Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF Word Perfect.

Þingskjal 1412, 145. löggjafarþing 758. mál: virðisaukaskattur (veltumörk skattskyldu og fjárhæðarmörk uppgjörstímabila).
Lög nr. 57 10. júní 2016.

Lög um breytingu á lögum nr. 50/1988, um virðisaukaskatt, með síðari breytingum (veltumörk skattskyldu og fjárhæðarmörk uppgjörstímabila).


1. gr.

     Í stað fjárhæðarinnar „1.000.000 kr.“ í 3. tölul. 4. gr. laganna kemur: 2.000.000 kr.

2. gr.

     Í stað fjárhæðarinnar „3.000.000 kr.“ í 4. málsl. 1. mgr. 24. gr. laganna kemur: 4.000.000 kr.

3. gr.

     Lög þessi öðlast gildi 1. janúar 2017.

Samþykkt á Alþingi 1. júní 2016.