Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF Word Perfect.

Þingskjal 685, 154. löggjafarþing 537. mál: sértækur húsnæðisstuðningur vegna náttúruhamfara í Grindavíkurbæ.
Lög nr. 94 14. desember 2023.

Lög um sértækan húsnæðisstuðning vegna náttúruhamfara í Grindavíkurbæ.


I. KAFLI
Gildissvið, markmið og orðskýringar.

1. gr.

Gildissvið.
     Lög þessi gilda um sértækan húsnæðisstuðning til Grindvíkinga vegna náttúruhamfara í Grindavíkurbæ.

2. gr.

Markmið.
     Markmið laga þessara er að lækka húsnæðiskostnað Grindvíkinga sem þurfa að leigja húsnæði til íbúðar utan Grindavíkurbæjar vegna jarðhræringa á Reykjanesskaga.

3. gr.

Orðskýringar.
     Merking eftirfarandi orða í lögum þessum er sem hér segir:
  1. Búseta: Þegar einstaklingur býr í hinu leigða húsnæði og á þar skráð lögheimili eða tímabundið aðsetur samkvæmt lögum um lögheimili og aðsetur.
  2. Heimilismenn: Allir þeir sem búsettir eru í hinu leigða húsnæði og uppfylla jafnframt skilyrði a- og b-liðar 1. mgr. 9. gr.
  3. Húsnæði: Íbúðarhúsnæði eða annað húsnæði sem leigt er til íbúðar hér á landi.
  4. Húsnæðiskostnaður: Sá hluti leigufjárhæðar sem greiddur er fyrir leiguafnot af húsnæði, sbr. 14. gr.
  5. Sértækur húsnæðisstuðningur: Mánaðarlegar greiðslur til lækkunar á húsnæðiskostnaði Grindvíkinga sem þurfa að leigja húsnæði til íbúðar utan Grindavíkurbæjar vegna jarðhræringa á Reykjanesskaga.
  6. Umsækjandi: Sá heimilismaður sem er aðili að leigusamningi um húsnæðið og sækir um sértækan húsnæðisstuðning á grundvelli þess samnings.


II. KAFLI
Stjórnsýsla.

4. gr.

Yfirstjórn.
     Ráðherra fer með yfirstjórn sértæks húsnæðisstuðnings samkvæmt lögum þessum.

5. gr.

Framkvæmdaraðili.
     Húsnæðis- og mannvirkjastofnun annast framkvæmd sértæks húsnæðisstuðnings samkvæmt lögum þessum. Þegar teknar eru ákvarðanir um réttindi og skyldur samkvæmt lögum þessum gilda stjórnsýslulög.
     Kostnaður við framkvæmd laga þessara greiðist úr ríkissjóði samkvæmt fjárlögum hverju sinni.
     Ráðherra er heimilt að setja nánari reglur í reglugerð um málsmeðferð samkvæmt lögum þessum, þar á meðal um rafræna málsmeðferð.

6. gr.

Kæruheimild til úrskurðarnefndar velferðarmála.
     Heimilt er að kæra ákvarðanir Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar sem teknar eru á grundvelli laga þessara til úrskurðarnefndar velferðarmála innan þriggja mánaða frá því að aðila máls var tilkynnt um ákvörðun, sbr. lög um úrskurðarnefnd velferðarmála. Um málsmeðferð hjá nefndinni gilda ákvæði laga um úrskurðarnefnd velferðarmála og stjórnsýslulaga.
     Úrskurðir úrskurðarnefndar velferðarmála um framkvæmd laga þessara eru endanlegir á stjórnsýslustigi og verður ekki skotið til æðra stjórnvalds.

7. gr.

Þagnarskylda.
     Á þeim sem annast framkvæmd laga þessara af hálfu stjórnvalda hvílir þagnarskylda skv. X. kafla stjórnsýslulaga, nr. 37/1993.

III. KAFLI
Skilyrði sértæks húsnæðisstuðnings.

8. gr.

