Ferill 202. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Microsoft Word.
158. löggjafarþing 2026–2027.
Þingskjal 210 — 202. mál.
Stjórnarfrumvarp.
Frumvarp til loftslagslaga.
Frá umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra.
I. KAFLI
Markmið, orðskýringar og stjórnvöld.
1. gr.
Markmið.
a. draga úr losun gróðurhúsalofttegunda og auka kolefnisbindingu í samræmi við markmið stjórnvalda og alþjóðlegar skuldbindingar, m.a. markmið Parísarsamningsins, með réttlát umskipti, verndun líffræðilegrar fjölbreytni og sjálfbæra þróun að leiðarljósi,
b. Ísland verði kolefnishlutlaust eigi síðar en 2040,
c. íslenskt samfélag aðlagist og búi að þoli gagnvart áhrifum loftslagsbreytinga og stuðli að þoli vistkerfa fyrir þeim.
2. gr.
Gildissvið.
3. gr.
Orðskýringar.
2. Gróðurhúsalofttegundir:
a. koldíoxíð, CO2,
b. metan, CH4,
c. díköfnunarefnisoxíð, N2O,
d. vetnisflúorkolefni, HFC,
e. perflúorkolefni, PFC,
f. brennisteinshexaflúoríð, SF6,
g. köfnunarefnisflúoríð, NF3,
h. aðrir loftkenndir efnisþættir andrúmsloftsins, náttúrulegir og af mannavöldum, sem gleypa innrauða geislun og senda hana frá sér aftur.
3. Kolefnisbinding: Ferlið við að binda kolefni í kolefnisgeymi.
4. Kolefniseining: Framseljanleg eining sem jafngildir einu tonni af koldíoxíði sem annaðhvort hefur verið komið í veg fyrir að berist í andrúmsloftið eða hefur verið fjarlægt úr andrúmsloftinu og bundið í kolefnisgeymi.
5. Kolefnishlutleysi: Það ástand þegar nettólosun er engin þar sem jafnvægi hefur náðst milli losunar gróðurhúsalofttegunda af mannavöldum og kolefnisbindingar.
6. Kolefnisjöfnun: Þegar aðili notar vottaðar kolefniseiningar til að jafna út sína eigin losun á gróðurhúsalofttegundum að hluta eða öllu leyti.
7. Langtímamarkmið: Markmið um samdrátt í losun gróðurhúsalofttegunda og aukna bindingu kolefnis sem nær til 25 ára í senn í samræmi við alþjóðlegar skuldbindingar.
8. Loftslagsaðgerðir: Samheiti yfir mótvægisaðgerðir og aðlögunaraðgerðir.
9. Loftslagsþjónusta: Söfnun gagna, úrvinnsla, spár og miðlun um áhrif loftslagsbreytinga sem hefur hagnýtt gildi fyrir almenning, stjórnvöld og aðra hagaðila.
10. Losunarbókhald: Bókhald yfir sögulega og framreiknaða losun gróðurhúsalofttegunda og kolefnisbindingu.
11. Millimarkmið: Markmið um samdrátt í losun gróðurhúsalofttegunda og aukna bindingu kolefnis sem nær til fimm ára í senn, gefið út fyrir hvert fimm ára tímabil langtímamarkmiðs, þar sem stefnt er að auknum metnaði frá eldra markmiði.
12. Mótvægisaðgerð: Aðgerð sem miðar að því að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda eða auka kolefnisbindingu.
13. Nettólosun: Losun gróðurhúsalofttegunda að frádreginni kolefnisbindingu.
14. Skammtímamarkmið: Árleg markmið um árangur loftslagsaðgerða svo sem samdrátt í losun gróðurhúsalofttegunda og aukna kolefnisbindingu fyrir næsta millimarkmið hverju sinni.
15. Viðkvæmni- og áhættumat vegna loftslagsbreytinga: Mat á viðkvæmni og áhættu vegna áhrifa loftslagsbreytinga til skemmri og lengri tíma.
4. gr.
Stjórnvöld.
