. tölul. 30. gr. (a- til d-liður 14. tölul.).
    Í b-lið 2. tölul. 30. gr. frumvarpsins er kveðið á um að ný grein, 3. gr. a, bætist við lög um umhverfis- og auðlindaskatta, nr. 129/2009. Fyrirsögn greinarinnar samkvæmt frumvarpi þessu er endurgreiðsla kolefnisgjalds. Að höfðu samráði við fjármála- og efnahagsráðuneyti leggur meiri hlutinn til breytt heiti á fyrirsögninni. Leggur meiri hlutinn til að fyrirsögn greinarinnar verði endurgreiðsla vegna sjóflutninga. Telur meiri hlutinn að sú fyrirsögn gefi réttari mynd af ákvæðinu.
    Til samræmis við umsögn Umhverfis- og orkustofnunar og að höfðu samráði við fjármála- og efnahagsráðuneyti leggur meiri hlutinn til þrjár breytingar á b-lið 2. tölul. 30. gr. frumvarpsins. Í fyrsta lagi leggur meiri hlutinn til breytingu sem felur í sér að tekið verði sérstaklega fram að ákvæðið taki til sjóflutninga á vörum. Markmið ákvæðisins er að koma til móts við strandflutninga, en afmörkun þessi er ótvíræð. Í öðru lagi leggur meiri hlutinn til að við b-lið 1. efnismálsgreinar ákvæðisins bætist skilyrði þess efnis að skipafélag hafi sent Umhverfis- og orkustofnun upplýsingar um þær sjóferðir sem farnar voru milli hafna hér á landi. Í þriðja lagi leggur meiri hlutinn til að við 1. efnismgr. bætist nýr stafliður sem kveður á um að skipafélag hafi fyrir 30. september ár hvert staðið skil á fjölda losunarheimilda í samræmi við 2. mgr. 12. gr. laga um viðskiptakerfi ESB með losunarheimildir, nr. 96/2023, vegna losunar á því almanaksári sem umsókn um endurgreiðslu tekur til.

Nýr töluliður við 30. gr., breyting á lögum um bifreiðagjöld, nr. 39/1988 (e-liður 14. tölul.).
    Í minnisblaði fjármála- og efnahagsráðuneytisins kemur fram að rétt sé að lögð verði til breyting á 2. mgr. 5. gr. laga um bifreiðagjöld, nr. 39/1988, til samræmis við þær breytingar sem lagðar eru til á 4. mgr. 16. gr. frumvarpsins. Með breytingunni er sömuleiðis komið til móts við þær aðstæður þegar lág skuld getur verið til staðar vegna ökutækis sem kemur í veg fyrir eigendaskipti að bifreið.
    Meiri hlutinn leggur því til að nýjum málslið verði bætt við 2. mgr. 5. gr. laga um bifreiðagjöld sem kveður á um að þrátt fyrir 1. málsl. skuli heimilt að skrá eigendaskipti að bifreið ef bifreiðagjald og annar afleiddur kostnaður, svo sem dráttarvextir, er jafnt eða lægri en 100 kr.

