Ferill 569. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 1500 — 569. mál.
Skýrsla
félags- og húsnæðismálaráðherra um synjanir og frávísanir úr endurhæfingarúrræðum VIRK og eftirfylgni með fyrrverandi þjónustuþegum hjá Janusi endurhæfingu, samkvæmt beiðni.
Með beiðni (á þskj. 966) frá Rósu Guðbjartsdóttur og fleiri alþingismönnum er þess óskað að félags- og húsnæðismálaráðherra flytji Alþingi skýrslu um synjanir og frávísanir úr endurhæfingarúrræðum VIRK og eftirfylgni með fyrrverandi þjónustuþegum hjá Janusi endurhæfingu. Í beiðninni er óskað eftir að í skýrslu verði farið yfir:
1. Hver er nánari sundurliðun á þeim 8.899 beiðnum um starfsendurhæfingarþjónustu sem var synjað af VIRK á árunum 2016–2025, sbr. svar ráðherra á þskj. 665 á yfirstandandi þingi? Svar óskast sundurliðað eftir fjölda einstaklinga sem var synjað á hverju ári í eftirfarandi flokkum og nánari ástæðum höfnunar í hverjum flokki fyrir sig:
a. Synjun þar sem starfsendurhæfing var ekki talin raunhæf.
b. Starfsendurhæfing metin fullreynd.
c. Læknisfræðilegri greiningu ekki lokið.
d. Einstaklingur ekki talinn hafa þörf fyrir þjónustu VIRK.
2. Frá hvaða aðilum stafaði beiðni um þjónustu VIRK fyrir þá einstaklinga sem hafnað var um þjónustu, flokkað eftir árum og fyrrgreindum flokkum?
3. Hversu margir þeirra sem synjað var um þjónustu hafa jafnframt fengið einhverfugreiningu eða grunur liggur fyrir um að séu á einhverfurófi, flokkað eftir árum og fyrrgreindum flokkum?
4. Hversu mörgum einstaklingum hefur verið vísað úr endurhæfingarúrræðum á vegum VIRK eða öðrum endurhæfingarúrræðum sem VIRK hefur samið við undanfarin tíu ár, flokkað eftir úrræðum? Hvaða ástæður liggja að baki slíkum ákvörðunum og hvernig eru þær rökstuddar? Hér er ekki átt við þá einstaklinga sem hætta í úrræðum að eigin frumkvæði eða teljast hafa lokið endurhæfingu með árangri.
5. Hversu mörgum einstaklingum hefur verið gert að hætta í úrræði að frumkvæði VIRK eða þjónustuaðila sem VIRK hefur samið við þar sem úrræðið er ekki talið henta viðkomandi?
6. Hversu margir einstaklingar bíða nú eftir úrræði sem hentar eftir að hafa verið vísað úr öðru úrræði, sbr. 5. tölul.?
7. Hversu mörgum hefur verið vísað úr úrræðum á vegum VIRK undanfarin tíu ár vegna mætingarreglna VIRK og hversu margir þeirra einstaklinga eru með einhverfugreiningu?
8. Hversu margir einstaklingar sem áður voru í þjónustu hjá Janusi endurhæfingu eru nú í úrræðum á vegum VIRK?
9. Hvernig er eftirfylgni háttað með þeim einstaklingum sem voru í þjónustu hjá Janusi endurhæfingu áður en úrræðinu var lokað?
a. Hversu margir fluttust yfir í úrræði hjá VIRK?
b. Hvaða úrræði voru það?
c. Hver er staðan á endurhæfingu þeirra einstaklinga í dag?
10. Hefur farið fram könnun utanaðkomandi aðila á líðan þeirra einstaklinga sem áður voru í þjónustu hjá Janusi endurhæfingu og árangri þeirra úrræða sem þeim var vísað í, með það að markmiði að ganga úr skugga um að ekki hafi orðið þjónusturof eða bakslag í endurhæfingu? Ef svo er ekki, óskast upplýst hvort ráðherra hyggist láta gera slíka könnun. Einnig er óskað eftir upplýsingum um hvort ákvörðun ráðherra um að loka úrræðinu hafi verið réttmæt og hver rökin fyrir lokun voru.
