Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF Word Perfect.

Þingskjal 1411, 152. löggjafarþing 271. mál: málefni innflytjenda (móttaka einstaklinga með vernd, innflytjendaráð).
Lög nr. 52 24. júní 2022.

Lög um breytingu á lögum um málefni innflytjenda, nr. 116/2012 (móttaka einstaklinga með vernd, innflytjendaráð).


1. gr.

     2. mgr. 3. gr. laganna fellur brott.

2. gr.

     Á eftir 3. gr. laganna koma tvær nýjar greinar, 3. gr. a og 3. gr. b, ásamt fyrirsögnum, svohljóðandi:
     
     a. (3. gr. a.)
Samræmd móttaka einstaklinga með vernd.
     Fjölmenningarsetur skal veita móttökusveitarfélögum faglegar leiðbeiningar og ráðgjöf vegna samræmdrar móttöku einstaklinga með vernd. Einstaklingar með vernd í skilningi þessa ákvæðis eru:
  1. einstaklingar sem fengið hafa stöðu flóttamanna skv. 1. eða 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga, nr. 80/2016,
  2. einstaklingar sem hafa fengið alþjóðlega vernd vegna fjölskyldutengsla við flóttamann eða ríkisfangslausan einstakling skv. 45. gr. laga um útlendinga, nr. 80/2016,
  3. einstaklingar sem fengið hafa synjun um alþjóðlega vernd en fengið dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða skv. 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga, nr. 80/2016,
  4. einstaklingar sem íslenska ríkið hefur boðið að setjast að hér á landi í samstarfi við Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna skv. 43. gr. laga um útlendinga, nr. 80/2016, og
  5. ríkisfangslausir einstaklingar skv. 39. gr. laga um útlendinga, nr. 80/2016.

     Fjölmenningarsetur, að höfðu samráði við viðkomandi sveitarfélag, býður einstaklingum skv. 1. mgr. að setjast að í tilteknu móttökusveitarfélagi á grundvelli þeirra upplýsinga sem fyrir liggja.
     Fjölmenningarsetur veitir einstaklingum með vernd skv. 1. mgr., sem þiggja ekki boð um búsetu í móttökusveitarfélagi, upplýsingar um almenna þjónustu sveitarfélaga.
     Fjölmenningarsetur skal hafa umsjón með og standa fyrir samráði milli þeirra aðila hér á landi sem koma að móttöku einstaklinga með vernd skv. 1. mgr.
     
     b. (3. gr. b.)
Vinnsla upplýsinga.
     Að því marki sem Fjölmenningarsetur telur nauðsynlegt vegna verkefna samkvæmt lögum þessum skal stofnunin afla upplýsinga frá Útlendingastofnun, sveitarfélögum og öðrum opinberum aðilum eftir því sem við á hverju sinni. Hlutaðeigandi aðilum ber að veita Fjölmenningarsetri umbeðnar upplýsingar, búi þeir yfir þeim, án endurgjalds.
     Fjölmenningarsetri er heimilt að miðla viðeigandi upplýsingum og ráðgjöf til aðila skv. 1. mgr. þegar nauðsynlegt er að mati stofnunarinnar vegna málefna einstaklinga með vernd skv. 3. gr. a.
     Fjölmenningarsetri er heimil vinnsla persónuupplýsinga, þar á meðal viðkvæmra persónuupplýsinga, í þeim tilgangi að sinna hlutverki sínu skv. 3. gr. a við samræmda móttöku einstaklinga með vernd skv. 1. mgr. þeirrar greinar.
     Fjölmenningarsetri ber að upplýsa viðkomandi einstakling eða forsjáraðila hans um fyrirhugaða vinnslu og miðlun persónuupplýsinga í samræmi við 2. mgr. 17. gr. laga um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga, nr. 90/2018.

3. gr.

     Eftirfarandi breytingar verða á 1. mgr. 4. gr. laganna:
  1. Í stað orðsins „sex“ í 1. málsl. kemur: sjö.
  2. Á eftir orðunum „þeim ráðherra sem fer með málefni útlendinga“ í 3. málsl. kemur: einn fulltrúa samkvæmt tilnefningu frá þeim ráðherra sem fer með heilbrigðismál.


4. gr.

     Lög þessi öðlast þegar gildi.

Samþykkt á Alþingi 15. júní 2022.