Umhverfis- og orkustofnun fer með framkvæmd laga þessara hvað varðar losunarbókhald Íslands yfir gróðurhúsalofttegundir og skráningarkerfi og hefur eftirlit með gerð loftslagsstefna sveitarfélaga, stofnana ríkisins og fyrirtækja í meirihlutaeigu ríkisins og veitir þeim ráðgjöf.
Land og skógur fer með framkvæmd laga þessara hvað varðar losunarbókhald Íslands vegna landnotkunar.
Veðurstofa Íslands fer með skipulag loftslagsþjónustu og skráningu loftslagstengdra atburða, mat á framgangi og árangri aðgerða aðlögunaráætlunar auk þess að hafa umsjón með viðkvæmni- og áhættumati vegna loftslagsbreytinga.
5. gr.
Samstarf í loftslagsmálum.
Losun gróðurhúsalofttegunda og upptaka sem fellur undir flokk landnotkunar, breyttrar landnotkunar og skógræktar hjá milliríkjanefnd Sameinuðu þjóðanna um loftslagsbreytingar skal ekki leiða af sér nettólosun á tímabilinu 2021–2025 annars vegar og 2026–2030 hins vegar í samræmi við skuldbindingar Íslands gagnvart Evrópusambandinu, sbr. reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2018/841.
Frá 1. janúar 2021 til 31. desember 2030 skal að lágmarki dregið úr losun gróðurhúsalofttegunda í flokki orku, iðnaðarferla og vörunotkunar, landbúnaðar og úrgangs í samræmi við skiptingu milliríkjanefndar Sameinuðu þjóðanna um loftslagsbreytingar, að undanskilinni losun gróðurhúsalofttegunda frá starfsemi sem fellur undir gildissvið viðskiptakerfis ESB með losunarheimildir, í samræmi við skuldbindingar Íslands gagnvart Evrópusambandinu, sbr. reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2018/842.
6. gr.
Skýrsla ráðherra um stöðu og árangur í loftslagsmálum.
II. KAFLI
Loftslagsstefnur.
7. gr.
Loftslagsstefna Íslands.
Í loftslagsstefnu skal lýsa stefnu og markmiðum Íslands í loftslagsmálum. Þar skal fjalla um alþjóðlegar skuldbindingar Íslands í loftslagsmálum. Loftslagsstefna skal innihalda töluleg langtímamarkmið stjórnvalda með skilgreindum millimarkmiðum og skammtímamarkmiðum sem og meginsjónarmið um hvernig markmiðum skv. 1. gr. verði náð.
Loftslagsstefna skal einnig lýsa langtímasýn stjórnvalda um aðlögun íslensks samfélags að loftslagsbreytingum samkvæmt markmiðum 1. gr.
8. gr.
Loftslagsstefna sveitarfélaga.
Loftslagsstefna sveitarfélaga skal:
a. byggjast á greiningu á losun frá starfsemi og rekstri sveitarfélagsins, þ.m.t. losun og kolefnisbindingu vegna landnotkunar,
b. innihalda aðgerðaáætlun sem tekur mið af markmiðum stefnunnar með skýrum og tímasettum mótvægisaðgerðum,
c. fjalla um viðkvæmni og áhættu vegna áhrifa loftslagsbreytinga innan sveitarfélagsins,
d. setja fram aðlögunaraðgerðir í samræmi við niðurstöðu viðkvæmni- og áhættumats, ef matið leiðir í ljós þörf á aðlögun að loftslagsbreytingum.
Sveitarfélög skulu senda loftslagsstefnu til Umhverfis- og orkustofnunar og birta á vef sveitarfélagsins. Sveitarfélög skulu endurskoða loftslagsstefnu eigi sjaldnar en á fimm ára fresti. Umhverfis- og orkustofnun hefur eftirlit með að sveitarfélög setji sér loftslagsstefnu og innleiði aðgerðir samkvæmt henni og veitir sveitarfélögum ráðgjöf varðandi mælingar á losun gróðurhúsalofttegunda og árangri aðgerða vegna innri reksturs. Umhverfis- og orkustofnun tekur saman árangur sveitarfélaga í loftslagsmálum fyrir skýrslu verkefnisstjórnar loftslagsaðgerða, sbr. 10. gr. Umhverfis- og orkustofnun skal birta loftslagsstefnu sveitarfélaga á vef stofnunarinnar.
