Ferill 156. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Microsoft Word.


158. löggjafarþing 2026–2027.
Þingskjal 157  —  156. mál.
Stjórnarfrumvarp.



Frumvarp til laga


um breytingu á lögum um Byggðastofnun, nr. 106/1999 (lagfæringar).

Frá innviðaráðherra.


1. gr.

    Eftirfarandi breytingar verða á 2. gr. laganna:
     a.      2. málsl. 2. mgr. fellur brott.
     b.      Í stað orðsins „atvinnuráðgjöf“ í 3. mgr. kemur: atvinnu- og byggðaþróun.
     c.      Í stað orðsins „atvinnuþróunarfélög“ í 3. mgr. kemur: landshlutasamtök sveitarfélaga.
     d.      Við 6. mgr. bætast tveir nýir málsliðir, svohljóðandi: Verkefni póstþjónustu skulu vera aðskilin öðrum verkefnum stofnunarinnar og við eftirlit með póstþjónustu er stofnunin sjálfstæð gagnvart ráðherra í skilningi laga um Stjórnarráð Íslands. Póstmálefni heyra ekki undir stjórn stofnunarinnar.
     e.      Við bætist ný málsgrein, svohljóðandi:
                  Í samráði við stýrihóp Stjórnarráðsins um byggðamál leggur Byggðastofnun mat á framvindu sóknaráætlana landshluta og hefur eftirlit með fjárreiðum þeirra. Byggðastofnun tekur þátt í gerð og framkvæmd byggðaáætlunar og fylgist með árangri hennar í samstarfi við ráðherra á grundvelli gagna um þróun byggðamála.

2. gr.

    Eftirfarandi breytingar verða á 4. gr. laganna:
     a.      1. tölul. fellur brott.
     b.      8. tölul. orðast svo: Að setja reglur um störf lánanefndar Byggðastofnunar, eins og skipun í lánanefndina, útlánareglur, hlutafé, veð, skuldbreytingar, afskriftir, sölu fullnustueigna, þátttöku í eignarhalds-, fjárfestingar- og þróunarfélögum í samræmi við verklagsreglur sem stjórn setur o.fl.
     c.      Eftirfarandi breytingar verða á 10. tölul.:
                  1.      Á eftir 2. málsl. kemur nýr málsliður, svohljóðandi: Stjórn skal einungis taka ákvarðanir um lán- og ábyrgðarveitingar sem eru verulegar, fela í sér nýmæli, vafamál eða stefnumarkandi mál samkvæmt nánari reglum sem stjórn setur.
                  2.      Í stað orðanna „lán- og ábyrgðarveitingar“ í 3. málsl. kemur: lán, ábyrgðarveitingar og hlutafjárviðskipti.

3. gr.

    Eftirfarandi breytingar verða á 6. gr. laganna:
     a.      Á eftir 1. tölul. kemur nýr töluliður, svohljóðandi: Að ákveða skipurit stofnunarinnar og ráða staðgengil sinn.
     b.      A-liður 2. tölul. fellur brott og breytast aðrir stafliðir í samræmi við það.

4. gr.

    Á eftir 1. málsl. 8. gr. laganna kemur nýr málsliður, svohljóðandi: Stofnunin vinnur að því að efla byggðaþróun með markvissum rannsóknum sem stuðla að hlutlægri og faglegri umræðu og leiða til betri stefnumótunar og ákvörðunartöku.

5. gr.

    Eftirfarandi breytingar verða á 9. gr. laganna:
     a.      Í stað orðsins „atvinnuþróunarfélög“ í 1. og 3. mgr. kemur: landshlutasamtök sveitarfélaga.
     b.      Í stað 2. mgr. koma tvær nýjar málsgreinar, svohljóðandi:
                  Stofnunin skal í samstarfi við þá aðila sem sinna atvinnuráðgjöf, atvinnu- og byggðaþróun skapa grundvöll fyrir samstarfi í samræmi við stefnu Alþingis í byggðamálum, með áherslu á búsetuskilyrði, samkeppnishæfni, nýsköpunar- og atvinnuþróunarstarf.
                  Stofnunin skal í samstarfi við aðila sem sinna atvinnuráðgjöf vinna að bættu skipulagi atvinnuráðgjafar og aukinni þekkingu ráðgjafa, m.a. í því skyni að efla og styðja atvinnulíf og nýsköpun í byggðum landsins með árangursríkri og skilvirkri atvinnuráðgjöf og stuðningi á grunni svæðisbundinna styrkleika og stuðla að betri nýtingu fjármuna.
     c.      Fyrirsögn greinarinnar orðast svo: Atvinnu- og byggðaþróun.

6. gr.

    Í stað orðsins „atvinnuþróunarfélögum“ í 3. málsl. 10. gr. laganna kemur: landshlutasamtökum sveitarfélaga.

7. gr.

    4. mgr. 11. gr. laganna fellur brott.

8. gr.

    18. gr. laganna orðast svo, ásamt fyrirsögn:

Þagnarskylda og vernd persónuupplýsinga.

