Ferill 301. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
158. löggjafarþing 2026–2027.
Þingskjal 474 — 301. mál.
Svar
menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra við fyrirspurn frá Ingveldi Önnu Sigurðardóttur um ívilnanir vegna skorts á menntuðu starfsfólki á landsbyggðinni.
1. Hefur ráðherra gripið til aðgerða til að hefja undirbúning og innleiðingu ívilnana skv. 27. gr. laga um Menntasjóð námsmanna, nr. 60/2020, vegna viðvarandi eða fyrirsjáanlegs skorts á menntuðu starfsfólki á landsbyggðinni, einkum heilbrigðisstarfsfólki? Ef svo er, til hvaða aðgerða hefur verið gripið?
Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneyti hefur undirbúið ívilnanir vegna skorts á heilbrigðisstarfsfólki á landsbyggðinni, einkum á grundvelli 28. gr. laga nr. 60/2020. Sú heimild tekur sérstaklega til búsetu og starfa á skilgreindum svæðum en 27. gr. á við um ívilnanir á landsvísu vegna tiltekinna námsgreina.
Undirbúningurinn hefur falist í skýrslugerð, tillögum um útfærslu og kostnaðarmati. Í fyrirliggjandi aðgerðatexta byggðaáætlunar, A.4 Menntasjóður námsmanna, er stefnt að bættri mönnun heilbrigðisstétta á skortsvæðum utan stærstu þéttbýlissvæða árin 2027–2031. Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneyti er tilgreint sem ábyrgðarráðuneyti. Heilbrigðisráðuneyti, Menntasjóður námsmanna, Byggðastofnun og Samband íslenskra sveitarfélaga eru tilgreind sem framkvæmdaraðilar. Gert er ráð fyrir nánari afmörkun svæða eða starfsstétta í frekari greiningu Byggðastofnunar vegna óvissu um kostnaðaráhrif. Á þessu stigi liggur fjármögnun aðgerðarinnar ekki fyrir en unnið er að því að tryggja hana.
Kostnaðarmat til bráðabirgða er allt að 300 millj. kr. árlega, miðað við 1,5 millj. kr. höfuðstólslækkun á hvern lánþega, að teknu tilliti til nánari afmörkunar skortsvæða og starfsstétta sem rétt eiga til ívilnunar. Endanlegt mat á kostnaði við aðgerðina ræðst af landfræðilegri afmörkun, fjölda lánþega sem njóta ívilnunar og starfshlutfalli þeirra. Fjármögnun aðgerðarinnar ræðst af afdrifum fjárlagafrumvarpsins á Alþingi.
2. Hver er staðan á þeim fimm beiðnum um beitingu 28. gr. laga nr. 60/2020 sem ráðuneytinu hafa borist og vísað er til í svari ráðherra á þskj. 1132 á 157. löggjafarþingi? Hvaða ákvarðanir hafa verið teknar um afgreiðslu þeirra og hvenær má vænta þess að ívilnanir á grundvelli ákvæðisins geti komið til framkvæmda?
Beiðnirnar fimm varða heilbrigðisþjónustu í Rangárþingi ytra og eystra, á norðanverðum Vestfjörðum, á Hvammstanga, á Höfn í Hornafirði og á starfssvæði Heilbrigðisstofnunar Austurlands. Skýrslur Byggðastofnunar og Sambands íslenskra sveitarfélaga liggja fyrir vegna þeirra allra. Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneyti óskaði eftir tillögum og kostnaðarmati Menntasjóðs í september 2025 og bárust gögnin í október sama ár. Óskað hefur verið eftir fjármögnun aðgerðarinnar í fjárlögum 2027. Framkvæmd aðgerðarinnar er háð fjármögnun í fjárlögum, lagaskilyrðum í 28. gr. laganna og auglýsingu ráðherra um ívilnun. Fáist aðgerðin fjármögnuð gæti hún komist til framkvæmda frá og með haustmánuðum 2027.
3. Hvaða vinna hefur farið fram innan ráðuneytisins til að einfalda framkvæmd 27. og 28. gr. fyrrgreindra laga og tryggja að heimildirnar nýtist í samræmi við markmið þeirra, sbr. svar ráðherra á þskj. 630 á 157. löggjafarþingi? Hefur verið tekin ákvörðun um að endurskoða ákvæðin eða undirbúa breytingar á þeim?
Engar breytingar hafa verið undirbúnar á 27. gr. og 28. gr. laga nr. 60/2020. Endurskoðun laganna stendur þó yfir og er stefnt að því að leggja fram frumvarp til breytinga á þeim á 159. löggjafarþingi.
4. Hefur sú leið að veita tímabundinn skattafslátt til að laða sérhæft starfsfólk til starfa á landsbyggðinni verið skoðuð frekar, m.a. í samráði við fjármála- og efnahagsráðuneyti, sbr. áðurnefnt svar? Ef svo er, hverjar eru niðurstöður þeirrar skoðunar og liggja fyrir áform um að innleiða slíkt úrræði?
Slíkt úrræði krefst sérstaks undirbúnings á sviði skattamála og verður ekki innleitt á grundvelli heimilda í lögum um Menntasjóð námsmanna. Viðræður stóðu yfir við fjármála- og efnahagsráðuneyti um slíka breytingu á lögum um tekjuskatt nr. 90/2003 á árinu 2024 en leiddu ekki til niðurstöðu.
5. Hefur ráðherra kannað möguleika á að taka upp almennari búsetutengdar ívilnanir að norskri fyrirmynd, líkt og þær sem gilda í Finnmörku og Norður-Tromsö í Noregi, þar sem íbúar geta m.a. notið árlegrar niðurfellingar námslána og skattalegra ívilnana? Telur ráðherra slíkt fyrirkomulag koma til greina á Íslandi til að styrkja búsetu og bæta mönnun opinberrar þjónustu á landsbyggðinni?
Norsk fyrirmynd hefur komið til skoðunar í tengslum við námslánaívilnanir, eins og fram kemur í svari á þskj. 630 á 157. löggjafarþingi. Almennari byggðatengdar ívilnanir eru jafnframt viðfangsefni í Hvítbók um byggðamál frá júní 2026. Í aðgerð B.7 í þeim drögum er lagt til að Byggðastofnun greini efnahagslega hvata og ívilnanir í Noregi, m.a. á sviði skatta- og samgöngumála, og meti fýsileika, svæðisafmörkun og kostnað sambærilegra úrræða á Íslandi. Þar er gert ráð fyrir ábyrgð innviðaráðuneytis í samstarfi við fjármála- og efnahagsráðuneyti og vinnu á árinu 2027.
Ráðherra telur rétt að meta slík úrræði með hliðsjón af byggðaáhrifum, jafnræði og kostnaði. Almenn búsetutengd niðurfelling, óháð námsgrein eða nýtingu menntunar til starfa, gengi lengra en 27. gr. og 28. gr. heimila og kallaði á sérstaka lagaheimild og fjármögnun. Aðgerð A.4 varðar afmarkaðan mönnunarvanda heilbrigðisstétta og felur ekki í sér ákvörðun um almennt búsetuívilnanakerfi.