Ferill 228. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 499 — 228. mál.
2. umræða.
Nefndarálit með breytingartillögu
um frumvarp til laga um markaði fyrir sýndareignir.
Frá meiri hluta efnahags- og viðskiptanefndar.
Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund gesti frá fjármála- og efnahagsráðuneyti og dómsmálaráðuneyti.
Nefndinni bárust tvær umsagnir auk minnisblaðs frá fjármála- og efnahagsráðuneyti og eru gögnin aðgengileg undir málinu á vef Alþingis.
Umfjöllun nefndarinnar.
Með frumvarpinu er innleitt í íslenskan rétt ákvæði reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2023/1114 frá 31. maí 2023 um markaði fyrir sýndareignir og um breytingu á reglugerðum (ESB) nr. 1093/2010 og (ESB) nr. 1095/2010 og tilskipunum 2013/36/ESB og (ESB) 2019/1937. Notast hefur verið við skammstöfunina MiCa sem heiti á þessum gerðum. Samhliða gildistöku MiCa tók gildi reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2023/1113 frá 31. maí 2023 um upplýsingar sem fylgja skulu millifærslum fjármuna og tiltekinna sýndareigna og um breytingu á tilskipun (ESB) 2015/849, eða TFR. Sú tilskipun er innleidd í lögum um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka, nr. 140/2018.
Frumvarp þetta var lagt fram á 156. löggjafarþingi og afgreitt frá efnahags- og viðskiptanefnd með áliti meiri hluta nefndarinnar til 2. umræðu 6. júní sl. ( þskj. 675, 262. mál). Í greinargerð með frumvarpinu kemur fram að frumvarpið sé nú endurflutt að mestu óbreytt, að undanskildum þeim hluta frumvarpsins sem varðar breytingu á lögum um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka og snýr að innleiðingu TFR. Þær breytingar megi rekja til athugasemda Seðlabanka Íslands. Þá hafi verið tekið tillit til breytingartillagna sem meiri hluti efnahags- og viðskiptanefndar lagði til í fyrrgreindu áliti.
Breytingartillögur.
Í umsögn Seðlabanka Íslands til nefndarinnar er vikið að 105. gr. reglugerðar (ESB) 2023/1114 um markaði fyrir sýndareignir. Seðlabankinn bendir á að það komi fram að eftirlitsstjórnvöld EES-ríkjanna geti bannað eða takmarkað tiltekna markaðssetningu, dreifingu eða sölu tiltekinna sýndareigna, sýndareigna með tiltekna tilgreinda eiginleika eða tiltekna starfsemi eða venju tengda sýndareignum. Í 3. gr. frumvarpsins er gert ráð fyrir að Seðlabankinn verði lögbært yfirvald hér á landi í skilningi laganna.
Til að ákvæðið nái markmiði sínu og tryggi viðhlítandi grundvöll fyrir beitingu 105. gr. telur Seðlabankinn nauðsynlegt að bætt verði inn í frumvarpið sem 3. mgr. 15. gr. heimild fyrir bankann til setningar reglna til að setja slík bönn eða takmörk.
Í minnisblaði sem nefndinni barst frá fjármála- og efnahagsráðuneyti kemur fram að tillaga Seðlabankans samræmist vel því sem lagt sé upp með greininni. Meiri hlutinn leggur því til breytingu til samræmis við umsögn Seðlabanka Íslands þess efnis að við 15. gr. bætist málsgrein sem kveði á um að bankanum sé heimilt með reglum að banna eða takmarka markaðssetningu, dreifingu eða sölu tiltekinna sýndareigna, eða sýndareigna með tiltekna tilgreinda eiginleika, eða tiltekna tegund starfsemi eða venju sem tengist sýndareignum, í samræmi við 105. gr. reglugerðar (ESB) 2023/114.
Þá leggur meiri hlutinn til tæknilegar breytingar sem ekki er ætlað að hafa áhrif á efni frumvarpsins.
Að framangreindu virtu leggur meiri hlutinn til að frumvarpið verði samþykkt með eftirfarandi
BREYTINGU:
1. 4. tölul. 1. mgr. 6. gr. orðist svo: 59., 60. og 64.–83. gr.
2. Við 15. gr. bætist ný málsgrein, svohljóðandi:
Seðlabanka Íslands er heimilt með reglum að banna eða takmarka markaðssetningu, dreifingu eða sölu tiltekinna sýndareigna, eða sýndareigna með tilgreinda eiginleika, eða tiltekna tegund starfsemi eða venju sem tengist sýndareignum í samræmi við 105. gr. reglugerðar (ESB) 2023/1114.
3. Á undan „3. gr.“ í 11. tölul. g-liðar 5. tölul. 17. gr. komi: 7. og 12. tölul.
Vilhjálmur Árnason var fjarverandi við afgreiðslu málsins.
Alþingi, 8. desember 2025.
| Arna Lára Jónsdóttir, form. |
Sigmundur Ernir Rúnarsson, frsm. |
Ásthildur Lóa Þórsdóttir. | |
| Pawel Bartoszek. | Sigurþóra Steinunn Bergsdóttir. | ||