Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF Word Perfect.

Þingskjal 1807, 151. löggjafarþing 534. mál: póstþjónusta og Byggðastofnun (flutningur póstmála).
Lög nr. 76 25. júní 2021.

Lög um breytingu á lögum um póstþjónustu og lögum um Byggðastofnun (flutningur póstmála).


I. KAFLI
Breyting á lögum um póstþjónustu, nr. 98/2019.

1. gr.

     3. gr. laganna orðast svo, ásamt fyrirsögn:
Yfirstjórn og verkefni Byggðastofnunar.
     Ráðherra fer með yfirstjórn póstmála.
     Verkefni Byggðastofnunar á sviði póstmála eru:
  1. Að annast framkvæmd laga þessara og hafa eftirlit með póstþjónustu eins og nánar er kveðið á um í lögum þessum. Stofnunin skal framfylgja lögunum og stuðla að því að markmið þeirra náist.
  2. Að stuðla að samkeppni á sviði póstþjónustu og koma í veg fyrir óréttmæta viðskiptahætti með því að vinna gegn röskun eða takmörkun samkeppni á póstþjónustumarkaði.
  3. Að taka þátt í þróun markaðar fyrir póstþjónustu og upplýsingatækni með því m.a. að:
    1. vinna gegn hindrunum í vegi framboðs á aðstöðu og þjónustu sem tengist póstþjónustu,
    2. stuðla að því að gætt sé jafnræðis við meðferð mála sem varða póstrekendur sem búa við sömu aðstæður,
    3. eiga samstarf við aðrar eftirlitsstofnanir á Evrópska efnahagssvæðinu og Eftirlitsstofnun EFTA í þeim tilgangi að koma á samræmdum eftirlitsháttum og samræmdri túlkun löggjafar,
    4. stuðla að þróun upplýsingasamfélagsins með markvissri innleiðingu nýrrar tækni og vinnubragða.
  4. Að gæta hagsmuna almennings með því m.a. að:
    1. vinna að því að allir landsmenn hafi aðgang að alþjónustu,
    2. stuðla að vernd neytenda í viðskiptum þeirra við póstrekendur,
    3. vinna að ráðstöfunum til að vernda persónuupplýsingar og friðhelgi einkalífs,
    4. stuðla að birtingu skýrra upplýsinga fyrir notendur og krefjast gagnsæis gjaldskráa og skilmála fyrir notkun almennrar póstþjónustu,
    5. tryggja hag notenda sem best, þ.m.t. einstakra þjóðfélagshópa, svo sem öryrkja, að því er varðar val, verð og gæði.
  5. Að vera ráðgefandi fyrir stjórnvöld á sviði póstmála og hafa eftirlit með því að Ísland uppfylli á hverjum tíma þær skuldbindingar sem mælt er fyrir um í alþjóðlegum samningum á sviði póstmála. Skal stofnunin beina tilmælum um breytingar á lögum og reglugerðum til ráðherra ef þess gerist þörf.
  6. Að taka þátt í samstarfi sem leiðir af alþjóðlegum skuldbindingum á sviði póstmála.
  7. Annað sem lýtur að framkvæmd póstmála.

     Byggðastofnun og Samkeppniseftirlitið skulu setja sameiginlegar leiðbeinandi reglur um meðferð og úrlausn mála sem geta bæði fallið innan marka laga um póstmál og samkeppnislaga. Skulu reglur þessar birtar.
     Forstjóra Byggðastofnunar er heimilt að fela öðrum hæfum aðilum einstaka þætti skoðunar sem framkvæmd er með heimild í lögum þessum.

2. gr.

     Á eftir I. kafla laganna kemur nýr kafli, I. kafli A, Eftirlit, með tveimur nýjum greinum, 4. gr. a og 4. gr. b, ásamt fyrirsögnum, svohljóðandi:
     
     a. (4. gr. a.)
Eftirlit með póstrekendum.
     Byggðastofnun hefur eftirlit með starfsemi póstrekenda, þ.m.t. fjárhagsstöðu þeirra, og skal fylgjast með því að starfsemi þeirra sé í samræmi við lög, reglugerðir, reglur, skilyrði eða ákvarðanir sem um starfsemina gilda og að starfsemin sé að öðru leyti í samræmi við heilbrigða og eðlilega viðskiptahætti.
     
