Aðrar útgáfur af skjalinu:
PDF
Word Perfect.
Þingskjal 1257, 157. löggjafarþing 328. mál: sjúkratryggingar og ófrjósemisaðgerðir (ýmsar breytingar).
Lög nr. 50 9. júní 2026.
I. KAFLI
Breyting á lögum um sjúkratryggingar, nr. 112/2008.
Gagnreynd þekking við ákvarðanatöku.
Við ákvarðanir sjúkratryggingastofnunarinnar samkvæmt lögum þessum skal byggt á gagnreyndri þekkingu á sviði heilbrigðisþjónustu og faglegu og hagrænu mati í samræmi við alþjóðlega viðurkenndar aðferðir.
Miðlægur lyfjagreiðslugrunnur og miðlun gagna.
Sjúkratryggingastofnunin ber ábyrgð á og starfrækir gagnagrunn með þeim upplýsingum sem m.a. eru nauðsynlegar til að reikna út greiðsluþátttöku sjúkratrygginga og gjald sjúkratryggðs við kaup á lyfjum. Í gagnagrunninn skal skrá upplýsingar um lyfjakostnað sjúkratryggðra, lyfjanotkun, stöðu sjúkratryggðs innan kerfisins, hvar og hvenær lyf var afgreitt, söluverð og upplýsingar sem koma fram á lyfjaávísun.
Vegna umsókna um útgáfu lyfjaskírteinis eru skráðar upplýsingar um lyfjaheiti, sjúkdómsgreiningu, aðrar heilsufarsupplýsingar, dagsetningu afgreiðslu og hver sótti um lyfjaskírteini. Auk þess skráir sjúkratryggingastofnunin í gagnagrunninn aðrar upplýsingar sem eru nauðsynlegar fyrir stofnunina til að starfrækja sérstakt greiðslukerfi fyrir lyfjakaup, upplýsingar skv. 77. gr. lyfjalaga, nr. 100/2020, og upplýsingar sem lyfjabúðir nota til útreiknings á greiðsluþátttöku lyfja samkvæmt lögum þessum.
Aðgangur að gagnagrunninum er veittur fyrir kerfi lyfjabúða, sem starfa á grundvelli lyfjalaga, eða heilbrigðisstofnana. Ábyrgðaraðilum þeirra heilbrigðisstofnana og lyfjabúða sem tengjast gagnagrunninum er skylt að halda skrá yfir þá aðila sem sótt hafa upplýsingar í grunninn.
Lyfjabúðum sem starfa á grundvelli lyfjalaga er skylt að tengjast gagnagrunninum, nýta upplýsingar gagnagrunnsins við útreikninga á greiðsluþátttöku og veita upplýsingar í hann. Heilbrigðisstofnunum er heimilt að tengjast gagnagrunninum, nýta upplýsingar gagnagrunnsins og veita upplýsingar í hann, að uppfylltum skilyrðum laga um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga. Tilgangur vinnslunnar skal vera að tryggja gæði og öryggi heilbrigðisþjónustu með það að markmiði að vinna að öruggri og skynsamlegri umsýslu lyfja og uppfylla lögbundnar skyldur samkvæmt lyfjalögum og lögum um heilbrigðisþjónustu.
Ráðherra er heimilt að setja reglugerð um nánari framkvæmd ákvæðisins þar sem m.a. er heimilt að kveða á um hvaða upplýsingar skuli skrá í grunninn, eyðingu skráðra upplýsinga, aðgang lyfjabúða og heilbrigðisstofnana að upplýsingum í gagnagrunninum og skyldu lyfjabúða til að veita upplýsingar í hann.
a. (38. gr. a.)
Greiðslur á grundvelli fjármögnunarlíkana.
Sjúkratryggingastofnuninni er heimilt að greiða fyrir heilbrigðisþjónustu, svo sem til heilsugæslustöðva, á grundvelli sérstakra fjármögnunarlíkana. Við útreikning greiðslna er stofnuninni heimilt að kalla eftir nauðsynlegum upplýsingum um notendur þjónustunnar, m.a. frá Vinnumálastofnun um þá sem fá greiddar atvinnuleysisbætur samkvæmt lögum um atvinnuleysistryggingar.
b. (38. gr. b.)