    Á starfsfólki Byggðastofnunar hvílir þagnarskylda skv. X. kafla stjórnsýslulaga, nr. 37/1993.
    Þagnarskylda gildir einnig um stjórn Byggðastofnunar og þá sem sinna verkefnum fyrir stofnunina en eru ekki starfsmenn hennar.
    Byggðastofnun er heimil vinnsla persónuupplýsinga sem aflað er m.a. í tengslum við vinnslu lánsumsókna, í þeim tilgangi að sinna lögbundnu hlutverki sínu samkvæmt lögum þessum og ákvæðum annarra laga og að uppfylltum skilyrðum laga um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga. Stofnunin skal tryggja að fyllsta öryggis sé gætt við sendingu og meðferð upplýsinga, og gera aðrar öryggisráðstafanir til samræmis við lög um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga og reglur sem settar hafa verið á grundvelli þeirra. Þá skal stofnunin gæta ákvæða laga um fjármálafyrirtæki eftir því sem við á.
    Sama gildir við vinnslu persónuupplýsinga vegna annarra verkefna Byggðastofnunar.

9. gr.

    Ákvæði til bráðabirgða í lögunum fellur brott.

10. gr.

    Lög þessi öðlast þegar gildi.


Greinargerð.

1. Inngangur.
    Frumvarp þetta er samið í innviðaráðuneytinu í samvinnu við Byggðastofnun.
    Í stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar frá desember 2024 er lögð áhersla á að bæta samskipti ríkis og sveitarfélaga og treysta stoðir hinna dreifðu byggða. Byggðastofnun er lykilstofnun þegar kemur að hinum dreifðu byggðum og hefur verið svo frá árinu 1985 þegar stofnunin tók til starfa með lögum nr. 64/1985.
    Í þessu ljósi var tekið til skoðunar hvort hægt væri að tryggja stofnunina í sessi sem sjálfstæða einingu á landsbyggðinni og þar með nauðsynlega byggðafestu, ekki síst þar sem hlutfall ríkisstarfa á höfuðborgarsvæðinu er 70% þrátt fyrir að þar búi aðeins 64% landsmanna. Hins vegar hefur legið fyrir í lengri tíma að margt má bæta í lögum um Byggðastofnun, nr. 106/1999, enda rúmlega 25 ár liðin frá því að þau tóku gildi 1. janúar árið 2000. Lögunum hefur verið breytt átta sinnum á þessu tímabili, síðast árið 2021 þegar málefni póstsins voru færð yfir til stofnunarinnar, en ekki hefur gefist ráðrúm til að uppfæra lögin í heild sinni.
    Í maí 2025 var haldinn fundur með Eftirlitsstofnun EFTA þar sem farið var yfir stjórnsýslu póstmála. Þar reifaði Eftirlitsstofnunin m.a. þær áhyggjur að sú lagaumgjörð sem gildir um Byggðastofnun væri þess eðlis að Eftirlitsstofnunin hefði efasemdir um að Byggðastofnun væri nægilega sjálfstæð til að sinna eftirliti með póstþjónustu. Áhyggjurnar snerust um að stofnunin hefði yfir sér pólitískt skipaða stjórn sem gæti haft óeðlileg afskipti af póstmálefnum. Þessu var andmælt af hálfu íslenskra stjórnvalda. Málefnið var tekið upp að nýju á fundi sömu aðila í maí 2026. Til að koma til móts við sjónarmið Eftirlitsstofnunar EFTA var talið rétt að skerpa á þessu með því að leggja til lagabreytingu.
    Framangreindir þættir leiddu til þess að ráðuneytið hóf vinnu við gerð þessa frumvarps í samstarfi við Byggðastofnun.

2. Tilefni og nauðsyn lagasetningar.
    Í ljósi aldurs laga um Byggðastofnun og þeirra samfélagsbreytinga sem hafa átt sér stað frá því að þeim var síðast breytt er nauðsynlegt og fullt tilefni til að bæta úr þeim annmörkum á lögunum sem hér eru til umfjöllunar. Hér á árum áður voru notuð orðin „landshlutasamtök sveitarfélaga“ í VI. kafla þágildandi laga um Framkvæmdastofnun ríkisins, nr. 97/1976, en kaflinn fjallaði um Byggðasjóð. Með þágildandi lögum um Byggðastofnun, nr. 64/1985, sem komu í stað ákvæða VI. kafla fyrrgreindra laga, hurfu þau orð úr lögum, sbr. 3. kafla. Í staðinn var farið að nota orðið „atvinnuþróunarfélög“. Nú er þessu öfugt farið og hætt að nota orðið „atvinnuþróunarfélög“ og farið að nota „landshlutasamtök sveitarfélaga“ á ný.
    Þá er nauðsynlegt að samræma hlutverk stjórnar Byggðastofnunar hlutverki stjórna annarra lánastofnana eða fjármálafyrirtækja. Þetta er gert í samræmi við kröfur í lögum um fjármálafyrirtæki.
    Lagðar eru til breytingar á lögum um Byggðastofnun sem eiga að minnka tortryggni gagnvart eftirlitshlutverki stofnunarinnar með póstþjónustu og koma til móts við athugasemdir Eftirlitsstofnunar EFTA. Talið er að sú lagabreyting sem lögð er til í þessu frumvarpi sé nægjanleg til að koma til móts við athugasemdir stofnunarinnar, en íslensk stjórnvöld telja stofnunina nægilega sjálfstæða með vísan til þriðju pósttilskipunarinnar 2008/6/EB frá 20. febrúar 2008, sbr. umfjöllun um d-lið 1. gr. frumvarpsins.
    Markmiðið með lagasetningunni er því að færa lögin í nútímalegt horf og auka tiltrú á stofnunina sem eftirlitsstjórnvalds með póstþjónustu.

