Athugið að þetta er ekki nýjasta útgáfa lagasafns.
Athugið að þetta er ekki nýjasta útgáfa lagasafns.
Lagasafn. Íslensk lög í janúar 2002. Útgáfa 127a. Prenta í tveimur dálkum.
Lög um opinbert eftirlit með fjármálastarfsemi
1998 nr. 87 16. júní
I. kafli. Markmið og gildissvið.
1. gr. Markmið og skilgreiningar.
Markmið laga þessara er að stuðla að því að fjármálastarfsemi sem lög þessi taka til sé í samræmi við lög, reglugerðir, reglur og samþykktir sem hverju sinni gilda um starfsemina.
Með fjármálastarfsemi er í lögum þessum átt við hvers konar starfsemi fyrirtækja, stofnana og annarra aðila sem tilgreindir eru í 2. gr.
Með eftirlitsskyldum aðilum er í lögum þessum átt við aðila sem eftirlit Fjármálaeftirlits tekur til skv. 2. gr.
2. gr. Eftirlitsskyld starfsemi.
Eftirlit samkvæmt þessum lögum tekur til starfsemi eftirtalinna aðila:
1. viðskiptabanka og sparisjóða,
2. lánastofnana annarra en viðskiptabanka og sparisjóða,
3. vátryggingafélaga,
4. félaga og einstaklinga sem stunda vátryggingamiðlun,
5. fyrirtækja í verðbréfaþjónustu,
6. verðbréfasjóða og rekstrarfélaga verðbréfasjóða,
7. [kauphalla og skipulegra tilboðsmarkaða], 1)
8. verðbréfamiðstöðva,
9. lífeyrissjóða,
10. aðila, annarra en greinir í 1. tölul., sem heimild hafa lögum samkvæmt til þess að taka við innlánum.
Lögin taka einnig til eftirlits með annarri starfsemi en greinir í 1. mgr. sem Fjármálaeftirlitinu er falið samkvæmt sérstökum lögum.
Um eftirlit með starfsemi innlendra aðila erlendis og erlendra aðila hér á landi fer samkvæmt ákvæðum sérlaga og alþjóðasamningum sem Ísland er aðili að.
Þegar vafi leikur á um hvort starfsemi fellur undir þessa grein sker stjórn Fjármálaeftirlitsins úr.
1)L. 11/2000, 1. gr.
II. kafli. Stjórnsýsla.
3. gr. Stofnun.
Með eftirlit samkvæmt lögum þessum fer sérstök stofnun er nefnist Fjármálaeftirlitið. Fjármálaeftirlitið er ríkisstofnun og lýtur sérstakri stjórn. Stofnunin heyrir undir viðskiptaráðherra.
4. gr. Stjórn.
Með yfirstjórn Fjármálaeftirlitsins fer þriggja manna stjórn sem viðskiptaráðherra skipar til fjögurra ára í senn. Einn stjórnarmaður skal skipaður eftir tilnefningu frá Seðlabanka Íslands. Varamenn skulu skipaðir með sama hætti. Ráðherra skipar formann stjórnar og ákveður þóknun stjórnarmanna.
Hlutverk stjórnar er að móta áherslur í starfi og fylgjast með starfsemi og rekstri Fjármálaeftirlitsins. Meiri háttar ákvarðanir skal bera undir stjórnina til samþykktar eða synjunar.
5. gr. Forstjóri. Starfsmenn.
Forstjóri Fjármálaeftirlitsins er ráðinn af stjórn stofnunarinnar. Forstjóri annast daglega stjórnun á starfsemi og rekstri stofnunarinnar. Stjórn stofnunarinnar ákveður starfskjör forstjóra.
Forstjóri ræður starfsmenn til stofnunarinnar.
6. gr. Hæfi.
Stjórnarmenn skulu búa yfir þekkingu á fjármagnsmarkaði og hafa haldgóða menntun sem nýtist á þessu sviði. Gæta skal þess við skipun stjórnar að starfsreynsla og menntun stjórnarmanna sé sem fjölbreyttust.
