Ferill 301. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
158. löggjafarþing 2026–2027.
Þingskjal 345 — 301. mál.
Fyrirspurn
til menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra um ívilnanir vegna skorts á menntuðu starfsfólki á landsbyggðinni.
Frá Ingveldi Önnu Sigurðardóttur.
1. Hefur ráðherra gripið til aðgerða til að hefja undirbúning og innleiðingu ívilnana skv. 27. gr. laga um Menntasjóð námsmanna, nr. 60/2020, vegna viðvarandi eða fyrirsjáanlegs skorts á menntuðu starfsfólki á landsbyggðinni, einkum heilbrigðisstarfsfólki? Ef svo er, til hvaða aðgerða hefur verið gripið?
2. Hver er staðan á þeim fimm beiðnum um beitingu 28. gr. laga nr. 60/2020 sem ráðuneytinu hafa borist og vísað er til í svari ráðherra á þskj. 1132 á 157. löggjafarþingi? Hvaða ákvarðanir hafa verið teknar um afgreiðslu þeirra og hvenær má vænta þess að ívilnanir á grundvelli ákvæðisins geti komið til framkvæmda?
3. Hvaða vinna hefur farið fram innan ráðuneytisins til að einfalda framkvæmd 27. og 28. gr. fyrrgreindra laga og tryggja að heimildirnar nýtist í samræmi við markmið þeirra, sbr. svar ráðherra á þskj. 630 á 157. löggjafarþingi? Hefur verið tekin ákvörðun um að endurskoða ákvæðin eða undirbúa breytingar á þeim?
4. Hefur sú leið að veita tímabundinn skattafslátt til að laða sérhæft starfsfólk til starfa á landsbyggðinni verið skoðuð frekar, m.a. í samráði við fjármála- og efnahagsráðuneyti, sbr. áðurnefnt svar? Ef svo er, hverjar eru niðurstöður þeirrar skoðunar og liggja fyrir áform um að innleiða slíkt úrræði?
5. Hefur ráðherra kannað möguleika á að taka upp almennari búsetutengdar ívilnanir að norskri fyrirmynd, líkt og þær sem gilda í Finnmörku og Norður-Tromsö í Noregi, þar sem íbúar geta m.a. notið árlegrar niðurfellingar námslána og skattalegra ívilnana? Telur ráðherra slíkt fyrirkomulag koma til greina á Íslandi til að styrkja búsetu og bæta mönnun opinberrar þjónustu á landsbyggðinni?
Skriflegt svar óskast.