Athugið að þetta er ekki nýjasta útgáfa lagasafns.
Athugið að þetta er ekki nýjasta útgáfa lagasafns.
Lagasafn. Íslensk lög 1. janúar 1999. Útgáfa 123a. Prenta í tveimur dálkum.
Lög um gildistöku alþjóðasamnings um samræmingu nokkurra reglna varðandi loftflutninga milli landa
1949 nr. 41 25. maí
1)L. 46/1956, 1. gr.
Fylgiskjal.
Samningur um samræmingu nokkurra reglna varðandi loftflutninga milli landa.
I. kafli. Gildissvið og skýringar.
2. [Í samningi þessum skal flutningur vera talinn milli landa, þegar brottfararstaður og ákvörðunarstaður samkvæmt flutningssamningi eru innan tveggja samningsríkja, og gildir það einnig þótt hlé verði á flutningnum eða skipt sé um loftfar. Séu brottfararstaður og ákvörðunarstaður innan landsvæða sama samningsríkis, skal flutningurinn talinn vera milli landa, ef lenda þarf innan annars ríkis á leiðinni, enda þótt það ríki sé eigi aðili að samningi þessum. Eigi skal flutningur án slíkrar viðkomu milli landsvæða sama samningsríkis teljast millilandaflutningur í samningi þessum.
3. Nú tekur eitt flugfélag við flutningi af öðru, og skal sá flutningur vera talinn óslitinn, ef aðilar flutningssamnings eru sammála um, að um einn og sama flutning sé að ræða, hvort sem einn eða fleiri samningar hafa verið um það gerðir. Skal slíkur flutningur teljast millilandaflutningur, enda þótt einum samningi eða mörgum beri að fullnægja algerlega innan landsvæðis sama ríkis.] 1)
1)Viðbótarsamn., sbr. l. 46/1956.
2. [Samningur þessi skal eigi gilda um flutning bréfa og póstböggla.] 1)
1)Viðbótarsamn., sbr. l. 46/1956.
II. kafli. Flutningsgjöld.
1. hluti. Farmiðar.
a. brottfararstað og ákvörðunarstað;
b. ef brottfarar- og ákvörðunarstaður eru innan landsvæðis sama ríkis, en einn eða fleiri umsamdir viðkomustaðir innan landsvæðis annars ríkis, skal geta um a.m.k. einn slíkan stað;
c. ákvæði þess efnis, að sé ferð farþega heitið til annars lands eða af henni leiði dvöl í öðru landi, þá komi ákvæði Varsjársamningsins til framkvæmda, og að sá samningur gildi um og að jafnaði takmarki bótaskyldu flytjenda vegna dauða, slysa eða tjóns eða skaða á farangri.
2. Farseðill skal, ef hið gagnstæða sannast ekki, gilda sem sönnun á því, að flutningssamningur hafi verið gerður, svo og á ákvæðum hans. Nú er farseðill eigi fyrir hendi eða hann er með óreglulegri gerð eða hann hefur glatast, og breytir það engu um, hvort flutningssamningur sé fyrir hendi né um gildi hans, en háður skal hann engu að síður ákvæðum samnings þessa. Nú hefur farþegi samt sem áður með samþykki flytjanda farið um borð án þess að farseðill hafi verið út gefinn eða án þess að í farseðlinum sé ákvæði það, sem getur í c-lið 1. tölul. þessarar greinar, og er flytjanda þá óheimilt að notfæra sér ákvæði 22. gr.] 1)
1)Viðbótarsamn., sbr. l. 46/1956.
2. hluti. Farangursskírteini.
a. brottfarar- og ákvörðunarstað;
b. ef brottfarar- og ákvörðunarstaður eru innan landsvæðis sama ríkis, en einn eða fleiri umsamdir viðkomustaðir innan landsvæðis annars ríkis, skal geta um a.m.k. einn slíkan stað;
c. ákvæði þess efnis, að sé ferð farþega heitið til annars lands eða af henni leiði dvöl í öðru landi, þá komi ákvæði Varsjársamningsins til framkvæmda, og að sá samningur gildi um og að jafnaði takmarki bótaskyldu flytjanda vegna tjóns eða skaða á farangri.
