Ferill 75. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
158. löggjafarþing 2026–2027.
Þingskjal 349 — 75. mál.
Síðari umræða.
Nefndarálit með breytingartillögu
um tillögu til þingsályktunar um stefnu og framkvæmdaáætlun um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna til ársins 2030.
Frá meiri hluta velferðarnefndar.
Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund gesti frá mennta- og barnamálaráðuneyti, Sambandi íslenskra sveitarfélaga og Landssamtökunum Þroskahjálp.
Nefndinni bárust 18 umsagnir auk minnisblaðs frá mennta- og barnamálaráðuneyti og eru gögnin aðgengileg undir málinu á vef Alþingis.
Með þingsályktunartillögu þessari er lögð fram heildstæð stefna íslenskra stjórnvalda um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna og er hún sett fram með þeim hætti að hægt verði að byggja á henni við alla stefnumótun sem tengist málefnum barna. Jafnframt er lögð fram framkvæmdaáætlun um verkefni ríkisins sem byggist á sex stoðum stefnunnar.
Umfjöllun nefndarinnar.
Stefna og framkvæmdaáætlun um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna til ársins 2030 er lögð fram á grundvelli 3. mgr. 3. gr. laga um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna, nr. 86/2021 (hér eftir farsældarlögin). Samkvæmt 1. gr. laganna er markmið þeirra að stuðla að farsæld barna og að tryggja að börn og foreldrar sem á þurfa að halda hafi aðgang að samþættri þjónustu án hindrana. Þá skulu réttindi barna tryggð í samræmi við stjórnarskrá og alþjóðlegar skuldbindingar sem Ísland hefur undirgengist, einkum samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins (hér eftir barnasáttmálinn).
Líkt og fram kemur í greinargerð með þingsályktunartillögunni var tillaga til þingsályktunar um stefnu um farsæld barna fyrst lögð fram á 156. löggjafarþingi ( þskj. 319, 283. mál), en engin framkvæmdaáætlun fylgdi stefnunni og náði málið ekki fram að ganga. Á 157. löggjafarþingi var því lögð fram tillaga til þingsályktunar um stefnu og framkvæmdaáætlun um farsæld barna til ársins 2030 (þskj. 981, 579. mál), sem náði ekki fram að ganga. Þingsályktunartillaga þessi um stefnu og framkvæmdaáætlun um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna er því endurflutt með nokkrum breytingum. Í greinargerð þingsályktunartillögunnar kemur fram að einkum hafi verið litið til skýrslu Ríkisendurskoðunar frá júní 2026, um innleiðingu farsældarlaganna, þar sem gerðar voru athugasemdir og ábendingar um hvernig unnt væri að stuðla að betri innleiðingu þeirra.
Umsagnaraðilar tóku almennt undir framtíðarsýn og markmið stefnunnar um barnvænt samfélag þar sem réttindi og farsæld barna væru í öndvegi. Þá var áherslum um jafnræði barna, snemmtækan stuðning, samfellda og samþætta þjónustu og aukið samstarf milli þjónustukerfa fagnað. Þó komu fram ábendingar er varða réttindi fatlaðra barna og um fjárframlög í tengslum við framkvæmd stefnunnar og framkvæmdaáætlunarinnar sem nefndin fjallaði um.
Meiri hlutinn ítrekar það sem fram kemur í minnisblaði mennta- og barnamálaráðuneytis, dags. 13. október 2026, að við mat á umsögnum þurfi að hafa í huga að farsældarlögin fjalli ekki um uppbyggingu eða veitingu einstakra þjónustuúrræða heldur skapi þau umgjörð um samspil þeirra kerfa sem þegar bera ábyrgð á þjónustu við börn og um samfellda og samhæfða þjónustu án hindrana. Framkvæmdaáætlunin beinist því að samstarfi, ábyrgðarskiptingu, upplýsingamiðlun, þjónustuferlum og því hvernig börnum er veitt þjónusta þvert á kerfi en ekki einstökum úrræðum, mönnun eða þjónustuframboði innan hvers málaflokks.
Meiri hlutinn lítur svo á að framlögð stefna og framkvæmdaáætlun séu til þess fallnar að vinna að því markmiði að tryggja samþætta þjónustu í þágu farsældar barna, í samræmi við markmið farsældarlaganna. Að því virtu telur meiri hlutinn mikilvægt að þingsályktunartillagan nái fram að ganga. Þá undirstrikar meiri hlutinn að flestar aðgerðir framkvæmdaáætlunarinnar tengjast að einhverju leyti þeim athugasemdum sem fjallað var um í skýrslu Ríkisendurskoðunar.
Fjármögnun vegna innleiðingar farsældarlaga.