Forstjóri skal hafa menntun á háskólastigi og búa yfir víðtækri þekkingu og starfsreynslu á fjármagnsmarkaði.
Stjórnarmenn og forstjóri skulu vera lögráða og mega aldrei hafa verið sviptir forræði á búi sínu. Þeir skulu hafa óflekkað mannorð og mega ekki í tengslum við atvinnurekstur hafa hlotið dóm fyrir refsiverðan verknað samkvæmt almennum hegningarlögum eða lögum um hlutafélög, einkahlutafélög, bókhald, ársreikninga, gjaldþrot eða þeim sérlögum sem gilda um eftirlitsskylda aðila.
Stjórnarmenn, forstjóri og starfsmenn mega ekki vera stjórnendur, starfsmenn, endurskoðendur, lögmenn eða tryggingastærðfræðingar eftirlitsskyldra aðila.
Stjórnarmenn, forstjóri og starfsmenn skulu ekki taka þátt í meðferð máls er varðar viðskipti þeirra sjálfra eða fyrirtækja sem þeir eiga hlut í, sitja í stjórn hjá, eru fyrirsvarsmenn fyrir eða eiga að öðru leyti verulegra hagsmuna að gæta í og snerta hina eftirlitsskyldu aðila. Sama gildir um þátttöku í meðferð máls er varðar aðila sem eru þeim tengdir persónulega eða fjárhagslega.
Ráðherra setur reglur 1) um viðskipti stjórnarmanna, forstjóra og starfsmanna við eftirlitsskylda aðila. Þar skal meðal annars kveðið á um takmarkanir á heimildum til að vera í fjárhagslegum skuldbindingum gagnvart eftirlitsskyldum aðilum eða eiga hlut í þeim.
1) Rgl. 704/2001.
7. gr. Samráðsnefnd eftirlitsskyldra aðila.
Sérstök samráðsnefnd sem skipuð er fulltrúum eftirlitsskyldra aðila skal starfa í tengslum við stofnunina.
Stjórnendur Fjármálaeftirlitsins skulu eiga reglulega fundi með samráðsnefndinni. Samráðsnefndin hefur ekki ákvörðunarvald í málefnum Fjármálaeftirlitsins.
Nánar skal kveðið á um samráðsnefndina í reglugerð, 1) meðal annars um skipan hennar.
1)Rg. 562/2001.
III. kafli. Starfsemi.
8. gr. Eftirlit.
[Fjármálaeftirlitið skal fylgjast með að starfsemi eftirlitsskyldra aðila sé í samræmi við lög, reglugerðir, reglur eða samþykktir sem um starfsemina gilda og að starfsemin sé að öðru leyti í samræmi við heilbrigða og eðlilega viðskiptahætti.
Fjármálaeftirlitinu er heimilt að gefa út og birta opinberlega almenn leiðbeinandi tilmæli um starfsemi eftirlitsskyldra aðila, enda varði málefnið hóp eftirlitsskyldra aðila.
Ákvæði þessara laga eiga, eftir því sem við á, við um eftirlit Fjármálaeftirlitsins, athuganir þess og upplýsingaöflun samkvæmt ákvæðum sérlaga. Um starfsheimildir Fjármálaeftirlitsins fer að öðru leyti eftir ákvæðum sérlaga.] 1)
1)L. 11/2000, 2. gr.
9. gr. Athugun og aðgangur.
[Fjármálaeftirlitið skal athuga rekstur eftirlitsskyldra aðila svo oft sem þurfa þykir. Þeim er skylt að veita Fjármálaeftirlitinu aðgang að öllu bókhaldi sínu, fundargerðum, skjölum og öðrum gögnum í vörslu þeirra er varða starfsemina sem Fjármálaeftirlitið telur nauðsynlegan.
