Ferill 216. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


158. löggjafarþing 2026–2027.
Þingskjal 229  —  216. mál.




Beiðni um skýrslu


frá heilbrigðisráðherra um gæði þjónustu á hjúkrunarheimilum.


Frá Ingibjörgu Isaksen, Þórarni Inga Péturssyni, Sigurði Inga Jóhannssyni, Stefáni Vagni Stefánssyni, Höllu Hrund Logadóttur, Guðlaugi Þór Þórðarsyni, Jóni Gunnarssyni, Bryndísi Haraldsdóttur, Karli Gauta Hjaltasyni og Jens Garðari Helgasyni.


    Með vísan til 54. gr. stjórnarskrárinnar og 54. gr. laga um þingsköp Alþingis er þess óskað að heilbrigðisráðherra flytji Alþingi skýrslu um gæði þjónustu á hjúkrunarheimilum, hvernig gæði eru skilgreind, mæld og tryggð og hvort mönnun, fagleg þjónusta og aðbúnaður geri hjúkrunarheimilum kleift að veita íbúum örugga, einstaklingsmiðaða og virðulega þjónustu. Jafnframt verði metið hvernig tryggja megi að gæði þjónustunnar haldist í hendur við þá fjölgun hjúkrunarrýma sem nú stendur yfir.
    Í skýrslunni verði m.a. fjallað um:
     1.      Skilgreiningu, mælingar og eftirlit með gæðum þjónustunnar. Gerð verði grein fyrir því hvaða kröfur stjórnvöld gera til gæða þjónustu á hjúkrunarheimilum, hvernig fylgst er með því að þær séu uppfylltar og hvaða gæðavísar eru notaðir. Metið verði hvort fyrirliggjandi gögn gefi fullnægjandi og samanburðarhæfa mynd af gæðum milli hjúkrunarheimila og yfir tíma. Jafnframt verði gerð grein fyrir eftirliti með starfseminni, niðurstöðum þess og hvernig brugðist er við þegar þjónusta stenst ekki settar kröfur.
     2.      Lífsgæði, sjálfsákvörðunarrétt og reynslu íbúa. Metið verði hvernig þjónustan styður við lífsgæði, sjálfræði, reisn, friðhelgi og þátttöku íbúa í ákvörðunum um eigið líf og eigin þjónustu. Gerð verði grein fyrir því hvort reynsla og ánægja íbúa sé mæld reglulega og með sambærilegum hætti milli heimila og hvernig niðurstöður slíkra mælinga eru nýttar til umbóta.
     3.      Reynslu og aðkomu aðstandenda. Gerð verði grein fyrir því hvernig samráði, upplýsingagjöf og samstarfi við aðstandendur er háttað og hvort reynsla þeirra af þjónustunni sé mæld með reglubundnum og samræmdum hætti. Metið verði hvernig ábendingar og kvartanir íbúa og aðstandenda eru skráðar, greindar og nýttar til gæðaumbóta.
     4.      Mönnun, fagþekkingu og samfellu í þjónustu. Gerð verði grein fyrir þróun mönnunar undanfarin fimm ár, þar á meðal fjölda stöðugilda miðað við fjölda íbúa, faglegri samsetningu starfsfólks, starfsmannaveltu og aðgengi að hjúkrunarfræðingum, læknum, öldrunarlæknum og annarri sérfræðiþjónustu. Metið verði hvort mönnun og hæfni starfsfólks taki nægilegt mið af hjúkrunarþyngd og sífellt flóknari þjónustuþörf íbúa og hvort tryggð sé nægileg samfella í umönnun.
     5.      Öryggi og heilsufarsleg gæði. Gerð verði grein fyrir þróun helstu mælikvarða sem varða öryggi og heilsufar íbúa, eftir því sem gögn liggja fyrir, svo sem byltum, þrýstingssárum, vannæringu, sýkingum, óvæntum sjúkrahúsinnlögnum og öðrum atvikum, svo og ástæðum slysa og óhappa, sem geta gefið vísbendingar um gæði umönnunar. Metið verði hvort slík atvik séu skráð og birt með nægilega samræmdum hætti til að styðja við eftirlit og umbætur.
