Ferill 631. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 1105 — 631. mál.
Frumvarp til laga
um breytingu á lögum um innheimtu opinberra skatta og gjalda, nr. 150/2019 (vextir endurgreiðslu).
Flm.: Sigurður Örn Hilmarsson, Guðlaugur Þór Þórðarson, Hildur Sverrisdóttir, Jón Pétur Zimsen, Brynjar Níelsson.
1. gr.
Þrátt fyrir ákvæði 1. mgr. skal greiða dráttarvexti skv. 1. mgr. 6. gr. laga um vexti og verðtryggingu, nr. 38/2001, frá þeim tíma er gjaldandi sannanlega lagði fram kröfu um endurgreiðslu ofgreiddra skatta eða gjalda. Dráttarvextir skulu þó ekki greiddir ef endurgreiðsla fer fram innan 30 daga frá því að krafa um endurgreiðslu var gerð.
2. gr.
Greinargerð.
Frumvarpið felur í sér tilteknar breytingar á lögum um innheimtu opinberra skatta og gjalda, nr. 150/2019, um hvenær gjaldandi á rétt á dráttarvöxtum úr hendi ríkissjóðs í kjölfar ofgreiðslu opinberra gjalda.
Í gildandi lögum er það meginregla, sbr. 1. mgr. 8. gr. laga nr. 150/2019, að stjórnvöld skuli hafa frumkvæði að því að endurgreiða oftekna skatta og gjöld og að oftekið fé skuli bera skaðabótavexti skv. 1. mgr. 8. gr. laga um vexti og verðtryggingu, nr. 38/2001 (hér eftir „vaxtalög“), fari endurgreiðsla ekki fram innan 30 daga frá því að ofgreitt var. Með setningu laga nr. 150/2019 var hins vegar talsvert þrengt að rétti gjaldenda til dráttarvaxta úr hendi ríkisins.
Í eldri lögum, sbr. 2. mgr. 2. gr. laga um endurgreiðslu oftekinna skatta og gjalda, nr. 29/1995, sbr. 1. gr. laga nr. 131/2002, gilti sú regla að gjaldandi átti rétt á dráttarvöxtum skv. 1. mgr. 6. gr. vaxtalaga frá tímamarki sannanlegrar endurgreiðslubeiðnar. Dráttarvexti bar þó ekki að greiða ef endurgreiðsla fór fram innan 30 daga frá dagsetningu beiðninnar.
Með gildandi lögum var fallið frá þeirri framkvæmd. Þess í stað var tekin upp regla sem áður var að finna í 3. mgr. 114. gr. laga um tekjuskatt, nr. 90/2003, og skyldi hún frá því tímamarki gilda um endurgreiðslu allra skatta og gjalda. Rökin fyrir breytingunni voru margþætt. Í fyrsta lagi var talið að 2. mgr. 2. gr. laga nr. 29/1995 mismunaði gjaldendum eftir því hvort þeir nytu sérfræðiaðstoðar eður ei, þ.e. gjaldendur sem leituðu aðstoðar sérfræðinga voru taldir líklegri til að njóta dráttarvaxta en aðrir. Í öðru lagi kom fram í greinargerð að með breytingunni væri girt fyrir „möguleika á að gjaldendur greiði meira en þeim ber til að ná hagstæðari ávöxtun á fé sitt en þeim stendur til boða annars staðar“, sbr. þskj. 355, 314. mál á 150. löggjafarþingi 2019–2020, bls. 13–14. Að mati flutningsmanna standast þær skýringar ekki skoðun.
Þrjár þröngar undantekningar eru í gildandi lögum sem veita gjaldendum rétt til dráttarvaxta. Í fyrsta lagi ef mál er til meðferðar hjá yfirskattanefnd og nefndin kveður ekki upp úrskurð innan lögmælts frests, í öðru lagi frá því tímamarki er dómsmál er höfðað um endurgreiðslukröfu og í þriðja lagi ef stjórnvald hefur ekki innt endurgreiðslu af hendi innan 30 daga frá því að það tók ákvörðun um hana. Síðastnefnda reglan er í reynd einkar óheppileg, enda er málsmeðferðartími slíkra mála innan stjórnkerfisins oft gríðarlangur, stundum lengri en tvö ár. Í reynd er því takmarkaður hvati fyrir stjórnvöld til að ljúka málum hratt og örugglega.
Vert er að hafa í huga að umtalsverður munur er á skaðabótavöxtum skv. 1. mgr. 8. gr. vaxtalaga og dráttarvöxtum skv. 1. mgr. 6. gr. sömu laga. Við framlagningu frumvarps þessa eru dráttarvextir 16,25% en skaðabótavextir, sem ákvarðast sem 2/ 3 hlutar almennra vaxta skv. 1. mgr. 4. gr. vaxtalaga, eru 5,73%.
Með frumvarpinu er stefnt að því að jafna stöðu gjaldenda og ríkissjóðs að litlu leyti með því að hvetja stjórnvöld til að taka ákvarðanir í endurgreiðslumálum hratt og örugglega. Á það hefur verið bent að endurgreiðslumál séu oft flókin, geti krafist talsverðrar yfirlegu af hálfu þeirra sem vinna þau og það mæli því í mót að dráttarvextir leggist á kröfu á meðan yfirferð slíkra mála stendur. Til þess ber hins vegar að líta að skattalöggjöfin er oftar en ekki fremur óaðgengileg og krefst stundum aðkeyptrar þjónustu sérfræðinga, en sú staðreynd breytir því ekki að gjaldendur eru látnir bera álag og dráttarvexti vegna vanframtalinna skattstofna.
Um einstakar greinar frumvarpsins.
Um 1. gr.
Óþarft er að taka upp að nýju 4. mgr. 2. gr. laga nr. 29/1995 þar sem með setningu laga nr. 150/2019 var ýmsum endurgreiðslufyrirmælum sérlaga safnað saman í einn lagabálk. Meginreglur laga nr. 150/2019 eru því óháðar því hvaða skattur eða gjald er undir.
Um 2. gr.