Vegna starfsemi sinnar getur Fjármálaeftirlitið gert vettvangskannanir eða óskað upplýsinga á þann hátt og svo oft sem það telur þörf á.
Fjármálaeftirlitinu er heimilt að skipa sérfræðing til að gera athugun á tilteknum þáttum í starfsemi eða rekstri eftirlitsskylds aðila eða til að hafa að öðru leyti sértækt eftirlit með eftirlitsskyldum aðila. Sérfræðingurinn skal skipaður til tiltekins tíma, ekki lengri en fjögurra vikna í senn. Á hann rétt á að hafa starfsstöð hjá hinum eftirlitsskylda aðila og skal honum veittur aðgangur að öllu bókhaldi, fundargerðum, skjölum og öðrum gögnum og upplýsingum sem eftirlitsskyldi aðilinn hefur í sinni vörslu og óskað er eftir. Sérfræðingurinn hefur rétt til að sitja fundi í stjórn eftirlitsskylds aðila sem áheyrnarfulltrúi með málfrelsi. Um þagnarskyldu hans fer skv. IV. kafla þessara laga. Eftirlitsskyldur aðili sem um ræðir skal bera kostnað af starfi sérfræðingsins, að hluta eða öllu leyti, eftir mati Fjármálaeftirlitsins.
Fjármálaeftirlitinu er heimilt að gera sérstakar athuganir á starfsstað og leggja hald á gögn í samræmi við ákvæði laga um meðferð opinberra mála, enda séu ríkar ástæður til að ætla að eftirlitsskyldur aðili hafi brotið gegn lögum eða reglum sem um viðkomandi starfsemi gilda eða ástæða er til að ætla að athuganir eða aðgerðir Fjármálaeftirlitsins nái að öðrum kosti ekki tilætluðum árangri. Skal ákvæðum laga um meðferð opinberra mála beitt við framkvæmd slíkra aðgerða.] 1)
1)L. 11/2000, 3. gr.
10. gr. Athugasemdir og úrbætur.
[Komi í ljós að eftirlitsskyldur aðili fylgir ekki lögum og öðrum reglum sem gilda um starfsemi hans skal Fjármálaeftirlitið krefjast þess að úr sé bætt innan hæfilegs frests.
Fjármálaeftirlitið skal gera athugasemdir ef það telur hag eða rekstur eftirlitsskylds aðila að öðru leyti óheilbrigðan og brjóta í bága við eðlilega viðskiptahætti, enda þótt ákvæði 1. mgr. eigi ekki við, og er jafnframt heimilt að krefjast þess að úr sé bætt innan hæfilegs frests.
Þegar svo stendur á sem greinir í 1. eða 2. mgr. getur Fjármálaeftirlitið boðað til fundar í stjórn eða framkvæmdastjórn hins eftirlitsskylda aðila til þess að fjalla um athugasemdir þess og kröfur og leiðir til úrbóta. Fulltrúa Fjármálaeftirlitsins er heimilt að stýra fundi og hefur hann málfrelsi og tillögurétt.] 1)
1)L. 11/2000, 4. gr.
[11. gr. Févíti og dagsektir.
Fjármálaeftirlitið getur lagt dagsektir á eftirlitsskyldan aðila veiti hann ekki umbeðnar upplýsingar eða sinni ekki kröfum um úrbætur innan hæfilegs frests. Greiðast þær þangað til farið hefur verið að kröfum Fjármálaeftirlitsins. Dagsektirnar geta numið frá 10.000 kr. til 1 millj. kr. á dag og er heimilt að ákveða þær sem hlutfall af tilteknum stærðum í rekstri hins eftirlitsskylda aðila. Við ákvörðun um fjárhæð dagsekta er heimilt að taka tillit til eðlis vanrækslu eða brots og fjárhagslegs styrkleika hins eftirlitsskylda aðila. Ákvarðanir um dagsektir skulu teknar af stjórn Fjármálaeftirlitsins.
