Aðrar útgáfur af skjalinu:
PDF
Word Perfect.
Þingskjal 979, 120. löggjafarþing 308. mál: réttur til veiða í efnahagslögsögu Íslands (erlend eignaraðild að skipum).
Lög nr. 53 24. maí 1996.
Fiskveiðar í efnahagslögsögu Íslands mega eftirtaldir aðilar einir stunda:
Hafi íslenskur lögaðili, sem á eignarhlut í lögaðila sem stundar veiðar í efnahagslögsögu Íslands eða vinnslu sjávarafurða hér á landi, verið að hluta í eigu erlends aðila 31. desember 1995 skulu takmarkanir skv. b-lið 1. mgr. 2. gr. laga þessara ekki koma til framkvæmda að því er varðar þann lögaðila fyrr en 1. janúar 1998, enda hafi erlend eignaraðild í lögaðilanum ekki verið meiri en 49%, eignarhlutur lögaðilans í einstökum sjávarútvegs- eða fiskvinnslufyrirtækjum ekki farið yfir 10% og fjárfestingin verið tilkynnt Seðlabanka Íslands samkvæmt ákvæðum laganna fyrir 31. desember 1995.
Þingskjal 979, 120. löggjafarþing 308. mál: réttur til veiða í efnahagslögsögu Íslands (erlend eignaraðild að skipum).
Lög nr. 53 24. maí 1996.
Lög um breytingu á lögum um rétt til veiða í efnahagslögsögu Íslands, nr. 13 30. mars 1992.
1. gr.
1. mgr. 2. gr. laganna orðast svo:Fiskveiðar í efnahagslögsögu Íslands mega eftirtaldir aðilar einir stunda:
- Íslenskir ríkisborgarar og aðrir íslenskir aðilar.
- Íslenskir lögaðilar sem að öllu leyti eru í eigu íslenskra aðila eða íslenskra lögaðila sem uppfylla eftirfarandi skilyrði:
- Eru undir yfirráðum íslenskra aðila.
- Eru ekki í eigu erlendra aðila að meira leyti en 25% sé miðað við hlutafé eða stofnfé. Fari eignarhlutur íslensks lögaðila í lögaðila, sem stundar veiðar í efnahagslögsögu Íslands, ekki yfir 5% má eignarhlutur erlendra aðila þó vera allt að 33%.
- Eru að öðru leyti í eigu íslenskra ríkisborgara, eða íslenskra lögaðila sem eru undir yfirráðum íslenskra aðila.
2. gr.
Við lögin bætist ákvæði til bráðabirgða er orðast svo:Hafi íslenskur lögaðili, sem á eignarhlut í lögaðila sem stundar veiðar í efnahagslögsögu Íslands eða vinnslu sjávarafurða hér á landi, verið að hluta í eigu erlends aðila 31. desember 1995 skulu takmarkanir skv. b-lið 1. mgr. 2. gr. laga þessara ekki koma til framkvæmda að því er varðar þann lögaðila fyrr en 1. janúar 1998, enda hafi erlend eignaraðild í lögaðilanum ekki verið meiri en 49%, eignarhlutur lögaðilans í einstökum sjávarútvegs- eða fiskvinnslufyrirtækjum ekki farið yfir 10% og fjárfestingin verið tilkynnt Seðlabanka Íslands samkvæmt ákvæðum laganna fyrir 31. desember 1995.
3. gr.
Lög þessi öðlast þegar gildi.Samþykkt á Alþingi 15. maí 1996.