Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF Word Perfect.

Þingskjal 307, 137. löggjafarþing 134. mál: Ríkisútvarpið ohf. (gjalddagar útvarpsgjalds).
Lög nr. 79 31. júlí 2009.

Lög um breyting á lögum nr. 6/2007, um Ríkisútvarpið ohf., með síðari breytingum.


1. gr.

     Í stað 2. og 3. málsl. 2. mgr. 11. gr. laganna koma þrír nýir málsliðir, svohljóðandi: Í stað tíu gjalddaga skulu gjalddagar einstaklinga vera 1. ágúst, 1. september og 1. október. Gjalddagi lögaðila er 1. nóvember. Dragist framlagning álagningarskrár fram yfir 1. ágúst eða 1. nóvember færast gjalddagar til um einn mánuð.

2. gr.

     Lög þessi öðlast þegar gildi.

Samþykkt á Alþingi 24. júlí 2009.