Eftirlit með kostnaði sjúkratryggingastofnunarinnar vegna aðila sem eru ekki í samningssambandi við stofnunina.
Sjúkratryggingastofnunin skal hafa eftirlit með kostnaði stofnunarinnar sem leiðir af athöfnum heilbrigðisstarfsmanna sem eru ekki, beint eða óbeint, í samningssambandi við stofnunina. Meðal athafna sem falla undir þetta ákvæði eru útgáfa lyfjaávísana, umsóknir um lyfjaskírteini og tilvísanir eða beiðnir vegna rannsókna, myndgreininga og annarra sambærilegra þjónustuþátta.
Sjúkratryggingastofnuninni er við slíkt eftirlit og eftirfylgni þess heimilt, eftir því sem við á, að beita úrræðum 45., 46. og 48. gr. Leiði eftirlit í ljós að athafnir heilbrigðisstarfsmanns samræmast ekki eðlilegum og viðurkenndum starfsháttum er sjúkratryggingastofnuninni m.a. heimilt að beina fyrirmælum um breytta framkvæmd til viðkomandi heilbrigðisstarfsmanns. Starfi viðkomandi hjá stofnun á vegum hins opinbera skal sjúkratryggingastofnunin jafnframt upplýsa viðeigandi forstöðumann.
Leiði brot gegn reglum eða fyrirmælum um þjónustu eða afhendingu lyfja eða annarra vara til ofgreiðslna sjúkratryggingastofnunarinnar er stofnuninni heimilt að krefjast endurgreiðslu úr hendi viðkomandi heilbrigðisstarfsmanns eða þjónustuveitanda. Sé ekki orðið við kröfu um endurgreiðslu eða viðkomandi brýtur ítrekað gegn reglum og öðrum fyrirmælum er sjúkratryggingastofnuninni heimilt að stöðva greiðslur til hans.
Ákvarðanir sjúkratryggingastofnunarinnar á grundvelli 3. mgr. eru kæranlegar til ráðuneytisins.
Sjúkratryggingastofnuninni er heimilt að gera kröfu um faggildingu á starfsemi þeirra sem veita þjónustu sem stofnunin greiðir fyrir, þar á meðal rannsóknarstofa.
Ráðherra setur reglugerð um nánari framkvæmd greinarinnar, m.a. um heimild til að draga frá réttindagreiðslum samkvæmt lögum þessum réttindagreiðslur samkvæmt erlendri löggjöf fyrir sama tímabil og greiðslur eru inntar af hendi hér á landi.
Sjúkratryggingastofnuninni er heimilt að taka gjald fyrir úrvinnslu og afhendingu upplýsinga úr gagnagrunnum stofnunarinnar samkvæmt reglugerð sem ráðherra setur.
II. KAFLI
Breyting á lögum um ófrjósemisaðgerðir, nr. 35/2019.
Um gjaldtöku fyrir ófrjósemisaðgerðir fer samkvæmt lögum um sjúkratryggingar.
Þrátt fyrir ákvæði 1. mgr. öðlast 4. og 5. gr. gildi 15. júní 2026.
Þrátt fyrir ákvæði 1. mgr. öðlast b-liður 23. gr. gildi 1. janúar 2027.
Þrátt fyrir ákvæði 1. mgr. tekur ákvæði 29. gr. um skil á ársreikningi gildi 1. janúar 2028 og gildir um gerð og skil ársreikninga frá og með því ári. Þá tekur ákvæði 29. gr. um upplýsingaöflun gildi 1. janúar 2027 og gildir um samninga sem gerðir eru eftir gildistöku ákvæðisins.
Þingskjal 1257, 157. löggjafarþing 328. mál: sjúkratryggingar og ófrjósemisaðgerðir (ýmsar breytingar).
Lög nr. 50 9. júní 2026.
Lög um breytingu á lögum um sjúkratryggingar og lögum um ófrjósemisaðgerðir (ýmsar breytingar).