Sveitarfélög skulu árlega meta árangur loftslagsstefnu og hvort markmiðum hennar sé náð.
Sveitarfélögum er heimilt að móta loftslagsstefnu sem hluta af annarri stefnumótun eða áætlanagerð og í samstarfi við önnur sveitarfélög eða landshlutasamtök. Sveitarfélög skulu samþætta loftslagsmarkmið stefnumótun og áætlanagerð.
9. gr.
Loftslagsstefna annarra opinberra aðila.
a. byggjast á gögnum um losun sem taka til greina beina og óbeina losun frá rekstri, framkvæmdum og innkaupum starfseminnar,
b. innihalda aðgerðaáætlun með skilgreind og tímasett markmið um samdrátt í losun gróðurhúsalofttegunda frá rekstri starfseminnar auk mótvægisaðgerða til að þeim verði náð,
c. setja fram upplýsingar um kolefnisbindingu og kolefnisjöfnun starfseminnar þar sem ekki er unnt að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda.
Umhverfis- og orkustofnun hefur eftirlit með að stofnanir ríkisins og fyrirtæki í meirihlutaeigu ríkisins setji sér loftslagsstefnu og innleiði aðgerðir samkvæmt henni og veitir stofnunum ríkisins ráðgjöf. Umhverfis- og orkustofnun tekur saman árangur stofnana ríkisins og fyrirtækja í meirihlutaeigu ríkisins í loftslagsmálum fyrir skýrslu verkefnisstjórnar loftslagsaðgerða, sbr. 10. gr.
III. KAFLI
Loftslagsaðgerðir.
10. gr.
Verkefnisstjórn loftslagsaðgerða og framkvæmdateymi.
Verkefnisstjórn loftslagsaðgerða fer með samhæfingarhlutverk milli ráðuneyta og annarra stjórnvalda og tryggir aðkomu viðeigandi stjórnvalda að loftslagsaðgerðum. Verkefnisstjórn vinnur að innleiðingu og eftirfylgni loftslagsáætlana og aðgerða undir þeim, sbr. 11. og 12. gr., og ber hvert ráðuneyti ábyrgð á aðgerðum innan síns ábyrgðarsviðs. Verkefnisstjórn er heimilt að stofna framkvæmdateymi sem hafa umsjón með framkvæmd tiltekinna loftslagsaðgerða.
Verkefnisstjórn tryggir að loftslagsaðgerðir byggist á gagnreyndum vísindum og bestu fáanlegu þekkingu hverju sinni. Við skipulag og framkvæmd loftslagsaðgerða skal huga að vernd líffræðilegrar fjölbreytni og leitast við að aðgerðir gangi ekki á eða rýri vistkerfi sem eru mikilvæg fyrir varðveislu hennar. Verkefnisstjórnin skal jafnframt tryggja að mótun aðgerða og innleiðing þeirra taki mið af réttlátum umskiptum og sjálfbærri þróun. Þá skal verkefnisstjórn taka mið af öðrum stefnum stjórnvalda við skipulag og framkvæmd aðgerðanna.
Við mótun aðgerðaáætlunar í loftslagsmálum skv. 11. gr. og aðlögunaráætlunar skv. 12. gr. skal verkefnisstjórn hafa samráð við loftslagsráð og hagaðila eins og fulltrúa atvinnulífs, stéttarfélaga, umhverfisverndarsamtaka og háskólasamfélags og við almenning.
Verkefnisstjórn ber ábyrgð á endurskoðun áætlana skv. 11. og 12. gr.
Verkefnisstjórn loftslagsaðgerða skal fyrir lok september ár hvert skila ráðherra skýrslu um framgang og árangur loftslagsaðgerða. Í skýrslunni skulu eftir atvikum settar fram ábendingar verkefnisstjórnar.