Mánaðarlegar greiðslur sértæks húsnæðisstuðnings.
     Sértækur húsnæðisstuðningur samkvæmt lögum þessum er mánaðarleg greiðsla sem greiðist til umsækjanda, sbr. 6. tölul. 3. gr., og skal ákvarðaður og reiknaður út miðað við fjölda heimilismanna, sbr. 2. tölul. 3. gr. og 13. gr., og hámarkshlutdeild ríkisins í húsnæðiskostnaði, sbr. 14. gr.

9. gr.

Skilyrði sértæks húsnæðisstuðnings.
     Sértækur húsnæðisstuðningur samkvæmt lögum þessum skal einungis veittur að uppfylltum eftirfarandi skilyrðum:
  1. umsækjandi og aðrir þeir sem umsækjandi tilgreinir sem heimilismenn í umsókn hafi verið með lögheimili eða tímabundið aðsetur í Grindavíkurbæ 10. nóvember 2023 en verið gert að yfirgefa heimili sitt á grundvelli laga um almannavarnir,
  2. umsækjandi og aðrir þeir sem umsækjandi tilgreinir sem heimilismenn í umsókn séu búsettir í hinu leigða húsnæði og eigi þar lögheimili eða tímabundið aðsetur samkvæmt lögum um lögheimili og aðsetur,
  3. umsækjandi sé 18 ára eða eldri,
  4. umsækjandi sé aðili að leigusamningi um hið leigða húsnæði sem skráður hefur verið í leiguskrá húsnæðisgrunns Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar,
  5. fyrir liggi umboð umsækjanda og annarra heimilismanna, 18 ára og eldri, til upplýsingaöflunar, sbr. 2. mgr. 11. gr.

     Sértækur húsnæðisstuðningur samkvæmt lögum þessum verður ekki veittur:
  1. teljist umsækjandi eða aðrir þeir sem umsækjandi tilgreinir sem heimilismenn í umsókn þegar til heimilismanna í öðru húsnæði utan Grindavíkurbæjar samkvæmt samþykktri umsókn um sértækan húsnæðisstuðning samkvæmt lögum þessum, sbr. þó 3. og 4. mgr.,
  2. þegar einhver heimilismanna er eigandi viðkomandi húsnæðis; hið sama á við þegar eigandi húsnæðisins er lögaðili, enda hafi heimilismaður, maki hans eða sambúðarmaki þar ráðandi stöðu vegna eignar- eða stjórnunaraðildar; einstaklingur telst hafa ráðandi stöðu í þessu sambandi ef hann einn eða ásamt maka, sambúðarmaka, börnum, foreldrum, systkinum, öðrum nákomnum ættingjum eða heimilismanni, einum eða fleiri, á samtals 50% hlut eða meira í viðkomandi lögaðila,
  3. þegar sértækur húsnæðisstuðningur samkvæmt lögum þessum er þegar greiddur vegna sama húsnæðis,
  4. vegna húsnæðis sem fullnægir ekki kröfum um brunavarnir íbúðarhúsnæðis sem settar eru fram í lögum og reglugerðum.