3. Meginefni frumvarpsins.
    Í frumvarpinu (1., 5. og 6. gr.) er lagt til að í stað orðsins „atvinnuþróunarfélög“ komi „landshlutasamtök sveitarfélaga“. Orðið „atvinnuþróunarfélög“ kom fyrst inn í lög með þágildandi lögum um Byggðastofnun, nr. 64/1985, en var ekki að finna í lögum um Framkvæmdastofnun ríkisins, nr. 97/1976, en í VI. kafla þeirra laga var ekki kveðið á um Byggðasjóð sem er forveri Byggðastofnunar. Orðið „atvinnuþróunarfélög“ var ekki að finna í 12. gr. frumvarps þess er varð að lögum um Byggðastofnun eins og það var lagt fram á 107. löggjafarþingi 1984-1985 af forsætisráðherra ( þskj. 775, 456. mál). Orðið virðist ekki koma fram fyrr en í tillögu til þingsályktunar um nýja byggðastefnu og valddreifingu til héraða og sveitarfélaga sem lögð var fram á sama þingi (þskj. 991, 517. mál). Þar kemur fram: „Rétt er að gera ráð fyrir að sett verði á fót Byggðastofnun um leið og Framkvæmdastofnun er lögð niður. Byggðastofnun ætti að vera þjónustu- og stuðningsaðili við þróunarstofur og þróunarsjóði landshluta.“ (bls. 3554). Í kjölfarið voru lagðar til breytingar á 12. gr. frumvarpsins af meiri hluta fjárhags- og viðskiptanefndar (þskj. 1059, 456. mál) þess efnis að orðin „fjárfestingar- eða þróunarfélögum“ komu inn í 12. gr. frumvarpsins.
    Í lögunum frá 1976 um Framkvæmdastofnun ríkisins eru orðin „landshlutasamtök sveitarfélaga“ notuð líkt og nú er lagt til. Þau má rekja til ársins 1943 með stofnun Fjórðungsþings Austfirðinga og virðist tilgangurinn hafa verið að efla samstarf sýslna og sveitarfélaga í fjórðungnum, m.a. í ljósi fámennra sveitarfélaga á svæðinu. Getið er um landshlutasamtök sveitarfélaga í 97. gr. sveitarstjórnarlaga, nr. 138/2011, en þar kemur fram að sveitarfélögum sé heimilt að starfa saman innan staðbundinna landshlutasamtaka sveitarfélaga er vinni að sameiginlegum hagsmunamálum sveitarfélaganna í hverjum landshluta og þau skuli ekki vera fleiri en átta talsins. Landshlutasamtök geta með samningum eða samkvæmt heimildum í sérlögum tekið að sér verkefni eða aðra starfsemi sem tengist hlutverki þeirra skv. 1. mgr. 97. gr. fyrrgreindra laga, svo sem verkefni tengd byggðaþróun eða öðrum sameiginlegum hagsmunum sveitarfélaga. Í frumvarpi til sveitarstjórnarlaga, sem lagt hefur verið fram á yfirstandandi þingi, er auk þess fjallað um landshlutasamtök sveitarfélaga í 111. gr. ( þskj. 5, 5. mál). Landshlutasamtök sveitarfélaga eru eign sveitarfélaganna í landinu. Þau hafa í gegnum árin tekið að sér ný verkefni og verið færð önnur með lögum, svo sem byggðaáætlun og sóknaráætlun. Í ljósi heimilda landshlutasamtaka sveitarfélaga í sveitarstjórnarlögum fer betur á því að kveða á um „landshlutasamtök sveitarfélaga“ í stað þess að fjalla um „atvinnuþróunarfélög“ enda felast í því meiri líkindi á því að einstök landshlutasamtök fylgi verkefni eftir og þá hafa þessi samtök tekið yfir verkefni þróunarfélaga fyrir alllöngu síðan.
    Í 1. gr. frumvarpsins eru lagðar til breytingar á 2. gr. laganna sem fjallar um hlutverk stofnunarinnar. Í fyrsta lagi er um að ræða orðalagsbreytingar. Í öðru lagi er um að ræða breytingu á 6. mgr. auk þess er í þriðja lagi lagt til að nýrri málsgrein verði bætt við greinina.
    Lagt er til að tveimur málsliðum verði bætt við 6. mgr. í þeim tilgangi að auka lagalegt sjálfstæði stofnunarinnar við eftirlit í póstmálefnum en stofnunin fer með eftirlit á póstmarkaði hér á landi, sbr. nánari umfjöllun í skýringu við ákvæðið.
    Í nýrri málsgrein við 2. gr. laganna er lagt til að Byggðastofnun verði falið að leggja mat á framvindu sóknaráætlana landshluta og jafnframt að tryggja samráð við stýrihóp Stjórnarráðsins um byggðamál ásamt því að skerpa á aðkomu stofnunarinnar við gerð byggðaáætlunar.
    Í 2. gr. frumvarpsins eru lagðar til breytingar á 4. gr. laganna um verkefni stjórnar. Lagt er til að færa orðalag til samræmis við 55. gr. laga um fjármálafyrirtæki, nr. 161/2002, þar sem kveðið er á um að stjórn fjármálafyrirtækis skuli ekki taka þátt í ákvörðunum um einstök viðskipti, nema umfang þeirra sé verulegt miðað við stærð fyrirtækisins, án þess að breyta efnislega valdheimildum stjórnar. Kveðið er nánar á um hvaða ákvarðanir við er átt í reglum sem mælt er fyrir um í ákvæðinu.
    Í 3. gr. frumvarpsins er lögð til breyting á 6. gr. laganna um verkefni forstjóra. Lagt er til að forstjóri ákveði sjálfur hvernig skipulagi stofnunarinnar sé háttað og hann velji sjálfur staðgengil sinn. Er þetta í samræmi við nútímastjórnarhætti
    Í 4. gr. frumvarpsins er lagt til að bætt verði inn málslið í 8. gr. laganna til að efla stefnumótun stofnunarinnar, sbr. skýringu við ákvæðið.
Lagðar eru til breytingar á 9. gr. laganna í 5. gr. frumvarpsins sem eiga að stuðla að því að efla samstarf stofnunarinnar um atvinnuráðgjöf.
    Í 6. gr. frumvarpsins er lögð til breyting á 10. gr. laganna um fjármögnun verkefna. Breytingin lýtur að því að samræma ábyrgð stjórnar stofnunarinnar og stjórna fjármálafyrirtækja.
    Í 8. gr. frumvarpsins er lögð til breyting á þagnarskylduákvæði laganna auk þess sem lagt er til að persónuverndarákvæði verði sett inn í lögin.

