Ferill 686. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 1286 — 686. mál.
Álit stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar
um eftirfylgniskýrslu Ríkisendurskoðunar um Landeyjahöfn.
Með bréfi, dags. 21. nóvember 2025, sendi forseti Alþingis eftirfylgniskýrslu Ríkisendurskoðunar um Landeyjahöfn til umfjöllunar stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar í samræmi við 2. gr. reglna um þinglega meðferð skýrslna Ríkisendurskoðunar, sbr. 8. tölul. 1. mgr. 13. gr. laga um þingsköp Alþingis. Í skýrslunni er gerð grein fyrir eftirfylgni með þeim niðurstöðum og tillögum til úrbóta sem Ríkisendurskoðun setti fram í skýrslu um Landeyjahöfn frá 2022. Nefndin fjallaði um þá skýrslu á 153. löggjafarþingi og veitti álit um hana ( þskj. 437, 398. mál).
Nefndin hefur fjallað um eftirfylgniskýrsluna á fundum sínum og fengið til sín gesti frá Ríkisendurskoðun, innviðaráðuneyti og Vegagerðinni.
Niðurstöður eftirfylgniskýrslu.
Í skýrslu sinni um Landeyjahöfn árið 2022 setti Ríkisendurskoðun fram þrjár tillögur til úrbóta. Fjölluðu þær um að færa þyrfti kostnað við viðhaldsdýpkun sem rekstrarkostnað Landeyjahafnar, að ráðast þyrfti í heildstæða úttekt á nauðsynlegum úrbótum og að vanda þyrfti undirbúning kostnaðarsamra fjárfestinga. Að mati Ríkisendurskoðunar hafa innviðaráðuneyti og Vegagerðin komið til móts við tvær af þremur úrbótatillögum Ríkisendurskoðunar. Að því er varðar heildstæða úttekt á nauðsynlegum úrbótum þá hafa orðið töluverðar tafir á að brugðist hafi verið við þeirri tillögu og er henni því ólokið.
Umfjöllun stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar.
Heildstæð úttekt á nauðsynlegum úrbótum.
Í skýrslu sinni frá 2022 beindi Ríkisendurskoðun þeirri tillögu til úrbóta að ráðist yrði í heildstæða úttekt á Landeyjahöfn. Með slíkri úttekt yrði metið hvað raunverulegar endurbætur myndu kosta, þ.m.t. á innsiglingunni. Þá yrði einnig kannað hvort fýsilegt væri að ráðast í umfangsmiklar aðgerðir til þess að bæta nýtingu hafnarinnar í stað þess að kosta miklu til viðhaldsdýpkunar á ári hverju.
Á grundvelli úttektar á Landeyjahöfn árið 2020 í samræmi við þingsályktun nr. 12/150 fól innviðaráðuneytið Vegagerðinni að afla frekari upplýsinga um aðstæður í Landeyjahöfn. Gert var ráð fyrir að þeirri vinnu lyki árið 2022. Í kjölfarið yrði hægt að taka afstöðu til næstu skrefa, m.a. hvort fýsilegt væri að ráðast í umfangsmiklar aðgerðir til þess að bæta enn frekar nýtingu hafnarinnar og draga úr árlegum dýpkunarkostnaði. Vegagerðin samdi í framhaldinu við tvær ráðgjafarstofur um að framkvæma óháða úttekt og þær skiluðu skýrslu til Vegagerðarinnar árið 2024.
Að mati Vegagerðarinnar stóð skýrslan ekki undir væntingum. Þótti hún bæta litlu við þá þekkingu sem stofnunin bjó þegar yfir varðandi aðstæður við Landeyjahöfn. Því var ákveðið að hefja rannsóknarverkefni í samstarfi við dönsku straumfræðistofnunina DHI og hófst það verkefni haustið 2024. Gert var ráð fyrir að niðurstöður þess verkefnis lægju fyrir í árslok 2025 eða byrjun 2026. Í kjölfarið tæki svo við ítarleg greiningarvinna. Kostnaður vegna viðhaldsdýpkunar yrði því að óbreyttu umtalsverður næstu árin. Á opnum fundi umhverfis- og samgöngunefndar 18. maí 2026 upplýsti innviðaráðherra um að búist væri við bráðabirgðaniðurstöðum frá DHI í júní og lokaskýrslu í haust.
Að mati nefndarinnar er það miður að úrlausn þessarar úrbótatillögu sé enn ólokið. Sú staðreynd að skýrslan sem innviðaráðuneytið hafði bundið vonir við hafi ekki staðið undir væntingum með tilheyrandi áhrifum á gang mála verður að teljast mikil vonbrigði. Beinir nefndin því til ráðuneytisins og Vegagerðarinnar að taka verkefnið föstum tökum og vinna markvisst úr þeim niðurstöðum sem beðið er eftir.
Undirbúningur kostnaðarsamra fjárfestinga.
Í skýrslunni frá 2022 var það meðal niðurstaðna Ríkisendurskoðunar að vanda hefði þurft betur undirbúning og kaup á botndælubúnaði. Fljótlega eftir að búnaðurinn kom til landsins varð ljóst að afköst hans myndu ekki réttlæta uppsetningu og var því hætt við verkið í miðjum klíðum. Um var að ræða kostnaðarsama fjárfestingu sem ekki reyndist grundvöllur fyrir. Ríkisendurskoðun beindi því til Vegagerðarinnar að vanda betur undirbúning verka sinna í framtíðinni.
Í eftirfylgniskýrslunni kemur fram að Vegagerðin hafi brugðist við ábendingunni. Stofnunin taki hana alvarlega og viðurkenni að mikilvægt sé að vanda enn frekar til undirbúnings verka. Ríkisendurskoðun metur það því sem svo að Vegagerðin hafi brugðist við tillögunni svo sem frekast er unnt.
Nefndin leggur af þessu tilefni áherslu á að ákvörðun um nýtingu opinberra fjármuna skal aðeins tekin að vandlega athuguðu máli. Almenningur verður að geta treyst því að stjórnvöld ráðstafi opinberu fé af ábyrgð. Stjórnvöld þurfa því ávallt að vanda til verka við undirbúning opinberra fjárfestinga og byggja ákvarðanir sínar á bestu aðferðum sem völ er á.
Sigmundur Ernir Rúnarsson var fjarverandi við afgreiðslu málsins en skrifar undir álit þetta samkvæmt heimild í 4. mgr. 28. gr. starfsreglna fastanefnda Alþingis, sbr. 2. mgr. 29. gr. þingskapa. Þórarinn Ingi Pétursson, áheyrnarfulltrúi í nefndinni, er samþykkur áliti þessu.
Alþingi, 29. maí 2026.
| Bryndís Haraldsdóttir, form., frsm. |
Jón Gnarr. | Árni Helgason. |
| Ása Berglind Hjálmarsdóttir. | Eiríkur Björn Björgvinsson. | Guðmundur Ingi Kristinsson. |
| Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir. | Sigmundur Ernir Rúnarsson. | Þorgrímur Sigmundsson. |