Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF Word Perfect.

Þingskjal 694, 130. löggjafarþing 11. mál: virðisaukaskattur (hljóðbækur).
Lög nr. 145 20. desember 2003.

Lög um breytingu á lögum um virðisaukaskatt, nr. 50/1988, með síðari breytingum.


1. gr.

     6. tölul. 2. mgr. 14. gr. laganna orðast svo: Sala bóka, jafnt frumsaminna sem þýddra, sem og hljóðupptökur af lestri slíkra bóka.

2. gr.

     Lög þessi öðlast gildi 1. janúar 2004.

Samþykkt á Alþingi 12. desember 2003.