Bryndís Hlöðversdóttir

Bryndís Hlöðversdóttir

Þingseta

Alþingismaður Reykvíkinga 1995–2003 (Alþýðubandalag og óháðir, Samfylkingin), alþingismaður Reykjavíkurkjördæmis norður 2003–2005 (Samfylkingin).

Formaður þingflokks Samfylkingarinnar 2001–2004.

Raddsýnishorn

Æviágrip

Fædd á Selfossi 8. október 1960. Foreldrar: Hlöðver Kristjánsson (fæddur 11. desember 1925, dáinn 12. febrúar 2003) öryggisfulltrúi og kona hans Kristjana Esther Jónsdóttir (fædd 5. mars 1927) sjúkraliði. Maki 1 (14. júlí 1984): Jóel Jóelsson (fæddur 3. október 1957) húsasmiður. Þau skildu. Foreldrar: Jóel Sigurðsson og kona hans Sigurdís Sæmundsdóttir. Maki 2 (29. desember 2001) Hákon Gunnarsson (fæddur 18. október 1959) viðskiptafræðingur. Foreldrar: Gunnar R. Magnússon og kona hans Sigurlaug S. Zophoníasdóttir. Þau skildu. Synir: Hlöðver Skúli (1997), Magnús Nói (1997).

Stúdentspróf Flensborg 1982. Lögfræðipróf HÍ 1992.

Stundaði skrifstofustörf í Reykjavík 1982–1987. Starfsmaður dómsmálaráðuneytis 1990–1992. Lögfræðingur hjá ASÍ 1992–1995. Stundakennari við Háskólann á Bifröst 2004–2005. Deildarforseti lagadeildar Háskólans á Bifröst 2005–2011. Rektor Háskólans á Bifröst 2011–2013. Starfsmannastjóri Landspítala 2013–2015. Ríkissáttasemjari síðan 2015.

Í stjórn Kvenréttindafélags Íslands 1992–1997, formaður þess 1995–1997. Í stjórn Ábyrgðasjóðs launa 1993–1995. Í nefnd um framkvæmd á samþykktum Alþjóðavinnumálastofnunarinnar 1992–1995. Í siðaráði landlæknis síðan 1994. Fulltrúi á Alþjóðavinnumálaþinginu í Genf 1993–1995.

Alþingismaður Reykvíkinga 1995–2003 (Alþýðubandalag og óháðir, Samfylkingin), alþingismaður Reykjavíkurkjördæmis norður 2003–2005 (Samfylkingin).

Formaður þingflokks Samfylkingarinnar 2001–2004.

Menntamálanefnd 1995, félagsmálanefnd 1995–1997, fjárlaganefnd 1995–1997, allsherjarnefnd 1997–1998 og 2004–2005, heilbrigðis- og trygginganefnd 1998–2001, iðnaðarnefnd 2001–2003, sérnefnd um stjórnarskrármál 2002–2003 og 2004, umhverfisnefnd 2003–2004, samgöngunefnd 2004–2005.

Íslandsdeild VES-þingsins 2003–2005, Íslandsdeild þingmannanefndar EFTA 2004–2005.

Æviágripi síðast breytt 20. september 2019.

Áskriftir