4. Samræmi við stjórnarskrá og alþjóðlegar skuldbindingar.
    Með frumvarpinu er lagt til að uppfylltar verði þjóðréttarlegar skuldbindingar íslenska ríkisins samkvæmt samningnum um Evrópska efnahagssvæðið með vísan til 2. kafla um tilefni og nauðsyn lagasetningar. Með frumvarpinu bregðast íslensk stjórnvöld við athugasemdum Eftirlitsstofnunar EFTA sem lúta að sjálfstæði eftirlitsstjórnvalds.
    Við samningu frumvarpsins kom til skoðunar hvort ákvæði þess færu í bága við ákvæði stjórnarskrár lýðveldisins Íslands, nr. 33/1944. Ákvæði frumvarpsins voru ekki talin þess eðlis að reyndi á ákvæði stjórnarskrárinnar.

5. Samráð.
    Efni frumvarpsins snertir helst Byggðastofnun, stjórn hennar og starfsfólk. Haft var samráð við fjármála- og efnahagsráðuneytið við vinnslu frumvarpsins auk þess er hluti þess tilkominn vegna yfirstandandi samtals stjórnvalda við Eftirlitsstofnun EFTA um fyrirkomulag stjórnsýslu póstmála.
    Áform um samningu frumvarpsins voru sett í opið samráð í samráðsgátt stjórnvalda á vefnum Ísland.is dagana 10.–31. júlí 2025 (mál nr. S-117/2025). Ein umsögn barst í gáttina frá Fjórðungssambandi Vestfjarða. Fjórðungssambandið studdi breytingar á lögunum í umsögn sinni en benti jafnframt á að tilgreindur fjárlagaliður til atvinnuráðgjafar á landsbyggðinni hefði rýrnað verulega miðað við verðlagsþróun. Þá var gagnrýnt að áformin hefðu verið sett í samráð yfir sumarleyfistímann.
    Í þeim áformum sem sett voru í samráð í júlí 2025 var gerð nokkuð ítarleg grein fyrir hvaða breytingar væru fyrirhugaðar á lögunum. Þær breytingar hafa að mestu leyti gengið eftir í þessu frumvarpi. Aðeins hefur verið fallið frá þremur breytingum frá því að áformin voru sett í opið samráð. Í fyrsta lagi var fallið frá því að fastsetja það í lögum að stofnunin skyldi staðsett á Sauðárkróki. Í öðru lagi var fallið frá því að setja ákvæði um EIF (European Investment Fund) í frumvarpið. Í þriðja lagi var fallið frá því að fækka stjórnarmönnum.
    Frumvarpsdrög voru birt í samráðsgátt stjórnvalda á vefnum Ísland.is dagana 29. apríl – 30. júní 2026 (mál nr. S-79/2026). Tvær umsagnir bárust í gáttina, annars vegar frá sveitarfélaginu Skagafirði og hins vegar frá Samtökum verslunar og þjónustu.
    Í umsögn Skagafjarðar eru ekki gerðar athugasemdir við orðalagsbreytingar í frumvarpinu. Í umsögninni kemur fram að sveitarfélagið telji Byggðastofnun vera mjög mikilvæga lánastofnun fyrir dreifðari byggðir landsins. Það sé þó mat þess að lánakjör Byggðastofnunar séu í besta falli samkeppnishæf við almenna bankakerfið. Sveitarfélagið telji að þegar bankakerfið hafi trú á fyrirtæki, svæði eða verkefni, t.d. út frá þróun íbúafjölda, hagvexti og fleiri þáttum, þá bjóði það betri kjör en Byggðastofnun. Þess vegna sé það mat sveitarfélagsins að brýnt sé að löggjafinn veiti stjórn Byggðastofnunar aukinn sveigjanleika í lögum til að veita sérstaklega hagstæð lán, helst vaxtalaus, fyrir viðkvæmustu byggðasvæðin á Íslandi, með hliðsjón af íbúafjölda og fleiri þáttum. Þannig myndi skapast nýr og hagkvæmur lánamöguleiki fyrir einstaklinga og fyrirtæki til að fjárfesta í atvinnuskapandi tækifærum á veikustu byggðasvæðum landsins sem myndi stuðla að atvinnuuppbyggingu og fjölgun íbúa þessara svæða.