Í greinargerð, sem fylgir með umræddri beiðni, er það rakið að markmiðið með skýrslubeiðninni sé að varpa ljósi á tilvik þar sem starfsendurhæfing hafi ekki verið nýtt eða ekki nýst þeim sem þurfi á þjónustunni að halda og á hvaða grundvelli. Í greinargerðinni kemur fram að mikilvægt sé að fá fram upplýsingar sem kallað sé eftir í beiðninni svo unnt sé að meta hve stór hópur falli utan starfsendurhæfingar og hvernig unnt sé að bæta þjónustu við þann hóp.
Jafnframt kemur fram í greinargerðinni að óskað sé eftir upplýsingum um hversu mörgum þjónustuþegum VIRK hafi í reynd verið synjað um starfsendurhæfingarþjónustu og ástæður þess. Þá er vísað til þess að í svari ráðherra við fyrirspurn um VIRK sem birt hafi verið á þskj. 665 á yfirstandandi þingi hafi ekki borist svar við öllum töluliðum fyrirspurnarinnar og þá sérstaklega þar sem óskað hafi verið eftir ástæðum og hvernig ákvarðanir um synjanir hafi verið rökstuddar. Í skýrslubeiðninni sé þeim því beint aftur til ráðherra í 4. og 5. tölul. og óskað eftir ítarlegri svörum í umbeðinni skýrslu.
Þá er einnig rakið í greinargerðinni að óskað sé eftir upplýsingum um eftirfylgni með þjónustuþegum hjá Janusi endurhæfingu sem lokað hafi verið á árinu 2025 og hvort þjónustan hafi verið nýtt og hafi nýst eða hvort orðið hafi rof á þjónustu við þá. Loks er óskað eftir að einnig verði upplýst hvort lokun á Janusi endurhæfingu hafi verið réttmæt og ef svo sé á hvaða grunni.
1. Hver er nánari sundurliðun á þeim 8.899 beiðnum um starfsendurhæfingarþjónustu sem var synjað af VIRK á árunum 2016–2025, sbr. svar ráðherra á þskj. 665 á yfirstandandi þingi? Svar óskast sundurliðað eftir fjölda einstaklinga sem var synjað á hverju ári í eftirfarandi flokkum og nánari ástæðum höfnunar í hverjum flokki fyrir sig:
a. Synjun þar sem starfsendurhæfing var ekki talin raunhæf.
b. Starfsendurhæfing metin fullreynd.
c. Læknisfræðilegri greiningu ekki lokið.
d. Einstaklingur ekki talinn hafa þörf fyrir þjónustu VIRK.
Beiðnum um starfsendurhæfingarþjónustu hjá VIRK er synjað þegar skilyrði teljast ekki uppfyllt fyrir þjónustu starfsendurhæfingarsjóða skv. 1. mgr. 11. gr. laga nr. 60/2012, um atvinnutengda starfsendurhæfingu og starfsemi starfsendurhæfingarsjóða. Í fyrrnefndu ákvæði er kveðið á um að skilyrði fyrir starfsendurhæfingarþjónustu sé að einstaklingur búi við heilsubrest sem hindrar fulla þátttöku hans á vinnumarkaði og að hann stefni að endurkomu á vinnumarkað eða að því að auka þátttöku á vinnumarkaði svo fljótt sem verða má. Enn fremur er það skilyrði að viðkomandi einstaklingur hafi þörf fyrir þjónustuna, hún sé til þess fallin að auðvelda honum að fara aftur til vinnu og líkleg til árangurs á þeim tíma sem hún er veitt. Þá er það skilyrði að einstaklingurinn hafi vilja og getu til að taka markvissan þátt í atvinnutengdri starfsendurhæfingu og til að fylgja þeirri áætlun sem unnin er í tengslum við endurhæfinguna.
Í meðfylgjandi töflu má sjá sundurliðun á ástæðum þess að beiðnum um starfsendurhæfingarþjónustu, sem bárust VIRK á árunum 2016–2025, var synjað. Vakin er athygli á því að skráning í upplýsingakerfi VIRK þróaðist mikið á þessu tímabili en árið 2018 var tekið í notkun nýtt upplýsingakerfi hjá VIRK og urðu skráningar nákvæmari eftir þá breytingu.
