Athugið að þetta er ekki nýjasta útgáfa lagasafns.
Athugið að þetta er ekki nýjasta útgáfa lagasafns.
Lagasafn. Íslensk lög í janúar 2002. Útgáfa 127a. Prenta í tveimur dálkum.
Lög um heimild til samninga um álbræðslu á Grundartanga
1997 nr. 62 27. maí
1) Augl. B 596/1997.
1. Þrátt fyrir breytingar, sem síðar kunna að verða á lögum nr. 75/1981, um tekjuskatt og eignarskatt, með áorðnum breytingum, skal félagið greiða 33% tekjuskatt með eftirfarandi sérákvæðum:
a. Ákvæði 8. tölul. 1. mgr. 31. gr. laga nr. 75/1981, sem heimilar frádrátt er nemur 7% af nafnverði hlutafjár frá skattskyldum tekjum, skal ekki eiga við.
b. Þrátt fyrir 7. tölul. 1. mgr. 3. gr. og 2. tölul. 1. mgr. 71. gr. laga nr. 75/1981 og 2. mgr. 3. gr. laga nr. 94/1996 skal skattur ekki lagður á eða dreginn frá arði, sem úthlutað er til hluthafa sem búsettir eru í OECD-ríki, að því tilskildu að hluthafinn uppfylli skilyrði i) og ii) liðar b-liðar 2. mgr. 12. gr. samnings milli Bandaríkjanna og Íslands til að koma í veg fyrir tvísköttun, nr. 22/1975, sem birtur er í Stjórnartíðindum.
c. Fastafjármunir vegna byggingar bræðslunnar skulu teljast byggingar, vélar og tæki í ákveðnum hlutföllum sem samið verður um. Fastafjármunir, sem að öðru leyti er aflað vegna viðhalds eða endurbóta á bræðslunni, skulu flokkaðir í samræmi við 32. og 38. gr. laga nr. 75/1981. Fyrningu skal hagað í samræmi við 5. tölul. þessarar greinar.
d. Félaginu skal heimilt að draga frá skattskyldum tekjum á hverju ári eftirstöðvar rekstrartapa frá síðustu átta almanaksárum eins og nánar er kveðið á um í 7. tölul. 1. mgr. 31. gr. laga nr. 75/1981.
e. Félaginu skal heimilt að draga frá skattskyldum tekjum á hverju ári og leggja í sérstakan innri fjárfestingarsjóð fjárhæð sem svarar til 4% af nafnverði hlutafjár. Fé, sem verið hefur í fjárfestingarsjóði og notað er til fjárfestinga í fyrnanlegum eignum innan sex ára frá því að það var lagt inn, skal telja til skattskyldra tekna félagsins á því ári sem fjárfestingin á sér stað. Félaginu skal heimilt að auka fyrningu eigna um sömu fjárhæð á því ári.
Fé í hinum sérstaka fjárfestingarsjóði, sem ekki hefur verið notað til fjárfestinga eða til að vega upp á móti rekstrartapi innan framangreindra tímamarka, skal telja til skattskyldra tekna og það skattlagt með skatthlutfalli þess árs þegar það var lagt inn. Það sama skal eiga við ef félagið er leyst upp.
2. Félagið skal undanþegið eignarskatti skv. 1. mgr. 84. gr. laga nr. 75/1981, um tekjuskatt og eignarskatt, og sérstökum eignarskatti skv. 1. mgr. 3. gr. laga nr. 83/1989.
3. Félagið skal vera undanþegið iðnlánasjóðsgjaldi samkvæmt lögum nr. 76/1987, 1) um Iðnlánasjóð, iðnaðarmálagjaldi samkvæmt lögum nr. 134/1993, um iðnaðarmálagjald, og markaðsgjaldi samkvæmt lögum nr. 114/1990, um Útflutningsráð Íslands, með áorðnum breytingum, sem og sköttum eða gjöldum sömu eða að verulegu leyti svipaðrar tegundar sem síðar kynnu að verða lögð á til viðbótar við eða í staðinn fyrir iðnlánasjóðsgjald, iðnaðarmálagjald eða markaðsgjald.