    Í umsögn Samtaka verslunar og þjónustu kemur fram að verði frumvarpið óbreytt að lögum verði stjórnskipulag stofnunarinnar að mestu óbreytt, fyrir utan að ákvörðun um starfsskipulag stofnunarinnar verði fært frá stjórn til forstjóra. Bent er á að forstjóri þurfi eftir sem áður skv. 6. gr. laga um Byggðastofnun, nr. 106/1999, að gera tillögur til stjórnar um áherslur í starfseminni. Einnig yrði það á borði stjórnar að móta stefnu um helstu áherslur, verkefni og starfshætti skv. 4. gr. laganna svo dæmi sé nefnt. Þannig nái breytingin ekki markmiði sínu.
    Rétt er að benda á að ekki var ætlunin að útvíkka lánamöguleika Byggðastofnunar með frumvarpi þessu. Þá skal á það bent að í d-lið 1. gr. frumvarpsins er lagt til að tveir málsliðir bætist við 6. mgr. 2. gr. laganna. Seinni málsliðurinn hljóði svo: „Póstmálefni heyra ekki undir stjórn stofnunarinnar.“ Verði frumvarpið óbreytt að lögum mun þetta þýða að póstmál munu ekki vera eitt af verkefnum stjórnar skv. 4. gr. laganna og póstmál munu t.d. vera undanskilin tillögugerð forstjóra til stjórnar skv. 6. gr. laganna. Það liggur í hlutarins eðli að búið er að aftengja póstmál frá stjórn stofnunarinnar.
    Vegna frekari athugasemda Samtaka verslunar og þjónustu um fjármál póstmála hjá Byggðastofnun er á það bent að Byggðastofnun fær rúmlega 30 millj. kr. til að sinna póstmálefnum en það samsvarar innheimtu rekstrargjaldi póstrekanda hér á landi. Því er ekki tilefni til að bregðast við þeim athugasemdum.

6. Mat á áhrifum.
    Um er að ræða lítils háttar breytingar á lögum um Byggðastofnun sem hafa ekki teljandi bein áhrif á almannahagsmuni heldur lúta fyrst og fremst að stofnuninni sjálfri og starfsemi hennar. Þó hefur frumvarpið afleidd jákvæð áhrif á landsbyggðina þar sem styrking stofnunarinnar hefur í för með sér jákvæð áhrif fyrir landsbyggðina, enda þjónar stofnunin landsbyggðinni.
    Frumvarpið mun skýra heimildir og ábyrgð stofnunarinnar til að taka þátt í áætlanagerð og eftirliti á sviði byggðamála og er stofnunin vel í stakk búin til að taka að sér þau verkefni. Þá hefur eftirlit stofnunarinnar með póstmálum gengið vel og árleg samskipti við Eftirlitsstofnun EFTA ávallt verið góð.
    Ljóst er að frumvarpið mun ekki hafa áhrif á útgjöld ríkisins verði það lögum.
    Erfitt er að meta kynjaáhrif frumvarpsins enda er frumvarpið þess eðlis að það beinist ekki beint að þjónustu við einstaka þjóðfélagsþegna heldur að stofnuninni sem slíkri.
    Með frumvarpinu er lagt til að nýtt persónuverndarákvæði verði leitt í lög um Byggðastofnun til að vernda persónuupplýsingar lántaka og annarra sem eiga í samskiptum við stofnunina.
    Fyrir Byggðastofnun sem ríkisstofnun er talsverður ávinningur af samþykkt frumvarpsins enda er það nauðsynlegt svo að hægt sé að endurbæta reglugerð um stofnunina og gera nauðsynlegar umbætur á verkefnum stofnunarinnar.

Um einstakar greinar frumvarpsins.
Um 1. gr.

