Athugið að þetta er ekki nýjasta útgáfa lagasafns.
Athugið að þetta er ekki nýjasta útgáfa lagasafns.
Lagasafn. Íslensk lög 1. janúar 2007. Útgáfa 133b. Prenta í tveimur dálkum.
Lög um opinberan stuðning við tækniþróun og nýsköpun í þágu atvinnulífsins1)
2003 nr. 4 3. febrúar
1)Falla úr gildi 1. ágúst 2007 skv. l. 75/2007, 16. gr.
Ferill málsins á Alþingi. Frumvarp til laga.
Tóku gildi 7. febrúar 2003.
a. eiga frumkvæði að samstarfi þeirra opinberu aðila sem mynda stoðkerfi nýsköpunar fyrir atvinnulífið,
b. móta sértæk stuðningsverkefni sem stuðla að bættum rekstri lítilla og meðalstórra fyrirtækja og framgangi nýrra viðskiptahugmynda sem spretta af hugkvæmni einstaklinga eða rannsóknum og þróunarstarfi háskóla, stofnana og fyrirtækja,
c. starfrækja frumkvöðlasetur til að styðja framgang nýrra hugmynda í samræmi við reglur sem iðnaðarráðherra samþykkir,
d. annast miðlun hvers konar hagnýtrar þekkingar um stofnun og rekstur fyrirtækja,
e. vera tengiliður við þá sem stunda grunnrannsóknir og hagnýtar rannsóknir er leitt geta til nýsköpunar í atvinnulífinu,
f. miðla þekkingu um innlendar og erlendar tækninýjungar og aðgerðir sem auka framleiðni,
g. beita sér fyrir hagnýtingu vísindalegrar þekkingar,
h. aðstoða við öflun framtaksfjármagns til verkefna sem stuðla að nýsköpun og aukinni verðmætasköpun í íslensku atvinnulífi,
i. eiga aðild að sprotafyrirtækjum sem stofnunin hefur tekið þátt í að þróa,
j. annast samstarf við innlendar og erlendar stofnanir sem gegna sambærilegu hlutverki vegna samstarfsverkefna og miðlunar þekkingar í samræmi við markmið 1. gr.,
k. sinna öðrum verkefnum sem iðnaðarráðherra felur henni.
a. styrkja tækniþróun og tengdar rannsóknir í þágu nýsköpunar atvinnulífsins, m.a. í samstarfi við stofnanir, háskóla og fyrirtæki,
b. styrkja uppbyggingu sprotafyrirtækja og eiga aðild að þeim á frumstigi nýsköpunar,
c. fjármagna átaksverkefni og markáætlanir á einstökum tæknisviðum til að treysta tæknilegar undirstöður atvinnuveganna, einstakar greinar þeirra eða þvert á greinaskiptingu þeirra,
d. styrkja lítil verkefni á vegum einstaklinga og smáfyrirtækja sem eru líkleg til að verða atvinnu- og tekjuskapandi og arðbær þrátt fyrir áhættu í upphafi,
e. kosta greiningu á stöðu nýsköpunar og gerð áætlana til styrktar henni.
a. fjárveitingar í fjárlögum ár hvert,
b. tekjur af sölu hlutdeildar í sprotafyrirtækjum sem sjóðurinn hefur eignast aðild að,
c. framlög frá innlendum og erlendum samstarfsaðilum,
d. önnur framlög.
a. formanni tækninefndar Vísinda- og tækniráðs og öðrum úr ráðinu til vara,
b. einum samkvæmt tilnefningu tækninefndar Vísinda- og tækniráðs og einum til vara; skulu þeir ekki eiga sæti í nefndinni,
c. einum samkvæmt tilnefningu landbúnaðarráðherra og einum til vara,
d. einum samkvæmt tilnefningu sjávarútvegsráðherra og einum til vara,
e. einum samkvæmt tilnefningu rannsóknastofnana atvinnulífsins og einum til vara,
f. einum samkvæmt tilnefningu Samtaka iðnaðarins og einum til vara,
g. einum án tilnefningar.