Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF Word Perfect.

Þingskjal 748, 121. löggjafarþing 346. mál: brunavarnir og brunamál (yfirstjórn).
Lög nr. 15 21. mars 1997.

Lög um breytingu á lögum um brunavarnir og brunamál, nr. 41/1992, með síðari breytingu.


1. gr.

     Í stað orðsins „Félagsmálaráðherra“ í 1. gr. laganna kemur: Ráðherra.

2. gr.

     Í stað orðsins „Félagsmálaráðherra“ í 3. mgr. 4. gr. laganna kemur: Ráðherra.

3. gr.

     Í stað orðsins „Félagsmálaráðherra“ í 1. og 2. mgr. 8. gr. laganna, sbr. 2. gr. laga nr. 40/1994, kemur: Ráðherra.

4. gr.

     Í stað orðsins „félagsmálaráðherra“ í 1. og 2. málsl. 11. gr. laganna kemur: ráðherra.

5. gr.

     Í stað orðsins „Félagsmálaráðherra“ í 23. gr. laganna kemur: Ráðherra.

6. gr.

     Í stað orðsins „félagsmálaráðuneytinu“ í 2. mgr. 27. gr. laganna kemur: ráðuneytinu.

7. gr.

     Lög þessi öðlast gildi 1. júlí 1997.

Samþykkt á Alþingi 13. mars 1997.