     b. (4. gr. b.)
Eftirlitsúrræði Byggðastofnunar og viðurlög.
     Byggðastofnun getur krafið þá sem stunda starfsemi sem fellur undir lög þessi um allar upplýsingar sem nauðsynlegar þykja við athugun einstakra mála. Í tengslum við eftirlit og athuganir mála samkvæmt ákvæðum laga þessara sem ekki snúa að póstrekendum er einstaklingum og lögaðilum skylt að láta Byggðastofnun í té allar upplýsingar og gögn sem hún telur nauðsynleg.
     Byggðastofnun getur í starfi sínu krafist upplýsinga og gagna frá öðrum stjórnvöldum, þar á meðal frá skattyfirvöldum og tollyfirvöldum, óháð þagnarskyldu þeirra.
     Sem hluta af eftirliti er Byggðastofnun heimilt að krefjast þess að henni séu m.a. látnir í té ársreikningar, milliuppgjör, yfirlýsingar endurskoðenda eða aðrar sambærilegar upplýsingar. Getur stofnunin krafist hvort sem er munnlegra eða skriflegra upplýsinga, innan hæfilegs frests sem hún ákveður.
     Byggðastofnun getur með sömu skilyrðum og í 3. mgr. krafist þess að fá gögn afhent til athugunar. Skulu þau afhent innan hæfilegs frests sem stofnunin setur.
     Telji Byggðastofnun að fjárhagsstaða póstrekenda sé slík að hætta sé á að viðkomandi uppfylli ekki skyldur þær sem mælt er fyrir um í almennum heimildum, réttindum, rekstrarleyfum eða skilgreindum alþjónustukvöðum getur stofnunin krafist þess að bætt verði úr innan tiltekins frests.
     Byggðastofnun getur við rannsókn máls gert nauðsynlegar athuganir á starfsstað póstrekanda sem úthlutað hefur verið réttindum og lagt hald á gögn þegar ríkar ástæður eru til að ætla að brotið hafi verið gegn lögum þessum eða reglum eða ákvörðunum stofnunarinnar. Við þessar aðgerðir skal fylgja ákvæðum laga um meðferð sakamála um leit og hald á munum.
     Vanræki póstrekandi skyldur sínar eða uppfylli ekki kröfur sem Byggðastofnun gerir um úrbætur innan hæfilegs frests getur stofnunin afskráð hann af lista yfir póstrekendur eða tilkynnt póstrekanda að hann njóti ekki lengur almennrar heimildar að undangenginni skriflegri viðvörun.
     Byggðastofnun skal gera ráðstafanir til að stöðva rekstur póstrekanda sem starfar án heimildar eða uppfyllir ekki skilyrði laga og reglna um slíka starfsemi. Er heimilt að leggja á dagsektir í þessu skyni, sbr. 44. gr.
     Byggðastofnun er heimil vinnsla persónuupplýsinga, þ.e. upplýsinga sem nauðsynlegar þykja við athugun á málum sem Byggðastofnun vinnur að samkvæmt lögum þessum, að uppfylltum skilyrðum laga um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga. Ráðherra setur í reglugerð nánari ákvæði um framkvæmd eftirlits Byggðastofnunar.

3. gr.

     Í stað orðanna „skv. 12. gr. laga um Póst- og fjarskiptastofnun, nr. 69/2003“ í 5. mgr. 5. gr. og 9. mgr. 17. gr. laganna kemur: skv. 44. gr.

4. gr.

     2. mgr. 17. gr. laganna orðast svo:
     Smásölugjaldskrá fyrir bréf allt að 50 g innan alþjónustu skal vera sú sama um allt land.

5. gr.

     Í stað 3. mgr. 32. gr. laganna koma þrjár nýjar málsgreinar, svohljóðandi:
     Telji neytendur póstþjónustu, eða aðrir sem hagsmuna hafa að gæta, að póstrekandi brjóti gegn skyldum sínum samkvæmt lögum þessum eða gegn skilyrðum sem mælt er fyrir um í almennum heimildum, réttindum eða í rekstrarleyfi eða skilgreindum alþjónustukvöðum getur hlutaðeigandi beint kvörtun til Byggðastofnunar um að hún láti málið til sín taka.
     Byggðastofnun skal leita álits viðkomandi póstrekanda á kvörtuninni og jafnframt freista þess að jafna ágreining aðila á skjótan hátt. Náist ekki samkomulag skal úr ágreiningi skorið með ákvörðun.
     Byggðastofnun er heimilt að setja reglur um lausn slíkra ágreiningsmála.