     Þrátt fyrir skilyrði a- og b-liðar 1. mgr. skal barn yngra en 18 ára sem hefur tímabundið aðsetur hjá fósturforeldrum vegna tímabundins fósturs samkvæmt barnaverndarlögum teljast til heimilismanna á heimili foreldra eða forsjáraðila þess. Hið sama á við þegar barn yngra en 18 ára hefur tímabundið aðsetur á heimavist eða námsgörðum enda eigi barnið skráð lögheimili hjá foreldri eða forsjáraðila, sbr. þó 4. mgr.
     Búi foreldrar eða forsjáraðilar barns ekki saman skal barnið þrátt fyrir skilyrði b-liðar 1. mgr. teljast búsett á lögheimili sínu sem og í húsnæði þess foreldris eða forsjáraðila sem það á ekki lögheimili hjá enda dvelji barnið hjá foreldrinu eða forsjáraðilanum í að lágmarki 30 daga á ári samkvæmt samningi um umgengni sem sýslumaður hefur staðfest, sbr. 6. mgr. 46. gr. barnalaga, nr. 76/2003, úrskurði sýslumanns um umgengni skv. 47. gr. eða 47. gr. a sömu laga, dómi eða dómsátt. Telst barnið þá sem heimilismaður hjá báðum foreldrum sínum eða forsjáraðilum til 18 ára aldurs.
     Hafi heimilismaður, einn eða fleiri, flutt aftur á heimili sitt í Grindavíkurbæ í kjölfar afléttingar fyrirmæla stjórnvalda um rýmingu fyrir lok gildistíma stuðningsúrræðis laga þessara, sbr. 4. mgr. 15. gr., er Húsnæðis- og mannvirkjastofnun heimilt, þrátt fyrir ákvæði b-liðar 1. mgr. um búsetu, að greiða sértækan húsnæðisstuðning vegna hins leigða húsnæðis allt til loka gildistíma stuðningsúrræðisins að því marki sem leigusamningur er enn í gildi og skilyrði laga þessara uppfyllt að öðru leyti.

IV. KAFLI
Umsókn um sértækan húsnæðisstuðning og upplýsingaskylda.

10. gr.

Umsókn um sértækan húsnæðisstuðning.
     Umsækjandi skal sækja um sértækan húsnæðisstuðning til Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar. Umsóknin skal vera skrifleg á þar til gerðum eyðublöðum og skulu nauðsynleg gögn fylgja henni. Húsnæðis- og mannvirkjastofnun er heimilt að kalla eftir frekari upplýsingum og gögnum sem stofnunin telur þörf á til að staðreyna rétt umsækjanda til sértæks húsnæðisstuðnings. Heimilismenn, 18 ára og eldri, skulu undirrita umsóknina til staðfestingar á þeim upplýsingum sem þar koma fram.
     Umsóknir skulu afgreiddar þegar allar nauðsynlegar upplýsingar og gögn hafa borist. Húsnæðis- og mannvirkjastofnun er heimilt að synja umsókn um sértækan húsnæðisstuðning hafi nauðsynlegar upplýsingar og gögn ekki borist innan 45 daga frá þeim degi er umsóknin barst stofnuninni.
     Ráðherra er heimilt að setja nánari reglur í reglugerð um umsóknir um sértækan húsnæðisstuðning, hvort sem er á rafrænu formi eða á pappír, hvernig standa skuli að undirskrift rafrænna umsókna, hvaða upplýsingar skuli koma fram í umsóknum og hvaða gögn skuli fylgja þeim, hvernig standa skuli að skilum á gögnum sem fylgja skulu rafrænni umsókn og gildistíma umsókna.
     Umsóknir um stuðning samkvæmt lögum þessum skulu berast Húsnæðis- og mannvirkjastofnun í síðasta lagi 31. maí 2024. Hafi umsókn ekki borist fyrir það tímamark fellur niður réttur til stuðnings á grundvelli laga þessara.

11. gr.

Upplýsingaskylda umsækjanda og annarra heimilismanna.
     Umsækjandi skal veita Húsnæðis- og mannvirkjastofnun allar þær upplýsingar og gögn þeim til staðfestingar sem óskað er eftir og nauðsynlegar eru til að staðreyna rétt hans til sértæks húsnæðisstuðnings.
     Umsækjandi og aðrir heimilismenn, 18 ára og eldri, skulu veita skriflegt umboð fyrir því að Húsnæðis- og mannvirkjastofnun afli nauðsynlegra upplýsinga og gagna til að afgreiða umsókn um sértækan húsnæðisstuðning og framfylgja lögum þessum að öðru leyti.
     Umsækjandi skal upplýsa Húsnæðis- og mannvirkjastofnun um allar breytingar sem kunna að verða á högum hans eða heimilismanna eða öðrum þeim atriðum sem kunna að hafa áhrif á rétt hans til sértæks húsnæðisstuðnings samkvæmt lögum þessum á þeim tíma sem hann fær greiddan sértækan húsnæðisstuðning.