2. Farangursseðill skal, ef hið gagnstæða sannast ekki, gilda sem sönnun á skrásetningu farangurs og ákvæðum flutningssamnings. Nú er farangursseðill eigi fyrir hendi eða hann er með óreglulegri gerð eða hefur glatast, og breytir það engu um, hvort flutningssamningur sé fyrir hendi né um gildi hans, en háður skal hann engu að síður ákvæðum samnings þessa. Nú tekur flytjandi samt sem áður við farangri, án þess að farangursseðill hafi verið afhentur, eða farangursseðillinn (nema hann sé í sambandi við eða innifalinn í farseðli, sem gerður er í samræmi við ákvæði 3. gr., 1. tölul. c) inniheldur ekki ákvæði það, sem greinir í c-lið þessarar greinar, og er flugfélaginu þá óheimilt að notfæra sér ákvæði 22. gr., 2. tölul.] 1)
1)Viðbótarsamn., sbr. l. 46/1956.
3. hluti. Flugfarmskírteini.
2. Nú er flugfarmskírteini eigi gefið út eða er eigi þess efnis, er áskilið er, eða það hefur týnst, og skal þá farmsamningurinn eigi að síður talinn gildur og háður ákvæðum samnings þessa, sbr. þó 9. gr.
2. Á fyrsta eintakið skal skrifa „handa flytjanda“ og skal það undirritað af sendanda. Á annað eintakið skal skrifa „handa viðtakanda“, og skal það undirritað af sendanda og flytjanda. Skal það fylgja vörunum. Þriðja eintakið skal undirritað af flytjanda, og skal því skilað sendanda, þegar tekið hefur verið við vörunum.
3. [Flytjandi skal skrifa undir skírteinið áður en vörunum er skipað um borð í loftfarið.] 1)
4. Í stað undirskriftar flytjanda skal heimilt að nota stimpil; undirskrift sendanda má vera prentuð eða stimpluð.
5. Nú hefur flytjandi gefið út farmskírteini samkvæmt beiðni sendanda og skal þá talið að hann hafi gefið það í umboði sendanda, nema annað sannist.
1)Viðbótarsamn., sbr. l. 46/1956.
a. brottfararstað og ákvörðunarstað;
b. ef brottfarar- og ákvörðunarstaður eru innan landsvæðis sama ríkis, en einn eða fleiri umsamdir viðkomustaðir innan landsvæðis annars ríkis, skal geta um a.m.k. einn slíkan viðkomustað;
c. aðvörun til sendanda, þess efnis að sé flutningi endanlega heitið til annars lands en brottfararlands, komi ákvæði Varsjársamningsins til framkvæmda, og að sá samningur gildi um og að jafnaði takmarki bótaskyldu flytjenda vegna tjóns eða skaða á farmi.] 1)
1)Viðbótarsamn., sbr. l. 46/1956.
1)Viðbótarsamn., sbr. l. 46/1956.
2. [Hann ber ábyrgð á hvers konar tjóni, sem flytjandi kann að bíða eða aðrir þeir, sem flytjandi ber ábyrgð gagnvart, sakir þess að upplýsingar, er hann hefur gefið, eru óreglulegar, ónákvæmar eða ófullkomnar.] 1)
1)Viðbótarsamn., sbr. l. 46/1956.
2. Upplýsingar í flugfarmskírteini varðandi þyngd vöru, rúmtak, umbúðir og stykkjatölu skulu taldar réttar þar til annað sannast. Aðrar upplýsingar um magn eða rúmtak vöru eða ástand gilda hins vegar ekki sem sönnun gegn flytjanda, nema hann hafi í viðurvist sendanda athugað þær og staðfest það með áritun á flugfarmskírteini eða upplýsingarnar snerta sýnilegt ástand vöru.