    Í greininni eru lagðar til breytingar á 2. gr. laganna.
    Í a-lið er lagt til að 2. málsl. 2. mgr. ákvæðisins falli brott. Það eykur sjálfstæði stofnunarinnar að fjármagna verkefni sjálf án samráðs við aðra, en að sama skapi er ekkert því til fyrirstöðu að fjármagna verkefni í samstarfi við aðra. Lánaflokkum stofnunarinnar hefur fjölgað mikið frá því að lögin voru sett, en þá var einungis einn lánaflokkur. Þeir eru nú fjölbreyttir og sniðnir að þörfum landsbyggðarinnar sem dregur úr nauðsyn á samfjármögnun.
    Í b-lið er lagt til að í stað orðsins „atvinnuráðgjöf“ í 3. mgr. komi „atvinnu- og byggðaþróun“. Atvinnuráðgjöf felst innan atvinnu- og byggðaþróunar og er breytingin því liður í að útvíkka ákvæðið.
    Í c-lið er lagt til að í stað orðsins „atvinnuþróunarfélög“ í 3. mgr. komi „landshlutasamtök sveitarfélaga“, sbr. umfjöllun í 2. og 3. kafla.
    Í d-lið er lagt til að tveimur nýjum málsliðum verði bætt við 6. mgr. Tilgangur þessara breytinga er að efla sjálfstæði stofnunarinnar þegar kemur að eftirliti póstmála. Á árlegum reglubundnum fundum Eftirlitsstofnunar EFTA með íslenskum yfirvöldum komu fram ákveðnar efasemdir um það af hálfu Eftirlitsstofnunarinnar að Byggðastofnun væri nægilega sjálfstæð stofnun, þá einkum og sér í lagi þar sem yfir stofnuninni væri sérstök pólitískt skipuð stjórn. Í því ljósi hafði Eftirlitsstofnunin efasemdir um að stofnunin væri nægilega sjálfstæð gagnvart ráðherra og stjórninni, þ.e. að ráðherra og stjórnin gætu haft áhrif á ákvarðanir stofnunarinnar í póstmálum.
    Bent hefur verið á af hálfu íslenskra stjórnvalda að stjórn stofnunarinnar komi ekki að ákvörðunum í póstmálum þegar litið sé til laga og fundargerða stjórnar. Þá eru allar ákvarðanir stofnunarinnar kæranlegar til sérstakrar úrskurðarnefndar fjarskipta- og póstmála en ekki til ráðuneytisins. Kæruheimild er að finna í 42. gr. laga um póstþjónustu, nr. 98/2019, og 20. gr. laga um Fjarskiptastofu, nr. 75/2021. Loks var á það bent að í þágildandi lögum um Póst- og fjarskiptastofnun, nr. 110/1999, 2. mgr. 1. gr., hefði komið fram að Póst- og fjarskiptastofnun væri sjálfstæð stofnun en undir yfirstjórn ráðherra. Ekki hafi verið gerðar athugasemdir við það fyrirkomulag á sínum tíma. Því hafi ekki orðið nein breyting á færslu málaflokksins yfir til Byggðastofnunar, að því undanskildu að stjórn var sett yfir stofnuninni. Einnig er rétt að benda á að í 22. gr. tilskipunar Evrópuþingsins og ráðsins 97/67/EB frá 15. desember 1997 um sameiginlegar reglur varðandi þróun innri markaðar bandalagsins á sviði póstþjónustu og um umbætur á þeirri þjónustu, eins og henni hefur verið breytt með tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2008/6/EB frá 20. febrúar 2008 og innleidd hefur verið í íslenskan rétt með lögum um póstþjónustu, nr. 98/2019, er fjallað um eftirlitsstjórnvöld í póstþjónustu. Í ákvæðinu er gerð krafa um að innlend eftirlitsyfirvöld fyrir póstgeirann séu lagalega aðskilin frá póstþjónustuaðilum og óháð þeim í starfsemi sinni. Þetta er meginstefið í 22. gr. tilskipunarinnar sem Ísland uppfyllir.
    Aðildarríki, sem hafa eignarhald eða yfirráð yfir póstþjónustuaðilum eða -aðila, eins og á við hér á landi en ríkið á Íslandspóst ohf., skulu tryggja að eignarhald eða yfirráð séu aðskilin frá eftirliti á skipulegan hátt. Þetta hefur verið gert hér á landi en hlutabréf í póstþjónustufyrirtækinu Íslandspósti ohf. eru vistuð hjá fjármála- og efnahagsráðuneytinu en Byggðastofnun, eftirlitsaðilinn, heyrir aftur á móti undir innviðaráðuneytið. Innviðaráðuneytið hefur ekkert með stjórn Íslandspósts ohf. að gera. Þetta er annað meginstefið í 22. gr. tilskipunarinnar.