12. gr.

Heimild til upplýsingaöflunar.
     Húsnæðis- og mannvirkjastofnun er heimilt að fengnu skriflegu umboði umsækjanda og annarra heimilismanna, 18 ára og eldri, sbr. 2. mgr. 11. gr., að afla upplýsinga frá skattyfirvöldum, Þjóðskrá Íslands, sveitarfélögum, sýslumönnum, leigusölum hins leigða húsnæðis og stjórnvöldum sem fara með framkvæmd laga um almannavarnir, sem og upplýsinga úr leiguskrá húsnæðisgrunns Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar, sem nauðsynlegar eru til að unnt sé að framfylgja lögum þessum.
     Þeir aðilar sem tilgreindir eru í 1. mgr. skulu láta Húsnæðis- og mannvirkjastofnun í té upplýsingar sem óskað hefur verið eftir en lagaákvæði um þagnarskyldu takmarka ekki skyldu til að veita upplýsingarnar. Upplýsingar og gögn sem Húsnæðis- og mannvirkjastofnun óskar eftir og unnt er að láta í té skal veita án endurgjalds og á því formi sem óskað er, sbr. þó 3. mgr. 19. gr. laga um skráningu einstaklinga, nr. 140/2019.
     Húsnæðis- og mannvirkjastofnun getur aflað upplýsinga skv. 1. mgr. rafrænt eða á annan hátt sem stofnunin ákveður. Tryggja skal að upplýsingaöflun og vinnsla persónuupplýsinga gangi ekki lengra en þörf krefur til að unnt sé að framfylgja lögum þessum.
     Telji umsækjandi eða annar heimilismaður upplýsingar sem Húsnæðis- og mannvirkjastofnun aflar frá aðilum sem tilgreindir eru í 1. mgr. rangar skal viðkomandi tilkynna stofnuninni um það og leggja fram gögn því til staðfestingar.

V. KAFLI
Útreikningur sértæks húsnæðisstuðnings.

13. gr.

Fjárhæðir sértæks húsnæðisstuðnings.
     Mánaðarleg fjárhæð sértæks húsnæðisstuðnings ræðst af fjölda heimilismanna sem hér segir, sbr. þó 14. gr.:
Fjöldi heimilismanna Hámarksfjárhæð sértæks húsnæðisstuðnings
1 150.000 kr.
2 198.000 kr.
3 232.500 kr.
4 eða fleiri 252.000 kr.

     Breyting á fjölda heimilismanna skv. 1. mgr. hefur áhrif á rétt til sértæks húsnæðisstuðnings frá og með næstu mánaðamótum á eftir.
     Hefjist leigutími síðar en fyrsta dag hvers mánaðar eða ljúki fyrir síðasta dag mánaðar skal réttur til sértæks húsnæðisstuðnings vegna þess mánaðar vera hlutfallslegur miðað við heilan mánuð þannig að hann miðist við fjölda daga í mánuðinum sem falla innan leigutíma sem hlutfall af heildarfjölda daga í mánuðinum.

14. gr.

Áhrif húsnæðiskostnaðar á fjárhæðir sértæks húsnæðisstuðnings.
     Sértækur húsnæðisstuðningur getur aldrei numið hærri fjárhæð en jafngildir 75% af húsnæðiskostnaði vegna viðkomandi húsnæðis.
     Með húsnæðiskostnaði í lögum þessum er átt við þann hluta leigufjárhæðar sem greiddur er fyrir leiguafnot af húsnæði. Aðrar greiðslur og kostnaðarþættir sem leigjanda ber að greiða samkvæmt samningi eða lögum, svo sem fyrir hita, vatn, rafmagn, hússjóð, viðhald o.fl., teljast ekki til húsnæðiskostnaðar í skilningi laga þessara.