2. Sé eigi hægt að framkvæma fyrirmæli sendanda, skal flytjandi tilkynna honum það þegar í stað.
3. Nú fer flytjandi eftir fyrirmælum sendanda um ráðstöfun vöru, án þess að lagt sé fram eintak sendanda af flugfarmskírteini og er flytjandi þá ábyrgur fyrir tjóni, sem sá aðili kann að verða fyrir, er hefur eintakið löglega í sínum vörslum; halda skal þó flytjandi rétti sínum til að krefjast bóta af sendanda.
4. Réttur sendanda fellur niður um leið og réttur viðtakanda samkvæmt 13. gr. byrjar. Nú neitar viðtakandi að taka við skírteini eða vöru eða ekki er hægt að ná sambandi við hann, og getur þá sendandi haldið ráðstöfunarrétti sínum.
2. Ef eigi er annað tiltekið, skal flytjandi tilkynna viðtakanda án tafar um komu vörunnar.
3. Nú viðurkennir flytjandi að varan hafi glatast eða varan er ekki komin fram í síðasta lagi 7 dögum eftir áætlun og getur viðtakandi þá beitt ákvæðum samningsins gegn flytjanda.
2. Ákvæðum 12., 13. og 14. gr. verður aðeins breytt sé um það getið í flugfarmskírteini.
3. [Ekkert ákvæði samnings þessa skal skilið svo, að það geti hindrað útgáfu framseljanlegs flugfarmskírteinis.] 1)
1)Viðbótarsamn., sbr. l. 46/1956.
2. Á flytjandanum hvílir ekki skylda til að rannsaka hvort þessar upplýsingar eða skjöl eru réttar eða tæmandi.
III. kafli. Ábyrgð flytjanda.
2. Með hugtakinu „loftflutningi“ í 1. mgr. er átt við tímabilið meðan farangur eða vara er í vörslum flytjanda á flugvelli, um borð í loftfari eða við lendingu utan flugvallar annars staðar.
3. Loftflutningur tekur ekki til flutnings á láði eða legi utan flugvallar. Fari slíkur flutningur fram samkvæmt flutningssamningnum með útskipun, afhendingu eða umhleðslu skal gert ráð fyrir að hvers konar tjón sem af hlýst hafi orðið meðan á loftflutningi stóð, uns annað sannast.
2. … 1)
1)Viðbótarsamn., sbr. l. 46/1956.
2. a. Við flutning skráðs farangurs og farms skal bótaábyrgð flytjanda eigi fara fram úr tvö hundruð og fimmtíu frönkum fyrir hvert kíló. Hámark þetta gildir þó eigi, ef sendandi hefur við afhendingu vara til flytjanda gefið sérstaka yfirlýsingu um þá hagsmuni, sem við afhendingu á ákvörðunarstað eru tengdir, og greitt aukagjald, ef á þarf að halda. Hin tilgreinda upphæð skal þá vera hámark bótaskyldu flytjanda, nema hann sanni að raunverulegir hagsmunir sendanda eða farþega hafi verið minni.
b. Nú verður tjón, skaði eða töf á hluta skráðs farangurs eða farms eða á einhverjum grip þar í, og skal eigi taka meiri þunga til greina við ákvörðun þeirrar upphæðar, sem ábyrgð flytjanda takmarkast við, en samanlagðan þunga bögguls eða böggla þeirra, er um er að ræða. Nú snertir tjón, skaði eða töf hluta hins skráða farangurs eða farms eða gripa þar í, verðmæti annarra böggla, sem sami farangursseðill eða flugfarmskírteini nær til, og skal þá einnig tekinn til greina samanlagður þungi slíks bögguls eða böggla, þegar ákvarða skal hámark bótaskyldu.
