Ferill 272. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 751 — 272. mál.
Svar
forsætisráðherra við fyrirspurn frá Karli Gauta Hjaltasyni um kostnað við starfslokasamninga.
1. Hversu margir starfslokasamningar hafa verið gerðir innan ráðuneytisins annars vegar og hjá undirstofnunum þess hins vegar árlega frá árinu 2018?
Forsætisráðuneytið.
Þrír starfslokasamningar sem fela í sér réttindi umfram það sem kveðið er á um í lögum um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins, nr. 70/1996, voru gerðir í forsætisráðuneytinu á umræddu tímabili, einn árið 2023 og tveir 2025.
Seðlabanki Íslands.
Alls voru gerðir 19 starfslokasamningar hjá Seðlabanka Íslands á umræddu tímabili sem fólu í sér greiðslur umfram réttindi viðkomandi starfsmanna samkvæmt lögum um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins, nr. 70/1996, og kjarasamningum. Í meðfylgjandi töflu sést hvernig fjöldi starfslokasamninga skiptist milli ára.
| Ár | Fjöldi samninga |
| 2018 | 1 |
| 2019 | 1 |
| 2020 | 7 |
| 2021 | 1 |
| 2022 | 1 |
| 2023 | 3 |
| 2024 | 1 |
| 2025 | 4 |
Líkt og kunnugt er var Fjármálaeftirlitið lagt niður og sameinað Seðlabanka Íslands og eftirlit með allri fjármálastarfsemi eftirleiðis hjá Seðlabanka Íslands eða frá 1. janúar 2020, sbr. lög nr. 92/2019. Seðlabankinn tók þar af leiðandi við réttindum og skyldum starfsfólks Fjármálaeftirlitsins. Aukinn fjölda samninga frá árinu 2020 má því rekja til sameiningarinnar. Vegna lagabreytinganna áttu sér stað miklar breytingar á stjórnskipan bankans sem leiddu til þess að störfum í yfirstjórn var fækkað í janúar 2020. Enn fremur hafa skipulagsbreytingar átt sér stað á árunum 2021–2025 til að samþætta starfsemina enn frekar og ná fram markmiðum með sameiningunni.
Hagstofa Íslands.
Tveir starfslokasamningar voru gerðir hjá Hagstofu Íslands á umræddu tímabili, annar árið 2022 en hinn 2023.
Engir starfslokasamningar voru gerðir á umræddu tímabili hjá óbyggðanefnd, ríkislögmanni, umboðsmanni barna eða þjóðgarðinum á Þingvöllum.
2. Hver hefur kostnaður ráðuneytisins og undirstofnana þess verið vegna þessara samninga, sundurliðað eftir árum og stofnunum?
Forsætisráðuneytið.
Áfallinn kostnaður forsætisráðuneytisins við starfslokasamninga á tímabilinu umfram uppsagnarfrest nemur um 10 millj. kr.
Seðlabanki Íslands.
Í meðfylgjandi töflu sést kostnaður við starfslokasamninga eftir árum. Fjárhæðir miðast við greiðslur umfram réttindi starfsmanna samkvæmt lögum um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins, nr. 70/1996, og kjarasamningum. Fjárhæðir miðast við laun án launatengdra gjalda.
| Ár | Kostnaður |
| 2018 | 701.103 |
| 2019 | 3.299.797 |
| 2020 | 79.666.509 |
| 2021 | 1.240.451 |
| 2022 | 13.753.116 |
| 2023 | 20.475.825 |
| 2024 | 14.741.377 |
| 2025 | 27.763.195 |
Hagstofa Íslands.
Kostnaður við starfslokasamninga umfram lögbundinn uppsagnarfrest var 3.971.399 kr. árið 2022 og 3.851.025 kr. árið 2023.