1. gr.
Á eftir 2. gr. laganna kemur ný grein, 2. gr. a, ásamt fyrirsögn, svohljóðandi:2. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 1. mgr. 3. gr. laganna:- 2. tölul. orðast svo: Réttindagreiðslur: Greiðslur, endurgreiðslur á útlögðum kostnaði, styrkir og aðrar greiðslur vegna einstaklingsbundinna réttinda; einnig dagpeningar og bætur sem eru ákvarðaðar á grundvelli laga um slysatryggingar almannatrygginga og laga um sjúklingatryggingu.
- Við bætist nýr töluliður, svohljóðandi:
3. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 1. mgr. 5. gr. laganna:- 2. málsl. fellur brott.
- Í stað orðanna „Utan Reykjavíkur getur sjúkratryggingastofnunin“ í 3. málsl. kemur: Sjúkratryggingastofnunin getur.
4. gr.
6. gr. laganna fellur brott.5. gr.
2. málsl. 2. mgr. 7. gr. laganna fellur brott.6. gr.
Á eftir orðinu „heilbrigðisþjónustu“ í 8. gr. laganna kemur: mat á heilsutjóni.7. gr.
2. málsl. 9. gr. laganna orðast svo: Jafnframt taka sjúkratryggingar til réttindagreiðslna samkvæmt lögum þessum.8. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 10. gr. laganna:- Í stað orðanna „sex mánuðina áður en bóta er óskað“ í 1. málsl. 1. mgr. kemur: þrjá mánuðina áður en sótt er um réttindi eða réttindagreiðslna óskað.
- 2. málsl. 1. mgr. fellur brott.
- Við 4. mgr. bætast þrír nýir málsliðir, svohljóðandi: Við þá ákvörðun skal metið hvort einstaklingur sé raunverulega búsettur hér á landi. Skal m.a. miðað við skráningu lögheimilis í þjóðskrá samkvæmt lögum um lögheimili og aðsetur og gögn frá skattyfirvöldum skv. 3. mgr. 34. gr. Sýni þau gögn sem sjúkratryggingastofnunin aflar fram á að einstaklingur, sem er sjúkratryggður, hafi ekki raunverulega búsetu hér á landi er stofnuninni heimilt að fella niður rétt viðkomandi til sjúkratryggingar.
- Í stað orðanna „sex mánaða búsetuskilyrðinu“ í 2. málsl. 5. mgr. kemur: skilyrði 1. mgr. um búsetu.
9. gr.
3. mgr. 11. gr. laganna fellur brott.10. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 23. gr. laganna:- Á undan orðinu „alþjóðlega“ í 1. málsl. 1. mgr. kemur: gagnreyndri og.
- Orðin „á sjúkrahúsi“ í 2. mgr. falla brott.
11. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 28. gr. laganna:- Á eftir 1. málsl. 3. mgr. kemur nýr málsliður, svohljóðandi: Sé fylgd nauðsynleg greiðist kostnaður jafnframt að fullu af því sjúkrahúsi sem sendir sjúkling.
- Við 4. mgr. bætist: svo sem um ábyrgð á kostnaði við flutning á sjúkrahús og til baka vegna rannsóknar án þess að sjúklingur sé lagður inn.
12. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 29. gr. laganna:- Í stað orðanna „sinnt er á“ í 1. málsl. 1. tölul. 1. mgr. kemur: veitt er af.
- Við 2. málsl. 1. tölul. 1. mgr. bætist: óháð því hvernig þjónustan er veitt, þ.m.t. fjarheilbrigðisþjónustu.
- Við 1. tölul. 1. mgr. bætist nýr málsliður, svohljóðandi: Heimilt er að ákveða í reglugerð gjald sem innheimt er vegna fjarveru sjúklings í bókaðan tíma án þess að forföll hafi verið boðuð á tilsettum tíma.
- Við 2. tölul. 1. mgr. bætist nýr málsliður, svohljóðandi: Heimilt er að ákveða í reglugerð gjald sem innheimt er vegna fjarveru sjúklings í bókaðan tíma án þess að forföll hafi verið boðuð á tilsettum tíma.
