Athugið að þetta er ekki nýjasta útgáfa lagasafns.
Athugið að þetta er ekki nýjasta útgáfa lagasafns.
Lagasafn. Íslensk lög 1. janúar 1999. Útgáfa 123a. Prenta í tveimur dálkum.
Lög um einkarétt ríkisstjórnarinnar til þess að flytja trjáplöntur til landsins, og um eftirlit með innflutningi trjáfræs1)
1935 nr. 78 15. apríl
1) Augl. 35/1935.
1. gr. Ríkisstjórnin hefur ein heimild til þess að flytja til landsins hvers konar trjáplöntur, og tekur sú heimild einnig til plantna af öllum tegundum runna, nema rósum. Enn fremur skal ríkisstjórnin taka að sér eftirlit með innflutningi á trjáfræi.
2. gr. Ríkisstjórnin felur skógrækt ríkisins að sjá um innkaup og innflutning erlendra trjáplantna, eftir því sem þörf krefur. Ríkisstjórnin felur einnig skógrækt ríkisins eftirlit með innflutningi á trjáfræi.
3. gr. Skógræktarstjóri, sem framkvæmdarstjóri skógræktarmálanna, sér um innkaup, sölu og afhendingu erlendra trjáplantna. Plönturnar má selja bæði í heildsölu og smásölu, en öll álagning skal ákveðin af ríkisstjórn, eftir tillögum skógræktarstjóra.
4. gr. Skógræktarstjóri skal leggja áherslu á, að til landsins flytjist harðgerðar plöntur, sem líklegar séu til þess að þola íslenskt veðurfar. Skal hann einnig gæta þess, að heilbrigði plantnanna sé ekki ábótavant, svo framarlega sem þess er kostur.
Eftirlit með innflutningi á trjáfræi skal fólgið í því, að skógræktarstjóri getur krafist þeirra heilbrigðisvottorða, sem hann álítur nauðsynleg, með hverri tegund trjáfræs.
5. gr. Sá arður, sem kann að verða af sölu innfluttra trjáplantna, fellur til skógræktar ríkisins, og skal honum ráðstafað á sama hátt og því fé, sem skógrækt ríkisins hefur í þarfir skógræktarmálanna.
6. gr. [Brot gegn lögum þessum varða sektum. Ólöglega innfluttar trjáplöntur skulu gerðar upptækar samkvæmt ákvæðum 69. gr. almennra hegningarlaga. Mál út af brotum þessum sæta meðferð opinberra mála.] 1)
1)L. 10/1983, 55. gr.