VI. KAFLI
Greiðsla sértæks húsnæðisstuðnings.

15. gr.

Greiðsla sértæks húsnæðisstuðnings.
     Sértækur húsnæðisstuðningur greiðist umsækjanda fyrsta dag hvers almanaksmánaðar og er greiddur eftir á fyrir leigutíma undanfarandi almanaksmánaðar eða hluta úr almanaksmánuði, hefjist leigutími síðar en fyrsta dag almanaksmánaðar eða ljúki fyrir síðasta dag almanaksmánaðar. Samningar aðila um fyrirframgreiðslu húsnæðiskostnaðar breyta engu hér um.
     Sértækur húsnæðisstuðningur kemur til greiðslu í fyrsta skipti fyrsta dag næsta almanaksmánaðar eftir að réttur til stuðnings hefur verið staðreyndur og tekur til þess almanaksmánaðar eða hluta úr almanaksmánuði, hafi leigutími hafist síðar en fyrsta dag almanaksmánaðar, þegar leigutími er hafinn samkvæmt leigusamningi.
     Sértækur húsnæðisstuðningur skal falla niður frá og með næstu mánaðamótum eftir að skilyrði laga þessara eru ekki lengur uppfyllt, sbr. þó 3. mgr. 16. gr. Sértækur húsnæðisstuðningur skal þó falla niður frá og með þeim degi þegar leigusamningur fellur úr gildi.
     Heimilt er að greiða sértækan húsnæðisstuðning samkvæmt lögum þessum vegna húsnæðiskostnaðar sem fellur til vegna leigu húsnæðis á tímabilinu 10. nóvember 2023 til og með 29. febrúar 2024.

16. gr.

Heimilismaður verður 18 ára.
     Verði heimilismaður 18 ára á því tímabili þegar greiddur er sértækur húsnæðisstuðningur skal Húsnæðis- og mannvirkjastofnun afla umboðs hans fyrir öflun nauðsynlegra upplýsinga og gagna skv. 2. mgr. 11. gr. þegar hann verður 18 ára.
     Húsnæðis- og mannvirkjastofnun er heimilt að fresta greiðslum sértæks húsnæðisstuðnings tímabundið í allt að 60 daga frá og með fyrsta degi annars almanaksmánaðar eftir að heimilismaður varð 18 ára þar til umboð hans skv. 1. mgr. liggur fyrir. Stofnunin skal tilkynna umsækjanda að lágmarki 30 dögum áður en heimilismaður verður 18 ára að fyrirhugað sé að halda eftir greiðslum berist ekki umboð heimilismanns skv. 1. mgr.
     Berist Húsnæðis- og mannvirkjastofnun ekki umboð heimilismanns skv. 1. mgr. innan þeirra tímamarka sem gilda um frestun greiðslna skv. 2. mgr. skal réttur umsækjanda til sértæks húsnæðisstuðnings falla niður.

VII. KAFLI
Eftirlit og endurreikningur sértæks húsnæðisstuðnings.

17. gr.

Eftirlit.
     Húsnæðis- og mannvirkjastofnun skal reglulega sannreyna þær upplýsingar sem ákvörðun um rétt til sértæks húsnæðisstuðnings byggist á.
     Ráðherra er heimilt að setja nánari reglur í reglugerð um framkvæmd eftirlits.

18. gr.

