Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF Word Perfect.

Þingskjal 91, 142. löggjafarþing 30. mál: þingsköp Alþingis (samkomudagur Alþingis haustið 2013).
Lög nr. 88 11. júlí 2013.

Lög um breytingu á lögum um þingsköp Alþingis, nr. 55/1991, með síðari breytingum (samkomudagur reglulegs Alþingis haustið 2013).


1. gr.

     Við lögin bætist svofellt ákvæði til bráðabirgða:
     Þrátt fyrir ákvæði 4. mgr. 1. gr. skal reglulegt Alþingi 2013, 143. löggjafarþing, koma saman þriðjudaginn 1. október, sbr. 35. gr. stjórnarskrárinnar. Sama dag lýkur 142. löggjafarþingi sem var sett 6. júní 2013.
     143. löggjafarþing skal standa fram til samkomudags reglulegs Alþingis 2014, annars þriðjudags septembermánaðar það ár, sbr. 4. mgr. 1. gr.

2. gr.

     Lög þessi öðlast þegar gildi.

Samþykkt á Alþingi 5. júlí 2013.