Fjármálaeftirlitið getur lagt févíti á eftirlitsskyldan aðila sem brýtur gegn ákvörðunum sem teknar hafa verið af Fjármálaeftirlitinu. Til ákvarðana samkvæmt þessari grein teljast kröfur um úrbætur skv. 10. gr. Févíti getur numið frá 10.000 kr. til 2 millj. kr. Við ákvörðun um fjárhæð févítis skal tekið tillit til alvarleika brots og fjárhagslegs styrkleika hins eftirlitsskylda aðila. Ákvarðanir um févíti skulu teknar af stjórn Fjármálaeftirlitsins.
Ákvörðunum um févíti eða dagsektir má skjóta til kærunefndar samkvæmt lögum þessum innan sjö daga frá því að viðkomandi aðila var tilkynnt um ákvörðunina. Sé ákvörðun skotið til kærunefndar er ekki heimilt að innheimta févíti eða dagsektir fyrr en úrskurður hefur verið felldur.
Óinnheimtar dagsektir falla ekki niður þó að eftirlitsskyldur aðili verði síðar við kröfum Fjármálaeftirlitsins nema stjórn Fjármálaeftirlitsins ákveði það sérstaklega.
Févíti og dagsektir samkvæmt þessari grein eru aðfararhæf. Sama gildir um úrskurði kærunefndar.
Innheimt févíti og innheimtar dagsektir renna til ríkissjóðs að frádregnum kostnaði við innheimtuna.
Heimilt er að kveða nánar á um ákvörðun og innheimtu févítis og dagsekta í reglugerð. 1)] 2)
1)Rg. 560/2001. 2)L. 11/2000, 5. gr.
[12. gr. Tilkynningarskylda.
Ef brot eru alvarleg og hinn eftirlitsskyldi aðili hefur að mati Fjármálaeftirlitsins með refsiverðum hætti gerst brotlegur við lög ber Fjármálaeftirlitinu að greina ríkislögreglustjóra frá þeim.
Kröfur, athugasemdir og fyrirhugaðar aðgerðir Fjármálaeftirlitsins skv. 4. mgr. 9. gr., 11. gr. og 1. mgr. þessarar greinar skulu þegar í stað tilkynntar viðskiptaráðherra, þeim ráðherra sem annars fer með viðkomandi málaflokk og stjórn hins eftirlitsskylda aðila eða viðkomandi aðila ef stjórn er ekki til að dreifa.] 1)
1)L. 11/2000, 5. gr.
IV. kafli. Þagnarskylda. Samskipti við eftirlitsstjórnvöld og Seðlabanka Íslands.
[13. gr.]1) Þagnarskylda.
[Stjórn, forstjóri og starfsmenn Fjármálaeftirlitsins eru bundnir þagnarskyldu. Þeir mega ekki að viðlagðri ábyrgð samkvæmt ákvæðum almennra hegningarlaga um opinbera starfsmenn skýra óviðkomandi aðilum frá því er þeir komast að í starfi sínu og leynt á að fara um starfsemi Fjármálaeftirlitsins, viðskipti og rekstur eftirlitsskyldra aðila, tengdra aðila eða annarra, nema dómari úrskurði að upplýsingar sé skylt að veita fyrir dómi eða lögreglu eða skylda sé að veita upplýsingar lögum samkvæmt. Sama gildir um lögmenn, endurskoðendur, tryggingastærðfræðinga og sérfræðinga sem starfa fyrir eða á vegum Fjármálaeftirlitsins. Þagnarskyldan helst þótt látið sé af starfi og er óheimilt að nýta í atvinnuskyni upplýsingar sem bundnar eru þagnarskyldu.
Upplýsingar sem háðar eru þagnarskyldu samkvæmt lögum sem gilda um eftirlitsskylda aðila eru háðar sambærilegri þagnarskyldu þegar þær hafa verið afhentar Fjármálaeftirlitinu.
Upplýsingar skv. 1. mgr. má veita í samandregnu formi þannig að einstakir eftirlitsskyldir aðilar séu ekki auðkenndir.