Frestun greiðslna.
     Húsnæðis- og mannvirkjastofnun er heimilt að halda eftir greiðslu sértæks húsnæðisstuðnings sem umsækjanda hefur áður verið ákvörðuð í allt að 60 daga frá því að greiðsluna átti að inna af hendi þegar stofnunin hefur rökstuddan grun um að umsækjandi eða annar heimilismaður uppfylli ekki lengur skilyrði laga þessara, hafi fengið ofgreiddan sértækan húsnæðisstuðning eða hafi ekki sinnt upplýsingaskyldu skv. 11. gr. Þegar slíkur grunur vaknar skal stofnunin án ástæðulauss dráttar og minnst fimm virkum dögum fyrir næsta greiðsludag sértæks húsnæðisstuðnings skv. 1. mgr. 15. gr. tilkynna umsækjanda að fyrirhugað sé að halda eftir greiðslu.
     Komist Húsnæðis- og mannvirkjastofnun að því að umsækjandi hafi átt rétt á þeirri greiðslu, að hluta eða öllu leyti, sem haldið var eftir skv. 1. mgr. ber stofnuninni að greiða þá fjárhæð í síðasta lagi næsta greiðsludag skv. 1. mgr. 15. gr. ásamt vöxtum fyrir það tímabil sem féð var í vörslu stofnunarinnar. Skulu vextirnir vera jafnháir vöxtum skv. 1. mgr. 8. gr. laga um vexti og verðtryggingu, nr. 38/2001.
     Þrátt fyrir 1. og 2. mgr. fer skv. 16. gr. um meðferð máls þegar heimilismaður verður 18 ára á því tímabili þegar greiddur er sértækur húsnæðisstuðningur.

19. gr.

Leiðrétting á sértækum húsnæðisstuðningi.
     Hafi umsækjandi fengið hærri sértækan húsnæðisstuðning en honum bar á umræddu tímabili ber honum að endurgreiða þá fjárhæð sem ofgreidd var. Húsnæðis- og mannvirkjastofnun skal að jafnaði draga ofgreiddan sértækan húsnæðisstuðning frá síðar tilkomnum sértækum húsnæðisstuðningi sama aðila. Húsnæðis- og mannvirkjastofnun á einnig endurkröfurétt á hendur umsækjanda eða dánarbúi hans samkvæmt almennum reglum.
     Verði ofgreiddur sértækur húsnæðisstuðningur ekki innheimtur skv. 1. mgr. fer um innheimtu hans skv. 3. gr. laga um innheimtu opinberra skatta og gjalda, nr. 150/2019. Ráðherra getur þó falið sérstökum innheimtuaðila að annast innheimtu. Heimilt er að skuldajafna ofgreiddum sértækum húsnæðisstuðningi samkvæmt lögum þessum á móti inneign umsækjanda vegna ofgreiddra skatta eða barnabóta samkvæmt lögum um tekjuskatt. Ráðherra er fer með tekjuöflun ríkisins er heimilt að setja í reglugerð nánari reglur um skuldajöfnun og forgangsröð.
     Hafi umsækjandi ekki fengið sértækan húsnæðisstuðning sem honum bar eða fengið lægri sértækan húsnæðisstuðning en honum bar skal Húsnæðis- og mannvirkjastofnun greiða umsækjanda þá fjárhæð sem vangreidd var ásamt vöxtum fyrir það tímabil sem féð var í vörslu stofnunarinnar. Skulu vextirnir vera jafnháir vöxtum skv. 1. mgr. 8. gr. laga um vexti og verðtryggingu, nr. 38/2001. Hafi sértækur húsnæðisstuðningur verið vangreiddur vegna skorts á upplýsingum frá umsækjanda falla vextir niður.
     Ákvarðanir Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar um endurkröfu ofgreidds sértæks húsnæðisstuðnings skv. 1. mgr. eru aðfararhæfar án undangengins dóms. Hið sama á við um úrskurði úrskurðarnefndar velferðarmála um endurkröfu ofgreidds sértæks húsnæðisstuðnings.
     Ofgreiddur sértækur húsnæðisstuðningur sem endurgreiddur er samkvæmt lögum þessum skal renna í ríkissjóð.
     Ráðherra er heimilt að setja í reglugerð nánari reglur um innheimtu á ofgreiddum sértækum húsnæðisstuðningi, undanþágur frá innheimtu ofgreidds sértæks húsnæðisstuðnings og afskriftir krafna.
     Endanlegt uppgjör Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar á greiðslu á húsnæðisstuðningi skal liggja fyrir 90 dögum eftir að lokagreiðsla barst umsækjanda.

