Ferill 78. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


158. löggjafarþing 2026–2027.
Þingskjal 351  —  78. mál.

2. umræða.


Nefndarálit með breytingartillögu


um frumvarp til laga um barnavernd.

Frá meiri hluta velferðarnefndar.


    Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund gesti frá mennta- og barnamálaráðuneyti, Barna- og fjölskyldustofu, velferðarsviði Akureyrarbæjar og Reykjavíkurborg.
    Nefndinni bárust 17 umsagnir auk minnisblaðs frá mennta- og barnamálaráðuneyti og eru gögnin aðgengileg undir málinu á vef Alþingis.
    Með frumvarpinu er lagt til að setja ný heildarlög um barnavernd sem taki við af gildandi barnaverndarlögum, nr. 80/2002. Þó er ekki um að ræða fulla endurskoðun á öllum þáttum barnaverndarlaga.
    
Umfjöllun nefndarinnar.
    Frumvarpið var fyrst lagt fram á 157. löggjafarþingi og afgreitt frá velferðarnefnd með áliti meiri hluta nefndarinnar til 2. umræðu hinn 11. júní 2026 ( þskj. 1345, 580. mál) en málið hlaut ekki afgreiðslu.
    Líkt og fram kemur í greinargerð með frumvarpinu er frumvarpið því lagt fram öðru sinni. Í frumvarpinu hefur verið tekið tillit til nefndarálits og breytingartillögu meiri hluta velferðarnefndar Alþingis frá 157. löggjafarþingi. Auk þess hafa verið gerðar aðrar minni háttar breytingar á frumvarpinu eftir samráð en málið var kynnt í samráðsgátt stjórnvalda 20. júlí 2026 (mál nr. S-140/2026).
    Til viðbótar við þá umfjöllun sem málið hefur nú fengið vísar meiri hlutinn til fyrri umfjöllunar sinnar um málið og áherslna sem fram koma í áðurnefndu áliti, einkum umfjöllunar um niðurfellingu umdæmisráða barnaverndar, vinnslu persónuupplýsinga og fóstur.
    
Fóstur (VIII. kafli).
    Fyrir nefndinni komu fram ýmsar athugasemdir við fósturkafla frumvarpsins. Sams konar athugasemdir komu einnig fram þegar nefndin fjallaði um frumvarpið á 157. löggjafarþingi. Vísar meiri hlutinn til umfjöllunar í nefndaráliti meiri hluta velferðarnefndar um VIII. kafla frumvarpsins um fóstur.
    Í nefndaráliti meiri hlutans á síðasta þingi kom m.a. fram að meiri hlutinn teldi brýnt að ráðuneytið yfirfari reglugerðir er varða fóstur og eftirlit með því í þeim tilgangi að bæta umgjörðina. Þá tók meiri hlutinn einnig undir með ráðuneytinu varðandi endurskoðun á VIII. kafla frumvarpsins um fóstur og hvatti til þess að sú vinna yrði sett í forgang.
    Í minnisblaði mennta- og barnamálaráðuneytis, dags. 23. október 2026, kemur fram að ráðuneytið vinni að endurskoðun reglugerðar um fóstur. Enn fremur kemur fram að sumarið og haustið 2026 hafi ráðuneytið átt samráðsfundi um fósturmál með helstu hagaðilum og fyrirhugað sé að því verði fram haldið. Í samráðinu hafi komið fram margar ábendingar sem mikilvægt sé að bregðast við og eru sambærilegar athugasemdir í umsögnum til nefndarinnar. Samráðið hafi styrkt þá afstöðu ráðuneytisins sem fram kom í minnisblaði þess frá 28. apríl 2026 um að á þessu stigi sé unnt að ná fram mikilvægum úrbótum í fósturmálum án lagabreytinga umfram þær sem frumvarpið feli í sér. Þá kemur enn fremur fram að næstu skref væru að rýna nánar tiltekin atriði, m.a. eftirlit með fóstri. Sú vinna samrýmist bráðabirgðaákvæði III, um skýrslu ráðherra um framkvæmd laganna sem skuli lögð fyrir Alþingi tólf mánuðum frá gildistöku þeirra.
    Meiri hlutinn fagnar því að vinna við endurskoðun reglugerðar um fóstur sé þegar hafin í ráðuneytinu og enn fremur að víðtækt samráð sé haft við helstu hagaðila í þeirri vinnu. Meiri hlutinn tekur undir með ráðuneytinu og ítrekar fyrri afstöðu meiri hlutans um að margt sé hægt að bæta í tengslum við eftirlit og vinnslu fósturmála almennt á grundvelli þeirra reglna sem kveðið er á um í fyrirliggjandi frumvarpi og með endurskoðun á reglugerð um fóstur.
    
