Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF Word Perfect.

Þingskjal 859, 115. löggjafarþing 444. mál: Lífeyrissjóður ljósmæðra (brottfall laga).
Lög nr. 18 14. maí 1992.

Lög um að leggja niður Lífeyrissjóð ljósmæðra.


1. gr.

      Lög um Lífeyrissjóð ljósmæðra, nr. 86/1938, með síðari breytingum, eru úr gildi felld.

2. gr.

     Allar skuldbindingar, sem á lífeyrissjóðnum hvíla, falla á ríkissjóð.

3. gr.

     Lög þessi öðlast þegar gildi.

Samþykkt á Alþingi 6. maí 1992.