Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF Word Perfect.

Þingskjal 564, 157. löggjafarþing 236. mál: almannatryggingar (eingreiðsla).
Lög nr. 85 16. desember 2025.

Lög um breytingu á lögum um almannatryggingar, nr. 100/2007 (eingreiðsla).


1. gr.

     Við ákvæði til bráðabirgða í lögunum bætist nýr töluliður, svohljóðandi: Þeir greiðsluþegar sem hafa fengið greiddan örorkulífeyri, hlutaörorkulífeyri eða ellilífeyri eða fengið sjúkra- og endurhæfingargreiðslur á árinu 2025 skulu fá eingreiðslu í desember, enda hafi þeir verið með skráð lögheimili hér á landi 1. nóvember 2025. Hið sama á við um þá einstaklinga sem fengu greiddan endurhæfingarlífeyri samkvæmt lögum um félagslega aðstoð á árinu 2025.
     Full eingreiðsla skv. 1. mgr. skal vera 73.390 kr. Við útreikning eingreiðslu skv. 1. mgr. skal greiðsluþegi hafa almennt frítekjumark sem nemur 1.200.000 kr. Fjárhæð eingreiðslu skv. 1. mgr. skal lækka um 3,3% af tekjugrunni greiðsluþega umfram frítekjumark. Um meðferð tekna samkvæmt þessu ákvæði fer skv. 1., 2., 6. og 8. mgr. 30. gr. laganna. Hafi greiðsluþegi fengið eina eða fleiri af þeim greiðslum sem taldar eru upp í 1. mgr. hluta af árinu 2025 skal eingreiðsla skv. 1. mgr. vera í hlutfalli við fjölda þeirra mánaða sem viðkomandi fékk greiðslur á árinu. Eingreiðsla skv. 1. mgr. skal hvorki teljast til tekna greiðsluþega né leiða til skerðingar annarra greiðslna samkvæmt lögum þessum. Eingreiðsla skv. 1. mgr. skal ekki greidd til dánarbúa. Eingreiðsla skv. 1. mgr. skal innt af hendi eigi síðar en 23. desember 2025. Um endurreikning eingreiðslu skv. 1. mgr. sem og um meðferð of- eða vangreiðslna fer skv. 3. og 4. mgr. 33. gr., sbr. 34. gr.

2. gr.

     Lög þessi öðlast þegar gildi.

Samþykkt á Alþingi 15. desember 2025.