4. Sérákvæði 1., 2. og 3. tölul. að framan skulu gilda fyrsta samningstímabilið (eins og það er skilgreint í samningnum) eða þar til kemur til fyrri uppsagnar á samningnum skv. 1. gr. Verði gerðar breytingar á lögum nr. 75/1981 skal félagið eiga rétt á að sérákvæði verði endurskoðuð í þeim tilgangi að tryggja að ekki séu lagðir á félagið þyngri skattar en ef það væri skattlagt samkvæmt lögunum, án hinna áðurnefndu sérstöku ákvæða.
5. Á því ári þegar nýjar eignir eru teknar í notkun getur félagið valið að fyrna þær í hlutfalli við notkun á árinu í stað fullrar árlegrar fyrningar skv. 33. gr. laga nr. 75/1981. Þrátt fyrir ákvæði 34. og 45. gr. laga nr. 75/1981 skal félaginu heimilt að fyrna eignir sínar að fullu.
6. Í stað fasteignaskatts skv. II. kafla laga nr. 4/1995, um tekjustofna sveitarfélaga, með áorðnum breytingum, og sérstaks fasteignaskatts á fasteignir, sem nýttar eru til verslunarreksturs eða skrifstofuhalds, samkvæmt bráðabirgðaákvæði sömu laga, sem og sköttum eða gjöldum sömu eða að verulegu leyti svipaðrar tegundar sem síðar kynnu að verða lögð á til viðbótar við eða í staðinn fyrir fasteignaskatt, skal félagið greiða Hvalfjarðarstrandarhreppi og Skilmannahreppi fasteignaskatt sem skal vera 0,75% af 2.393 millj. kr., sem er áætlað verðmæti bygginga, athafnasvæðis og mannvirkja sem þarf til um 60 þús. lesta álframleiðslu á ári, miðað við byggingarvísitölu 1. desember 1996 (217,8 stig). [Þá skal félagið greiða Hvalfjarðarstrandarhreppi og Skilmannahreppi fasteignaskatt sem skal vera 0,75% af 826.444 þús. kr., sem er áætlað verðmæti bygginga sem þarf til aukinnar álframleiðslu um 30 þús. lestir, miðað við byggingarvísitölu 1. desember 1999 (236,6 stig).] 2) Fasteignaskattur skal lagður á og innheimtur fyrir sérhvert ár á grundvelli álagningarstofnsins svo sem hann er framreiknaður samkvæmt byggingarvísitölu desembermánaðar næstliðins árs. Hann skal lagður á í fyrsta sinn 1. janúar næsta ár eftir gangsetningu álbræðslunnar. [Fasteignaskattur skv. 2. málsl. skal lagður á í fyrsta sinn 1. janúar næsta ár eftir að framleiðslugetan er komin í 90 þús. lesta álframleiðslu á ári.] 2)
7. Stimpilgjöld skulu, þegar þeirra yrði krafist í samræmi við lög nr. 36/1978, um stimpilgjald, vera 0,15% af kaup- eða leigusamningum sem útgefnir eru eða gerðir af hálfu félagsins og af fjárfestingarlánum sem félagið kann að taka í sambandi við byggingu bræðslunnar og hafnarbúnaðar, sem og af öllum stimpilskyldum skjölum sem nauðsynleg eru í sambandi við stofnun félagsins. Lán, sem tekin eru í stað fjárfestingarlána, sem og hlutabréf í félaginu, skulu undanþegin stimpilgjaldi.
8. Með samningum, sem gerðir verða innan ramma laga þessara, má ákveða að félagið skuli greiða umsamda fjárhæð til Hvalfjarðarstrandarhrepps og Skilmannahrepps í stað byggingarleyfisgjalds samkvæmt lögum nr. 54/1978 3) og gatnagerðargjalds samkvæmt lögum nr. 17/1996, um gatnagerðargjald, og umsamda fjárhæð til ríkissjóðs í stað skipulagsgjalda samkvæmt lögum nr. 19/1964. 3)
9. Samningar, sem gerðir eru samkvæmt lögum þessum, mega kveða á um meginreglur um endurskoðun skattlagningar félagsins þannig að heildarskattbyrði þess á Íslandi haldist óbreytt.
1)Felld úr gildi með l. 60/1997. 2)L. 12/2000, 1. gr. 3)Nú l. 73/1997.