Í umsögn Sambands íslenskra sveitarfélaga er bent á að innleiðingu farsældarlaganna sé ekki lokið og því sé ótímabært að draga úr fjárframlagi til sveitarfélaga, líkt og gert er ráð fyrir í frumvarpi til fjárlaga fyrir árið 2027 ( þskj. 1, 1. mál). Meiri hlutinn undirstrikar það sem fram kemur í minnisblaði mennta- og barnamálaráðuneytis, dags. 13. október 2026, þar sem ráðuneytið áréttar að þingsályktunartillaga þessi og frumvarp til fjárlaga fyrir árið 2027 séu tvö aðskilin mál. Stefnunni og framkvæmdaáætluninni sé ætlað að styðja við innleiðingu farsældarlaganna en þær fjalli hvorki um einstök úrræði né fjárframlög til sveitarfélaga vegna innleiðingarinnar. Meiri hlutinn bendir jafnframt á það sem fram kemur í greinargerð með tillögunni um að ráðuneytið standi að fjármögnun aðgerða framkvæmdaáætlunarinnar á tímabilinu 2027–2030 um 820,2 millj. kr. Meiri hlutinn telur því ekki tilefni til að bregðast við athugasemd sambandsins.
Réttindi fatlaðra barna.
Þá fjallaði nefndin um réttindi fatlaðra barna. Í umsögn Landssamtakanna Þroskahjálpar var m.a. bent á að vísa þyrfti skýrar til samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks, nefna fötluð börn sérstaklega í stefnunni og efla þátttöku þeirra í framkvæmd hennar. Meiri hlutinn bendir á það sem fram kemur í minnisblaði mennta- og barnamálaráðuneytisins, dags. 13. október 2026, um að víða í tillögunni sé fjallað um börn í viðkvæmri stöðu, og í greinargerð með henni er tekið fram að þar sé m.a. átt við fötluð börn. Þá feli þingsályktunartillagan í sér almenna stefnu um farsæld barna og hefur stefnan tengsl við barnasáttmálann en þar er sérstaklega fjallað um réttindi fatlaðra barna. Meiri hlutinn tekur því undir með ráðuneytinu og telur þingsályktunartillöguna taka fullt tillit til stöðu fatlaðra barna.
Breytingartillögur.
Jafnræði óháð búsetu (stoð A og aðgerð 10).
Í umsögnum Fjórðungssambands Vestfirðinga, Landssamtakanna Þroskahjálpar, Samtaka sveitarfélaga og atvinnuþróunar á Norðurlandi eystra, Samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi vestra og frá verkefnastjórum farsældarráða var lögð áhersla á að tryggja í reynd jafnræði barna til þjónustu, óháð búsetu. Meiri hlutinn tekur undir þær umsagnir og leggur til að bætt verði við fyrstu stoð stefnunnar um jafnræði að það skuli tryggt óháð búsetu. Meiri hlutinn undirstrikar því mikilvægi þess að horft verði til sjónarmiða dreifðari byggða við innleiðingu stefnu og framkvæmdaáætlunar um farsæld barna.
Í aðgerð 10 er fjallað um heildstæða endurskoðun á þjónustufarvegi fyrir börn með taugaþroskaraskanir. Í tengslum við sjónarmið um jafnræði óháð búsetu var í framangreindum umsögnum einnig bent á mikilvægi þess að huga að þjónustu nálægt heimabyggð. Mikilvægt væri að greina þjónustuferlið í heild og tryggja samfellu í þjónustu, óháð búsetu. Í samræmi við framangreind sjónarmið leggur meiri hlutinn jafnframt til breytingu á aðgerð 10 þess efnis að sérstaklega verði tilgreint að hugað verði að þjónustufarvegi nær heimabyggð og að bæta skuli þjónustukerfi fyrir börn með taugaþroskaraskanir óháð búsetu.
Algild hönnun og viðeigandi aðlögun (aðgerðir 4 og 6).
Í umsögn ÖBÍ er lagt til í tengslum við aðgerðir 4 og 6 að allt fræðslu-, upplýsinga- og samskiptaefni verði unnið í samræmi við reglur um algilda hönnun og viðeigandi aðlögun. Meiri hlutinn tekur undir þá ábendingu og leggur því til breytingu á þeim aðgerðum þar sem sérstaklega verði tilgreint að meginreglum um algilda hönnun og viðeigandi aðgerðum verði fylgt.
Skilgreining ábyrgðaraðila (aðgerð 5).
Aðgerð 5 í framkvæmdaáætluninni fjallar um innleiðingu hagsmunamats út frá réttindum barna innan Stjórnarráðsins, sem hluta af skyldubundnu ferli við undirbúning lagafrumvarpa, þingsályktunartillagna, stefnumótandi ákvarðana og ákvarðana í málefnum einstakra barna. Í umsögn Barnaheilla er bent á að innleiðing hagsmunamats út frá réttindum barna sé tímabær en að styrkja mætti markmið og mælikvarða aðgerðarinnar þannig að tryggt sé að hún skili sér í framkvæmd innan allra ráðuneyta. Barnaheill leggja því til að hvert ráðuneyti skilgreini ábyrgðaraðila til að fylgja eftir framkvæmd aðgerðarinnar.