6. gr.

     Á eftir 38. gr. laganna koma sex nýjar greinar, 39. gr. – 44. gr., ásamt fyrirsögnum, svohljóðandi, og breytist röð annarra greina samkvæmt því:
     
     a. (39. gr.)
Samskipti við eftirlitsstjórnvöld og þagnarskylda.
     Byggðastofnun skal veita Eftirlitsstofnun EFTA almennar upplýsingar sem skylt er að veita með hliðsjón af skuldbindingum samkvæmt samningnum um Evrópska efnahagssvæðið, svo sem varðandi alþjónustu og kvaðir sem lagðar eru á fyrirtæki.
     Þrátt fyrir lagaákvæði um þagnarskyldu má Byggðastofnun veita eftirlitsstjórnvöldum í aðildarríkjum Evrópska efnahagssvæðisins og Alþjóðaviðskiptastofnuninni upplýsingar um póstmál sé það liður annaðhvort í samstarfi ríkjanna um eftirlit með starfsemi eftirlitsskyldra aðila eða við úrlausn einstakra mála og slík upplýsingagjöf er nauðsynleg til að unnt sé að framfylgja lögmæltu eftirliti. Ákvæði þessarar málsgreinar gilda einnig um skipti á upplýsingum við eftirlitsstjórnvöld hér á landi. Byggðastofnun er því aðeins heimilt að veita eftirlitsstjórnvöldum upplýsingar samkvæmt þessari málsgrein að sá sem upplýsingarnar fær sé háður sams konar þagnarskyldu.
     Þagnarskylda skal ekki vera því til fyrirstöðu að Byggðastofnun gefi fulltrúum Eftirlitsstofnunar EFTA sem fjalla um póstmál allar upplýsingar sem eru nauðsynlegar við framkvæmd samningsins um Evrópska efnahagssvæðið.
     Byggðastofnun er heimilt að skiptast á upplýsingum um póstmál við sambærilegar stofnanir innan Evrópska efnahagssvæðisins og samningsríkja Alþjóðaviðskiptastofnunarinnar að því marki að ekki sé um trúnaðarupplýsingar að ræða.
     Byggðastofnun er heimilt að birta tölfræðilegar upplýsingar um magn pósts og skulu póstrekendur láta stofnuninni í té slíkar upplýsingar.
     
     b. (40. gr.)
Lausn deilumála milli póstrekenda.
     Komi upp deilur milli póstrekenda um skyldur sem leiðir af lögum getur deiluaðili beint málinu til Byggðastofnunar. Byggðastofnun skal leita sátta með aðilum. Náist ekki samkomulag skal skorið úr ágreiningi með ákvörðun eins fljótt og við verður komið og eigi síðar en innan fjögurra mánaða nema sérstaklega standi á.
     Ákvörðun Byggðastofnunar skal birta opinberlega með fyrirvara um kröfu um viðskiptaleynd.
     Byggðastofnun getur í ákveðnum tilfellum gripið inn í deilur aðila að eigin frumkvæði til þess að ná markmiðum laga þessara eða laga um Byggðastofnun.
     Byggðastofnun er heimilt að setja reglur um málsmeðferð samkvæmt þessari grein.
     
     c. (41. gr.)
Heimild til bráðabirgðaákvörðunar.
     Telji Byggðastofnun nauðsynlegt að taka ákvörðun án tafar í einstökum málum sem varða kvartanir neytenda, sbr. 32. gr., eða deilur á milli póstrekenda, sbr. 40. gr., enda sé hætta á því að dráttur á ákvörðun valdi því að réttindi aðila máls fari forgörðum eða hann verði fyrir verulegu fjártjóni, er stofnuninni heimilt að taka bráðabirgðaákvörðun.
     Byggðastofnun skal taka málið til umfjöllunar skv. 32. gr. eða 40. gr. innan sjö daga frá því að bráðabirgðaákvörðunin var tekin ella fellur hún úr gildi.
     