    Þá er gerð krafa í 22. gr. tilskipunarinnar um sjálfstæðan úrskurðaraðila gagnvart ákvörðunum eftirlitsaðilans sem Ísland uppfyllir, svo sem fram hefur komið.
    Í inngangsorðum tilskipunar Evrópuþingsins og ráðsins 2008/6/EB, 47. lið, kemur fram að aðildarríki eigi að tryggja sjálfstæði innlendra eftirlitsyfirvalda og þar með hlutleysi ákvarðana þeirra. Aftur á móti kemur fram að krafa um sjálfstæði skerði hvorki skoðanasjálfstæði né stjórnskipulegar skyldur aðildarríkjanna, né heldur meginregluna um hlutleysi gagnvart reglum aðildarríkjanna um fyrirkomulag eignarréttar, eins og kveðið er á um í 295. gr. stofnsáttmála Evrópusambandsins, nú 345. gr. Lissabon-sáttmálans um „Property ownership“. Þannig kemur pósttilskipun Evrópusambandsins ekki í veg fyrir að ríkið eigi alþjónustuveitanda eða almennan póstrekanda og þá kemur sama tilskipun ekki í veg fyrir að forstöðumaður ríkisstofnunar sem fer með eftirlitshlutverk með póstþjónustu heyri undir ráðherra og heyri þannig undir húsbóndavald hans að starfsmannarétti. Síðan segir í nefndri 47. lið: „Innlend eftirlitsyfirvöld skulu hafa yfir að ráða öllum nauðsynlegum úrræðum – hvað varðar starfslið, sérfræðiþekkingu og fjármagn – til að sinna verkefnum sínu.“ Ekki verður annað séð en að stofnunin hafi sinnt sínum skyldum með ágætum frá því að hún tók við póstmálefnum og uppfylli allar kröfur 22. gr. tilskipunarinnar.
    Til að koma til móts við efasemdir Eftirlitsstofnunar EFTA um stjórn stofnunarinnar og til að efla sjálfstæði stofnunarinnar er hér lagt til að aðskilja enn frekar póstþjónustuverkefni frá öðrum verkefnum stofnunarinnar þannig að stofnunin verði sjálfstæðari gagnvart ráðherra þegar hún sinnir verkefnum póstþjónustu. Það þýðir að ráðherra muni ekki geta gefið Byggðastofnun almenn eða sérstök fyrirmæli um starfrækslu og fjárreiður póstþjónustu. Þá er skýrt tekið fram að póstmálefni heyra ekki undir valdsvið stjórnar Byggðastofnunar og því skilið á milli póstmálefna og valdsviðs stjórnar stofnunarinnar. Verði frumvarpið samþykkt þýðir þetta að í lögum mun verða alveg skýrt að málefni póstþjónustu eiga ekki undir 4. gr. laga um Byggðastofnun og að forstjóri þurfi ekki að gera tillögu til stjórnar um póstþjónustu skv. a-lið gildandi 2. mgr. 6. gr. laganna svo dæmi sé tekið. Í ákvæðinu sem lagt er til að bætt verði við 6. mgr. 2. gr. laganna, sbr. d-lið, er vísað til laga um Stjórnarráð Íslands. Í 1. mgr. 12. gr. laganna kemur fram að ráðherra fari með yfirstjórn stjórnvalda sem hafi á hendi framkvæmd stjórnarmálefna sem undir hann heyra, enda leiði ekki af lögum að stjórnvald skuli vera sjálfstætt gagnvart ráðherra. Í frumvarpi þessu er gert ráð fyrir að stjórnvaldið sé sjálfstætt gagnvart ráðherra í póstmálefnum í skilningi 1. mgr. 12. gr. laga um Stjórnarráð Íslands, nr. 115/2011. Skv. 2. málsl. 2. mgr. 13. gr. sömu laga mun eftirlit ráðherra með Byggðastofnun, þ.e. póstþjónustuhluta Byggðastofnunar, verði frumvarpið að lögum, ekki taka til málsmeðferðar eða ákvarðana í einstökum málum.
     Loks er lagt til að bætt verði nýrri málsgrein við 2. gr. laganna. Í fyrri málslið er gerð krafa á Byggðastofnun að hún hafi meiri yfirsýn yfir framvindu sóknaráætlana landshluta. Gert er ráð fyrir að stofnunin leggi mat á áætlanirnar í samráði við stýrihóp Stjórnarráðsins um byggðamál og hafi eftirlit með fjárreiðum sóknaráætlananna. Í seinni málslið er kveðið á um aðkomu Byggðastofnunar að gerð, framkvæmd og eftirfylgni byggðaáætlunar en það er verkefni sem stofnunin hefur sinnt án lagaskyldu og í góðu samráði við ráðuneytið.

