Ferill 91. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
158. löggjafarþing 2026–2027.
Þingskjal 238 — 91. mál.
Svar
dómsmálaráðherra við fyrirspurn frá Diljá Mist Einarsdóttur um starfsemi Jafnréttisstofu.
Fyrirspurnin hljóðar svo:
Hvaða áhrif höfðu breytingar á jafnlaunavottun á verkefni og starfsmannafjölda Jafnréttisstofu?
Jafnréttisstofa hefur það hlutverk að hafa eftirlit með framkvæmd laga um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna, nr. 150/2020. Hinn 1. september 2026 tóku gildi lög nr. 53/2026 en með þeim var framangreindum lögum breytt. Með breytingunum var jafnlaunavottun aflögð og tekið upp einfaldara fyrirkomulag við eftirlit með kynbundnum launamun án þess að hvikað væri frá því markmiði að sporna gegn launamismun á grundvelli kyns. Með lagabreytingunum færist vinna sem áður var unnin hjá vottunaraðilum að einhverju leyti til Jafnréttisstofu í gegnum nýtt rafrænt þjónustu- og gagnakerfi sem Jafnréttisstofa hefur alfarið umsjón með. Frá því að lagabreytingin tók gildi hefur starfsmannafjöldi Jafnréttisstofu haldist óbreyttur. Að aftan verður vikið nánar að breytingum á verkefnum Jafnréttisstofu.
Nú ber fyrirtækjum og stofnunum með 50 starfsmenn eða fleiri að skila gögnum um kynbundinn launamun til Jafnréttisstofu á þriggja ára fresti. Áður miðuðust kröfurnar við fyrirtæki og stofnanir með 25 starfsmenn eða fleiri og fól jafnlaunavottun í sér innleiðingu og framkvæmd jafnlaunastaðalsins ÍST 85:2012, úttektir vottunaraðila og árlegar viðhaldsúttektir með tilheyrandi kostnaði.
Fyrir lagabreytingar skiluðu vottunarstofur Jafnréttisstofu afriti af jafnlaunavottunarskírteini ásamt skýrslu um niðurstöðu úttektar og veitti Jafnréttisstofa viðkomandi atvinnurekanda jafnlaunamerki í framhaldinu. Auk þess birti stofnunin lista yfir atvinnurekendur sem öðlast höfðu vottun ásamt því að fylgja því eftir að aðilar uppfylltu lagaskyldu.
Hlutverk Jafnréttisstofu varðandi jafnlaunastaðfestingu var hins vegar umfangsmeira. Stofnunin annaðist jafnlaunastaðfestingu fyrir minni fyrirtæki á almennum markaði með 25– 49 starfsmenn sem sótt gátu um jafnlaunastaðfestingu í stað jafnlaunavottunar. Jafnréttisstofa veitti slíka staðfestingu að undangengnum skilum á gögnum um að jafnlaunakerfi og framkvæmd þess uppfylltu kröfur í jafnréttislögum.
Líkt og segir að framan færist vinna sem áður var hjá vottunaraðilum til Jafnréttisstofu að einhverju leyti í gegnum nýtt rafrænt þjónustu- og gagnakerfi sem Jafnréttisstofa hefur alfarið umsjón með. Áhersla er lögð á að móttaka og yfirferð gagna verði eins rafræn og sjálfvirk og kostur er. Með því er leitast við að tryggja einfalt og skilvirkt verklag og halda kostnaði í lágmarki.
Jafnréttisstofa sinnir áfram sambærilegum verkefnum í tengslum við skýrslugjöf um kynbundinn launamun og hún sinnti áður í tengslum við jafnlaunastaðfestingu. Jafnréttisstofa annast m.a. eftirlit með því að skilaskyldir aðilar uppfylli kröfur laganna og skili tilskildum gögnum, hún veitir aðstoð og ráðgjöf, gefur út leiðbeiningar, veitir fræðslu, heldur skrár yfir fyrirtæki og stofnanir sem hafa lokið ferlinu og fleira.