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
Nánari skýring á framangreindum ástæðum þess að beiðnum um starfsendurhæfingarþjónustu hjá VIRK var synjað:
1. Þegar beiðni er synjað á þeim grundvelli að starfsendurhæfing er ekki talin raunhæf eða hún er talin fullreynd eru aðstæður oftast þær að heilsubrestur viðkomandi er metinn það alvarlegur að ekki er talið að hann geti tekið þátt í starfsendurhæfingu á þeim tíma sem sótt er um slíka þjónustu.
2. Þegar beiðni er synjað á þeim grundvelli að læknisfræðilegri greiningu/meðferð/endurhæfingu er ekki lokið eru aðstæður viðkomandi yfirleitt með þeim hætti að talið er óraunhæft að hann geti tekið þátt í starfsendurhæfingu samhliða þeirri meðferð/endurhæfingu sem á sér stað innan heilbrigðiskerfisins. Viðkomandi er því ráðlagt að sækja síðar um starfsendurhæfingarþjónustu hjá VIRK.
3. Þegar beiðni er synjað á þeim grundvelli að viðkomandi er ekki talinn hafa þörf fyrir þjónustu VIRK eru aðstæður yfirleitt þær að viðkomandi er metinn með fulla getu til virkni á vinnumarkaði og því er ekki talin þörf á starfsendurhæfingu að mati VIRK.
4. Þegar beiðni er synjað á þeim grundvelli að starfsendurhæfing er ekki talin tímabær vegna fyrirhugaðrar fjarveru viðkomandi eru aðstæður oftast þær að viðkomandi er ekki á leið á vinnumarkað næstu mánuði eða ár af persónulegum ástæðum.
2. Frá hvaða aðilum stafaði beiðni um þjónustu VIRK fyrir þá einstaklinga sem hafnað var um þjónustu, flokkað eftir árum og fyrrgreindum flokkum?
Allar beiðnir um starfsendurhæfingarþjónustu sem berast VIRK koma frá læknum eða öðru háskólamenntuðu heilbrigðisstarfsfólki sem eru hluti af þverfaglegu teymi, svo sem geðheilsuteymum heilsugæslunnar. Um 90% beiðna sem berast VIRK koma frá heimilislæknum og á það við hvort sem um er að ræða beiðnir sem VIRK hafnar eða beiðnir sem VIRK samþykkir.
3. Hversu margir þeirra sem synjað var um þjónustu hafa jafnframt fengið einhverfugreiningu eða grunur liggur fyrir um að séu á einhverfurófi, flokkað eftir árum og fyrrgreindum flokkum?
Af þeim 8.899 beiðnum um starfsendurhæfingarþjónustu hjá VIRK sem var synjað á tímabilinu 2016–2025 voru 211 beiðnir vegna einstaklinga með einhverfugreiningu. Sjá má nánari sundurliðun í meðfylgjandi töflu:
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
Upplýsingar um hvort grunur liggur fyrir um að þeir sem sækja um endurhæfingarþjónustu hjá VIRK séu á einhverfurófi eru ekki skráðar í upplýsingakerfum VIRK og liggja slíkar upplýsingar því ekki fyrir.
4. Hversu mörgum einstaklingum hefur verið vísað úr endurhæfingarúrræðum á vegum VIRK eða öðrum endurhæfingarúrræðum sem VIRK hefur samið við undanfarin tíu ár, flokkað eftir úrræðum? Hvaða ástæður liggja að baki slíkum ákvörðunum og hvernig eru þær rökstuddar? Hér er ekki átt við þá einstaklinga sem hætta í úrræðum að eigin frumkvæði eða teljast hafa lokið endurhæfingu með árangri.
Ýmsar ástæður kunna að liggja að baki því að einstaklingar hætta í endurhæfingarúrræðum á vegum VIRK. Stundum óska einstaklingar eftir því sjálfir en einnig hafa í framkvæmd komið upp tilvik þar sem viðkomandi einstaklingar hætta að mæta í úrræði sem þeir eru í. Í sumum tilvikum er það mat fagaðila að úrræðið sem viðkomandi hefur verið í gagnist ekki viðkomandi og að það sé ekki vænlegt til árangurs. Í slíkum tilvikum eru fundin önnur úrræði sem henta betur sem hluti af starfsendurhæfingu viðkomandi eða viðkomandi er vísað annað innan velferðarkerfisins.
