Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF Word Perfect.

Þingskjal 1478, 149. löggjafarþing 435. mál: ófrjósemisaðgerðir.
Lög nr. 35 15. maí 2019.

Lög um ófrjósemisaðgerðir.


1. gr.

Markmið og gildissvið.
     Markmið laga þessara er að tryggja einstaklingum sjálfsforræði til að taka ákvörðun um ófrjósemisaðgerð. Gæta skal mannréttinda og mannhelgi í hvívetna við framkvæmd laganna.
     Ákvæði laga þessara taka ekki til tilvika þar sem um nauðsynlega læknismeðferð er að ræða enda þótt ófrjósemi hljótist af.

2. gr.

Ófrjósemisaðgerð.
     Ófrjósemisaðgerð samkvæmt lögum þessum er þegar sáðgöngum karla eða eggjaleiðurum kvenna er lokað til að binda enda á frjósemi.

3. gr.

Heimild til ófrjósemisaðgerðar.
     Ófrjósemisaðgerð er heimil að ósk einstaklings sem náð hefur 18 ára aldri.
     Einungis er heimilt að framkvæma ófrjósemisaðgerð á einstaklingum sem eru ólögráða fyrir æsku sakir þegar ætla má að frjósemi viðkomandi hafi alvarleg áhrif á líf eða heilsu einstaklingsins og skal liggja fyrir staðfesting tveggja lækna um slíkt, auk samþykkis sérstaklega skipaðs lögráðamanns, sbr. 53. gr. lögræðislaga.

4. gr.

Fræðsla.
     Áður en ófrjósemisaðgerð er framkvæmd skal fræða viðkomandi um í hverju aðgerðin er fólgin, áhættu samfara henni sem og afleiðingar.

5. gr.

Framkvæmd ófrjósemisaðgerðar.
     Einungis læknar með sérfræðiviðurkenningu í almennum skurðlækningum, kvensjúkdómalækningum eða þvagfæraskurðlækningum mega framkvæma ófrjósemisaðgerð í samræmi við ákvæði laga þessara, laga um heilbrigðisþjónustu, laga um réttindi sjúklinga, laga um sjúkraskrár og annarra laga eftir því sem við á.
     Ófrjósemisaðgerð skal framkvæmd á heilbrigðisstofnun eða starfsstofu læknis, sbr. 1. mgr., sem landlæknir hefur eftirlit með, sbr. lög um landlækni og lýðheilsu.

6. gr.

Synjun um ófrjósemisaðgerð.
     Heimilt er að bera synjun um framkvæmd ófrjósemisaðgerðar undir landlækni og er ákvörðun landlæknis endanleg á stjórnsýslustigi.

7. gr.

Gjaldtaka.
     Ófrjósemisaðgerðir skulu vera gjaldfrjálsar fyrir einstaklinga sem eru sjúkratryggðir samkvæmt lögum um sjúkratryggingar.

8. gr.

Viðurlög.
     Um brot gegn ákvæðum laga þessara fer samkvæmt almennum hegningarlögum og lögum um heilbrigðisstarfsmenn, eftir því sem við á.

9. gr.

Gildistaka.
     Lög þessi öðlast þegar gildi.

10. gr.

Breyting á öðrum lögum.
     Við gildistöku laga þessara verða eftirfarandi breytingar á lögum um ráðgjöf og fræðslu varðandi kynlíf og barneignir og um fóstureyðingar og ófrjósemisaðgerðir, nr. 25/1975:
  1. Orðin „eða ófrjósemisaðgerð“ í 2. tölul. 2. gr., 6. gr., 25. gr., 1. mgr. 28. gr. og 1., 2. og 3. tölul. 1. mgr. 31. gr. laganna falla brott.
  2. III. kafli laganna, Um ófrjósemisaðgerðir, fellur brott.
  3. Orðin „og 19.“ í 1. mgr. 24. gr. laganna falla brott.
  4. Orðin „og ófrjósemisaðgerða“ í 1. mgr. 29. gr. laganna falla brott.
  5. Orðin „eða ófrjósemi“ í 30. gr. laganna falla brott.
  6. Í stað orðanna „10. eða 18.“ í 1. tölul. 1. mgr. 31. gr. laganna kemur: eða 10.
  7. Í stað orðanna „13., 19. eða 21.“ í 2. tölul. 1. mgr. 31. gr. laganna kemur: eða 13.
  8. Orðin „eða 23.“ í 3. tölul. 1. mgr. 31. gr. laganna falla brott.
  9. Heiti laganna verður: Lög um ráðgjöf og fræðslu varðandi kynlíf og barneignir og um fóstureyðingar.


Samþykkt á Alþingi 7. maí 2019.