Árlega skal skýrsla verkefnisstjórnar fjalla um mat á framgangi og árangri loftslagsaðgerða á grundvelli aðgerðaáætlunar í loftslagsmálum skv. 11. gr. sem skal byggjast á gögnum og greiningum Umhverfis- og orkustofnunar og Lands og skógar. Jafnframt getur verkefnisstjórn sett fram tillögu að hertum aðgerðum í skýrslunni, sbr. 13. gr.
Annað hvert ár skal skýrsla verkefnisstjórnar jafnframt fjalla um mat á framgangi og árangri aðgerða á grundvelli aðlögunaráætlunar skv. 12. gr. sem skal byggjast á gögnum og greiningum Veðurstofu Íslands.
11. gr.
Aðgerðaáætlun í loftslagsmálum.
Í aðgerðaáætlun skal koma fram mat á áætluðum kostnaði ásamt mati á loftslagsávinningi af aðgerðunum að því marki sem það er hægt. Þá skulu aðgerðir mótaðar og metnar með tilliti til markmiða laga þessara, sbr. 1. gr.
Í aðgerðaáætlun skal unnið samkvæmt loftslagsstefnu, sbr. 7. gr.
Aðgerðir í aðgerðaáætlun skal uppfæra reglulega með tilliti til árangurs. Þar skulu gögn úr losunarbókhaldi Umhverfis- og orkustofnunar og Lands og skógar ásamt greiningum stofnananna liggja til grundvallar.
Aðgerðaáætlun skal gilda til fimm ára í senn og endurskoðuð í heild eigi sjaldnar en á fjögurra ára fresti.
12. gr.
Aðlögunaráætlun.
Í aðlögunaráætlun skal koma fram mat á áætluðum kostnaði af framkvæmd aðgerðanna sem þar eru lagðar til. Þá skulu aðgerðir mótaðar og metnar með tilliti til markmiða laga þessara, sbr. 1. gr.
Verkefnisstjórn loftslagsaðgerða skal við mótun aðlögunaraðgerða taka mið af viðkvæmni- og áhættumati vegna loftslagsbreytinga með tilliti til þols innviða, fólks, lífríkis og með hliðsjón af samantektarskýrslum, sbr. 21. gr.
Veðurstofa Íslands hefur umsjón með samræmdu mati á framgangi og árangri aðgerða aðlögunaráætlunar og viðkvæmni- og áhættumati vegna loftslagsbreytinga eftir málaflokkum aðlögunaráætlunar.
Aðlögunaráætlun skal vera til fimm ára og endurskoðuð í heild sinni eigi sjaldnar en á fjögurra ára fresti.
13. gr.
Viðbrögð við frávikum frá loftslagsskuldbindingum.
a. reiknaður sé ætlaður fjárhagslegur kostnaður vegna umframlosunar eða skorts á bindingu á liðnu ári og að niðurstaðan verði birt í skýrslu verkefnisstjórnar skv. 10. gr.,
b. gerð verði grein fyrir áætluðum kostnaði sem hugsanlegri framtíðarskuldbindingu í skýringum með ríkisreikningi, í samræmi við lög um opinber fjármál,
c. verkefnisstjórn loftslagsaðgerða setji fram tillögur að hertum aðgerðum sem hluta af skýrslu sinni skv. 10. gr.,
d. fyrir Alþingi séu kynntar hertar mótvægisaðgerðir í skýrslu ráðherra skv. 6. gr. sem hafa hlotið samþykki ríkisstjórnar.
14. gr.
Opinber innkaup á umhverfisvænum ökutækjum.
IV. KAFLI
Losunarbókhald og skráningarkerfi.
15. gr.
Losunarbókhald.
Umhverfis- og orkustofnun ber ábyrgð á gerð bókhalds yfir losun gróðurhúsalofttegunda og kolefnisbindingu frá uppsprettum sem falla undir orkunotkun og orkuframleiðslu, iðnaðarferla og vörunotkun, landbúnað, úrgang og annað samkvæmt skilgreiningum rammasamnings Sameinuðu þjóðanna um loftslagsbreytingar.