     d. (42. gr.)
Kæruheimild.
     Ákvarðanir Byggðastofnunar um póstþjónustu sem teknar eru samkvæmt lögum þessum sæta kæru til úrskurðarnefndar fjarskipta- og póstmála. Um meðferð kæru vegna ákvarðana Byggðastofnunar skulu gilda sömu málsmeðferðarreglur og gilda um úrskurði nefndarinnar á sviði fjarskiptamála.
     
     e. (43. gr.)
Gjaldtaka o.fl.
     Fyrir tilnefningu alþjónustuveitanda fyrir póstþjónustu greiðist gjald til ríkissjóðs samkvæmt lögum um aukatekjur ríkissjóðs.
     Póstrekendur skulu árlega greiða Byggðastofnun rekstrargjald sem nemur 0,4% af árlegri bókfærðri veltu. Með bókfærðri veltu er átt við rekstrartekjur sem þessir aðilar hafa af póststarfsemi sinni hér á landi. Rekstrargjald skal miða við næsta almanaksár á undan ákvörðun gjaldsins. Tekjur skal telja til bókfærðrar veltu á því ári þegar þær verða til.
     Póstrekendur skulu skila Byggðastofnun upplýsingum um gjaldskylda veltu eigi síðar en 30. apríl ár hvert. Berist Byggðastofnun ekki upplýsingar innan tilskilins tíma er stofnuninni heimilt að áætla veltu viðkomandi aðila.
     Álagning rekstrargjalds skv. 2. mgr. skal fara fram eigi síðar en 15. maí ár hvert. Byggðastofnun skal gera eftirlitsskyldum aðilum grein fyrir álagningunni með bréfi. Rekstrargjald greiðist með þremur jafnháum greiðslum. Það greiðist þannig að gjalddagi 1. ársþriðjungs er 1. júní og eindagi 15. júní, gjalddagi 2. ársþriðjungs er 1. september og eindagi 15. september og gjalddagi 3. ársþriðjungs er 1. desember og eindagi 15. desember. Sé rekstrargjald greitt eftir eindaga hverrar greiðslu reiknast dráttarvextir á greiðsluna frá gjalddaga í samræmi við lög um vexti og verðtryggingu.
     Vanræki póstrekandi greiðslu rekstrargjalds er Byggðastofnun heimilt að fella niður starfsheimild viðkomandi fyrirtækis.
     Byggðastofnun er heimilt að ákvarða álagningu rekstrargjalds að nýju fyrir tiltekna aðila reynist álagningarstofn eða aðrar forsendur fyrri álagningar ekki réttar.
     Byggðastofnun getur gert póstrekanda að greiða samkvæmt reikningi útlagðan kostnað, svo sem vegna sérfræðivinnu, við sérstakar kannanir sem stofnunin telur nauðsynlegar vegna eftirlits með starfsemi á hans vegum og rekja má sérstakan kostnaðarauka til atvika er varða fyrirtækið.
     Ráðherra setur gjaldskrá fyrir aðra þjónustu sem Byggðastofnun er falið að veita samkvæmt lögum þessum. Heimilt er að taka gjald, sem miðast við kostnað, fyrir skráningu fyrirtækja og útgáfu leyfisbréfa og skírteina. Auk þess er Byggðastofnun heimilt að taka gjald fyrir aðra þjónustu sem aðilar óska eftir. Við ákvörðun gjalda samkvæmt þessari grein skal leggja til grundvallar kostnað vegna launa og launatengdra gjalda, aksturs, þjálfunar og endurmenntunar, aðkeyptrar sérfræðiþjónustu, húsnæðis, starfsaðstöðu, fjarskipta, búnaðar og tækja, stjórnunar og stoðþjónustu og alþjóðlegrar samvinnu, auk ferða og uppihalds sem af því leiðir.
     Byggðastofnun annast innheimtu gjalda samkvæmt þessari grein. Tekjur af gjöldunum renna í ríkissjóð að undanskildum tekjum skv. 7. og 8. mgr. sem renna til Byggðastofnunar.
     Ráðherra skal á grundvelli fjárheimildar í fjárlögum ákvarða fjárveitingu til reksturs Byggðastofnunar sem nemur að lágmarki áætlun fjárlaga um tekjur af gjöldum samkvæmt þessari grein.
     
