Athugið að þetta er ekki nýjasta útgáfa lagasafns.
Athugið að þetta er ekki nýjasta útgáfa lagasafns.
Lagasafn. Íslensk lög í janúar 2002. Útgáfa 127a. Prenta í tveimur dálkum.
Lög um Þjónustu- og endurhæfingarstöð sjónskertra
1984 nr. 18 24. apríl
1. gr. Ríkið starfræki stofnun sem nefnist Þjónustu- og endurhæfingarstöð sjónskertra. Fyrir stofnuninni skal vera yfirlæknir, sérmenntaður í augnsjúkdómum og skal hann annast daglega stjórn stofnunarinnar. Aðrir starfsmenn skulu vera sjóntækja- og sjónfræðingar, sjónþjálfar, félagsráðgjafar, tæknimenn ásamt aðstoðarfólki.
2. gr. [Ráðherra skipar yfirlækni til fimm ára í senn að fengnum tillögum stöðunefndar samkvæmt lögum um heilbrigðisþjónustu. Yfirlæknir ræður aðra starfsmenn stofnunarinnar.] 1)
1)L. 83/1997, 55. gr.
3. gr. Stofnunin heyrir undir heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra sem skipar henni sérstaka stjórn. Stjórnin skal skipuð þremur mönnum og þremur til vara til fjögurra ára í senn. Ráðherra skipar einn án tilnefningar og skal hann vera formaður. Blindrafélagið tilnefnir einn og Augnlæknafélag Íslands einn. Sömu reglur gilda um varamenn.
4. gr. Stofnunin skal annast hvers konar þjónustu við sjónskerta, svo sem sjúkdómsgreiningu, mælingu, úthlutun sérhæfðra hjálpartækja, þjálfun og hvers konar endurhæfingu sem sjónskertir þurfa á að halda.
Stofnunin skal í samráði við landlækni halda skrá yfir alla þá landsmenn sem eru sjónskertir.
Við stofnunina skal starfrækja sjóngleraþjónustu undir stjórn sjóntækjafræðings.
Stofnunin hefur yfirumsjón með þjálfun og endurhæfingu sjónskertra, sjóntækjameðferð og sjónrannsóknum í samráði við aðra aðila er starfa á þessum vettvangi.
5. gr. Stofnunin skal annast útvegun á hvers konar sérhæfðum hjálpartækjum fyrir sjónskerta sem yfirlæknir hennar eða aðrir læknar á vegum stöðvarinnar úrskurða nauðsynleg.
Ráðherra setur að fengnum tillögum stjórnar stofnunarinnar reglur 1) um þátttöku ríkisins í kostnaði vegna slíkra tækja í samræmi við hliðstæðar greiðslur almannatrygginga.
1)Rg. 59/1987.
6. gr. Að fengnum tillögum stjórnar stofnunarinnar er ráðherra heimilt að setja með reglugerð gjaldskrá fyrir veitta þjónustu stöðvarinnar og skal sú gjaldskrá vera í samræmi við gjöld fyrir aðra veitta sérfræðiþjónustu.
7. gr. Stofnunin skipuleggur í samráði við landlækni ferðir starfsmanna sinna og annarra sérfræðinga til aðstoðar sjónskertum úti á landi.
8. gr. Stofnunin hefur í samráði við starfandi kennara blindradeildar sérfræðilega umsjón með sjónþjálfun og augnlæknisfræðilegri meðferð og rannsókn sjónskertra nemenda í skólum landsins.
9. gr. Heilsugæslustöðvar skulu hafa samráð við stofnunina um þá þjónustu við blinda og sjónskerta sem veitt er á stöðvunum. Skulu heilsugæslustöðvar tilkynna stofnuninni um alla sem eru eða grunur leikur á að séu sjónskertir.
10. gr. Ráðherra ákveður aðsetur stofnunarinnar að höfðu samráði við stjórn hennar og skal heimilt að samnýta húsnæði með öðrum opinberum aðilum eða hagsmunaaðilum eftir því sem um semst. Sama gildir um starfsfólk.
11. gr. Ráðherra setur stofnuninni starfsreglur að fengnum tillögum stjórnar hennar.
12. gr. Lög þessi öðlast gildi 1. janúar 1985.
Ákvæði til bráðabirgða. …