Ferill 281. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Microsoft Word.


158. löggjafarþing 2026–2027.
Þingskjal 314  —  281. mál.
Stjórnarfrumvarp.



Frumvarp til laga


um breytingu á lögum um fjarskipti, lögum um Fjarskiptastofu og lögum um fjölmiðla (aðgerðir gegn svikastarfsemi, EES-reglur o.fl.).

Frá innviðaráðherra.


                                  

I. KAFLI
Breyting á lögum um fjarskipti, nr. 70/2022.
1. gr.

    Við 3. mgr. 1. gr. laganna bætist: nema að því marki sem lögin mæla sérstaklega fyrir um.

2. gr.

    Eftirfarandi breytingar verða á 1. mgr. 15. gr. laganna:
     a.      Orðið „eða“ í c-lið fellur brott.
     b.      Við bætist nýr stafliður, svohljóðandi: tryggja tíðniafnot íslenska ríkisins í þágu almannahagsmuna og þjóðaröryggis.

3. gr.

    Við 29. gr. laganna bætist ný málsgrein, svohljóðandi:
    Stjórnvöld sem hafa með höndum lögbundin verkefni sem lúta að löggæslu, almannavörnum eða þjóðaröryggi hafa heimild til þess, þegar brýnir hagsmunir eru í húfi, að nota búnað sem truflar fjarskipti, útilokar eða yfirtekur merkjasendingar í þeim tilgangi að koma í veg fyrir skaðleg áhrif af völdum ómannaðra loftfara eða annars búnaðar sem ógnað getur lífi og heilsu almennings, umhverfi, eignum, þjóðaröryggi eða almannahagsmunum að öðru leyti. Stjórnvöldum sem beita úrræði samkvæmt ákvæði þessu ber að tilkynna um það til Fjarskiptastofu.

4. gr.

    Eftirfarandi breytingar verða á 80. gr. laganna:
     a.      Við 1. málsl. 3. mgr. bætist: þ.m.t. um öryggisbrest við vinnslu persónuupplýsinga.
     b.      Við 3. mgr. bætast tveir nýir málsliðir, svohljóðandi: Ef líklegt er að öryggisbrestur hafi skaðleg áhrif á vernd persónuupplýsinga eða einkalíf einstaklings skal veitandi almennrar fjarskiptaþjónustu einnig upplýsa viðkomandi um það án tafar. Ekki er þó nauðsynlegt að upplýsa viðkomandi um öryggisbrest við vinnslu persónuupplýsinga ef gripið hefur verið til fullnægjandi úrbóta að mati Fjarskiptastofu.
     c.      6. mgr. orðast svo:
                      Ráðherra getur sett nánari fyrirmæli í reglugerð um tilkynningar samkvæmt þessari grein, m.a. um nánari útfærslu og framkvæmd.
     d.      Fyrirsögn greinarinnar orðast svo: Tilkynningar vegna öryggisatvika og rofs á fjarskiptaleynd.

5. gr.

    Við 81. gr. laganna bætist ný málsgrein, svohljóðandi:
    Ráðherra getur sett nánari fyrirmæli í reglugerð um upplýsingagjöf samkvæmt þessari grein.

6. gr.

    Við 82. gr. laganna bætist ný málsgrein, svohljóðandi:
    Netöryggissveit er heimilt að viðhalda rafrænum lista yfir lén sem grunur leikur á að séu notuð í svikastarfsemi. Fjarskiptafyrirtæki sem rekur netaðgangsþjónustu er heimilt að sækja sjálfvirkt upplýsingar úr lista netöryggissveitarinnar og framkvæma reglubundna sjálfvirka landslokun á lénum í nafnaþjónustu í þeim tilgangi að koma í veg fyrir svik. Netöryggissveitin skal setja sér verklagsreglur um framkvæmdina að öðru leyti en kveðið er á um í þessu ákvæði, þar á meðal um skilyrði fyrir skráningu léns á listann og um rétt til að krefjast afskráningar léns af listanum.

7. gr.

    Eftirfarandi breytingar verða á 88. gr. laganna:
     a.      Við 1. mgr. bætist nýr málsliður, svohljóðandi: Þó er fjarskiptafyrirtækjum heimilt að skima efni tölvupósta og SMS, vélrænt án mannlegrar íhlutunar til að verja heildstæði fjarskiptaneta og fyrirbyggja svik í fjarskiptum, enda sé gerður áskilnaður um slíka vinnsluaðgerð í viðskiptasamningi við endanotendur.
     b.      Við bætist ný málsgrein, svohljóðandi:
                      Ráðherra setur reglugerð um framkvæmd fjarskiptafyrirtækja á skimun fjarskiptaumferðar skv. 1. mgr., m.a. um aðferðafræði, tæknilega eiginleika, kröfur til búnaðar og stillingar hans, tilkynningarskyldu fjarskiptafyrirtækja um atvik og heimildir Fjarskiptastofu til að krefjast aðgerða og úrbóta.