     f. (44. gr.)
Dagsektir og innheimta.
     Þegar póstrekandi fer ekki að ákvæðum laga þessara, skilyrðum almennrar heimildar, skilyrðum sérstakra réttinda eða einstökum ákvörðunum Byggðastofnunar eða veitir ekki þær upplýsingar sem honum er skylt að afhenda stofnuninni er henni heimilt að leggja á og innheimta dagsektir sem nemi 50.000–500.000 kr. á dag til að tryggja að eftir fyrirmælum stofnunarinnar sé farið. Eru slíkar sektir aðfararhæfar skv. 5. tölul. 1. mgr. 1. gr. laga um aðför, nr. 90/1989. Málskot til úrskurðarnefndar fjarskipta- og póstmála frestar aðför.

7. gr.

     Á eftir 1. tölul. 1. mgr. 41. gr. laganna kemur nýr töluliður, 2. tölul., svohljóðandi: Framkvæmd eftirlits Byggðastofnunar skv. 4. gr. b.

8. gr.

     Við lögin bætist nýtt ákvæði til bráðabirgða, svohljóðandi:
     Ráðherra, í samstarfi við ráðherra sem fer með fjármál og efnahagsmál, skal hið fyrsta skipa þverfaglegan starfshóp til að meta hvernig best megi ná markmiðum 1. gr., m.a. með hliðsjón af tækninýjungum, samkeppnissjónarmiðum og alþjóðlegum skuldbindingum Íslands. Í starfshópinn verði, auk fulltrúa ráðherra, skipaðir fagaðilar og fulltrúar sjónarmiða neytenda, atvinnurekenda og ólíkra byggða. Tillögur hópsins skulu settar fram í skýrslu, ásamt kostnaðarmati, og gerð skal grein fyrir áhrifum þeirra á póstmarkaðinn í heild sinni og hagrænum áhrifum í samkeppnislegu og byggðalegu tilliti. Skýrslan skal liggja fyrir eigi síðar en 1. október 2021.

II. KAFLI
Breyting á lögum um Byggðastofnun, nr. 106/1999.

9. gr.

     Við 2. gr. laganna bætist ný málsgrein, svohljóðandi:
     Byggðastofnun annast framkvæmd laga um póstþjónustu og hefur eftirlit með póstþjónustu eins og nánar er kveðið á um í lögum um það efni.

10. gr.

     Eftirfarandi breytingar verða á 13. gr. laganna:
  1. Orðin „starfsemi Byggðastofnunar og“ í 1. mgr. falla brott.
  2. Á eftir orðinu „Ársreikningum“ í 2. mgr. kemur: Byggðastofnunar.


11. gr.

     Eftirfarandi breytingar verða á 14. gr. laganna.
  1. Við bætist nýr töluliður, svohljóðandi: Þjónustugjöld skv. 2. og 3. mgr.
  2. Við bætast tvær nýjar málsgreinar, svohljóðandi:
  3.      Byggðastofnun er heimilt að taka gjald fyrir:
    1. Umsýslu og skjalagerð sem tengist lánastarfsemi stofnunarinnar.
    2. Umsýslu vegna aflamarks Byggðastofnunar samkvæmt lögum um stjórn fiskveiða, nr. 116/2006.
    3. Vinnu við verkefni á sviði byggðaáætlunar og alþjóðlegra verkefna sem stofnuninni er falið að sinna.

         Stjórn Byggðastofnunar setur gjaldskrá fyrir veitta þjónustu og verkefni sem stofnuninni er falið að annast eða stofnunin tekur að sér samkvæmt lögum þessum eða öðrum lögum. Upphæð gjalda tekur mið af kostnaði við þjónustu og framkvæmd einstakra verkefna og má ekki vera hærri en sá kostnaður. Gjaldskrá skal birt í B-deild Stjórnartíðinda. Gjöld má innheimta með fjárnámi.


12. gr.

     16. gr. laganna fellur brott, ásamt fyrirsögn.

13. gr.

     Lög þessi öðlast gildi 1. júlí 2021. Ákvæði 4. gr. laga þessara skal vera komið til framkvæmda eigi síðar en 1. nóvember 2021.

Samþykkt á Alþingi 13. júní 2021.