Stuðnings- og vistunarúrræði eftir 18 ára aldur (2. mgr. 36. gr.).
    Fyrir nefndinni var fjallað um stuðnings- og vistunarúrræði eftir 18 ára aldur. Í 2. mgr. 36. gr. er heimild til framlengingar úrræða frá 18 til 20 ára aldurs. Gert er ráð fyrir því að áður en barn, sem er í vistun á grundvelli barnaverndarlaga, verður 18 ára verði lagt mat á þarfir þess út frá þjónustu sem því stendur til boða í öðrum þjónustukerfum. Ef sú þjónusta uppfyllir ekki þarfir ungmennis við 18 ára aldur er hægt að taka ákvörðun um að framlengja stuðnings- og vistunarúrræði með samþykki ungmennis, allt til 20 ára aldurs.
    Í nefndaráliti meiri hluta velferðarnefndar við meðferð málsins á 157. löggjafarþingi var lögð til breyting á sambærilegu ákvæði í 2. mgr. 36. gr., þess efnis að ekki yrði heimilt að framlengja vistunarúrræði Barna- og fjölskyldustofu fyrir börn með fjölþættar stuðningsþarfir eftir 18 ára aldur með vísan til þess að þá tæki þjónustukerfi fullorðinna við.
    Í athugasemdum við 2. mgr. 36. gr. umrædds frumvarps kemur fram að ráðuneytið hafi lagt til að fallið yrði frá þeirri undantekningu sem meiri hluti velferðarnefndar lagði til, þar sem ekki væri hægt að útiloka að við ákveðnar aðstæður væri rétt að ungmenni fengju að ljúka vistun í barnaverndarúrræði, þar á meðal börn með fjölþættar stuðningsþarfir. Að því virtu hefur 2. mgr. 36. gr. frumvarpsins verið umorðuð og því engin sérstök undanþága í ákvæðinu sem útilokar framlengingu vistunar barna með fjölþættar stuðningsþarfir sérstaklega. Almennt er þó gengið út frá því að ungmenni sem áfram þurfa búsetu með miklum stuðningi eftir 20 ára aldur færist í þjónustukerfi fullorðinna við 18 ára aldur, en við tilteknar aðstæður geti verið rétt að ungmenni ljúki vistun í barnaverndarúrræði.
    Í umsögnum Barna- og fjölskyldustofu, umboðsmanns barna og Einhverfusamtakanna koma fram ábendingar um ósamræmi milli 2. mgr. 36. gr. og athugasemda við ákvæðið í greinargerð um það hvort heimild til framlengingar vistunarúrræða taki til ungmenna með fjölþættar stuðningsþarfir. Í greinargerð kemur annars vegar fram að fallið sé frá undanþágu sem meiri hluti velferðarnefndar lagði til á 157. löggjafarþingi og hins vegar að heimild til framlengingar úrræða eftir 18 ára aldur eigi ekki við um vistun í vistunarúrræði fyrir börn með fjölþættar stuðningsþarfir.
    Í minnisblaði mennta- og barnamálaráðuneytis, dags. 23. október 2026, staðfestir ráðuneytið að umrædd setning um að heimild til framlengingar vistunarúrræða eigi ekki við um vistun í vistunarúrræði fyrir börn með fjölþættar stuðningsþarfir hafi fyrir mistök staðið eftir úr eldri drögum en hún samræmist ekki þeirri breytingu sem gerð var á ákvæðinu.
    Meiri hlutinn telur mikilvægt að skýringar ráðuneytisins liggi fyrir og undirstrikar því að umrædd setning í greinargerð með frumvarpinu felur ekki í sér sérstaka undanþágu frá heimild 36. gr. vegna vistunarúrræða fyrir börn með fjölþættar stuðningsþarfir. Ákvæði 2. mgr. 36. gr. á því við um öll börn, þar á meðal börn með fjölþættar stuðningsþarfir.
    
Eftirlit barnaverndarþjónustu með sýningum og skemmtunum (102. gr.).
    Í umsögn lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu er bent á að í 3. mgr. 93. gr. núgildandi barnaverndarlaga komi fram að börnum yngri en 18 ára sé óheimilt að taka þátt í nektarsýningum eða öðrum sýningum af kynferðislegum toga. Í frumvarpinu sé ekki að finna ákvæði þess efnis í 3. mgr. 102. gr. frumvarpsins né annars staðar í frumvarpinu. Í greinargerð með frumvarpinu komi hins vegar fram að ákvæðið sé óbreytt. Kemur fram í umsögn lögreglunnar að mikilvægt sé að lögin verndi börn frá því að taka þátt í sýningum eða keppnum sem sýna börn á kynferðislegan hátt.
    Í minnisblaði mennta- og barnamálaráðuneytis, dags. 23. október 2026, kemur fram að með 6. gr. laga nr. 58/2012 hafi nýju ákvæði, 210. gr. b, verið bætt við almenn hegningarlög, nr. 19/1940. Þar er lögð refsing við því að ráða barn til þátttöku í nektar- eða klámsýningu, skipuleggja slíka þátttöku, valda þátttöku með öðrum hætti eða hafa af henni ávinning. Jafnframt sé refsivert að sækja slíka sýningu þar sem börn eru þátttakendur. Bendir ráðuneytið á að við undirbúning frumvarpsins hafi verið horft til þess að bannreglan í 3. mgr. 93. gr. gildandi barnaverndarlaga beinist að börnunum sjálfum, sem þurfi á vernd að halda í slíkum aðstæðum. Ekki hafi fundist dæmi um sjálfstæða beitingu reglunnar eftir breytingu almennra hegningarlaga. Þá hafi verið horft til innra samræmis barnaverndarlaga, sem byggist á skyldum barnaverndaryfirvalda til að veita börnum stuðning, umönnun og vernd.
    Meiri hlutinn telur mikilvægt að skýring ráðuneytisins liggi fyrir og telur að ákvæði 210. gr. b almennra hegningarlaga dugi til að vernda börn gegn þátttöku í slíkum sýningum. Því sé ekki tilefni til breytinga á 102. gr. frumvarpsins.
    
