Lagasafn. Íslensk lög í janúar 2002. Útgáfa 127a. Prenta í tveimur dálkum.
Lög um sjúkraþjálfun
1976 nr. 58 31. maí
1. gr. Rétt til að starfa sem sjúkraþjálfari hér á landi og kalla sig sjúkraþjálfara hefur sá einn, sem til þess hefur fengið leyfi heilbrigðisráðherra.
2. gr. [Leyfi skv. 1. gr. skal veita íslenskum ríkisborgurum og ríkisborgurum í EES-ríki sem lokið hafa prófi frá skóla sem viðurkenndur er fullkominn sjúkraþjálfunarskóli af heilbrigðisstjórn þess lands sem námið er stundað í. Leita skal umsagnar stjórnar námsbrautar í sjúkraþjálfun við Háskóla Íslands og landlæknis áður en leyfi er veitt.]
1)
1)L. 116/1993, 7. gr.
3. gr. [Nú uppfyllir maður skilyrði 2. gr. að öðru leyti en því að hann hefur hvorki íslenskt ríkisfang né ríkisfang í EES-ríki og er þá ráðherra heimilt að veita honum ótakmarkað eða tímabundið leyfi til að stunda sjúkraþjálfun, enda hafi stjórn námsbrautar í sjúkraþjálfun við Háskóla Íslands og landlæknir mælt með leyfisveitingunni.]
1)
1)L. 116/1993, 7. gr.
4. gr. Sjúkraþjálfari starfar við hæfingu og endurhæfingu sjúkra og heilbrigðra sem fólgin er í þjálfun, fræðslu og kennslu.
5. gr. Ekki má sjúkraþjálfari taka sjúkling til meðferðar án samráðs við lækni.
6. gr. Óheimilt er að ráða til hvers konar sjúkraþjálfarastarfa aðra en þá, sem starfsleyfi hafa skv. 2. eða 3. gr.
7. gr. Sjúkraþjálfara er heimilt að hafa sér til aðstoðar fólk, sem ávallt skal starfa á ábyrgð og undir handleiðslu hans. Aðstoðarfólk þetta hefur ekki heimild til að taka að sér sjálfstætt verkefni á neinu sviði, sem undir sjúkraþjálfun fellur.
8. gr. Sjúkraþjálfara ber að þekkja skyldur sínar, viðhalda þekkingu sinni og tileinka sér nýjungar, er varða sjúkraþjálfun.
9. gr. Sérhverjum sjúkraþjálfara er skylt að gæta þagmælsku um atriði, sem hann fær vitneskju um í starfi sínu og leynt skulu fara samkvæmt lögum eða eðli málsins. Sama þagnarskylda hvílir á öllu aðstoðarfólki sjúkraþjálfara og helst þagnarskyldan þótt viðkomandi láti af starfi.
10. gr. Verði landlæknir þess var, að sjúkraþjálfari vanrækir skyldur sínar, fer út fyrir verksvið sitt eða brýtur í bága við fyrirmæli laga eða heilbrigðisyfirvalda, skal hann áminna viðkomandi. Nú kemur áminning ekki að haldi og ber þá landlækni að kæra málið fyrir ráðherra. Getur þá ráðherra úrskurðað, að viðkomandi skuli sviptur starfsleyfi, en skjóta má þeim úrskurði til dómstóla.
11. gr. Um sjúkraþjálfara gilda að öðru leyti, eftir því sem við getur átt, reglur laga um lækningaleyfi, réttindi og skyldur lækna og annarra, er lækningaleyfi hafa, og um skottulækningar. Reglur laga um þessi efni gilda um refsingu vegna brota sjúkraþjálfara, um sviptingu starfsleyfis og um endurveitingu leyfis.

Með mál út af brotum gegn lögum þessum skal farið að hætti opinberra mála.
12. gr. Ráðherra getur sett nánari ákvæði í reglugerð
1) um framkvæmd laga þessara.
1)Rg. 318/2001.