3. Að því er snertir farangur, sem farþegi hefur í sínum vörslum, er hámark bótaskyldu flytjanda takmarkað við fimm þúsund franka fyrir hvern farþega.
4. Þó að hér sé greint hámark bótaskyldu, er dómstólum þó heimilt í samræmi við landslög að dæma aukalega til greiðslu hluta af málskostnaði eða málskostnaðar alls og til greiðslu annars kostnaðar við málssókn, sem kærandi kann að hafa orðið að greiða. Eigi gildir þó þetta ákvæði, ef bótaupphæðin, sem dæmd er, auk málskostnaðar og annars kostnaðar við málssókn, fer eigi fram úr þeirri upphæð, sem flytjandi hefur skriflega boðist til að greiða innan sex mánaða frá því er atburður sá varð, sem skaðanum olli, eða áður en málssókn var hafin, ef síðar varð.
5. Upphæðir þær, sem greindar eru í frönkum í þessari grein, skulu miðast við gjaldeyriseiningu, er sé sextíu og fimm og hálft milligramm gulls, sem er níu hundruð þúsundustu að skírleika. Þegar breyta þarf slíkum upphæðum í mynt viðkomandi lands, má láta standa á jafnri mynteiningu. Umreikning umræddra upphæða í mynt viðkomandi lands, nema gullmynt sé, skal fara fram eftir skráðu gullgengi umræddrar myntar á þeim degi, er dómur er upp kveðinn, ef um málssókn verður að ræða.] 1)
1)Viðbótarsamn., sbr. l. 46/1956.
2. [Eigi gildir 1. tölul. þessarar greinar um ákvæði varðandi tjón eða skaða, sem stafar af eðli eða ágalla í farmi þeim, sem fluttur er.] 1)
1)Viðbótarsamn., sbr. l. 46/1956.
2. Hið sama gildir um tilvik þau, er um ræðir í 17. gr. Samningur þessi tekur eigi afstöðu til þess, hver eigi rétt á skaðabótum né hvaða tjón sé skaðabótaskylt.
1)Viðbótarsamn., sbr. l. 46/1956.
2. Í slíku tilfelli skal samanlögð bótafjárhæð sú, er flytjandi, starfsmenn hans eða umboðsmenn eiga að greiða, ekki fara fram úr greindu hámarki.
3. Ákvæði 1. og 2. tölul. þessarar greinar skulu eigi gilda, ef það sannast, að tjónið hefur orðið af völdum eða aðgerðaleysi starfsmanns eða umboðsmanns, gert í þeim tilgangi að valda tjóni eða af kæruleysi, meðvitandi þess, að tjón myndi geta af hlotist.] 1)
1)Viðbótarsamn., sbr. l. 46/1956.
2. [Verði um tjón að ræða, ber móttakanda að tilkynna flytjanda það jafnskjótt og þess verður vart, í síðasta lagi sjö dögum eftir móttökudag, ef um farangur er að ræða, og fjórtán dögum, ef um farm er að ræða. Ef um tafir er að ræða, ber að senda slíka kvörtun í síðasta lagi tuttugu og einum degi eftir að afhending hefur farið fram.] 1)
3. Tilkynning skal skráð á flutningsskírteini eða send bréflega áður en frestur er liðinn.
4. Sé tjón eigi tilkynnt innan hinna tilskildu tímamarka falla niður kröfur á hendur flytjanda, enda sé eigi um svik að ræða af hans hálfu.
1)Viðbótarsamn., sbr. l. 46/1956.
2. Réttarfarsákvæði fara eftir lögum þess lands, sem mál er höfðað í.
2. Ákvörðun frests fer eftir lögum þess lands, sem mál er höfðað í.
