Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF Word Perfect.

Þingskjal 1146, 157. löggjafarþing 511. mál: þjóðfáni Íslendinga og ríkisskjaldarmerkið (fánatími).
Lög nr. 42 7. maí 2026.

Lög um breytingu á lögum um þjóðfána Íslendinga og ríkisskjaldarmerkið, nr. 34/1944 (fánatími).


1. gr.

     7. gr. laganna orðast svo:
     Þjóðfánann skal ekki draga á stöng fyrr en klukkan sjö að morgni og að jafnaði skal hann ekki vera lengur uppi en til sólarlags og aldrei lengur en til miðnættis, sbr. þó 2. mgr.
     Frá 1. maí til 15. ágúst er heimilt að hafa þjóðfánann uppi allan sólarhringinn.
     Ráðherra er heimilt með reglugerð að mæla fyrir um fánadaga og um nánari notkun þjóðfánans samkvæmt þessari grein.

2. gr.

     Við 1. mgr. 12. gr. laganna bætist nýr málsliður, svohljóðandi: Þjóðfáninn skal vera óslitinn og með réttum litum þegar hann er við hún.

3. gr.

     Lög þessi öðlast þegar gildi.

Samþykkt á Alþingi 29. apríl 2026.