- 6. málsl. 6. tölul. 1. mgr. fellur brott.
- Við 7. tölul. 1. mgr. bætist nýr málsliður, svohljóðandi: Þá er heimilt að taka gjald fyrir veitta þjónustu sjúkrabifreiðar á vettvangi án þess að sjúklingur hafi verið fluttur.
- Við 1. mgr. bætist nýr töluliður, svohljóðandi:
- Við 1. málsl. 2. mgr. bætist: sbr. þó 3. mgr.
- Á eftir 2. málsl. 3. mgr. kemur nýr málsliður, svohljóðandi: Þá er heimilt að ákveða að kostnaður vegna heilbrigðisþjónustu samkvæmt ákvæðum 21. gr. og 21. gr. a teljist ekki í afsláttarstofn, svo sem gjald sem ákveðið er fyrir hverja komu.
13. gr.
29. gr. a laganna orðast svo, ásamt fyrirsögn:Vegna umsókna um útgáfu lyfjaskírteinis eru skráðar upplýsingar um lyfjaheiti, sjúkdómsgreiningu, aðrar heilsufarsupplýsingar, dagsetningu afgreiðslu og hver sótti um lyfjaskírteini. Auk þess skráir sjúkratryggingastofnunin í gagnagrunninn aðrar upplýsingar sem eru nauðsynlegar fyrir stofnunina til að starfrækja sérstakt greiðslukerfi fyrir lyfjakaup, upplýsingar skv. 77. gr. lyfjalaga, nr. 100/2020, og upplýsingar sem lyfjabúðir nota til útreiknings á greiðsluþátttöku lyfja samkvæmt lögum þessum.
Aðgangur að gagnagrunninum er veittur fyrir kerfi lyfjabúða, sem starfa á grundvelli lyfjalaga, eða heilbrigðisstofnana. Ábyrgðaraðilum þeirra heilbrigðisstofnana og lyfjabúða sem tengjast gagnagrunninum er skylt að halda skrá yfir þá aðila sem sótt hafa upplýsingar í grunninn.
Lyfjabúðum sem starfa á grundvelli lyfjalaga er skylt að tengjast gagnagrunninum, nýta upplýsingar gagnagrunnsins við útreikninga á greiðsluþátttöku og veita upplýsingar í hann. Heilbrigðisstofnunum er heimilt að tengjast gagnagrunninum, nýta upplýsingar gagnagrunnsins og veita upplýsingar í hann, að uppfylltum skilyrðum laga um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga. Tilgangur vinnslunnar skal vera að tryggja gæði og öryggi heilbrigðisþjónustu með það að markmiði að vinna að öruggri og skynsamlegri umsýslu lyfja og uppfylla lögbundnar skyldur samkvæmt lyfjalögum og lögum um heilbrigðisþjónustu.
Ráðherra er heimilt að setja reglugerð um nánari framkvæmd ákvæðisins þar sem m.a. er heimilt að kveða á um hvaða upplýsingar skuli skrá í grunninn, eyðingu skráðra upplýsinga, aðgang lyfjabúða og heilbrigðisstofnana að upplýsingum í gagnagrunninum og skyldu lyfjabúða til að veita upplýsingar í hann.
14. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 29. gr. b laganna:- Við 1. mgr. bætist nýr málsliður, svohljóðandi: Í tengslum við þjónustutengda fjármögnun skal skrá nauðsynlegar upplýsingar, svo sem sjúkdómsgreiningar, meðferð og legutímabil sjúklinga.
- Orðin „vegna heilbrigðisþjónustu sem fellur undir hámarksgreiðslur sjúkratryggðra, sbr. 3. mgr. 29. gr.“ í 2. mgr. falla brott.
- Á eftir 2. mgr. kemur ný málsgrein, svohljóðandi:
- Fyrirsögn greinarinnar orðast svo: Miðlægur heilbrigðisþjónustugrunnur og miðlun gagna.
15. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 13. mgr. 32. gr. laganna:- Í stað orðsins „Bætur“ í 1. málsl. kemur: Réttindagreiðslur.
- Í stað orðsins „bóta“ í 2. málsl. kemur: réttindagreiðslna.
16. gr.
1. málsl. 1. mgr. 33. gr. laganna orðast svo: Nú er sjúkratryggðum, sem fellur undir 11., 12. eða 15. gr., nauðsyn að leita sér lækninga þar sem hann er staddur erlendis, í búsetulandi eða í tengslum við störf og greiða þá sjúkratryggingar kostnað af því eins og um læknishjálp innan lands væri að ræða.17. gr.
Fyrirsögn undirkafla C í III. kafla laganna verður: Réttindagreiðslur.18. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 34. gr. laganna:- 1. mgr. orðast svo:
- Í stað orðanna „bótarétt, fjárhæð og greiðslu bóta“ í 2. mgr. kemur: réttindi og réttindagreiðslur.
- 3. mgr. orðast svo:
- 1. málsl. 5. mgr. orðast svo: Ef ekki reynist unnt að taka ákvörðun um réttindi og réttindagreiðslur og endurskoðun þeirra vegna skorts á nauðsynlegum upplýsingum sem rekja má til umsækjanda er sjúkratryggingastofnuninni heimilt að fresta ákvörðun og greiðslu þar til úr því er bætt.
- Fyrirsögn greinarinnar orðast svo: Umsóknir og beiðnir um réttindi og réttindagreiðslur.
19. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 35. gr. laganna:- 1. mgr. orðast svo:
- Í stað orðanna „Bætur“ og „bótarétt og fjárhæð bóta“ í 1. málsl. 2. mgr. kemur: Réttindagreiðslur; og: réttindi og réttindagreiðslur.
- Í stað orðanna „bótaréttur er að öðru leyti ótvíræður“ í 2. málsl. 2. mgr. kemur: réttindi eru að öðru leyti ótvíræð.
- 4. mgr. orðast svo:
- 5. mgr. orðast svo:
- Fyrirsögn greinarinnar orðast svo: Ákvarðanir um réttindi og réttindagreiðslur.
20. gr.
Í stað orðsins „bóta“ í 1. mgr. 36. gr. laganna kemur: réttindagreiðslna.21. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 37. gr. laganna:- Í stað orðanna „bætur“ og „ofgreiddar bætur frá bótum“ í 1. málsl. 1. mgr. kemur: réttindagreiðslur; og: ofgreiðslur frá réttindagreiðslum.
- Í stað orðsins „bætur“ í 2. mgr. kemur: fyrir réttindi samkvæmt lögum þessum.
- Í stað orðanna „bótum“ og „bóta“ í 3. mgr. kemur: réttindagreiðslum; og: réttindagreiðslna.
- Fyrirsögn greinarinnar orðast svo: Ofgreiðslur og vangreiðslur.
22. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 38. gr. laganna:- Í stað 1. málsl. 1. mgr. koma fjórir nýir málsliðir, svohljóðandi: Séu samningar um heilbrigðisþjónustu ekki fyrir hendi skv. IV. kafla er sjúkratryggingastofnuninni í sérstökum tilfellum heimilt að greiða tímabundið, að hámarki í 12 mánuði, kostnað vegna veittrar þjónustu á grundvelli gjaldskrár sem sjúkratryggingastofnunin gefur út og tekur mið af ákvæðum þeirra samninga sem lágu að baki fyrir samningsleysið. Þegar sérstaklega stendur á er heimilt að greiða kostnað á grundvelli gjaldskrár í lengri tíma en 12 mánuði. Gjaldskrár samkvæmt ákvæði þessu skulu endurskoðaðar eftir þörfum með tilliti til verðlagsþróunar. Heimilt er að taka mið af verðlagsákvæðum þeirra samninga sem áður giltu, hafi samningar kveðið á um slík ákvæði, að hluta eða öllu leyti.