20. gr.

Sértæks húsnæðisstuðnings aflað á sviksamlegan hátt.
     Komi í ljós að umsækjandi hafi vísvitandi veitt rangar, villandi eða ófullnægjandi upplýsingar eða látið hjá líða að veita nauðsynlegar upplýsingar í því skyni að fá óréttmætar greiðslur sértæks húsnæðisstuðnings skal umsækjandi endurgreiða þá fjárhæð sem ofgreidd var að viðbættu 15% álagi.

VIII. KAFLI
Ýmis ákvæði.

21. gr.

Upplýsingagjöf til sveitarfélaga og slökkviliðs.
     Húsnæðis- og mannvirkjastofnun skal veita sveitarfélögum upplýsingar um rétt umsækjanda til sértæks húsnæðisstuðnings samkvæmt lögum þessum og heimilismenn á viðkomandi heimili að fengnu umboði heimilismanna, 18 ára og eldri.
     Fái Húsnæðis- og mannvirkjastofnun við framkvæmd laga þessara upplýsingar um búsetu fólks í húsnæði sem leigt er til íbúðar og fullnægir ekki kröfum um brunavarnir íbúðarhúsnæðis sem settar eru fram í lögum og reglugerðum, sbr. d-lið 2. mgr. 9. gr., skal stofnunin tilkynna slökkviliði hlutaðeigandi sveitarfélags þar um.

22. gr.

Sértækur húsnæðisstuðningur sem ekki hefur komið til útgreiðslu.
     Óheimilt er að framselja eða veðsetja sértækan húsnæðisstuðning sem ekki hefur komið til útgreiðslu samkvæmt lögum þessum sem og að kyrrsetja slíkar greiðslur, gera í þeim fjárnám eða taka þær til greiðslu opinberra gjalda.

23. gr.

Skattleysi og áhrif á aðrar greiðslur.
     Sértækur húsnæðisstuðningur telst ekki til skattskyldra tekna samkvæmt lögum um tekjuskatt.
     Sértækur húsnæðisstuðningur telst ekki til tekna við ákvörðun greiðslna samkvæmt lögum um almannatryggingar eða lögum um félagslega aðstoð.

24. gr.

Reglugerðarheimild.
     Ráðherra er heimilt að setja reglugerð um nánari framkvæmd laga þessara.

25. gr.

Gildistaka.
     Lög þessi öðlast þegar gildi.

26. gr.

