Ferill 94. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
158. löggjafarþing 2026–2027.
Þingskjal 151 — 94. mál.
Svar
heilbrigðisráðherra við fyrirspurn frá Diljá Mist Einarsdóttur um kynjasjónarmið í heilbrigðisþjónustu.
1. Koma kynjasjónarmið til álita í heilbrigðisþjónustu þar sem þess er þörf, t.d. við greiningu hjarta- og æðasjúkdóma og í þjónustu við sjúklinga með langvinna verki?
Við veitingu heilbrigðisþjónustu ber að taka mið af kynjasjónarmiðum þegar þau hafa þýðingu fyrir forvarnir, greiningu, meðferð eða árangur þjónustunnar. Það felur bæði í sér að taka tillit til líffræðilegs munar sem kann að hafa áhrif á sjúkdómseinkenni og meðferð og kynjaðra félagslegra þátta, svo sem ólíkrar stöðu, lifnaðarhátta, þjónustunotkunar og þeirrar hættu að staðalmyndir geti haft áhrif á mat og ákvarðanir.
Samkvæmt lögum um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna, nr. 150/2020, skal gæta jafnréttissjónarmiða og vinna að samþættingu kynja- og jafnréttissjónarmiða í stefnumótun og ákvörðunum á öllum sviðum samfélagsins. Þá er mismunun á grundvelli kyns við veitingu þjónustu óheimil.
Heilbrigðisráðuneytið lét árið 2021 vinna úttektina Heilsufar og heilbrigðisþjónusta – kynja- og jafnréttissjónarmið. Þar var heilsufar kynjanna kortlagt og lagt mat á hvort heilbrigðisþjónustan mætti ólíkum þörfum þeirra. Úttektin sýndi að kynjamunur getur komið fram í sjúkdómsbyrði, einkennum, greiningu, meðferð og aðgengi að þjónustu. Jafnframt kom fram að bæta þyrfti þekkingu og gögn á ýmsum sviðum og taka betur tillit til þarfa kvenna, m.a. vegna langvarandi verkja.
Í tengslum við hjarta- og æðasjúkdóma þarf meðal annars að hafa í huga að einkenni, áhættuþættir og aldur við greiningu geta verið ólík eftir kyni. Í úttektinni frá 2021 voru jafnframt raktar vísbendingar um að konur gætu verið vangreindar gagnvart tilteknum sjúkdómum og að áhættumat, viðmið og leiðbeiningar hefðu ekki alltaf tekið nægilegt mið af kynjasjónarmiðum. Mikilvægt er því að klínísk viðmið og verklag byggist á bestu fáanlegu þekkingu og að árangur þjónustunnar sé metinn eftir kyni, eftir því sem við á.
Sama á við um langvinna verki. Rannsóknir benda til þess að algengi, orsakir og áhrif langvinnra verkja geti verið ólík eftir kyni og að kynjaðar staðalmyndir geti haft áhrif á það hvernig lýsingum fólks á verkjum er tekið og hvaða meðferð því er boðin. Þjónustan þarf því að byggjast á einstaklingsbundnu mati þar sem tekið er mið af þörfum hvers og eins og þess gætt að kyn eða kynvitund leiði ekki til ómálefnalegs munar á greiningu, meðferð eða aðgengi að þjónustu.
Kynjasjónarmið eru þannig mikilvægur þáttur í faglegri og einstaklingsmiðaðri heilbrigðisþjónustu. Ráðherra telur jafnframt mikilvægt að efla áfram kynjagreinda skráningu og greiningu gagna svo unnt sé að greina óútskýrðan mun á þjónustu og árangri hennar og grípa til úrbóta þar sem þörf er á.
2. Koma kynjasjónarmið til álita við innleiðingu gervigreindar í heilbrigðisþjónustu?
Kynjasjónarmið skipta miklu máli við innleiðingu gervigreindar í heilbrigðisþjónustu, bæði til að tryggja jafnræði í þjónustu og öryggi sjúklinga.
Gervigreindarlíkön eru þjálfuð á gögnum sem geta endurspeglað kynbundna skekkju í heilbrigðiskerfinu. Einkenni og sjúkdómar kvenna hafa til að mynda í sumum tilvikum verið vanrannsökuð eða vangreind. Sé gervigreind þjálfuð á slíkum gögnum getur hún viðhaldið eða jafnvel aukið þá skekkju.
Við innleiðingu gervigreindar þarf því að tryggja að þjálfunargögn séu nægilega fjölbreytt og endurspegli ólík kyn og sjúklingahópa. Þá þarf að meta árangur líkansins eftir kyni, m.a. með tilliti til þess hvort næmi, sértæki og tíðni rangra niðurstaðna sé mismunandi milli hópa. Einnig þarf að taka tillit til bæði líffræðilegs munar og félagslegra þátta, enda getur hvort tveggja haft áhrif á sjúkdómseinkenni, greiningu og meðferð. Að innleiðingu lokinni þarf jafnframt að fylgjast með áhrifum tækninnar til að tryggja að hún auki ekki ójöfnuð í heilbrigðisþjónustu.
Mikilvægt er þó að greina á milli réttmæts líffræðilegs munar og óæskilegrar kynbundinnar skekkju. Markmiðið er ekki að niðurstöður séu ávallt þær sömu fyrir öll kyn, heldur að mismunur sé læknisfræðilega réttlætanlegur og leiði ekki til mismununar.
Með því að hafa kynjasjónarmið til hliðsjónar við þróun, prófun og innleiðingu gervigreindar má stuðla að öruggari, nákvæmari og réttlátari heilbrigðisþjónustu fyrir alla.