Land og skógur ber ábyrgð á gerð bókhalds yfir losun gróðurhúsalofttegunda og kolefnisbindingu frá uppsprettum sem falla undir landnotkun, breytta landnotkun og skógrækt samkvæmt sama rammasamningi.
Báðum stofnunum ber að taka saman upplýsingar um stefnur og aðgerðir í þeim geirum sem undir þær heyra, sbr. 2. og 3. mgr., í samræmi við alþjóðlegar skuldbindingar.
Stofnununum er heimilt að krefja stjórnvöld, stofnanir, samtök, fyrirtæki og einstaklinga í atvinnurekstri um gögn og upplýsingar sem þeir búa yfir um sögulega og framreiknaða losun gróðurhúsalofttegunda ásamt upplýsingum um stefnur og aðgerðir í loftslagsmálum hvað varðar starfsemi þeirra og rekstur. Skylt er að veita upplýsingar á því formi sem óskað er eftir eða samið er um og innan þeirra tímamarka sem kveðið er á um í reglugerð skv. 5. tölul. 1. mgr. 23. gr., án þess að gjald komi fyrir.
16. gr.
Skráningarkerfi.
V. KAFLI
Loftslagsráð.
17. gr.
Hlutverk og verkefni.
Loftslagsráð skal fjalla um loftslagsaðgerðir stjórnvalda, sbr. 11. og 12. gr., og skýrslu um framgang þeirra, sbr. 10. gr. Umsögn skal skilað til ráðherra og hún lögð fram á Alþingi með skýrslu ráðherra skv. 6. gr.
Ráðherra skal taka mið af ráðgjöf loftslagsráðs og bregðast skriflega við umsögnum ráðsins um áætlanir og loftslagsaðgerðir stjórnvalda.
Loftslagsráð getur enn fremur haft frumkvæði að upptöku mála sem samræmast hlutverki þess.
Loftslagsráð skal setja sér starfsreglur og vera sjálfstætt og óháð í störfum sínum.
Formaður loftslagsráðs skal sitja í landsnefnd um loftslagsvísindi, sbr. 20. gr.
Loftslagsráði er heimilt að ráða framkvæmdastjóra. Framkvæmdastjóri getur ekki verið fulltrúi í loftslagsráði.
18. gr.
Skipan loftslagsráðs.
Loftslagsráð skal skipað fulltrúum með fjölbreytta þekkingu og reynslu á sviði loftslagsmála. Gæta skal þess að fullskipað loftslagsráð búi yfir þekkingu samkvæmt hæfniviðmiðum sem nánar skal kveðið á um í reglugerð.
Ráðherra skal skipa í ráðið á grundvelli auglýsingar.
Skipunartími fulltrúa loftslagsráðs er að hámarki fjögur ár. Heimilt er að endurskipa hvern fulltrúa einu sinni. Hámarksskipunartími á ekki við um formann og varaformann. Við skipan skal ráðherra tryggja að ekki sé skipt um alla fulltrúa ráðsins í einu og er heimilt í reglugerð að kveða nánar á um útfærslu skipunar.
VI. KAFLI
Vísindaleg þekking um loftslagsbreytingar.
19. gr.
Alþjóðlegt samstarf um samantekt vísindalegrar þekkingar.
20. gr.
Landsnefnd um loftslagsvísindi.
Í nefndinni skulu sitja að hámarki sjö fulltrúar sem skipaðir eru til fimm ára í senn. Tryggja skal að fulltrúar nefndarinnar hafi þekkingu og reynslu af rannsóknum og stjórnsýslu í loftslagsmálum. Formaður landsnefndarinnar er forstjóri Veðurstofu Íslands. Í nefndinni sitja, auk formanns, formaður loftslagsráðs, fulltrúi Umhverfis- og orkustofnunar og fulltrúi háskólasamfélagsins.
21. gr.
Samantektarskýrslur um vísindalega þekkingu á sviði loftslagsmála.
22. gr.
Upplýsingar um áhrif loftslagsbreytinga.