3. Hversu margir embættismenn hafa verið fluttir til í starfi hjá ráðuneytinu annars vegar og undirstofnunum þess hins vegar frá árinu 2018, sundurliðað eftir árum, stofnunum og hvort það hafi verið gert á grundvelli 36. gr. laga um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins, nr. 70/1996, eða á grundvelli annarra ákvæða laganna, svo sem 37. gr.?
Til að koma í veg fyrir tvítalningu vegna flutnings embættismanna í starfi hjá ráðuneytinu annars vegar og stofnunum þess hins vegar eru hér eingöngu taldir embættismenn sem flust hafa frá ráðuneytinu og stofnunum þess, auk þeirra embættismanna sem flust hafa innan ráðuneytisins eða innan stofnana.
Forsætisráðuneytið.
Á árinu 2022 var skrifstofustjóri á skrifstofu löggjafarmála í forsætisráðuneytinu fluttur í embætti skrifstofustjóra á skrifstofu stjórnskipunar. Umræddur flutningur var vegna breytinga á skipulagi ráðuneytisins sem fólu m.a. í sér að skrifstofum var fækkað. Flutningurinn var gerður á grundvelli 36. gr. laga um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins, nr. 70/1996.
Á árinu 2024 var ráðuneytisstjóri forsætisráðuneytisins fluttur í embætti ráðuneytisstjóra matvælaráðuneytisins. Flutningurinn var gerður á grundvelli 36. gr. laga um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins, nr. 70/1996.
Seðlabanki Íslands.
Tveir embættismenn voru fluttir til í embætti í tengslum við sameiningu Seðlabanka Íslands og Fjármálaeftirlitsins með nýjum lögum um Seðlabanka Íslands, nr. 92/2019, sem tóku gildi 1. janúar 2020. Lögin fólu í sér breytingu á stjórnskipan Seðlabankans og kveða á um að til viðbótar við seðlabankastjóra séu skipaðir þrír varaseðlabankastjórar til fimm ára í senn. Einn varaseðlabankastjórinn leiðir málefni sem varðar peningastefnu, annar málefni sem varðar fjármálastöðugleika og sá þriðji málefni sem varðar fjármálaeftirlit.
Með hliðsjón af bráðabirgðaákvæði laga nr. 92/2019, um Seðlabanka Íslands, flutti forsætisráðherra aðstoðarseðlabankastjóra í starf varaseðlabankastjóra peningastefnu frá og með 1. janúar 2020. Í bráðabirgðaákvæðinu kom fram að embætti aðstoðarseðlabankastjóra yrði lagt niður þegar ný lög um Seðlabanka Íslands öðluðust gildi og að forsætisráðherra væri heimilt án auglýsingar að flytja núverandi aðstoðarseðlabankastjóra í nýtt embætti varaseðlabankastjóra.
Með hliðsjón af bráðabirgðaákvæði laga nr. 87/1998, um opinbert eftirlit með fjármálastarfsemi, sbr. 14. gr. laga nr. 91/2019, um breytingu á ýmsum lögum vegna sameiningar Seðlabanka Íslands og Fjármálaeftirlitsins, flutti fjármála- og efnahagsráðherra forstjóra Fjármálaeftirlitsins í embætti varaseðlabankastjóra fjármálaeftirlits frá og með 1. janúar 2020. Í ákvæðinu kom fram að embætti forstjóra Fjármálaeftirlitsins yrði lagt niður þegar sameining Seðlabanka Íslands og Fjármálaeftirlitsins öðlaðist gildi og að fjármála- og efnahagsráðherra væri heimilt án auglýsingar að flytja forstjóra Fjármálaeftirlitsins í nýtt embætti varaseðlabankastjóra fjármálaeftirlits.
Hagstofa Íslands.
Hagstofustjóri var árið 2022 fluttur til fjármála- og efnahagsráðuneytisins.
Hjá óbyggðanefnd, ríkislögmanni, umboðsmanni barna og þjóðgarðinum á Þingvöllum voru engir embættismenn fluttir til í starfi á umræddu tímabili.