Um 2. gr.

    Lagðar eru til breytingar á 4. gr. laganna um verkefni stjórnar.
    Í a-lið er lagt til að 1. tölul. falli brott. Vísast til skýringa við 3. gr. frumvarpsins um að eðlilegt sé að forstjóri ákveði starfsskipulag stofnunarinnar og geti breytt því, t.d. til að bregðast við rekstrarerfiðleikum eða skyndilegum breytingum í rekstri.
    Í b-lið er lagt til að í stað 8. tölul. komi nýr töluliður sem miði að því að setja frekari stoð undir þau verkefni stjórnar sem hún sinnir nú þegar, þ.e. að setja reglur um lánanefnd Byggðastofnunar, sjá 5. kafla gildandi verklagsreglna um útlánastarfsemi Byggðastofnunar frá 26. september 2024, 17. útgáfa.
    Í c-lið eru lagðar til tvær breytingar á 10. tölul. Í fyrsta lagi er lagt til að á eftir 2. málsl. komi nýr málsliður sem er til samræmis við 1. mgr. 55. gr. laga um fjármálafyrirtæki, nr. 161/2002, og er liður í því að heimila stjórn að bregðast við óvenjulegum lán- eða ábyrgðarveitingum sem eru verulegar eða fela í sér nýmæli, vafamál eða eru stefnumarkandi. Hér kemur fram eðlismunur á Byggðastofnun sem lánastofnun annars vegar og hefðbundinni lánastofnun hins vegar þar sem hlutverk Byggðastofnunar er í eðli sínu annað en hefðbundinnar fjármálastofnunar. Hlutverk Byggðastofnunar er að efla byggð og atvinnulíf með sérstakri áherslu á jöfnun tækifæra allra landsmanna á atvinnu og búsetu, svo sem fram kemur í 1. mgr. 2. gr. laganna. Í öðru lagi er lagt til að í stað orðanna „lán- og ábyrgðarveitingar“ í 3. málsl. komi „lán, ábyrgðarveitingar og hlutafjárviðskipti“ í þeim tilgangi að útvíkka reglur stjórnar til hlutafjárviðskipta.

Um 3. gr.

    Með ákvæðinu er lögð til sú breyting á 6. gr. laganna að forstjóri ákveði skipurit stofnunarinnar í stað þess að hann leggi drög að skipuriti fyrir stjórn stofnunarinnar. Í þessu felst að hætt verði að kveða á um skipurit stofnunarinnar í reglugerð eins og nú er. Forstjóra stofnunarinnar er treyst til að reka stofnunina. Eitt af úrræðum forstjórans til að bregðast við breyttu rekstrarumhverfi er að breyta skipuriti stofnunarinnar. Þessi breyting á að auka sveigjanleika forstjórans til að bregðast hratt við breytingum, svo sem breyttum verkefnum eða erfiðleikum í rekstri. Þá þykir eðlilegt að forstjórinn sé ekki bundinn af því í reglugerð hver sé næstráðandi og hér lagt til að ráðin verði bót á því.

Um 4. gr.

    Með ákvæðinu er lögð til breyting á 8. gr. laganna. Lagt er til að Byggðastofnun fái ítarlegri heimildir til að stuðla að byggðaþróun með því að efla rannsóknir sem geta orðið efniviður í hlutlæga og faglega umræðu sem nýst getur í stefnumótun um betri byggð í landinu.

Um 5. gr.

    Lagðar eru til eftirfarandi breytingar á 9. gr. laganna.
    Í a-lið er lagt til að í stað orðsins „atvinnuþróunarfélög“ komi „landshlutasamtök sveitarfélaga“, sbr. umfjöllun í 2. og 3. kafla.
    Í b-lið er lagt til að í stað 2. mgr. komi tvær nýjar málsgreinar, sú fyrri um sama efni og í gildandi ákvæði en endurorðuð á þá leið að tengja ákvæðið betur við stefnu Alþingis í byggðamálum. Í seinni málsgreininni, sem verður 3. mgr., er lögð sú skylda á Byggðastofnun að eiga samstarf við aðila sem sinna atvinnuráðgjöf um að bæta skipulag atvinnuráðgjafar á landsbyggðinni og auka þekkingu í greininni með það að markmiði að efla og styðja atvinnulíf og nýsköpun í byggðum landsins. Þetta á að stuðla að árangursríkari og skilvirkari atvinnuráðgjöf og stuðningi á grunni svæðisbundinna styrkleika og bæta nýtingu fjármuna svo sem fram kemur í ákvæðinu.
    Í c-lið er lagt til að fyrirsögn greinarinnar verði Atvinnu- og byggðaþróun sem verður þá víðtækari en fyrirsögnin Atvinnuráðgjöf.

Um 6. gr.

    Lagt er til að orðinu „atvinnuþróunarfélögum“ í 10. gr. laganna verði skipt út fyrir „landshlutasamtökum sveitarfélaga“, sbr. umfjöllun í 2. og 3. kafla.

Um 7. gr.

    Lagt er til að 4. mgr. 11. gr. laganna falli brott. Um er að ræða verkefni sem eðlilegt er að heyri undir forstjóra Byggðastofnunar og á sé ábyrgð hans.

Um 8. gr.

    Lagt er til að breyta 18. gr. laganna með nýju þagnarskylduákvæði og persónuverndarákvæði. Engin breyting verður þó á þagnarskyldu starfsmanna en kveðið er á um þá nýjung að þagnarskylda gildi einnig um þá sem sinna verkefnum fyrir stofnunina en eru ekki starfsmenn hennar.
    Ekkert persónuverndarákvæði er í lögunum og er því lagt til að úr því verði bætt. Ákvæðið miðar að því að heimila stofnuninni vinnslu persónuupplýsinga til að sinna lögbundnu hlutverki sínu og tryggja örugga miðlun þeirra og vistun gagna. Ákvæðið gildir einnig þegar stofnunin sinnir verkefnum vegna póstþjónustu.

Um 9. gr.

    Lagt er til að ákvæði til bráðabirgða falli brott. Ákvæðið er barn síns tíma og þarfnast ekki skýringa.

Um 10. gr.

    Ákvæðið þarfnast ekki skýringar.