VII. KAFLI
Reglugerðarheimild, gildistaka o.fl.
23. gr.
Reglugerðarheimild.
1. Viðmiðanir, bókhald, sveigjanleikareglur og annað sem varðar skuldbindingar, sbr. 2. mgr. 5. gr.
2. Árlegan samdrátt í losun gróðurhúsalofttegunda á Íslandi, sveigjanleikareglur og eftirlitsreglur í samræmi við alþjóðlegar skuldbindingar, sbr. 2. og 3. mgr. 5. gr.
3. Störf og skipan verkefnisstjórnar loftslagsaðgerða, áætlanir um loftslagsaðgerðir, stofnun framkvæmdateyma, efni árlegrar skýrslu verkefnisstjórnar til ráðherra, aðkomu stofnana að verkefnisstjórn auk samráðs við hagaðila um gerð og eftirfylgni loftslagsaðgerða, sbr. 10. gr.
4. Opinber innkaup á umhverfisvænum ökutækjum, sbr. 14. gr.
5. Losunarbókhald, framkvæmd þess, verkaskiptingu milli stofnana og upplýsingagjöf, sbr. 5. mgr. 15. gr., þar á meðal um bókhald, skýrslugjöf og hvaða aðilum ber skylda til að taka saman gögn varðandi losun gróðurhúsalofttegunda og skila til stofnana.
6. Skráningarkerfi, sbr. 16. gr.
7. Skipan loftslagsráðs, sbr. 18. gr.
Ráðherra er heimilt að setja í reglugerð nánari ákvæði um eftirfarandi:
1. Gerð og eftirfylgni loftslagsstefnu Íslands, sveitarfélaga og annarra opinberra aðila, sbr. 7.–9. gr, sem og um söfnun upplýsinga og upplýsingagjöf vegna loftslagsstefnanna.
2. Gerð og eftirfylgni loftslagsaðgerða, sbr. 11. og 12. gr.
3. Skipan og verkefni landsnefndar um loftslagsvísindi, sbr. 20. gr.
4. Skipulag loftslagsþjónustu, skráningu loftslagstengdra atburða og upplýsingagjöf til Veðurstofu Íslands, sbr. 22. gr.
24. gr.
Innleiðing.
1. Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2018/841 frá 30. maí 2018 um að fella losun gróðurhúsalofttegunda og upptöku frá landnotkun, breyttri landnotkun og skógrækt inn í loftslags- og orkurammann fram til ársins 2030 og um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 525/2013 og ákvörðun nr. 529/2013/ESB eins og hún var tekin upp í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 269/2019 frá 25. október 2019.
2. Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2018/842 frá 30. maí 2018 um bindandi árlega skerðingu á losun gróðurhúsalofttegunda aðildarríkjanna frá 2021 til 2030 sem stuðlar að loftslagsaðgerðum til að uppfylla skuldbindingar samkvæmt Parísarsamningnum og um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 525/2013 eins og hún var tekin upp í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 269/2019 frá 25. október 2019.
3. Tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2009/33/EB frá 23. apríl 2009 um að stuðla að notkun á hreinum og orkunýtnum ökutækjum til flutninga á vegum eins og hún var tekin upp í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 173/2013 frá 8. október 2013.
25. gr.
Gildistaka.
Við gildistöku laga þessara falla úr gildi lög um loftslagsmál, nr. 70/2012.
26. gr.
Breyting á öðrum lögum.
1. Lög um Veðurstofu Íslands, nr. 70/2008: Á eftir 2. tölul. 3. gr. laganna koma tveir nýir töluliðir, svohljóðandi:
3. að safna upplýsingum um áhrif loftslagsbreytinga, sbr. lög um loftslagsmál.
4. að samhæfa loftslagsþjónustu og skrá loftslagstengda atburði, sbr. lög um loftslagsmál.
2. Lög um viðskiptakerfi ESB með losunarheimildir, nr. 96/2023: 7. tölul. 1. mgr. 33. gr. laganna fellur brott.
Ákvæði til bráðabirgða.
I.
II.
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.