Breytingartillögur.
Orðalag í ákvæði 105. gr. um brottnám barns og brot gegn nálgunarbanni.
    Í umsögn lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu er bent á orðalagið "lögmælt fyrirmæli" í 1. mgr. 105. gr., sem fjallar um fyrirmæli um að víkja af heimili. Bent er á að réttara sé að vísa til lögmætra fyrirmæla, þ.e. fyrirmæla sem séu í samræmi við lög og hafi fullnægjandi lagastoð. Mennta- og barnamálaráðuneyti tekur undir ábendinguna í minnisblaði sínu frá 23. október 2026 og leggur meiri hlutinn til breytingu til samræmis við hana, þ.e. að í stað orðsins „lögmæltum“ í 1. mgr. 105. gr. komi orðið „lögmætum“.
    
Gildistaka og innleiðing (111. gr. og ákvæði til bráðabirgða).
    Í minnisblaði frá mennta- og barnamálaráðuneyti, dags. 23. október 2026, bendir ráðuneytið á að tilefni kunni að vera til þess að styrkja heimildir þess til að hefja undirbúning breytinganna sem felast í frumvarpinu. Að því virtu leggur ráðuneytið til breytingu á ákvæði til bráðabirgða I þess efnis að við gildistöku ákvæðisins skuli ráðherra hefja undirbúning að stofnun barnaverndarráðs. Þá verði honum heimilt að gera ráðstafanir til að stuðla að því að ráðið geti tekið til starfa 1. apríl 2027, þ.m.t. að skipa ráðsmenn og annast ráðningar í störf hjá barnaverndarráði. Þá er til samræmis jafnframt lögð til breyting á 1. mgr. 111. gr. þannig að ákvæði til bráðabirgða I öðlist þegar gildi. Meiri hlutinn tekur undir með ráðuneytinu og leggur til framangreindar breytingar.
    Þá eru lagðar til nokkrar lagatæknilegar breytingar og lagfæringar á orðalagi sem er ekki ætlað að hafa efnisleg áhrif.
    
    Að framangreindu virtu leggur meiri hlutinn til að frumvarpið verði samþykkt með eftirfarandi

BREYTINGU:


     1.      Orðskýringar 3. gr. raðist í rétta stafrófsröð.
     2.      Í stað orðsins „lokið“ í 1. málsl. 2. mgr. 24. gr. komi: lokað.
     3.      Í stað orðsins „þau“ í 1. málsl. 1. mgr. 48. gr. komi: þá.
     4.      Í stað orðanna „samkvæmt þessari grein“ í 1. mgr. 80. gr. komi: skv. 31. gr. og 2. mgr. 40. gr.
     5.      Í stað orðanna „samkvæmt þessari grein“ í 1. mgr. 81. gr. komi: skv. 30. gr.
     6.      Í stað orðanna „samkvæmt þessari grein“ í 1. mgr. 82. gr. komi: skv. 6. mgr. 56. gr.
     7.      Við 105. gr.
                  a.      Í stað orðsins „lögmæltum“ í 1. mgr. komi: lögmætum.
                  b.      Í stað „105. gr.“ í 3. mgr. komi: 102. gr.
     8.      Við 1. mgr. 111. gr. bætist nýr málsliður, svohljóðandi: Ákvæði til bráðabirgða I öðlast þó þegar gildi.
     9.      Við 112. gr.
                  a.      Í stað orðanna „málefni fatlaðs fólks“ í 3. efnismgr. d-liðar 2. tölul. komi: þjónustu við fatlað fólk.
                  b.      3. tölul. falli brott.
                  c.      Við 19. tölul. bætist nýr stafliður, c-liður, svohljóðandi: Orðin „þ.m.t. ákvarðanir teymis skv. 20. gr.“ í 1. mgr. 35. gr. laganna falla brott.
     10.      Við ákvæði til bráðabirgða I bætist ný málsgrein, svohljóðandi:
                  Við gildistöku ákvæðis þessa skal ráðherra hefja undirbúning að stofnun barnaverndarráðs. Honum er heimilt að gera ráðstafanir til að stuðla að því að ráðið geti tekið til starfa 1. apríl 2027, þ.m.t. að skipa ráðsmenn og annast ráðningar í störf hjá barnaverndarráði.

Alþingi, 4. nóvember 2026.

Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir,
form., frsm.
Heiða Ingimarsdóttir. Jónína Björk Óskarsdóttir.
Kristján Þórður Snæbjarnarson. Ragna Sigurðardóttir.