Aðrar útgáfur af skjalinu:
PDF
Word Perfect.
Þingskjal 1245, 121. löggjafarþing 302. mál: biskupskosning (kosningarréttur við biskupskjör).
Lög nr. 91 22. maí 1997.
Þingskjal 1245, 121. löggjafarþing 302. mál: biskupskosning (kosningarréttur við biskupskjör).
Lög nr. 91 22. maí 1997.
Lög um breyting á lögum um biskupskosningu, nr. 96 31. desember 1980 (kosningarréttur við biskupskjör).
1. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 2. gr. laganna:- 1. tölul. orðast svo:
- Biskup Íslands, þjónandi vígslubiskupar, sóknarprestar og prófastar, svo og aðstoðarprestar og sérþjónustuprestar ráðnir af ráðherra, kennarar guðfræðideildar Háskóla Íslands sem eru í föstum embættum eða störfum (prófessorar, dósentar, lektorar) og rektor Skálholtsskóla, enda séu þeir guðfræðikandídatar, svo og biskupsritari og aðrir starfsmenn biskupsstofu í föstu starfi með sama skilorði, aðstoðarprestar ráðnir af sóknarnefndum og prestar sem ráðnir eru af stjórn sjúkrastofnana eða sveitarfélögum til prestþjónustu þar og lúta yfirstjórn kirkjulegra stjórnvalda í kirkjulegum efnum, enda gegni þeir því starfi sem aðalstarfi, og prestvígðir menn sem ráðnir eru til sérstakra starfa innan þjóðkirkjunnar á vegum biskups og kirkjuráðs, eftir því sem nánar segir í reglugerð, sbr. 7. gr.
- 3. tölul. orðast svo:
- Enn fremur einn leikmaður fyrir hvert prófastsdæmi, kjörinn af leikmönnum, sem sæti eiga á héraðsfundi, til fjögurra ára í senn, og skulu varamenn einnig kjörnir á sama hátt.
2. gr.
Lög þessi öðlast þegar gildi.Samþykkt á Alþingi 13. maí 1997.