8. gr.

    2. málsl. 1. mgr. 93. gr. laganna fellur brott.

9. gr.

    Í stað 1. málsl. 99. gr. laganna koma fjórir nýir málsliðir, svohljóðandi: Fjarskiptafyrirtæki sem reka farnet eða veita farnetsþjónustu skulu að beiðni almannavarna, eða annarra þar til bærra opinberra viðbragðsaðila, senda viðvaranir um yfirvofandi eða yfirstandandi neyðarástand í farsíma eða annan nettengdan búnað sem tengdur er farneti viðkomandi fjarskiptafyrirtækis án sérstaks endurgjalds af hálfu beiðanda vegna sendinga innan fjarskiptanets fjarskiptafyrirtækisins. Heimilt er að krefja viðkomandi viðbragðsaðila um endurgjald sem svarar til útlagðs kostnaðar fjarskiptafyrirtækis vegna lúkningar- og reikigjalda á sendingum sem enda í fjarskiptaneti annars fjarskiptafyrirtækis. Viðbragðsaðilar skulu leggja viðkomandi fjarskiptafyrirtækjum til búnað til móttöku á neyðarskilaboðum sem þau geta tengt við til áframsendinga um eigið fjarskiptanet. Komi til ágreinings um skiptingu kostnaðar sem tengist sendingum neyðarboða getur hvor aðila um sig vísað ágreiningi til Fjarskiptastofu til úrlausnar.

10. gr.

    Á eftir 100. gr. laganna kemur ný grein, 100. gr. a, ásamt fyrirsögn, sem orðast svo:

Sérstök þagnarskylda vegna varaleiða fjarskipta.

    Upplýsingar um varaleiðir fjarskipta, þar á meðal samninga við erlend ríki, innlenda og erlenda birgja, tæknilega högun o.fl. sem nýta á í þágu ríkisins með vísan til þjóðaröryggis og allsherjarreglu á hættutímum og í neyðartilvikum, skulu bundnar sérstakri þagnarskyldu og eru undanþegnar upplýsingarétti almennings samkvæmt upplýsingalögum og öðrum lögum.
    Ráðherra er heimilt með reglugerð að setja nánari fyrirmæli um hvaða gögn falla undir þagnarskyldu skv. 1. mgr.

11. gr.

    Orðin „sektir og“ í 1. mgr. 102. gr. laganna falla brott.

12. gr.

    Eftirfarandi breytingar verða á 103. gr. laganna:
     a.      Orðið „eða“ í lok r-liðar 1. mgr. fellur brott.
     b.      Við 1. mgr. bætast tveir nýir stafliðir, svohljóðandi:
                 t.        skyldu til að afhenda Fjarskiptastofu réttar, fullnægjandi og uppfærðar upplýsingar til skráningar í gagnagrunn almennra fjarskiptaneta og til gerðar útbreiðsluspár skv. 10. gr. laga um Fjarskiptastofu, nr. 75/2021,
                 u.    banni við að senda eða hringja óumbeðin fjarskipti í þágu beinnar markaðssetningar án heimildar skv. 94. gr.
     c.      Á eftir 1. mgr. kemur ný málsgrein, svohljóðandi:
                      Fjarskiptastofa getur lagt stjórnvaldssektir á fjarskiptafyrirtæki eða lögaðila sem brjóta gegn eftirtöldum ákvæðum laga um fjölmiðla, nr. 38/2011:
                  a.      um flutningsskyldu og flutningsrétt skv. 44. og 45. gr. laganna sem Fjarskiptastofa hefur úrskurðað um,
                  b.      gerð samnings um kaup á sjónvarpsefni sem brýtur gegn 4. mgr. 45. gr. laganna,
                  c.      bannákvæði 5. mgr. 45. gr. laganna um að fjölmiðlaveita beini viðskiptum viðskiptamanna að tengdu fjarskiptafyrirtæki,
                  d.      reglum um málsmeðferð og framkvæmd flutningsreglna skv. 46. gr. laganna,

13. gr.

    Við 108. gr. laganna bætist ný málsgrein, svohljóðandi:
    Ráðherra er heimilt að innleiða með reglugerð reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 611/2013 frá 24. júní 2013 um ráðstafanir sem gilda um tilkynningar um brot er varða persónuupplýsingar samkvæmt tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2002/58/EB um friðhelgi einkalífsins og rafræn fjarskipti eins og hún var tekin upp í samninginn um Evrópska efnahagssvæðið með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 154/2016 frá 8. júlí 2016, um breytingu á XI. viðauka (Rafræn fjarskipti, hljóð- og myndmiðlun og upplýsingasamfélagið) við EES-samninginn.