Þegar eftirlitsskyldur aðili er gjaldþrota eða þvinguð slit fara fram er heimilt við rekstur einkamála að upplýsa um atriði sem þagnarskylda gildir annars um skv. 1. mgr. Þagnarskyldan gildir þó um upplýsingar sem varða þriðja aðila sem á hlut að björgunaraðgerðum vegna eftirlitsskylds aðila.
Opinber umfjöllun af hálfu þess aðila sem þagnarskyldunni er ætlað að vernda um trúnaðarupplýsingar veitir starfsmönnum Fjármálaeftirlitsins eða sérfræðingum sem starfa eða starfað hafa á vegum þess ekki heimild til að láta af hendi trúnaðarupplýsingar.] 2)
1)L. 11/2000, 5. gr. 2)L. 11/2000, 6. gr.
[14. gr.]1) Samskipti við eftirlitsstjórnvöld.
[Fjármálaeftirlitið má veita eftirlitsstjórnvöldum annarra aðildarríkja EES-samningsins upplýsingar sem háðar eru þagnarskyldu skv. 13. gr. sé það liður í samstarfi ríkjanna um eftirlit með starfsemi eftirlitsskyldra aðila og slík upplýsingagjöf sé gagnleg til að unnt sé að framfylgja lögmæltu eftirliti. Slíkar upplýsingar má einungis veita með því skilyrði að um þær gildi þagnarskylda í hlutaðeigandi ríki. Þagnarskylda skv. 1. mgr. 13. gr. gildir um hliðstæðar upplýsingar sem Fjármálaeftirlitið fær frá eftirlitsstjórnvöldum annarra aðildarríkja.
Semja má við eftirlitsstjórnvöld ríkja utan Evrópska efnahagssvæðisins um skipti á upplýsingum, en þó því aðeins að gætt sé þagnarskyldu í samræmi við ákvæði þessarar greinar. Ákvæði 1. mgr. gilda um skipti á upplýsingum við stjórnvöld hér á landi eða erlendis sem fjalla um gjaldþrot og slit eftirlitsskyldra aðila, eftirlit með þeim sem framkvæma endurskoðun hjá þeim eða tryggingastærðfræðilegar úttektir. Sama gildir um þá sem eftirlit hafa með þessum aðilum. Í því skyni að stuðla að stöðugleika og öryggi á fjármálasviði skulu upplýsingaskipti einnig heimil milli eftirlitsstjórnvalda og stjórnvalda og aðila sem starfa að því að rannsaka brot á félagarétti.
Séu upplýsingarnar upprunnar í öðru aðildarríki EES-samningsins er ekki heimilt að afhenda þær án skýlauss samþykkis frá lögbærum yfirvöldum sem hafa afhent þær og þá einungis til þeirra nota sem sömu yfirvöld hafa gefið samþykki fyrir.] 2)
1)L. 11/2000, 5. gr. 2)L. 11/2000, 7. gr.
[15. gr.]1) Samskipti við Seðlabanka Íslands.
Forstjóri Fjármálaeftirlitsins skal eiga reglulega samráðsfundi með fulltrúum Seðlabankans. Þar skal hann veita upplýsingar um starfsemi Fjármálaeftirlitsins sem nauðsynlegar eru starfsemi Seðlabankans.
Fjármálaeftirlitið skal veita Seðlabankanum allar upplýsingar sem stofnunin býr yfir og nýtast í starfsemi bankans. Komi í ljós grunsemdir um bresti í fjárhagslegri stöðu eftirlitsskyldra aðila, sem eru í viðskiptum við Seðlabankann, skal Fjármálaeftirlitið tafarlaust gera bankastjórn Seðlabankans viðvart.
Upplýsingar sem veittar eru samkvæmt þessari grein eru háðar þagnarskyldu samkvæmt þessum lögum og lögum um Seðlabanka Íslands.
