Ferill 159. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


158. löggjafarþing 2026–2027.
Þingskjal 161  —  159. mál.




Frumvarp til laga


um breytingu á lögum um stöðu íslenskrar tungu og íslensks táknmáls og lögum um réttindi sjúklinga (túlkaþjónusta).

Flm.: Diljá Mist Einarsdóttir, Guðlaugur Þór Þórðarson, Ingveldur Anna Sigurðardóttir, Jens Garðar Helgason, Jón Gunnarsson, Jón Pétur Zimsen, Njáll Trausti Friðbertsson, Ólafur Adolfsson, Ragnhildur Jónsdóttir, Viktor Pétur Finnsson.


I. KAFLI
Breyting á lögum um stöðu íslenskrar tungu og íslensks táknmáls, nr. 61/2011.
1. gr.

    Við 9. gr. laganna bætist ný málsgrein, svohljóðandi:
    Stjórnvöld skulu innheimta kostnað vegna túlkaþjónustu vegna erlends tungumáls þegar þjónustan er veitt einstaklingum sem búið hafa á Íslandi í þrjú ár eða lengur nema annað leiði af lögum eða alþjóðlegum skuldbindingum Íslands.

II. KAFLI
Breyting á lögum um réttindi sjúklinga, nr. 74/1997.
2. gr.

    Við 4. mgr. 5. gr. laganna bætast tveir nýir málsliðir, svohljóðandi: Innheimta skal kostnað vegna túlkaþjónustu vegna erlends tungumáls þegar þjónustan er veitt einstaklingum sem búið hafa á Íslandi í þrjú ár eða lengur. Ráðherra getur með reglugerð sett reglur um tilhögun innheimtunnar.

3. gr.

    Lög þessi öðlast gildi 1. janúar 2027.

Greinargerð.