14. gr.

    Við lögin bætist nýtt ákvæði til bráðabirgða, svohljóðandi:
    Við úthlutun eða endurnýjun tilgreindra tíðniréttinda fram til 31. desember 2029 skal taka eftirfarandi gjöld:
     a.      4.000.000 kr. fyrir hvert úthlutað MHz af tíðnisviði á 885–890/930–935 MHz.
     b.      4.000.000 kr. fyrir hvert úthlutað MHz af tíðnisviði á 900–905/945–950 MHz.
     c.      400.000 kr. fyrir hvert úthlutað MHz af tíðnisviði á 1427–1518 MHz.
     d.      400.000 kr. fyrir hvert úthlutað MHz af tíðnisviði á 2300–2400 MHz.
     e.      400.000 kr. fyrir hvert úthlutað MHz af tíðnisviði á 2560–2570/2680–2690 MHz.
     f.      400.000 kr. fyrir hvert úthlutað MHz af tíðnisviði á 2570–2620 MHz.
     g.      400.000 kr. fyrir hvert úthlutað MHz af tíðnisviði á 3400–3500 MHz.
     h.      20.000 kr. fyrir hvert úthlutað MHz af tíðnisviði á 24,25–27,5 GHz.
     i.      20.000 kr. fyrir hvert úthlutað MHz af tíðnisviði á 40,5–43,5 GHz.
    Gjaldið miðast við að tíðniréttindin séu gefin út til 20 ára. Sé tíðniréttindum úthlutað til skemmri tíma skal greiða hlutfallslega í samræmi við það. Ef sama tíðnisviði er úthlutað til fleiri en eins aðila með staðbundinni skiptingu skal greiða hlutfallslega miðað við fjölda rétthafa. Gjaldið greiðist í ríkissjóð.
    Verði tíðniréttindum úthlutað til opinberra aðila eða fyrirtækja í eigu ríkisins, til notkunar í neyðar- og öryggisfjarskiptanetum, skal taka gjald skv. 1. mgr.
    Ákveði ráðherra að úthlutun tíðniréttinda fari fram með uppboði skv. 7. mgr. 17. gr. skal sú fjárhæð sem tilgreind er í 1. mgr. fyrir viðkomandi tíðnisvið vera lágmarksboð.

II. KAFLI
Breyting á lögum um Fjarskiptastofu, nr. 75/2021.
15. gr.

    5. mgr. 20. gr. laganna orðast svo:
    Úrskurðarnefnd kveður á um fjárhæð og skiptingu málskostnaðar í úrskurðarorðum sínum. Tapist mál í grundvallaratriðum skal sá málsaðili sem tapar greiða málskostnað. Það sama gildir um frávísun á kröfu kæranda. Til málskostnaðar getur talist kostnaður nefndarinnar sem verður til við kærumeðferð viðkomandi máls hjá nefndinni, þar á meðal kostnaður vegna þóknunar nefndarmanna, reksturs málsins fyrir nefndinni, starfsaðstöðu, sérfræðiaðstoðar og gagnaöflunar að teknu tilliti til málskotsgjalds. Málsaðilar bera hver um sig þann kostnað sem þeir kunna sjálfir að hafa af rekstri málsins. Neytendum, Fjarskiptastofu eða Byggðastofnun skal ekki gert að greiða málskostnað samkvæmt ákvæði þessu og fellur málskostnaður þá á ríkissjóð. Einnig er heimilt að fella málskostnað á ríkissjóð ef sá aðili sem tapar máli er óhagnaðardrifinn málsvari viðkvæmra þjóðfélagshópa, enda njóti málsvarinn aðildarhæfis og kæra er ekki tilhæfulaus af hans hálfu. Hið sama gildir ef um er að ræða samfélagslega mikilvæg mál. Kröfur um málskostnað samkvæmt úrskurði úrskurðarnefndar eru aðfararhæfar.

16. gr.

    Eftirfarandi breytingar verða á 1. mgr. 22. gr. laganna:
     a.      Í stað „25.100 kr.“ í a- og b-lið 3. tölul. kemur: 75.000 kr.
     b.      Í stað „25.650 kr.“ í c-lið 5. tölul. kemur: 2.565 kr.

III. KAFLI
Breyting á lögum um fjölmiðla, nr. 38/2011.
17. gr.

    3. mgr. 54. gr. laganna orðast svo:
    Um stjórnvaldssektir vegna brota á ákvæðum VII. kafla fer samkvæmt lögum um fjarskipti.

18. gr.

    Lög þessi öðlast þegar gildi. Þó skal 7. gr. ekki öðlast gildi fyrr en 1. apríl 2027.


Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.