Breytingar á öðrum lögum.
     Við gildistöku laga þessara verða eftirfarandi breytingar á öðrum lögum:
  1. Húsaleigulög, nr. 36/1994:
    1. 35. gr. laganna verður svohljóðandi:
    2.      Nú verður leigjandi fyrir afnotamissi af hinu leigða húsnæði um lengri tíma vegna opinberra fyrirmæla um brottflutning fólks af hættusvæði þar sem húsnæðið stendur og skal leigusali þá bæta leigjanda það með hlutfallslegum afslætti af leigugjaldi vegna þess tíma sem afnotamissirinn varði eða á annan hátt sem aðilar koma sér saman um. Verði aðilar ekki ásáttir um bætur eða afslátt geta þeir leitað álits úttektaraðila, sbr. XIV. kafla, en heimilt er aðilum að bera álit hans undir kærunefnd húsamála, sbr. 85. gr. Húsnæðis- og mannvirkjastofnun skal útbúa staðlað tilkynningareyðublað um afslátt af leigu vegna afnotamissis.
    3. Í stað orðanna „eða vegna skerðingar á afnotarétti skv. 2. mgr. 21. gr.“ í 2. mgr. 36. gr. laganna kemur: vegna skerðingar á afnotarétti skv. 2. mgr. 21. gr. eða vegna afnotamissis skv. 35. gr.
    4. Við 1. mgr. 60. gr. laganna bætist nýr töluliður, svohljóðandi: Ef leigjandi missir afnot af hinu leigða húsnæði um lengri tíma vegna opinberra fyrirmæla um brottflutning fólks af hættusvæði þar sem húsnæðið stendur. Skal leigjandi þá rýma leiguhúsnæðið án ástæðulauss dráttar þegar fyrirmælunum hefur verið aflétt og eigi síðar en innan sjö daga frá afléttingu þeirra. Hafi húsnæðið ekki verið rýmt innan þess frests skal leigusali eiga rétt á greiðslu leigu vegna þess tíma sem líður frá lokum frestsins þar til leiguhúsnæðið hefur verið rýmt.
    5. Við 1. mgr. 61. gr. laganna bætist nýr töluliður, svohljóðandi: Ef leigjandi missir afnot af hinu leigða húsnæði um lengri tíma vegna opinberra fyrirmæla um brottflutning fólks af hættusvæði þar sem húsnæðið stendur. Skal leigjandi þá rýma leiguhúsnæðið án ástæðulauss dráttar þegar fyrirmælunum hefur verið aflétt og eigi síðar en innan sjö daga frá afléttingu þeirra. Hafi húsnæðið ekki verið rýmt innan þess frests skal leigusali eiga rétt á greiðslu leigu vegna þess tíma sem líður frá lokum frestsins þar til leiguhúsnæðið hefur verið rýmt.
  2. Lög um húsnæðisbætur, nr. 75/2016: Við lögin bætist nýtt ákvæði til bráðabirgða, svohljóðandi:
  3.      Heimilt er að greiða húsnæðisbætur samkvæmt lögum þessum vegna húsnæðis í Grindavíkurbæ enda þótt umsækjandi og aðrir heimilismenn séu ekki búsettir í hinu leigða íbúðarhúsnæði vegna fyrirmæla stjórnvalda um rýmingu á grundvelli laga um almannavarnir vegna jarðhræringa á Reykjanesskaga.
         Heimilt er að greiða húsnæðisbætur vegna íbúðarhúsnæðis enda þótt sértækur húsnæðisstuðningur samkvæmt lögum um sértækan húsnæðisstuðning vegna náttúruhamfara í Grindavíkurbæ sé greiddur samtímis vegna sama húsnæðis enda séu húsnæðisbætur ekki greiddar vegna sömu heimilismanna og sértækur húsnæðisstuðningur. Einstaklingar sem sértækur húsnæðisstuðningur er greiddur vegna teljast þá ekki til heimilismanna í skilningi laga þessara.
  4. Lög um lögheimili og aðsetur, nr. 80/2018: Við lögin bætast tvö ný ákvæði til bráðabirgða, svohljóðandi:
    1. (I.)
    2.      Skráning aðseturs innan lands er heimil þeim einstaklingum sem höfðu lögheimili í Grindavíkurbæ hinn 9. nóvember 2023 og þurftu að yfirgefa heimili sitt samkvæmt ákvörðun yfirvalda hinn 10. nóvember 2023.
           Skráningin gildir þar til lögreglustjóri tilkynnir Þjóðskrá Íslands að skilyrði hennar séu ekki lengur fyrir hendi. Einstaklingum er þó heimilt að halda aðsetursskráningu í allt að eitt ár frá tilkynningu lögreglustjóra.
           Skráning aðseturs samkvæmt þessari grein nær til húsnæðis skv. 3. mgr. 2. gr. en einnig til skráningar í fjöldahjálparstöðvum, frístundabyggð og atvinnuhúsnæði.
    3. (II.)
    4.      Skráning aðseturs Grindvíkinga í desember 2023 samkvæmt ákvæði til bráðabirgða I gildir afturvirkt til 9. nóvember 2023.


Ákvæði til bráðabirgða.
     Lög þessi skal endurskoða fyrir lok febrúar 2024.

Samþykkt á Alþingi 5. desember 2023.