- Við bætast tvær nýjar málsgreinar, svohljóðandi:
Ákvæði IV. kafla um eftirlit, skyldur aðila til að afhenda gögn, vanefndir og aðgerðir vegna vanefnda í tengslum við samninga um heilbrigðisþjónustu gilda einnig um greiðslur samkvæmt ákvæði þessu.
23. gr.
Á eftir 38. gr. laganna koma tvær nýjar greinar, 38. gr. a og 38. gr. b, ásamt fyrirsögnum, svohljóðandi:a. (38. gr. a.)
b. (38. gr. b.)
Sjúkratryggingastofnuninni er við slíkt eftirlit og eftirfylgni þess heimilt, eftir því sem við á, að beita úrræðum 45., 46. og 48. gr. Leiði eftirlit í ljós að athafnir heilbrigðisstarfsmanns samræmast ekki eðlilegum og viðurkenndum starfsháttum er sjúkratryggingastofnuninni m.a. heimilt að beina fyrirmælum um breytta framkvæmd til viðkomandi heilbrigðisstarfsmanns. Starfi viðkomandi hjá stofnun á vegum hins opinbera skal sjúkratryggingastofnunin jafnframt upplýsa viðeigandi forstöðumann.
Leiði brot gegn reglum eða fyrirmælum um þjónustu eða afhendingu lyfja eða annarra vara til ofgreiðslna sjúkratryggingastofnunarinnar er stofnuninni heimilt að krefjast endurgreiðslu úr hendi viðkomandi heilbrigðisstarfsmanns eða þjónustuveitanda. Sé ekki orðið við kröfu um endurgreiðslu eða viðkomandi brýtur ítrekað gegn reglum og öðrum fyrirmælum er sjúkratryggingastofnuninni heimilt að stöðva greiðslur til hans.
Ákvarðanir sjúkratryggingastofnunarinnar á grundvelli 3. mgr. eru kæranlegar til ráðuneytisins.
24. gr.
Fyrirsögn undirkafla D í III. kafla laganna verður: Umsóknir og beiðnir um réttindagreiðslur, málsmeðferð o.fl.25. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 40. gr. laganna:- Á eftir 2. mgr. kemur ný málsgrein, svohljóðandi:
- Á eftir 5. mgr. koma tvær nýjar málsgreinar, svohljóðandi:
Sjúkratryggingastofnuninni er heimilt að krefjast þess að viðsemjendur stofnunarinnar gæti trúnaðar um tilteknar upplýsingar sem veittar eru meðan á samningaviðræðum stendur.
26. gr.
Í stað orðanna „fjárreiður ríkisins“ í 2. málsl. 41. gr. laganna kemur: opinber fjármál.27. gr.
Við 3. mgr. 43. gr. laganna bætast tveir nýir málsliðir sem orðast svo: Niðurstöður kostnaðargreiningar skulu afhentar sjúkratryggingastofnuninni, sem og öll þau gögn sem nauðsynleg eru til að stofnuninni sé unnt að leggja mat á forsendur og áreiðanleika greiningarinnar. Heimilt er að víkja frá skyldu til kostnaðargreiningar séu samningar gerðir að undangengnu almennu útboði.28. gr.
Við 44. gr. laganna bætist ný málsgrein, svohljóðandi:Sjúkratryggingastofnuninni er heimilt að gera kröfu um faggildingu á starfsemi þeirra sem veita þjónustu sem stofnunin greiðir fyrir, þar á meðal rannsóknarstofa.
29. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 45. gr. laganna:- Í stað 2. málsl. 3. mgr. koma tveir nýir málsliðir, svohljóðandi: Sjúkratryggingastofnuninni er jafnframt heimilt, með reglubundnum og sjálfvirkum hætti þegar það á við, að kalla eftir nauðsynlegum upplýsingum um biðlista frá samningsaðilum, embætti landlæknis og heilbrigðisstofnunum, svo sem um hverjir eru á biðlista, heilbrigðisþjónustu sem beðið er eftir, biðtíma og heilsufar þannig að hægt sé að tryggja þeim þjónustu sem beðið hafa lengst eftir henni. Vegna framkvæmdar samninga og eftirlits, þar á meðal vegna þjónustutengdrar fjármögnunar, er stofnuninni heimill aðgangur að nauðsynlegum upplýsingum úr heilbrigðisskrám sem landlæknir heldur samkvæmt lögum um landlækni og lýðheilsu um notendur heilbrigðisþjónustu, veitta meðferð, heilsufar og hvenær meðferð fór fram, auk annarra upplýsinga sem embættið hefur unnið í tengslum við samninga sjúkratryggingastofnunarinnar og eru nauðsynlegar til að stofnunin geti sinnt lögbundnu hlutverki sínu í tengslum við framkvæmd og greiðslur samninga.
