Aðrar útgáfur af skjalinu:
PDF
Word Perfect.
Þingskjal 1256, 157. löggjafarþing 514. mál: fullnusta refsinga (brottvísun og afplánun erlendra fanga).
Lög nr. 55 11. júní 2026.
Þrátt fyrir 3. mgr. 80. gr. er heimilt að veita fanga lausn til reynslu þegar einn þriðji hluti refsitímans er liðinn liggi fyrir endanleg ákvörðun á stjórnsýslustigi um að vísa honum úr landi að afplánun lokinni.
Ákvæði þetta nær til allra þeirra dóma sem kveðnir hafa verið upp fyrir gildistöku ákvæðis þessa og þegar eru komnir til fullnustu til Fangelsismálastofnunar sem og allra annarra dóma sem stofnuninni berast fyrir 1. júlí 2027.
Ákvæði þetta fellur úr gildi 1. júlí 2027.
Þingskjal 1256, 157. löggjafarþing 514. mál: fullnusta refsinga (brottvísun og afplánun erlendra fanga).
Lög nr. 55 11. júní 2026.
Lög um breytingu á lögum um fullnustu refsinga, nr. 15/2016 (brottvísun og afplánun erlendra fanga).
1. gr.
Á eftir orðinu „fanga“ í 1. málsl. 1. mgr. 31. gr. laganna kemur: ef ekki liggur fyrir ákvörðun um að vísa honum úr landi að afplánun lokinni.2. gr.
Við 33. gr. laganna bætist nýr töluliður, svohljóðandi: Að ekki liggi fyrir ákvörðun um að vísa fanga úr landi að afplánun lokinni.3. gr.
2. málsl. 3. mgr. 80. gr. laganna orðast svo: Sama gildir liggi fyrir endanleg ákvörðun á stjórnsýslustigi um að vísa fanga úr landi að afplánun lokinni.4. gr.
Við lögin bætist nýtt ákvæði til bráðabirgða, svohljóðandi:Þrátt fyrir 3. mgr. 80. gr. er heimilt að veita fanga lausn til reynslu þegar einn þriðji hluti refsitímans er liðinn liggi fyrir endanleg ákvörðun á stjórnsýslustigi um að vísa honum úr landi að afplánun lokinni.
Ákvæði þetta nær til allra þeirra dóma sem kveðnir hafa verið upp fyrir gildistöku ákvæðis þessa og þegar eru komnir til fullnustu til Fangelsismálastofnunar sem og allra annarra dóma sem stofnuninni berast fyrir 1. júlí 2027.
Ákvæði þetta fellur úr gildi 1. júlí 2027.
5. gr.
Lög þessi öðlast þegar gildi.Samþykkt á Alþingi 1. júní 2026.