2. Farþegi eða þeir, er taka við réttindum hans, geta einungis beint kröfum sínum til þess flytjanda, sem hefur séð um þann hluta flutningsins, sem tjón eða dráttur varð í sambandi við, enda hafi fyrsti flytjandi eigi samkvæmt beinum samningi tekið að sér ábyrgð á öllum flutningnum.
3. Þegar um er að ræða flutning á skráðum farangri eða vörum, getur sendandi beint kröfum sínum til fyrsta flytjanda, en sá sem rétt á á afhendingu getur beint sínum kröfum til síðasta flytjanda. Hvor um sig getur þar að auki snúið sér að þeim flytjanda, sem sá um flutninginn, þegar eyðilegging, glötun, tjón eða dráttur varð. Flytjendur þessir eru ábyrgir in solidum gagnvart sendanda og þeim, sem afhenda ber vöruna.
IV. kafli. Flutningur með ýmislegum farartækjum.
2. Samningur þessi skal eigi vera því til fyrirstöðu, að aðilar flutningssamnings taki skilmála þess flutnings, sem eigi fer fram í lofti, upp í loftfarmskírteini, enda sé farið eftir ákvæðum samnings þessa varðandi loftflutninginn.
V. kafli. Lokaákvæði.
1)Viðbótarsamn., sbr. l. 46/1956.
2. Þegar fimm aðilar hafa fullgilt samning þennan skal hann ganga í gildi þeirra í milli á nítugasta degi eftir að fimmta fullgildingarskjalið var afhent. Hann skal ganga í gildi milli ríkja, sem hafa fullgilt hann, og ríkis, sem síðar afhendir fullgildingarskjal sitt, á nítugasta degi eftir þá afhendingu.
3. Ríkisstjórn lýðveldisins Póllands skal tilkynna ríkisstjórn hvers aðila hvenær samningur gengur í gildi og hvenær hvert fullgildingarskjal er afhent.
2. Aðild fer fram með tilkynningu til ríkisstjórnar lýðveldisins Póllands, er skal skýra öðrum aðilum frá aðildinni.
3. Aðild tekur gildi á nítugasta degi eftir að ríkisstjórn lýðveldisins Póllands hefur verið tilkynnt um hana.
2. Uppsögnin gengur í gildi sex mánuðum eftir að tilkynning um uppsögn hefur farið fram, en einungis að því er varðar þann aðila, sem uppsögn hefur tilkynnt.
2. Aðilar geta og síðar staðfest samninginn sérstaklega að því er varðar allar eða nokkrar af nýlendum þeirra, verndarlöndum, gæslusvæðum eða öðrum lendum, er lúta þeirra fullveldi, yfirráðum eða umráðum og voru undanskildar ákvæðum samningsins í hinni upphaflegu yfirlýsingu þeirra.
3. Loks geta aðilar samkvæmt ákvæðum þessum sagt upp samningi þessum sérstaklega, að því er varðar allar eða nokkrar af nýlendum sínum, verndarlöndum, gæslusvæðum eða öðrum lendum, er lúta fullveldi þeirra, yfirráðum eða umráðum.
2. Að því er samning þennan snertir, merkir orðið landsvæði (territoire) ekki einungis heimaland ríkis, heldur einnig öll önnur landsvæði, sem ríkið fer með utanríkismál fyrir.] 1)
1)Viðbótarsamn., sbr. l. 46/1956.
Viðbótarbókun.
Við 2. gr. Samningsaðilar áskilja sér rétt til þess að lýsa því yfir við fullgildingu eða staðfestingu samningsins, að ákvæði 1. mgr. 2. gr. hans taki ekki til loftflutninga milli landa, sem framkvæmdir eru beinlínis af ríkinu, nýlendum þess, verndarlendum, gæslulendum eða öðrum lendum, sem eru undir fullveldi þess, vernd eða yfirráðum.
[II. kafli. Gildi samningsins svo sem honum hefur verið breytt.
1)Viðbótarsamn., sbr. l. 46/1956.