Athugið að þetta er ekki nýjasta útgáfa lagasafns.
Athugið að þetta er ekki nýjasta útgáfa lagasafns.
Lagasafn. Íslensk lög í janúar 2002. Útgáfa 127a. Prenta í tveimur dálkum.
Lög um útflutning hrossa
1994 nr. 161 31. desember
1. gr. Útflutningur á hrossum er heimill án sérstakra leyfa nema þegar um er að ræða úrvalskynbótagripi. Útflutningshross skulu vera á aldrinum fjögurra mánaða til 15 vetra. Þó má flytja úr landi eldri kynbótahross en þá einungis í flugvélum. Óheimilt er að flytja úr landi fylfullar hryssur sem gengnar eru með sjö mánuði eða lengur.
2. gr. Öll hross sem flutt eru úr landi skulu heilbrigðisskoðuð af embættisdýralækni. Skoðun skal ávallt miða við þær kröfur sem gerðar eru í innflutningslandi. Einungis er heimilt að flytja úr landi heilbrigð og rétt sköpuð hross og skulu þau merkt með þeim hætti að ekki verði um villst. Dýralæknir á útflutningshöfn skal ganga úr skugga um að útflytjendur skili skrá yfir útflutningshross og að merkingar séu í samræmi við þá skrá og upprunavottorð. Skrá þessi fylgir hrossunum í flutningsfari. Heimilt er yfirdýralækni að ráða sérstakan dýralækni til að hafa eftirlit með útflutningi hrossa.
Gjald fyrir skoðun á útflutningshrossum greiðist úr útflutningssjóði.
3. gr. Flutningsfar fyrir hross og öll aðstaða, svo sem rými, loftræsting, brynningartæki og aðstaða til fóðrunar, skal vera með þeim hætti að sem best verði að hrossunum búið. Yfirdýralæknir eða fulltrúi hans skal líta eftir að reglum um aðbúnað sé fylgt.
Á tímabilinu 1. nóvember til 15. apríl er einungis heimilt að flytja hross til útlanda með viðurkenndum flutningaskipum eða með flugvélum.
4. gr. Hrossum, sem flutt eru úr landi, skal fylgja vottorð frá [Bændasamtökum Íslands] 1) er staðfesti uppruna hrossins og ætterni.
Innlendir hrossaræktendur og samtök þeirra eiga forkaupsrétt að úrvalskynbótagripum sem áformað er að flytja úr landi. [Bændasamtök Íslands geta] 1) óskað eftir því við landbúnaðarráðuneytið að það fresti útflutningi á þeim í allt að tvær vikur á meðan forkaupsréttur er boðinn. Við boð á forkaupsrétti skal miða við uppgefið útflutningsverð.
Hrossaræktarnefnd, sem starfar skv. 5. og 6. gr. laga nr. 84/1989, 2) um búfjárrækt, skal árlega ákveða mörk kynbótamats sem hross þarf að hafa til að teljast úrvalskynbótagripur.
1)L. 73/1996, 32. gr. 2)Nú l. 70/1998.
5. gr. Útflutningsgjald skal leggja á hvert útflutt hross og skal það innheimt við útgáfu upprunavottorðs. [Gjaldið skal vera 6.800 kr. og greiðist í sérstakan útflutningssjóð í vörslu landbúnaðarráðuneytisins. Er því ætlað að standa undir kostnaði við skoðun á útflutningshrossum og útgáfu upprunavottorðs en 5% gjaldsins skal greiða í stofnverndarsjóð sem starfar skv. 15. gr. búnaðarlaga, nr. 70/1998.] 1) Eftirstöðvum hvers árs skal varið til útflutnings- og markaðsmála, að fengnum tillögum útflutnings- og markaðsnefndar.
Reikninga sjóðsins skal birta árlega í Stjórnartíðindum og þeir endurskoðaðir af Ríkisendurskoðun.
1)L. 15/1999, 1. gr., sbr. og brbákv. með þeim lögum.
6. gr. Skipa skal fimm manna nefnd, útflutnings- og markaðsnefnd, er hafi það hlutverk að vera ráðgefandi um málefni er snerta útflutning á hrossum og gera tillögur um ráðstöfun á eftirstöðvum útflutningsgjalds, sbr. 5. gr. [Bændasamtök Íslands], 1) Félag hrossabænda, yfirdýralæknir og hrossaútflytjendur skulu tilnefna aðila í nefndina en ráðherra skipar formann án tilnefningar.
1)L. 73/1996, 32. gr.
7. gr. Landbúnaðarráðherra fer með framkvæmd laga þessara og setur í reglugerð 1) nánari ákvæði um framkvæmd þeirra, þar með talið kröfur um heilbrigði er taki mið af kyni og aldri hrossa sem flytja á úr landi, skoðun og merkingu útflutningshrossa, aðstöðu í útflutningshöfn og meðferð þeirra upplýsinga sem útflytjanda er skylt að leggja fram og sem upprunavottorð byggist á.
1)Rg. 220/1995, sbr. 345/1998, 408/1999 og 341/2000.
8. gr. Brot gegn lögum þessum varða sektum nema þyngri refsing liggi við samkvæmt öðrum lögum.
9. gr. Lög þessi öðlast gildi 15. apríl 1995. …