     6.      Ástæður slysa. Gerð verði grein fyrir fjölda og tegund slysa og alvarlegra atvika meðal íbúa hjúkrunarheimila undanfarin fimm ár, þar á meðal byltum og slysum sem leiða til áverka, sjúkrahúsinnlagna eða dauðsfalla. Greindar verði helstu ástæður og áhættuþættir slysa og eftir því sem gögn leyfa, hvort tengsl séu við mönnun, aðbúnað, lyfjanotkun, hreyfigetu og heilsufar íbúa eða aðra þætti. Jafnframt verði gerð grein fyrir því hvernig slys og alvarleg atvik eru skráð, rannsökuð og þeim fylgt eftir, hvaða forvarnaraðgerðir eru viðhafðar og hvort munur sé á tíðni slysa milli hjúkrunarheimila þegar tekið hefur verið tillit til mismunandi þjónustuþarfa og hjúkrunarþyngdar íbúa.
     7.      Virkni, endurhæfingu og þjónustu við fólk með heilabilun. Gerð verði grein fyrir aðgengi íbúa að virkni, félagslegri þátttöku, hreyfingu, iðjuþjálfun, sjúkraþjálfun og endurhæfingu og hvort munur sé á framboði slíkrar þjónustu milli heimila. Sérstaklega verði metin gæði og umfang einstaklingsmiðaðrar þjónustu við fólk með heilabilun og aðgengi starfsfólks að þjálfun og sérfræðiþekkingu á því sviði.
     8.      Lyfjaöryggi og lyfjanotkun sem hluta af gæðum þjónustunnar. Gerð verði grein fyrir þróun notkunar geðlyfja meðal íbúa hjúkrunarheimila undanfarin fimm ár, með sérstakri áherslu á geðrofslyf, róandi og kvíðastillandi lyf, svefnlyf og þunglyndislyf. Metið verði hvort munur sé á notkun milli heimila, hvaða ábendingar liggi að baki notkuninni og hvernig reglulegri lyfjarýni og eftirfylgni með aukaverkunum sé háttað. Jafnframt verði skoðað hvort íbúar hafi aðgang að viðeigandi öðrum úrræðum þegar lyfjameðferð er ekki besti kosturinn. Lyfjanotkun verði þannig metin sem einn þáttur í heildstæðu mati á gæðum þjónustunnar. Jafnframt verði gerð grein fyrir sýn stjórnvalda á þróun lyfjanotkunar og áherslum í því ljósi.
     9.      Samanburð á gæðum milli hjúkrunarheimila. Metið verði hvort unnt sé að setja fram samræmt yfirlit og safn gæðavísa, eins konar mælaborð, sem gerir stjórnvöldum, rekstraraðilum, íbúum og aðstandendum kleift að fylgjast með þróun gæða og bera saman þjónustu með sanngjörnum hætti. Þar verði m.a. horft til lífsgæða og reynslu íbúa, mönnunar, öryggisatvika og slysa, virkni og endurhæfingar, lyfjaöryggis og óvæntra sjúkrahúsinnlagna. Tekið verði tillit til mismunandi hjúkrunarþyngdar og þjónustuþarfa íbúa við slíkan samanburð.
     10.      Fjölgun hjúkrunarrýma og áhrif á gæði. Gerð verði ítarleg grein fyrir stöðu þeirrar fjölgunar hjúkrunarrýma sem þegar hefur verið ákveðin eða er í framkvæmd. Megináhersla verði lögð á hvort fyrir liggi áætlun um þann mannafla, fagþekkingu og sérfræðiþjónustu sem þarf til að tryggja sömu eða betri gæði þegar ný rými eru tekin í notkun. Metið verði hvort hætta sé á að hraði uppbyggingar rýma verði meiri en geta kerfisins til að manna þau og veita þar fullnægjandi þjónustu.
     11.      Bið eftir hjúkrunarrými og breytta þjónustuþörf. Gerð verði grein fyrir því hvort löng bið eftir hjúkrunarrými leiði til þess að fólk sé að jafnaði komið með meiri og flóknari þjónustuþörf þegar það flytur á hjúkrunarheimili. Metið verði hvaða áhrif sú þróun hefur á heilsu einstaklinga, gæði þjónustu, mönnun, faglega þjónustu, aðbúnað og möguleika heimilanna til að veita einstaklingsmiðaða umönnun.
     12.      Umbætur, ábyrgð og eftirfylgni. Gerð verði grein fyrir þeim aðgerðum sem stjórnvöld hafa gripið til undanfarin fimm ár til að bæta gæði þjónustu á hjúkrunarheimilum og hvaða mælanlegi árangur hafi náðst. Jafnframt verði sett fram mat á því hvaða frekari aðgerða sé þörf, hver beri ábyrgð á framkvæmd þeirra og með hvaða mælikvörðum fylgst verði með árangri.

