Ferill 146. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


158. löggjafarþing 2026–2027.
Þingskjal 310  —  146. mál.




Svar


heilbrigðisráðherra við fyrirspurn frá Árna Helgasyni um greiðsluþátttöku vegna veikinda og slysa utan EES.


     1.      Fór fram mat á skilmálum tryggingafélaga og möguleikum fólks með undirliggjandi og langvinna sjúkdóma til að kaupa einkatryggingar þegar ríkið hætti greiðsluþátttöku vegna veikinda og slysa utan EES með lögum nr. 50/2026, um breytingu á lögum um sjúkratryggingar og lögum um ófrjósemisaðgerðir?
    Réttur til endurgreiðslu sjúkrakostnaðar vegna veikinda og slysa erlendis skv. 1. mgr. 33. gr. laga um sjúkratryggingar, nr. 112/2008, var fyrir breytingar samkvæmt lögum nr. 50/2026 almennur og tók jafnt til allra umsækjenda. Við afmörkun á rétti til endurgreiðslu leit ráðuneytið til þeirra hópa sem lög um sjúkratryggingar tilgreina sérstaklega, t.d. námsmanna sem halda sjúkratryggingu sinni hér á landi þrátt fyrir nám erlendis, sem myndu þá halda rétti til að fá bættan kostnað vegna veikinda eða slysa í námsríki. Hafði ráðuneytið einnig hliðsjón af framkvæmd annars staðar á Norðurlöndum þar sem kostnaður vegna veikinda og slysa sem fellur til utan EES-svæðisins er almennt ekki bættur af hinu opinbera. Er einstaklingum í þeim ríkjum ráðlagt að leita til tryggingafélaga í aðdraganda ferðalags í þeim tilgangi að kanna stöðu sína með tilliti til bóta vegna sjúkrakostnaðar utan EES.
    Við gerð frumvarpsins kynnti ráðuneytið sér þær ferðatryggingar sem í boði eru á einkamarkaði með þeirri niðurstöðu að fella brott almennan rétt til endurgreiðslu á kostnaði vegna veikinda og slysa utan EES-svæðisins og afmarka réttinn við þá hópa sem tilgreindir eru í 11., 12. og 15. gr. laga um sjúkratryggingar. Ráðuneytið bendir einnig á að heimild Sjúkratrygginga til að taka þátt í kostnaðinum gildir til 31. desember 2026, sbr. bráðabirgðaákvæði í reglugerð nr. 760/2026, um endurgreiðslu kostnaðar vegna veikinda eða slysa erlendis.

     2.      Hvernig er komið til móts við þá hættu að hópur Íslendinga geti orðið ótryggður á ferðalögum utan EES vegna breytinganna?
    Ráðuneytinu hafa borist ábendingar um stöðu langveikra einstaklinga í þessu sambandi og m.a. fundað með Samtökum fjármálafyrirtækja um bætur tryggingafélaga vegna sjúkrakostnaðar sem fellur til á ferðalögum utan EES. Sjá að öðru leyti svar við 5. tölul. fyrirspurnarinnar.

     3.      Hve oft á árunum 2016–2025 kom til greiðsluþátttöku Sjúkratrygginga Íslands vegna veikinda og slysa utan EES? Svar óskast sundurliðað eftir árum og upphæð hvers árs. Enn fremur er þess óskað að sundurliðunin geymi upplýsingar um hæstu einstöku greiðslu hvers árs á sama tímabili.
    Í eftirfarandi töflu eru upplýsingar um endurgreiðslur á umræddu tímabili. Um er að ræða fjölda umsóknarmála, þ.e. endurgreiðslubeiðna, en ekki fjölda kennitalna. Þannig getur sami einstaklingur átt fleiri en eina umsókn, t.d. vegna sama atviks.

Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.


     4.      Liggur fyrir mat á sparnaði sem hlýst af því að hætta greiðsluþátttöku í sjúkrakostnaði einstaklinga með undirliggjandi og langvinna sjúkdóma sem hafa fengið greitt vegna veikinda og slysa utan EES?
    Sjúkratryggingar aðgreina ekki sérstaklega umsóknir um endurgreiðslu kostnaðar sem rekja má til undirliggjandi sjúkdóms. Hefur ráðuneytið því ekki upplýsingar um hversu stór hluti endurgreiðslna er vegna einstaklinga með undirliggjandi eða langvinna sjúkdóma sem hafa fengið endurgreiðslu vegna sjúkrakostnaðar sem tengdist sjúkdómnum.

     5.      Hyggst ráðherra grípa til ráðstafana til að bæta stöðu sjúklinga með undirliggjandi sjúkdóma sem gætu þurft að greiða háar fjárhæðir vegna veikinda og slysa utan EES, sbr. reglugerð nr. 760/2026 um endurgreiðslu kostnaðar vegna veikinda og slysa erlendis? Ef svo er, hvernig?
    Ráðherra hefur ákveðið að framlengja heimild Sjúkratrygginga til að endurgreiða kostnað vegna veikinda og slysa utan EES til 30. september 2027. Þannig munu einstaklingar með undirliggjandi sjúkdóma áfram eiga rétt á endurgreiðslu vegna sjúkrakostnaðar utan EES meðan málið verður skoðað nánar.