Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF Word Perfect.

Þingskjal 1159, 157. löggjafarþing 531. mál: stjórn fiskveiða (jöfnunarheimild).
Lög nr. 46 12. maí 2026.

Lög um breytingu á lögum um stjórn fiskveiða, nr. 116/2006 (jöfnunarheimild).


1. gr.

     Við lögin bætist nýtt ákvæði til bráðabirgða, svohljóðandi:
     Á fiskveiðiárinu 2025/2026 er ráðherra heimilt að ráðstafa auknu aflamagni til strandveiða til viðbótar við úthlutað aflamagn á fiskveiðiárinu. Viðbótaraflamagn skal ekki fara umfram 2.700 tonn af óslægðum þorski. Eftir fiskveiðiárið 2025/2026 skal því viðbótaraflamagni jafnað gagnvart því aflamagni sem dregið verður frá heildaraflamarki skv. 3. mgr. 8. gr. og skal að fullu jafnað eigi síðar en á fiskveiðiárinu 2029/2030.

2. gr.

     Lög þessi öðlast þegar gildi.

Samþykkt á Alþingi 30. apríl 2026.