Meiri hlutinn tekur undir framangreindar ábendingar og telur það geta styrkt innleiðingu verkefnisins ef hvert ráðuneyti skilgreinir ábyrgðaraðila og leggur því til breytingar á orðalagi aðgerðarinnar þess efnis.
Farsæld í framhaldsskólum (aðgerð 8).
Í umsögn Persónuverndar er bent á að aðgerð 8, um farsæld í framhaldsskólum, geri ráð fyrir samræmdu verklagi sem tryggi hnökralausan flutning mála milli skólastiga og samræmda upplýsingaöflun í framhaldsskólum, sem geti falið í sér vinnslu persónuupplýsinga um börn. Að því virtu leggur Persónuvernd til í umsögn sinni að stofnunin verði tilgreind sem samstarfsaðili í aðgerð 8 til að tryggja að gætt sé að kröfum persónuverndarlöggjafar við útfærslu aðgerðarinnar. Meiri hlutinn tekur undir það og leggur til breytingu á aðgerðinni þess efnis að Persónuvernd verði tilgreind sem samstarfsaðili í aðgerð 8.
Þá telur meiri hlutinn að bæta þurfi mælikvarða í aðgerð 8 og leggur til breytingu þess efnis að miða skuli fjölgun skráðra mála, eða mála samþættrar þjónustu í þágu farsældar barna innan framhaldsskóla, um 25% við 1. apríl og að málum sem færist milli skólastiga fjölgi um 20% frá samþykkt framkvæmdaáætlunarinnar og til loka tímabils áætlunar.
Árangur af fyrstu fimm árum samþættrar þjónustu (aðgerð 16).
Í aðgerð 16 er kveðið á um að lagt verði mat á árangur af innleiðingu og framkvæmd laga um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna frá gildistöku laganna. Í umsögnum Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum og farsældarráðs Suðurnesja er lagt til að við matið sé gerð greining á raunkostnaði sveitarfélaga við framkvæmd laganna. Meiri hlutinn tekur undir með framangreindum umsagnaraðilum og telur mikilvægt að meta innleiðingu laganna á breiðum grundvelli. Meiri hlutinn leggur því til breytingu á aðgerð 16 þess efnis að bætt verði við orðalagi um að við aðgerðina verði gerð greining á kostnaði sveitarfélaganna við framkvæmd laganna.
Að framangreindu virtu leggur meiri hlutinn til að tillagan verði samþykkt með eftirfarandi
BREYTINGU:
1. Á eftir orðunum „fjölskyldna þeirra“ í A-lið II. kafla komi: óháð búsetu.
2. Á eftir 1. málsl. 1. mgr. 4. aðgerðar komi nýr málsliður, svohljóðandi: Fylgt verði meginreglum um algilda hönnun og viðeigandi aðlögun, svo sem auðlesið efni og ólík tjáskiptaform.
3. Á undan orðunum „og fræðsluefni“ í 6. mgr. 5. aðgerðar komi: hvert ráðuneyti með skilgreindan ábyrgðaraðila.
4. Við 1. mgr. 6. aðgerðar bætist nýr málsliður, svohljóðandi: Fylgt verði meginreglum um algilda hönnun og viðeigandi aðlögun, svo sem auðlesið efni og ólík tjáskiptaform.
5. Við 8. aðgerð.
a. Á eftir orðunum „Barna- og fjölskyldustofa“ í 4. mgr. komi: Persónuvernd.
b. Við 2. málsl. 6. mgr. bætist: miðað við mælingu þann 1. apríl 2026 og málum sem færast á milli skólastiga fjölgað um 20% frá samþykkt framkvæmdaáætlunar og til loka tímabils áætlunar.
6. Við 10. aðgerð.
a. Við 1. mgr. bætist nýr málsliður, svohljóðandi: Hugað verði sérstaklega að þjónustufarvegi nær heimabyggð.
b. Við 2. mgr. bætist: óháð búsetu.
7. Á eftir 2. málsl. 1. mgr. 16. aðgerðar komi nýr málsliður, svohljóðandi: Þá verði gerð greining á kostnaði sveitarfélaga við framkvæmd laganna.
Alþingi, 4. nóvember 2026.
| Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir, form., frsm. |
Heiða Ingimarsdóttir. | Jónína Björk Óskarsdóttir. | |
| Kristján Þórður Snæbjarnarson. | Ragna Sigurðardóttir. | ||