Upplýsingar liggja hvorki fyrir um fjölda þeirra sem hætta í tilteknum úrræðum á vegum VIRK eða í öðrum úrræðum á vegum þjónustuveitanda sem VIRK hefur samið við né um ástæður þess að viðkomandi hættir, þar sem slíkar upplýsingar eru ekki skráðar með kerfisbundnum hætti í upplýsingakerfum VIRK.
5. Hversu mörgum einstaklingum hefur verið gert að hætta í úrræði að frumkvæði VIRK eða þjónustuaðila sem VIRK hefur samið við þar sem úrræðið er ekki talið henta viðkomandi?
Líkt og fram kemur í svari við 4. tölul. eru upplýsingar um ástæður þess að viðkomandi hættir í tilteknum úrræðum á vegum VIRK eða á vegum þjónustuveitanda sem VIRK hefur samið við ekki skráðar með kerfisbundnum hætti í upplýsingakerfi VIRK. Þar af leiðandi liggja ekki fyrir upplýsingar um hve margir einstaklingar hafa hætt í úrræði að frumkvæði VIRK eða þjónustuveitanda sem VIRK hefur samið við þar sem úrræðið er ekki talið henta viðkomandi.
6. Hversu margir einstaklingar bíða nú eftir úrræði sem hentar eftir að hafa verið vísað úr öðru úrræði, sbr. 5. tölul.?
Líkt og fram kemur í svari við 4. tölul. liggja ekki fyrir upplýsingar um fjölda þeirra sem hætta í tilteknum úrræðum á vegum VIRK eða í öðrum úrræðum á vegum þjónustuveitanda sem VIRK hefur samið við. Því liggja ekki fyrir upplýsingar um hve margir einstaklingar bíða nú eftir úrræði sem hentar eftir að hafa verið vísað úr öðru úrræði, sbr. 5. tölul.
Þegar einstaklingur hættir í úrræði á vegum VIRK á þeim grundvelli að úrræðið er ekki talið gagnast viðkomandi eða það er ekki talið vænlegt til árangurs að viðkomandi haldi áfram í úrræðinu er viðkomandi vísað í annað úrræði á vegum VIRK. Starfsendurhæfingarferlið heldur því áfram og sé um bið að ræða eftir nýju úrræði er leitast við að bjóða viðkomandi önnur úrræði meðan á biðinni stendur sem og áframhaldandi stuðning og regluleg viðtöl hjá ráðgjafa.
7. Hversu mörgum hefur verið vísað úr úrræðum á vegum VIRK undanfarin tíu ár vegna mætingarreglna VIRK og hversu margir þeirra einstaklinga eru með einhverfugreiningu?
Líkt og fram kemur í svari við 4. tölul. liggja ekki fyrir upplýsingar um fjölda þeirra sem hætta í tilteknum úrræðum á vegum VIRK eða í öðrum úrræðum á vegum aðila sem VIRK hefur samið við. Því liggja hvorki fyrir upplýsingar um hve mörgum hefur verið vísað úr úrræðum á vegum VIRK undanfarin tíu ár vegna mætingarreglna VIRK né hve margir þeirra einstaklinga eru með einhverfugreiningu.
8. Hversu margir einstaklingar sem áður voru í þjónustu hjá Janusi endurhæfingu eru nú í úrræðum á vegum VIRK?
Í byrjun maí 2026 fengu alls 28 einstaklingar þjónustu hjá VIRK sem áður fengu þjónustu hjá Janusi endurhæfingu.
9. Hvernig er eftirfylgni háttað með þeim einstaklingum sem voru í þjónustu hjá Janusi endurhæfingu áður en úrræðinu var lokað?
a. Hversu margir fluttust yfir í úrræði hjá VIRK?
Alls fóru 49 einstaklingar sem áður fengu þjónustu hjá Janusi endurhæfingu í önnur úrræði á vegum VIRK þegar tilraunaverkefni VIRK, Sjúkratrygginga Íslands og Janusar endurhæfingar lauk 1. júní 2025. Fjórir af þeim sem fóru í önnur úrræði á vegum VIRK voru einstaklingar sem Janus hafði tekið inn á eigin forsendum á vorönn 2025, þ.e. ekki samkvæmt samningi við VIRK og SÍ.
b. Hvaða úrræði voru það?