Breyting á ákvæði til bráðabirgða V (16. tölul.).
    Í ákvæði til bráðabirgða V er kveðið á um hvernig uppgjöri á óseldum tollafgreiddum birgðum af eldsneyti hjá gjaldskyldum aðilum skuli háttað við gildistöku frumvarpsins, 1. janúar 2026. Gjaldskyldum aðilum ber skv. 1. mgr. ákvæðisins að senda ríkisskattstjóra upplýsingar um hve mikið af birgðum af tollafgreiddu eldsneyti sem fellur undir gildissvið frumvarpsins og er í eigu eða vörslu þeirra 31. desember 2025 sé á innlendum birgða- og sölustöðum.
    Samkvæmt 2. mgr. 17. gr. laga um vörugjald af ökutækjum, eldsneyti o.fl. er sá hluti eldsneytisblöndu sem ekki er af jarðefnauppruna undanþeginn vörugjaldi. Það er því mikilvægt að ríkisskattstjóri fái upplýsingar um hlutfall endurnýjanlegs eldsneytis í birgðum. Upplýsingarnar eru nauðsynlegar svo unnt sé að reikna rétta inneign vegna niðurfellingar vörugjaldsins, þar sem ekki á að fella niður gjald af þeim hluta sem var undanþeginn við álagningu.
    Að höfðu samráði við fjármála- og efnahagsráðuneyti leggur meiri hlutinn til að við 1. mgr. ákvæðisins bætist að fram skuli koma í upplýsingum til ríkisskattstjóra hve mikið hlutfall af umræddum birgðum er endurnýjanlegt eldsneyti, sbr. lög um um endurnýjanlegt eldsneyti í samgöngum hér á landi, nr. 40/2013. Tilvísun til laga nr. 40/2013 tryggir að beitt verði lögformlegri skilgreiningu á hugtakinu „endurnýjanlegt eldsneyti“, sbr. 1. tölul. 2. gr. þeirra laga, sem og reglum um upprunavottorð skv. 4. gr. sömu laga.

Breyting á 5. tölul. ákvæðis til bráðabirgða VI (17. tölul.).
    Í 5. tölul. ákvæðis til bráðabirgða VI er kveðið á um að fjárhæð gjalds á hvern ekinn kílómetra vegna aksturs hópferðabifreiðar og vörubifreiðar, sem knúinn er metani, metanóli, rafmagni eða vetni og er 10.000 kg eða meira að leyfðri heildarþyngd, skuli vera 20% af fjárhæð gjaldflokks hlutaðeigandi bifreiðar á árunum 2026, 2027, 2028 og 2029. Í umsögn Bílgreinasambandsins kom fram að ef ívilnun skv. 5. tölul. ákvæðis til bráðabirgða VI á að hvetja raunverulega til orkuskipta ætti hún ekki aðeins að eiga við um ökutækið heldur fyrir vagnlestina í heild sinni.
    Meiri hlutinn fellst á framangreint sjónarmið og leggur til breytingu að höfðu samráði við fjármála- og efnahagsráðuneyti þess efnis að þau umhverfisvænu ökutæki sem fjallað er um í 5. tölul. og eru samtengd ökutæki, þ.e. vagnlestir, skuli greiða 20% af fjárhæð þess kílómetragjalds sem annars hefði verið lagt á skv. 2. mgr. 6. gr.

Breyting á viðauka (18. tölul.).
    Viðauka við frumvarpið er ætlað að afmarka hámarksgjaldþyngd ökutækja sem eru 10.000 kg eða þyngri. Viðauki þessi byggist á viðauka 1 við ákvæði reglugerðar nr. 155/2007, um stærð og þyngd ökutækja. Í umsögn Skattsins kemur fram að talin séu upp óþarflega ítarleg atriði í viðaukanum við frumvarpið. Leggur meiri hlutinn því til breytingu á viðaukanum með það að markmiði að einfalda hann.

    Þá leggur meiri hlutinn til minni háttar orðalagsbreytingar og tæknilegar breytingar sem ekki er ætlað að hafa áhrif á efni frumvarpsins.
    Að framangreindu virtu leggur meiri hlutinn til að frumvarpið verði samþykkt með þeim breytingum sem gerð hefur verið grein fyrir og gerð er tillaga um í sérstöku þingskjali.

    Sigurþóra Steinunn Bergsdóttir var fjarverandi við afgreiðslu málsins en ritar undir álitið samkvæmt heimild í 2. mgr. 29. gr. þingskapa.
    Hildur Sverrisdóttir var fjarverandi við afgreiðslu málsins.

Alþingi, 5. desember 2025.

Arna Lára Jónsdóttir,
form.
Pawel Bartoszek,
frsm.
Ásthildur Lóa Þórsdóttir.
Sigmundur Ernir Rúnarsson. Sigurþóra Steinunn Bergsdóttir.