G r e i n a r g e r ð .

    Á næstu árum er fyrirhuguð veruleg fjölgun hjúkrunarrýma því að eldra fólki fjölgar og eftirspurn eftir þjónustu eykst. Uppbygging nýrra rýma er mikilvæg, en fjöldi rýma einn og sér segir ekki til um gæði þeirrar þjónustu sem íbúar fá. Nauðsynlegt er að fyrir liggi skýr mynd af því hvernig gæði þjónustu á hjúkrunarheimilum eru skilgreind, mæld og tryggð og hvort þau séu sambærileg milli heimila.
    Í skýrslunni Rétt þjónusta á réttum stað er þjónusta við eldra fólk dregin fram sem eitt helsta viðfangsefni heilbrigðiskerfisins. Þar er lögð áhersla á að fólk fái viðeigandi þjónustu á réttum stað, auk fjölgunar hjúkrunarrýma og eflingar þjónustu í heimahúsum. Með hliðsjón af þeirri uppbyggingu sem nú stendur yfir er mikilvægt að meta ekki aðeins fjölda rýma heldur einnig innihald og gæði þjónustunnar.
    Gæði á hjúkrunarheimili snúa m.a. að lífsgæðum og sjálfsákvörðunarrétti íbúa, mönnun og fagþekkingu, samfellu í umönnun, öryggi, forvörnum gegn slysum, virkni og endurhæfingu, þjónustu við fólk með heilabilun, lyfjaöryggi og samstarfi við aðstandendur. Til að unnt sé að bæta þjónustuna þurfa stjórnvöld að hafa samanburðarhæfar upplýsingar um þessa þætti og skýrt fyrirkomulag eftirlits og eftirfylgni.
    Slys og alvarleg atvik geta verið mikilvæg vísbending um öryggi og gæði þjónustunnar. Ekki er nægilegt að þekkja fjölda slíkra atvika. Mikilvægt er að greina orsakir þeirra, áhættuþætti og hvort hægt hefði verið að koma í veg fyrir þau, ásamt því að tryggja að lærdómur af atvikum leiði til umbóta í umönnun, aðbúnaði og verklagi.
    Nýleg umfjöllun Kveiks um geðlyfjanotkun á hjúkrunarheimilum hefur vakið athygli á einum mikilvægum þætti gæða þjónustunnar. Lyfjanotkun er þó ekki sjálfstætt meginviðfangsefni þessarar skýrslubeiðni heldur einn mælikvarði sem getur, ásamt öðrum upplýsingum, varpað ljósi á faglegt starf, aðgengi að öðrum úrræðum, lyfjaöryggi og einstaklingsmiðaða umönnun.
    Markmið skýrslubeiðninnar er að fá heildstæða mynd af gæðum þjónustu á hjúkrunarheimilum og hvort stjórnvöld hafi nægileg gögn og mælikvarða til að fylgjast með þeim. Jafnframt er markmiðið að tryggja að sú fjölgun hjúkrunarrýma sem nú stendur yfir leiði ekki aðeins til fleiri rýma heldur einnig til öruggrar, faglegrar og einstaklingsmiðaðrar þjónustu sem styður við lífsgæði og reisn íbúa.