Framangreindir 49 einstaklingar fóru ýmist í úrræði hjá öðrum starfsendurhæfingarstöðvum, í stök úrræði á vegum VIRK eða til sérhæfðra ráðgjafa hjá VIRK. Sem dæmi um stök úrræði má nefna sálfræðiþjónustu, sjálfsstyrkingu, atvinnutengd námskeið og sérhæfð námskeið þar sem tekið er á mismunandi vanda einstaklinga, iðjuþjálfun, hreyfiúrræði o.fl. Flestir þeir sem fóru til annarra starfsendurhæfingarstöðva fóru í úrræðið Víðsjá sem er rekið af Hringsjá endurhæfingu. Þar er boðið upp á samþætta starfsendurhæfingar- og heilbrigðisþjónustu fyrir ungt fólk á aldrinum 16–29 ára.
Sumarið 2025 voru 32 einstaklingar, sem áður fengu þjónustu hjá Janusi endurhæfingu, skráðir í Víðsjá. Hinir 17 einstaklingarnir voru í öðrum úrræðum á vegum VIRK, flestir í umsjón ráðgjafa VIRK.
c. Hver er staðan á endurhæfingu þeirra einstaklinga í dag?
Í byrjun maí 2026 fengu 28 einstaklingar þjónustu á vegum VIRK sem áður fengu þjónustu hjá Janusi endurhæfingu.
– 19 einstaklingar voru í Víðsjá.
– Tveir einstaklingar voru hjá öðrum starfsendurhæfingarstöðvum.
– Sjö einstaklingar voru hjá sérhæfðum ráðgjöfum VIRK sem og í ýmsum úrræðum.
Á sama tíma höfðu 20 einstaklingar, sem áður fengu þjónustu hjá Janusi endurhæfingu, lokið þjónustu hjá VIRK auk þess sem einn einstaklingur, sem áður hafði fengið þjónustu hjá Janusi endurhæfingu, hafði afþakkað þjónustu VIRK.
10. Hefur farið fram könnun utanaðkomandi aðila á líðan þeirra einstaklinga sem áður voru í þjónustu hjá Janusi endurhæfingu og árangri þeirra úrræða sem þeim var vísað í, með það að markmiði að ganga úr skugga um að ekki hafi orðið þjónusturof eða bakslag í endurhæfingu? Ef svo er ekki, óskast upplýst hvort ráðherra hyggist láta gera slíka könnun. Einnig er óskað eftir upplýsingum um hvort ákvörðun ráðherra um að loka úrræðinu hafi verið réttmæt og hver rökin fyrir lokun voru.
Sérstök könnun utanaðkomandi aðila hefur hvorki farið fram hvað varðar líðan þeirra einstaklinga sem áður fengu þjónustu hjá Janusi endurhæfingu né hvað varðar árangur þeirra úrræða sem þeim var vísað í þegar tilraunaverkefni VIRK, Sjúkratrygginga Íslands og Janusar endurhæfingar lauk 1. júní 2025 og telur ráðherra að svo stöddu ekki ástæðu til að ráðast í slíka könnun. Á það ekki síst við þar sem fylgst hefur verið með stöðu og líðan hvers og eins með reglulegum viðtölum og einstaklingsbundnu utanumhaldi af hálfu ráðgjafa VIRK. Þá gerir VIRK árlega þjónustukönnun meðal þjónustuþega og eru þær niðurstöður rýndar. Um það bil þriðja hvert ár er þessi könnun framkvæmd af utanaðkomandi aðila. VIRK hefur jafnframt virkt eftirlit með þjónustu allra þjónustuaðila í samræmi við þjónustusamning við ráðuneytið og kröfulýsingu tengda þeim samningi. Þá framkvæmir VIRK reglulegar úttektir á þjónustu allra þjónustuaðila í samræmi við vottað gæðakerfi ISO9001.
Ákvörðun um að gera ekki áframhaldandi samning við Janus endurhæfingu, þegar tilraunaverkefni VIRK, Sjúkratrygginga Íslands og Janusar endurhæfingar lauk 1. júní 2025, var ekki tekin af ráðherra þar sem ráðuneytið hefur ekki heimild til að hlutast til um einstaka samninga sem VIRK gerir við þjónustuveitendur. Mat á því hvort gera skuli nýja samninga, framlengja gildistíma eða ljúka eldri samningum um tiltekin úrræði er á forræði og ábyrgð VIRK samkvæmt lögum nr. 60/2012.