- Við bætast tvær nýjar málsgreinar, svohljóðandi:
Sjúkratryggingastofnunin getur krafið samningsaðila um frekari upplýsingar en fram koma í ársreikningi í þeim tilgangi að kostnaðargreina þjónustuna. Er þá m.a. átt við upplýsingar um launakostnað samningsaðila, skiptingu starfsmanna eftir starfsstéttum, fjölda starfsmanna í hverri starfsstétt og gögn sem sýna fram á raunverulegt þjónustumagn; einnig upplýsingar um viðskipti við tengda aðila, eignarhald og fjárfestingar. Við öflun upplýsinga skal stofnunin gæta meðalhófs og upplýsa samningsaðila um ástæðu hennar og nauðsyn.
30. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 50. gr. laganna:- Á eftir 1. málsl. 1. mgr. kemur nýr málsliður, svohljóðandi: Sjúkratryggingastofnuninni er jafnframt heimil vinnsla persónuupplýsinga um notendur þjónustu sjúkrahúsa, heilsugæslustöðva og annarra veitenda heilbrigðisþjónustu sem sóttar eru frá umræddum aðilum, eða eftir atvikum frá embætti landlæknis, í tengslum við gerð og framkvæmd samninga um greiðsluþátttöku sjúkratryggingastofnunarinnar, samninga um þjónustutengda fjármögnun og greiðslur á grundvelli fjármögnunarlíkana.
- 2. og 3. málsl. 1. mgr. falla brott.
- Á eftir 1. mgr. kemur ný málsgrein, svohljóðandi:
- Við bætist ný málsgrein, svohljóðandi:
- Fyrirsögn greinarinnar orðast svo: Meðferð, miðlun og önnur vinnsla persónuupplýsinga.
31. gr.
3. mgr. 53. gr. laganna orðast svo:Ráðherra setur reglugerð um nánari framkvæmd greinarinnar, m.a. um heimild til að draga frá réttindagreiðslum samkvæmt lögum þessum réttindagreiðslur samkvæmt erlendri löggjöf fyrir sama tímabil og greiðslur eru inntar af hendi hér á landi.
32. gr.
Við 55. gr. laganna bætist ný málsgrein, svohljóðandi:Sjúkratryggingastofnuninni er heimilt að taka gjald fyrir úrvinnslu og afhendingu upplýsinga úr gagnagrunnum stofnunarinnar samkvæmt reglugerð sem ráðherra setur.
33. gr.
Ákvæði til bráðabirgða I–IV í lögunum falla brott.34. gr.
7. gr. laganna orðast svo:Um gjaldtöku fyrir ófrjósemisaðgerðir fer samkvæmt lögum um sjúkratryggingar.
35. gr.
Lög þessi öðlast gildi 1. ágúst 2026.Þrátt fyrir ákvæði 1. mgr. öðlast 4. og 5. gr. gildi 15. júní 2026.
Þrátt fyrir ákvæði 1. mgr. öðlast b-liður 23. gr. gildi 1. janúar 2027.
Þrátt fyrir ákvæði 1. mgr. tekur ákvæði 29. gr. um skil á ársreikningi gildi 1. janúar 2028 og gildir um gerð og skil ársreikninga frá og með því ári. Þá tekur ákvæði 29. gr. um upplýsingaöflun gildi 1. janúar 2027 og gildir um samninga sem gerðir eru eftir gildistöku ákvæðisins.
Samþykkt á Alþingi 1. júní 2026.