Athugið að þetta er ekki nýjasta útgáfa lagasafns.
Athugið að þetta er ekki nýjasta útgáfa lagasafns.
Lagasafn. Íslensk lög í febrúar 1996. Útgáfa 120a. Prenta í tveimur dálkum.
Lyfjalög
1984 nr. 108 14. nóvember
I.–VIII. kafli. …1)
1)L. 93/1994, 45. gr., sbr. l. 112/1994, 1. gr.
IX. kafli. Verðlagning lyfja. Lyfjaverðlagsnefnd. 1)
1)Ákvæði IX. kafla falla úr gildi 15. mars 1996, sbr. l. 112/1994, 1. gr. og l. 118/1995, 3. gr.
32. gr. Verð lyfja skal vera hóflegt. Það skal birta í lyfjaverðskrá, er ráðherra staðfestir.
33. gr. Ráðherra skipar menn í lyfjaverðlagsnefnd, til fjögurra ára í senn, svo sem hér segir:
— Hagfræðing eða viðskiptafræðing að fengnum tillögum Hagstofu Íslands,
— lögfræðing að fengnum tillögum Tryggingastofnunar ríkisins,
— starfandi lyfsala að fengnum tillögum Apótekarafélags Íslands,
— starfandi lyfjafræðing að fengnum tillögum Lyfjafræðingafélags Íslands,
— fimmti maðurinn skal vera sérfróður um lyfsölumál og skipar ráðherra hann án tilnefningar.
Varamenn eru skipaðir á sama hátt.
Ráðherra skipar einn nefndarmanna formann.
Þegar fjallað er um verðlagningu lyfja í heildsölu tekur fulltrúi samkvæmt tillögum Félags ísl. stórkaupmanna sæti lyfsalans í nefndinni.
Þegar fjallað er um framleiðsluverð lyfja, sbr. 3. tölul. 34. gr., tekur fulltrúi samkvæmt tillögum innlendra lyfjaframleiðenda sæti lyfsalans í nefndinni.
Þegar fjallað er um verðlagningu dýralyfja tekur yfirdýralæknir sæti fulltrúa Tryggingastofnunar ríkisins í nefndinni og héraðsdýralæknir samkvæmt tillögum Dýralæknafélags Íslands tekur sæti fulltrúa Lyfjafræðingafélags Íslands.
34. gr. Hlutverk lyfjaverðlagsnefndar er sem hér segir:
1. Að ákveða grundvöll heildsölu- og smásöluálagningar lyfja.
2. Að ákveða grundvöll vinnu- og afhendingargjalda lyfjabúða.
3. Að staðfesta framleiðsluverð lyfja að fengnum tillögum innlendra framleiðenda (lyfjagerða og lyfjabúða).
4. Að gera tillögur um lyfjaverðskrá, sbr. 32. gr.
Við ákvarðanir samkvæmt 1.–3. tölul. skal taka tillit til kostnaðar við framleiðslu, prófana, gæðaeftirlits, sölu og dreifingu.
Lyfsölum, dýralæknum, lyfjaheildsölum og innlendum lyfjaframleiðendum (lyfjagerðum og lyfjabúðum) er skylt að afhenda lyfjaverðlagsnefnd allar þær skýrslur og gögn og veita aðrar upplýsingar, sem hún telur sig þurfa til að rækja starfa sinn. Er nefndinni heimilt að beita dagsektum allt að kr. 5000,00 til að knýja á um skil á framangreindum gögnum. Skulu þær renna í ríkissjóð.
Lyfjaverðlagsnefnd er einnig heimilt að áætla grundvöll álagningar og gjalda samkvæmt 1. og 2. tölul. og framleiðsluverð samkvæmt 3. tölul., ef henni eru ekki látin í té gögn og aðrar upplýsingar samkvæmt framansögðu.
Lyfjaeftirlit ríkisins lætur lyfjaverðlagsnefnd í té upplýsingar um endanlegt kaupverð lyfja eftir því, sem hún óskar, sbr. 50. gr. 4. tölul.
35. gr. Nú eru nefndarmenn í lyfjaverðlagsnefnd allir á einu máli um, hvert skuli vera verð lyfja, og er sú ákvörðun þá bindandi.
Ef nefndarmenn greinir á, sker ráðherra úr.
36. gr. Ráðherra skipar lyfjaverðlagsnefnd ritara í samráði við formann hennar, og annast hann dagleg störf hennar.
Ráðherra setur honum erindisbréf að fengnum tillögum lyfjaverðlagsnefndar.
37. gr. Setja skal í reglugerð 1) nánari ákvæði um starfssvið og starfshætti lyfjaverðlagsnefndar.
1)Rg. 244/1974, sbr. 427/1976 (um viðurkenningu á innkaupsverði sérlyfja).
38. gr. Kostnaður af starfsemi lyfjaverðlagsnefndar, þar á meðal laun nefndarmanna og starfsliðs, greiðist úr ríkissjóði.
X. kafli. Lyfsölusjóður. …1)
1)L. 93/1994, 45. gr.
XI. kafli. Lyfjaeftirlit ríkisins.
49. gr. … 1)
1)L. 93/1994, 45. gr., sbr. l. 112/1994, 1. gr.
50. gr. Hlutverk Lyfjaeftirlits ríkisins er sem hér segir:
-
1.–3. …
1)
4. Að meta kaupverð lyfja og gera tillögur til ráðherra um viðurkenningu á því, sbr. einnig ákvæði 34. gr. 5. mgr. 2)
5.–6. … 1)
… 1)
1)L. 93/1994, 45. gr., sbr. l. 112/1994, 1. gr. 2)Ákvæði þetta fellur úr gildi 15. mars 1996, skv. l. 93/1994, 45. gr., sbr. l. 112/1994, 1. gr. og l. 118/1995, 3. gr.
51.–53. gr. … 1)
1)L. 93/1994, 45. gr., sbr. l. 112/1994, 1. gr.
XII.–XIV. kafli. …1)
1)L. 93/1994, 45. gr.