Athugið að þetta er ekki nýjasta útgáfa lagasafns.
Athugið að þetta er ekki nýjasta útgáfa lagasafns.
Lagasafn. Íslensk lög 1. október 1998. Útgáfa 122b. Prenta í tveimur dálkum.
Lög um Framkvæmdasjóð Íslands
1985 nr. 70 1. júlí
1. gr. [Framkvæmdasjóður Íslands (á ensku The Development Fund of Iceland) er eign ríkissjóðs og undir stjórn Lánasýslu ríkisins. Um starfsemi hans fer eftir lögum nr. 43/1990, um Lánasýslu ríkisins.] 1)
Ríkissjóður ábyrgist allar skuldbindingar Framkvæmdasjóðs.
1)L. 3/1992, 1. gr.
2. gr. [Lánasýslu ríkisins er heimilt að endurfjármagna skuldir Framkvæmdasjóðs í nafni ríkissjóðs.] 1)
1)L. 3/1992, 2. gr.
[3. gr.]1) … 2)
1)L. 3/1992, 3. gr. 2)L. 90/1991, 90. gr.
[4. gr.]1) Framkvæmdasjóður er undanþeginn öllum opinberum gjöldum og sköttum til ríkissjóðs eða sveitarsjóðs eða annarra stofnana.
1)L. 3/1992, 3. gr.
[5. gr.]1) Lög þessi öðlast gildi 1. október 1985.
…
1)L. 3/1992, 3. gr.