    Nýlegar fyrirspurnir þingmanna á Alþingi hafa varpað ljósi á gríðarlegan kostnað íslenskra skattgreiðenda við túlkaþjónustu fyrir útlendinga hér á landi. Þar má m.a. nefna fyrirspurn fyrsta flutningsmanns þessa frumvarps um túlkaþjónustu við erlenda fanga frá febrúar 2025 og fyrirspurnir Nönnu Margrétar Gunnlaugsdóttur og Snorra Mássonar frá apríl og maí 2025 um túlkaþjónustu vegna fræðslu-, atvinnu- og heilbrigðismála.
    Grunnreglan á Íslandi er sú að íslenska er opinbert mál stjórnvalda, sbr. 8. gr. laga um stöðu íslenskrar tungu og íslensks táknmáls, nr. 61/2011. Á nokkrum stöðum má finna fyrirmæli í íslenskum lögum um að stjórnvöld skuli leitast við að tryggja ákveðinn skilning þeirra sem ekki skilja íslensku, m.a. í 9. gr. sömu laga. Annars staðar er orðalagið skýrara, m.a. í 5. gr. laga nr. 74/1997, um réttindi sjúklinga, þar sem segir að sjúklingi sem ekki talar íslensku skuli tryggð túlkun. Ekki er kveðið sérstaklega á um það í þessum lögum hvernig fari um kostnað vegna túlkaþjónustunnar.
    Sérreglur gilda um sakamál en í lögum er kveðið á um skyldu lögreglu og ákæruvalds til að kalla til túlk og sérstaklega kveðið á um að kostnaður greiðist úr ríkissjóði. Þessar reglur eru nátengdar grundvallarréttinum til réttlátrar málsmeðferðar og alþjóðlegum skuldbindingum Íslands. Sömu reglur gilda um fullnustu refsinga samkvæmt lögum þar um. Þá gilda sérstakar lagareglur um túlkaþjónustu í einkamálum en þar er almenna reglan sú að málsaðili greiði kostnað af starfa túlks nema í ákveðnum undantekningartilvikum.
    Mikilvægt er að greina hér erlend tungumál frá íslensku táknmáli en samkvæmt lögum er öllum sem þess þurfa tryggð þjónusta á íslensku táknmáli, auk þess sem íslenskt táknmál er fyrsta mál þeirra sem þurfa að reiða sig á það til tjáningar og samskipta skv. 3. gr. laga nr. 61/2011.
    Margt er sameiginlegt með lögum og reglum Íslands og nágranna- og vinaþjóða okkar um túlkaþjónustu og kostnað vegna hennar. Þannig virðast reglur varðandi túlkun í sakamálum og fyrir dómstólum vera sambærilegar á Norðurlöndunum og víða í Evrópu, enda er það í samræmi við alþjóðlegar skuldbindingar. Á öðrum sviðum er löggjöfin og framkvæmdin ekki einhlít. Það mætti segja að greinarmunur sé gerður annars vegar á almennum rétti fólks sem talar ekki opinbert tungumál ríkis og hins vegar sérreglum, til að mynda vegna réttlátrar málsmeðferðar og hælisumsókna. Í Danmörku er t.d. að finna reglu um gjaldtöku vegna túlkaþjónustu í tengslum við heilbrigðisþjónustu eftir þriggja ára búsetu þar í landi.
    Eins og fyrr segir er íslenska sérstaklega vernduð í lögum sem opinbert mál stjórnvalda hér á landi. Íslensk tunga stendur frammi fyrir fjölmörgum áskorunum. Tungumálið er talað af fáum og íslenskunni stafar ógn af stafrænni þróun. Þá kallar fjölgun erlendra ríkisborgara á Íslandi á aukinn stuðning við íslenskukennslu en líka við stöðu málsins í íslensku samfélagi.
    Við lítum gjarnan til Norðurlandanna í ýmsum málum og Danir hafa til að mynda stigið ákveðin skref varðandi gjaldtöku fyrir túlkaþjónustu í tengslum við búsetu þar í landi. Áhugavert er sömuleiðis að skoða lagaumhverfi og framkvæmd hjá öðrum vinaþjóðum okkar. Í Póllandi er á því byggt að pólska sé opinbert stjórnsýslumál og réttur til túlkunar tekur nær einvörðungu til réttarfars og annarra alþjóðlegra skuldbindinga, til að mynda hælismála. Í Þýskalandi er sömuleiðis að finna reglur um skiptingu kostnaðar vegna túlkaþjónustu sem tengist búsetutíma einstaklinga í Þýskalandi.
    Flutningsmenn telja að það ætti ekki að vera almennur fortakslaus réttur útlendinga að fá túlk á kostnað skattgreiðenda í öllum samskiptum við hið opinbera. Af sívaxandi kostnaði við túlkun erlendra tungumála á ýmsum sviðum má ráða að framkvæmdin halli í raun í þá átt. Því sé nauðsynlegt að árétta í lögum meginreglu um innheimtu kostnaðar þegar túlkaþjónusta er veitt einstaklingum sem búið hafa á Íslandi í þrjú ár eða lengur. Með fyrirvara um sérstakar lagareglur og alþjóðlegar skuldbindingar og með því að miðað sé við þriggja ára búsetu sé meðalhófs gætt.

Um einstakar greinar frumvarpsins.

Um 1. gr.

    Með frumvarpi þessu leggja flutningsmenn til lögfestingu meginreglu um að stjórnvöld innheimti kostnað vegna túlkaþjónustu vegna erlends tungumáls þegar þjónustan er veitt einstaklingum sem búið hafa á Íslandi í þrjú ár eða lengur nema annað leiði af lögum eða alþjóðlegum skuldbindingum Íslands. Þannig verði til að mynda ekki hreyft við lagareglum um túlkaþjónustu þegar kemur að sakamálum. Í danskri löggjöf er sem fyrr segir að finna reglu um gjaldtöku vegna túlkaþjónustu í tengslum við heilbrigðisþjónustu eftir þriggja ára búsetu þar í landi.

Um 2. gr.

    Í 5. gr. laga um réttindi sjúklinga er að finna skyldu til að veita túlkaþjónustu, m.a. til handa þeim sem ekki tala íslensku. Með vísan til gríðarlegs kostnaðar skattgreiðenda vegna túlkaþjónustu í opinberri heilbrigðisþjónustu 1 telja flutningsmenn að meðalhófs sé gætt með því að taka upp lagareglu að danskri fyrirmynd um gjaldtöku vegna túlkaþjónustu eftir þriggja ára búsetu hér á landi.

Um 3. gr.

    Greinin þarfnast ekki skýringar.
1     Heildarkostnaður heilbrigðisráðuneytisins og stofnana þess vegna túlkaþjónustu í heilbrigðisþjónustu á árunum 2020–2024 var um 1,6 milljarðar kr. samkvæmt svari á þskj. 894, 336. máli á 156. löggjafarþingi.