Stjórn Fjármálaeftirlitsins og bankastjórn Seðlabankans skulu gera sérstakan samstarfssamning þar sem kveðið er nánar á um framkvæmd þessarar greinar.
1)L. 11/2000, 5. gr.
V. kafli. Ýmis ákvæði.
[16. gr.]1) Skýrslugjöf.
[Fjármálaeftirlitið skal gefa viðskiptaráðherra skýrslu um starfsemi sína fyrir 15. september ár hvert. Í framhaldi af því gerir viðskiptaráðherra Alþingi grein fyrir starfsemi Fjármálaeftirlitsins.] 2)
1)L. 11/2000, 5. gr. 2)L. 11/2000, 8. gr.
[17. gr.]1) Greiðsla eftirlitskostnaðar.
[Eftirlitsskyldir aðilar skulu standa straum af kostnaði við rekstur Fjármálaeftirlitsins. Um greiðslu kostnaðar fer samkvæmt lögum um greiðslu kostnaðar við opinbert eftirlit með fjármálastarfsemi.] 2)
1)L. 11/2000, 5. gr. 2)L. 99/1999, 9. gr.
[18. gr.]1) Kærunefnd.
[Ákvörðunum Fjármálaeftirlitsins má skjóta til sérstakrar kærunefndar.
Kærunefndin er skipuð af viðskiptaráðherra til þriggja ára í senn. Nefndarmenn skulu vera þrír. Hæstiréttur tilnefnir nefndarmenn og formann nefndarinnar. Varamenn skulu vera jafnmargir og skipaðir á sama hátt.
Nefndinni er heimilt að kveðja sér til ráðuneytis sérfróða aðila við úrskurð einstakra mála.
Kostnaður við störf kærunefndar greiðist úr ríkissjóði. Þóknun til nefndarmanna er ákveðin af viðskiptaráðherra.
Úrskurður kærunefndar skal liggja fyrir innan átta vikna frá því að kæra berst henni. Úrskurðum nefndarinnar verður ekki skotið til viðskiptaráðherra.
Viðskiptaráðherra getur með reglugerð 2) sett nánari ákvæði um störf og starfshætti nefndarinnar. Í slíkri reglugerð má jafnframt kveða nánar á um valdsvið kærunefndar, hvaða málefnum megi skjóta til hennar og kærufresti.] 3)
1)L. 11/2000, 5. gr. 2)Rg. 507/2000. 3)L. 11/2000, 9. gr.
[19. gr.]1) Reglugerð.
Ráðherra setur nánari ákvæði um starfsemi Fjármálaeftirlitsins í reglugerð. 2) Þar skal m.a. kveðið á um ákvörðun og innheimtu dagsekta.
1)L. 11/2000, 5. gr. 2)Rg. 560/2001.
[20. gr.]1) Viðurlög.
Fyrir brot á lögum þessum skal refsað með sektum eða fangelsi allt að einu ári liggi ekki þyngri refsing við broti samkvæmt öðrum lögum.
1)L. 11/2000, 5. gr.
[21. gr.]1) Gildistaka o.fl.
Lög þessi öðlast gildi 1. janúar 1999. Á sama tíma leggst starfsemi Vátryggingaeftirlitsins og bankaeftirlits Seðlabanka Íslands niður.
Starfsmenn Vátryggingaeftirlitsins og bankaeftirlits Seðlabanka Íslands sem eru í starfi við gildistöku laganna skulu eiga rétt á starfi hjá Fjármálaeftirlitinu og halda óbreyttum launakjörum sínum og aðild að stéttarfélagi.
Ráðherra skal gangast fyrir endurskoðun á ákvæðum 16. gr. fyrir 1. janúar árið 2002.
Fjármálaeftirlitið fer með þau verkefni sem Vátryggingaeftirlitinu og bankaeftirliti Seðlabanka Íslands eru falin samkvæmt öðrum lögum.
1)L. 11/2000, 5. gr.