Aðrar útgáfur af skjalinu:
PDF
Word Perfect.
Þingskjal 1457, 157. löggjafarþing 565. mál: verndar- og orkunýtingaráætlun (vindorka og verndarflokkur).
Lög nr. 66 28. júní 2026.
Sérstök sjónarmið við mat virkjunarhugmynda til nýtingar á vindorku.
Auk þeirra sjónarmiða sem greinir í 4. mgr. 3. gr. skal verkefnisstjórn horfa sérstaklega til eftirfarandi þátta:
Um meðferð virkjunarhugmynda til nýtingar vindorku fer að öðru leyti eftir almennum ákvæðum laga þessara.
Þingskjal 1457, 157. löggjafarþing 565. mál: verndar- og orkunýtingaráætlun (vindorka og verndarflokkur).
Lög nr. 66 28. júní 2026.
Lög um breytingu á lögum um verndar- og orkunýtingaráætlun, nr. 48/2011 (vindorka og verndarflokkur).
1. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 2. gr. laganna:- Á eftir 1. mgr. kemur ný málsgrein, svohljóðandi:
- Við 2. mgr. bætist ný orðskýring í viðeigandi stafrófsröð, svohljóðandi: Vindorka: Nýting vinds til vinnslu á orku.
2. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 3. mgr. 3. gr. laganna:- Á eftir 1. málsl. kemur nýr málsliður, svohljóðandi: Að auki tekur áætlunin til landsvæða og virkjunarhugmynda í vindorku sem hafa uppsett rafafl 10 MW eða meira eða vindorkumannvirki í hæstu stöðu er hærra en 30 metrar.
- Við bætist nýr málsliður, svohljóðandi: Þegar um er að ræða landsvæði og virkjunarhugmyndir í vindorku tekur verndar- og orkunýtingaráætlun að auki ekki til svæða á B-hluta náttúruminjaskrár, Ramsar-svæða, svæða á heimsminjaskrá UNESCO auk svæða sem tilnefnd hafa verið á skrána.
3. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 6. gr. laganna:- Orðin „gagnvart orkuvinnslu“ í 1. mgr. og 1. málsl. 3. mgr. falla brott.
- 5. mgr. orðast svo:
- Við bætist ný málsgrein, svohljóðandi:
4. gr.
Á eftir tilvísuninni „5.“ í 3. málsl. 3. mgr. 9. gr. laganna kemur: eða 6.5. gr.
Á eftir 10. gr. laganna kemur ný grein, 10. gr. a, ásamt fyrirsögn, svohljóðandi:- hvort viðkomandi sveitarfélag hafi lýst yfir formlegri afstöðu til virkjunarhugmyndar og hvaða sjónarmið liggi til grundvallar; jafnframt skal litið til umsagna nálægra sveitarfélaga hafi virkjunarhugmynd áhrif á hagsmuni þeirra,
- hvort virkjunarhugmynd sé til þess fallin að efla raforkuöryggi og falli að gildandi þingsályktun um stefnu stjórnvalda um uppbyggingu flutningskerfis raforku og sé nærri tengivirkjum og flutningslínum,
- hvaða áhrif virkjunarhugmynd hefði á atvinnu- og byggðaþróun, einkum á svæðum sem standa frammi fyrir áskorunum í byggðamálum samkvæmt gildandi stefnumótandi byggðaáætlun,
- hvort virkjunarhugmynd sé innan marka miðhálendislínu samkvæmt gildandi landsskipulagsstefnu, en innan hennar skal sérstaklega litið til þess hvort slíku svæði hafi þegar verið raskað vegna orkuvinnslu eða uppbyggingar flutningskerfis raforku,
- hvort virkjunarhugmynd sé að öðru leyti á röskuðu svæði, þ.e. svæði þar sem landnotkun eða mannleg umsvif hafa breytt landi frá upprunalegu og náttúrulegu ástandi þess,
- hvort virkjunarhugmynd hafi áhrif á alþjóðlega mikilvæg fuglasvæði, farleiðir fugla og búsvæði, íbúa nærumhverfis, óbyggð víðerni og ásýnd lands og landslags.
Um meðferð virkjunarhugmynda til nýtingar vindorku fer að öðru leyti eftir almennum ákvæðum laga þessara.
6. gr.
Lög þessi öðlast þegar gildi.Samþykkt á Alþingi 19. júní 2026.