Ferill 277. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
158. löggjafarþing 2026–2027.
Þingskjal 305 — 277. mál.
Fyrirspurn
til félags- og húsnæðismálaráðherra um tölfræði um innflytjendur.
Frá Diljá Mist Einarsdóttur.
Hefur ráðherra látið kanna hvernig best sé að afla tölfræðigagna, líkt og til að mynda dönsk stjórnvöld gera með mælaborði í málefnum innflytjenda (d. Det nationale integrationsbarometer),
a. um skattgreiðslur innflytjenda til hins opinbera eftir þjóðerni,
b. um útgjöld hins opinbera vegna innflytjenda eftir þjóðerni,
c. um þróun ráðstöfunartekna, eigna og skulda innflytjenda eftir þjóðerni?
Ef svo er, hver varð niðurstaðan og hvenær má vænta þess að tölfræðin verði birt? Ef svo er ekki, hvers vegna?
Skriflegt svar óskast.
Greinargerð.