villa -001 /www/butar.althingi.is/cache/altext/fundur/141/fun002.html Alþingi

2. fundur

miðvikudaginn 12. september 2012

kl. 7.50 síðdegis.

stefnuræða forsætisráðherra og umræða um hana.

Umræðum um stefnuræðu forsætisráðherra var útvarpað og sjónvarpað miðvikudaginn 12. september, kl. 19.50. Umræðurnar skiptust í þrjár umferðir. Forsætisráðherra hafði 20 mínútur til framsögu en aðrir þingflokkar en þingflokkur forsætisráðherra höfðu 12 mínútur í fyrstu umferð, í annarri umferð höfðu þingflokkarnir sex mínútur en í þeirri þriðju fimm mínútur hver þingflokkur.

Röð flokkanna var í öllum umferðum þessi: Samfylkingin, Sjálfstæðisflokkur, Vinstri hreyfingin – grænt framboð, Framsóknarflokkur og Hreyfingin.

Ræðumenn Samfylkingarinnar voru í fyrstu umferð Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra, Lúðvík Geirsson, 11. þm. Suðvesturkjördæmis, í annarri og Mörður Árnason, 11. þm. Reykjavíkurkjördæmis norður, í þriðju umferð.

Ræðumenn fyrir Sjálfstæðisflokk voru Bjarni Benediktsson, 2. þingmaður Suðvesturkjördæmis, í fyrstu umferð, Ólöf Nordal, 2. þingmaður Reykjavíkurkjördæmis suður, í annarri umferð og Guðlaugur Þór Þórðarson, 5. þm. Reykjavíkurkjördæmis suður, í þriðju umferð.

Ræðumenn fyrir Vinstri hreyfinguna – grænt framboð voru Steingrímur J. Sigfússon, atvinnuvega- og nýsköpunarráðherra, í fyrstu umferð, í annarri Lilja Rafney Magnúsdóttir, 6. þm. Norðvesturkjördæmis, og í þriðju umferð Árni Þór Sigurðsson, 5. þm. Reykjavíkurkjördæmis norður.

Fyrir Framsóknarflokk töluðu Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, 8. þingmaður Reykjavíkurkjördæmis norður, í fyrstu umferð, í annarri Vigdís Hauksdóttir, 8. þingmaður Reykjavíkurkjördæmis suður, og í þriðju umferð Höskuldur Þórhallsson, 6. þm. Norðausturkjördæmis.

Fyrir Hreyfinguna töluðu í fyrstu umferð Margrét Tryggvadóttir, 10. þingmaður Suðurkjördæmis, í annarri Þór Saari, 9. þingmaður Suðvesturkjördæmis, og í þriðju umferð Birgitta Jónsdóttir, 9. þingmaður Reykjavíkurkjördæmis suður.

Síðastir í fyrstu umferð töluðu þingmenn utan þingflokka: Guðmundur Steingrímsson, 8. þingmaður Norðvesturkjördæmis, og Atli Gíslason, 4. þm. Suðurkjördæmis.

Þingmálaskrá ríkisstjórnarinnar, september 2012:


Fundi slitið kl. 22:16.